Þjóðviljinn - 22.10.1986, Blaðsíða 15
IÞROTTIR
Úrvalsdeildin
Tæpt hjá
KR-ingum
Evrópukeppnin
Arnór ogfélagar mœta vœngbrotnu liði Steaua í kvöld.
Asgeir íMoskvu ogAtli gegn Lodz. Meiðsli hjá Real og Juventus
Guðjón Skúlason átti góðan leik með Keflvíkingum í gær en það dugði ekki.
Mynd: E.ÓI.
Þjálfarafundur
Mest um
ísland
„Við töluðum að sjálfsögðu
mikið um leikinn I Osló og viður-
eign Frakka og Sovétmanna, en
þó langmest um árangur íslenska
landsliðsins," sagði Bernd
Stange, landsliðsþjáifari Austur-
Þýskalands í knattspyrnu, í sam-
tali við austur-þýska blaðið
Sportecho í síðustu viku. Hann
sagði þar frá viðræðum sínum við
Sigfried Held, landsliðsþjálfara
íslands og Tor-Röste Fossen,
landsliðsþjálfara Noregs, er þeir
þrír hittust í Leipzig fyrir
skömmu.
„Held, þjálfari íslands, sagði
að íþróttaáhugamenn á eyjunni
væru í sjöunda himni yfir
jafnteflunum við Frakkland og
Sovétríkin. íslensku leikmenn-
irnir væru í góðri æfingu og vel
undir leikinn í Karl-Marx-Stadt
búnir. Þeir myndu freista þess af
öllum mætti að koma á óvart í
þriðja sinn í Evrópukeppninni,“
sagði Stange.
Austur-Þýskaland og ísland
mætast sem kunnugt er í Evrópu-
keppni landsliða eftir viku, í
Karl-Marx-Stadt næsta miðviícu-
dag. Það sést á skrifum í Sportec-
ho að Austur-Þjóðverjar eru
nokkuð kvíðnir, enda hafa þeir
ekki náð að sigra í síðustu 7 lands-
leikjum sínum og sjálfstraustið er
því ekki mikið. Þeir gerðu 0-0
jafntefli gegn Norðmönnum í
Osló í fyrsta leik sínum í keppn-
inni og sluppu vel með þau úrslit.
-VS
,,Ef við sigrum ekki Steaua nú
gerum við það aldrei,“ sagði
Martin Lippens, þjálfari belgísku
meistaranna Anderlecht, í gær.
Arnór Guðjohnsen og félagar
leika í kvöld fyrri leik sinn við
Evrópumeistarana Steaua
(Stjörnuna) frá Rúmeníu á
heimavelli sínum í Brussel.
Steaua bar sigurorð af Ander-
lecht í undanúrslitum keppninnar
í fyrra. Anderlecht vann fyrri
leikinn 1-0 en Steaua þann seinni
í Búkarest 3-0. Sigurlíkur Ander-
lecht í kvöld eru miklar því þrír
lykilmanna Steaua eru í
leikbanni, auk þess sem mark-
vörðurinn snjalli Helmut Duca-
dam hefur orðið að hætta að leika
knattspyrnu vegna meiðsla sem
hann varð fyrir í bílslysi í sumar.
En Steaua hefur unnið 8 af fyrstu
9 leikjum sínum í rúmensku 1.
deildinni og Anderlecht á mjög
erfiðan leik fyrir höndum í Búka-
rest eftir hálfan mánuð, hvernig
svo sem fer í kvöld.
Ásgeir Sigurvinsson og Atli
Eðvaldsson eiga einnig erfiða
leiki fyrir höndum í kvöld. Stutt-
gart leikur við Torpedo í Moskvu
og þátttaka Ásgeirs þar hangir á
bláþræði vegna meiðsla sem hann
á við að stríða. Atli og félagar í
1X2...1X2...1X2... 1X2... 1X2...
í 9. leikviku komu fram 60 raðir með 12 réttum leikjum og er vinning-
ur fyrir hverja röð 17,190 krónur. Með 11 rétta voru 1,083 og vinningur
þar er 408 krónur á röð. Vinningspotturinn var alls 1,473,616 krónur og
knattspyrnudeild Fram var söluhæsti aðili. Spá fyrir 10. leikviku er
þessi:
Arsenal-Chelsea
Aston Villa-Newcastle
Everton-Watford
Leicester-Southampton
Luton-Liverpool
Manch.City-Manch.Utd
Oxford-Nottm.Forest
Q.P.R.-Tottenham
Sheff. Wed. -Coventry
West Ham-Charlton
Wimbledon-Norwich
Sunderland-Birmingham
Bylgjan tók forystu í fjölmiðlakeppninni en af persónulegum ástæðum
er gengi annarra ekki tiundað hér.
Uerdingen leika á heimavelli við
Widzew Lodz frá Póllandi.
Stórleikur kvöldsins er þó tví-
mælalaust viðureign Real Madrid
og Juventus í Madríd en þar.eru á
ferð tvö af alfrægustu og bestu
knattspyrnuliðum heims. Óvíst
er að Michael Laudrup geti leikið
með Juventus vegna meiðsla og
heimsmeistararnir frá 1982, Ga-
etano Scirea og Antonio Cabrini,
eru einnig meiddir en leika þó
líklega með. Fjórir sterkir leik-
menn hjá Real eru meiddir, þar á
meðal Ántonio Maceda og Car-
los Santillana sem hvorugur getur
leikið. En stjörnuflóðið í liðun-
um er samt nægilegt til þess að
búast má við líflegum leik.
Aðrir mjög áhugaverðir leikir í
kvöld eru viðureign Celtic og Di-
namo Kiev í Evrópukeppni
meistaraliða, Benfica og Borde-
aux í keppni bikarhafa og Barce-
lona og Sporting Lissabon í
UEFA-bikarnum. -VS/Reuter
Michael Laudrup gæti misst af
stórleiknum við Real Madrid í kvöld.
Handbolti
„Ovenjulegar aðstæður“
Handknattleikssamband Islands
hefur sent frá sér eftirfarandi greina.
gerð vegna leiks KR og Fram sem
frestað var vegna leiðtogafundarins
um fyrri helgi en Hans Guðmundsson
úr KR var að. störfum þar sem lög-
reglumaður:
Ljóst er að ekki var farið að
ákvæðum 12. greinar Reglugerðar
HSÍ um handknattleiksmót þar sem
kveðið er á um hvernig staðið skuli að
frestun leikja. Ástæða þess er fyrst og
fremst óvenjulegar aðstæður sem
ríkjandi voru vegna leiðtogafundar
stórveldanna f Reykjavík en vegna
fundarins voru allir lögreglumenn
kvaddir til starfa og gátu ekki fengið
sig lausa úr vinnu. Búið var að ákveða
frestun annars leiks í 1. deildinni af
þessum ástæðum en aðilar sem þar
áttu hlut að máli höfðu lagt fram
frestunarbeiðni langtum fyrr. Beiðni
um frestun leiks KR og Fram kom
með mjög stuttum fyrirvara og var
hún samþykkt vegna hinna óvenju-
legu aðstæðna. Við boðun á frestun
var því ekki farið að reglugerð HSÍ en
ákvörðun var tekin í góðri trú um að
málsaðilar myndu meta hinar óvenju-
legu kringumstæður.
Mótanefnd HSÍ og stjórn þykir
miður að mál skyldu þróast á þann
veg sem orðið er og gerir sér fulla
grein fyrir að aðilar sem þarna áttu
hlut að máli urðu fyrir verulegum
óþægindum, svo og þeir áhorfendur
sem komnir voru til að horfa á
leikinn. Það hefur verið og er stefna
mótancfndar að hvika sem minnst frá
áætlun sinni um mótahald og ekki
nema að fullgildar ástæður komi til.
Það var mat formanns mótanefndar
að ástæða væri til staðar í þessu tilviki
og ákvörðun tekin í samræmi við það.
Vill mótanefnd biðja þá er fyriróþæg-
indum urðu afsökunar og vonar að til
slíkra árekstra þurfi ekki að koma í
framtíðinni. Er það mótanefnd og
stjórn HSÍ ekki síður kappsmál en
félögunum að mótahaldið geti gengið
vel og snurðulaust fyrir sig.
Stjórn HSÍ hefur átt viðræður við
forsvarsmenn handknattleiksdeildar
Fram sem fallist hafa á að draga kæru
sína til baka en halda hinsvegar við þá
skoðun sína að ekki hafi verið löglega
að málum staðið og telja að HSl eigi
að greiða sannanlegan kostnað vegna
auglýsinga leiksins. Hefur verið
ákveðið að setja leik KR og Fram á
við fyrsta tækifæri og í samráði við
félögin.
Mi&vikudagur 22. október 1986 þjóðVILJINN - SÍÐA 15
Lokamínúturnar í leik KR-
inga og Keflvíkinga voru svo
sannarlega spennandi.
Keflvíkingar voru búnir að vinna
niður forskot KR-inga, en KR-
ingar náðu að halda fengnum hlut
og sigruðu 66-62. Staðan í hálf-
leik var 36-27, KR í hag.
KR-ingar voru sterkari framan
af, en þegar líða tók á leikinn
tóku Keflvíkingar við sér. Fyrri
hálfleikurinn var nokkuð rólegur
og jafnræði með liðunum. KR-
ingar þó alltaf með nokkurra
stiga forskot.
I síðari hálfleik var leikurinn
mun hraðari og á köflum mjög
skemmtilegur á að horfa.
Keflvíkingar söxuðu jafnt og þétt
á forskotið, en nýttu ekki færin
nógu vel í lokin.
KR-ingar áttu góðan Ieik.
Sóknarleikurinn var hraður og
Hagaskóli 21. október
KR-ÍBK 66-62 (36-27)
6-2, 16-10, 27-15, 33-23, 36-27, 48-
45, 56-47, 62-59, 64-60,66-60, 66-62.
Stig KR: Guðni Guðnason 21,
Garðar Jóhannsson 14, Ástþór Inga-
son 9, Matthías Einarsson 8, Ólafur
Guðmundson 6, Guðmundur Jóhann-
esson 4, Þorsteinn Gunnarsson 2 og
Skúli Thorarensen 2.
Stig IBK: Guðjón Skúlason 17, Gylfi
Þorkelsson 14, Sigurður Ingimundar-
son 8, Jón Kr. Gíslason 7, Hreinn Þork-
elsson 6, Ólafur Gottskálksson 6, Fal-
ur Harðarson 2 og Matti Stefánsson 2.
Dómarar: Kristinn Albertsson og
Jóhann Dagur - slakir.
Maður leiksins: Guðni Guðnason,
KR.
vörnin á köflum mjög sterk.
Guðni Guðnason var mjög góður
og hitti vel. Matthías Einarsson,
Ástþór Ingason og Garðar Jó-
hannesson áttu einnig góðan leik.
Hjá Keflvíkingum bar mest á
Guðjóni Skúlasyni, sem átti mjög
góðan leik. Þá voru bræðurnir
Gylfi og Hreinn góðir í sókninni
og Jón Kr. Gíslason í vörninni.
Sókn Keflvíkinga var ekki nógu
sterk. Þeir fengu mikið af tæki-
færum á lokamínútunum sem
þeim gekk illa að nýta.
Leikinn dæmdu þeir Jóhann
Dagur og Kristinn Albertsson og
byrjuðu þeir mjög vel, en þegar
líða tók á leikinn fóru þeir að mis-
sa tök á honum.
-Ibe.
England
Portsmouth
á toppinn
Staðan í 2. deildinni í Englandi
breyttist töluvert í gær. Portsmo-
uth er nú efst eftir sigur á Derby
3-1.
Plymouth sigraði Ipswich 2-0
og komst þarmeð í 4. sæti og
Sunderland gerði jafntefli við
Reading, 1-1. Þá mjakaði Hudd-
ersfield sér af botni deildarinnar
með sigri á Shrewsbury 2-1.
-Ibe/Reuter.
,Jlú eða akkei!“