Þjóðviljinn - 22.10.1986, Síða 5
Pingsályktun
Gróðahyggjan undir smásjá
Pingmannanefnd kanni afleiðingar markaðshyggju ríkisstjórnarinnar
Svavar Gestsson og Ragnar
Arnalds hafa lagt fram tillögu á
alþingi um skipun 9 manna
nefndar sem kanni afleiðingar af
þeirri óheftu markaðs- og gróða-
hyggju sem ríkisstjórn Steingríms
Hermannssonar hefur byggt
stefnu sína á.
„Ljóst er að markaðshyggjan -
auðhyggjan - hefur sett svip sinn
á allt þjóðfélagið í sívaxandi
mæli,“ segir í tillögunni. „Ekki
aðeins verslunarálagningu og
vaxtaokur, heldur hefur stefnan
einnig komið fram í öllu lífi fjöl-
skyldnanna, lélegum kaupmætti
launa, byggðaröskun og land-
flótta, öryggisleysi í skólakerfinu
og vannýtingu heilbrigðisstofn-
ana langtímum saman.“
Nefndinni er ætlað að leita
svara við því ma. hversu mörg
nauðungaruppboð á íbúðarhús-
næði hafa farið fram frá l.janúar
s.l., - hve mörg bú hafa verið lýst
gjaldþrota frá sama tíma, - hve
mörg rúm á sjúkra- og öldrunar-
stofnunum hafa verið ónotuð og
hve lengi vegna skorts á starfsliði,
- og hve lengi barnaheimili eða
einstakar deildir þeirra hafa lok-
ast vegna sömu ástæðna.
Þá skal nefndin kanna niður-
skurð á framlögum til menning-
armála, Framkvæmdasjóðs fatl-
aðra og framkvæmda í heil-
brigðismálum allt frá 1983.
Vaxtahækkunin skal einnig sett
undir smásjá. Spurt er hverjir
hafi einkum aukið eignir sínar á
undanförnum árum, hver
byggðaröskunin í landinu hafi
verið, hve mörgum frystihúsum
hafi verið lokað og hverju skuldir
sjávarútvegsfyrirtækja nemi.
Að lokum skal nefndin leita
svara við því hve margir opinber-
ir starfsmenn hafa sagt upp störf-
um og hve langan tíma sbr.
sjúkraliðar, hvernig kaupmáttur
kauptaxta hefur þróast frá janúar
1983-janúar 1986 og hvernig vinn-
utími hefur þróast á tímabilinu.
Ætlast er til þess að nefndin starfi
svo hratt að hún geti skilað áliti í
Úr kaffistofu Alþingis, horft út eftir „kommaboröinu". Frá v. nýkratinn Stefán Benediktsson, Friðrik Sophusson varaform. Sjálfstæðisflokks-
ins. Fyrir miðju situr Guðmundur J. Guðmundsson og honum til hægri handar Hjörleifur Guttormsson og Guðrún Helgadóttir. Sitthvoru megin við borðsend-
ann standa þeir Björn Dagbjartsson og Garðar Sigurðsson íbyggnir á svip. Mynd E.ÓI.
Ríkisjatan
Hannes Hólmsteinn
á fastan spena
Sverrir plantar óskabarninu ífélagsvísindadeild
Spurtum...
...viðskipti við herinn
Svavar Gestsson spyr utanrík-
isráðherra hvaða íslensk fyrir-
tæki hafi viðskipti við bandaríska
herinn hér á landi og biður um
lista yfir 50 stærstu fyrirtækin og
viðskipti þeirra sl. tvö ár. Þá spyr
Svavar hversu mikil gjaldeyris-
skil hafi verið vegna viðskipta við
herinn sl. 3 ár og óskar eftir skrif-
legu svari.
...Búseta
Jóhanna Sigurðardóttir spyr fé-
lagsmálaráðherra hvort félags-
málaráðuneyti og fjármálaráðu-
neyti hafi komist að sameigin-
legri niðurstöðu um rétt félags-
manna í Búseta til að stofna hús-
næðissparnaðarreikninga sam-
kvæmt ákvæðum laga nr. 49/
1985.
...erfðafjárskatt
Helgi Seljan spyr fjármála-
ráðherra hvaða tekjur hafi orðið
af erfðafjárskatti á árinu 1985
umfram þær 25 miljónir sem
runnu í Framkvæmdasjóð fatl-
aðra á því ári.
í fjárlagafrumvarpi fyrir næsta
ár er gert ráð fyrir nýrri og óum-
beðinni stöðu í félagsvísindadeild
Háskólans, - stöðu lektors í
stjórnmálaheimspeki. Næsta
augljóst er að þar með verður
hinn nýbakaði ríkisstarfsmaður
og rannsóknalektor í sagnfræði,
Hannes Hólmsteinn Gissurarson,
komin á fast í hinu eftirsótta rtkis-
kerfl.
Svo virðist sem ríkisstarfs-
maðurinn Hannes Hólmsteinn sé
ekki nógu öruggur með sig í stöðu
rannsóknalektorsins, - þetta er
ný staða sem ekki var auglýst og
sætti mikilli gagnrýni. Það er
aldrei að vita hvernig ráðherrar
framtíðarinnar kunna að beita
hnífnum gegn þvíumlíku. Það er
nefnilega ekki rétt sem frjáls-
hyggjumennirnir hafa predikað
að rikisstarfsmenn séu ráðnir til
eilífðarnóns. Því er eins gott að
áætla fyrir nýja og fasta stöðu
fyrir ríkisstarfsmanninn, - stöðu
lektors í stjórnmálaheimspeki,
en Hannes er einn um það hér á
landi að leggja stund á þessa
fræðigrein. Umsóknir um þá
stöðu verða því vart margar.
Nú er það að vísu svo að félags-
vísindadeild hefur aldrei óskað
eftir stöðu í þessari grein, enda
hefur hún aldrei verið kennd þar,
heldur í heimspekideild. Deildin
hefur hins vegar lengi óskað eftir
öðrum nýjum stöðum, nú síðast
eftir þremur og fékk eina af þeim
- dósentstöðu í aðferðarfræði.
Hinum tveimur var hafnað en ný
staða og óumbeðin færð deildinni
með Hannesi á silfurfati. Hinu
bíða menn spenntir eftir hver
verður arftaki hans í
rannsóknarlektoratinu.
-ÁI.
Miðvikudagur 22. október 1986 ÞJÓÐVILJINN - SIÐA 5
tæka tíð fyrir næstu alþingiskosn-
ingar.
-ÁI.
Kosninga-
skjálfti
Framsóknarmenn reyna nú
hver sem bctur getur að afneita
einstaka liðum í fjárlagafrum-
varpi Þorsteins Pálssonar. Stefán
Valgeirsson segir í Degi í gær að
hann hyggist ekki styðja frum-
varpið vegna niðurskurðar á
hafnarframkvæmdum og þrír
þingmenn flokksins í efri deild
höfnuðu í gær tillögum fjármála-
ráðherra um niðurskurð á fram-
lögum til ríkisútvarpsins, að ekki
sé talað um hugmyndir hans um
að selja Rás II, sem þeir taka ekki
í mál.
Helgi Seljan fagnaði þessum
kosningaskjálfta Framsóknar-
manna við umræður um lánsfjár-
lög í efri deild í gær. Hann sagði
að Framsóknarmenn hefðu verið
orðnir svo samdauna íhaldinu að
erfitt hefði verið að átta sig á því
hver væri hver í þeim hópi. Til-
burðir þeirra nú lofuðu því góðu.
Haraldur Ólafsson gagnrýndi
afstöðu Þorsteins til ríkisútvarps-
ins harðlega og sagði fráleitt að
selja ríkisstofnun sem kostaði,
ekki grænan eyri, en Rásin skilar
hagnaði sem kunnugt er. Jón
Kristjánsson og Davíð Aðal-
steinsson tóku í sama streng og
krafðist Jón þess að lokið yrði við
að leggja dreifikerfi Rásarinnar
um allt land eins og lög byðu.
-ÁI.
Þorsteinn fær
120 miljónir
Fjármálaráðherra fær á næsta
ári heimild til að greiða 120 milj-
ónir króna úr ríkissjóði m.a.
vegna nauðsynlegra húsakaupa
fyrir ríkisstofnanir.
Þessi heimild hefur árlega ver-
ið veitt vegna uppgjöra af ýmsu
tagi, vegna húsakaupa og bóta-
greiðslna, svo sem búfjársjúk-
dóma. Heimildin í ár var ekki
nema 28,6 miljónir og er skýring-
in á þessari margföldun fjárhæð-
arinnar nú væntanleg húsakaup
fyrir ríkisstofnanir. í greinargerð
með fjárlagafrumvarpi er bent á
að leitað hafi verið leiguhúsnæðis
fyrir t.a.m. Verðlagsstofnun,
Lyfjanefnd, skipulagsstjóra,
Hollustuvernd ríkisins og Hús-
næðisstofnun ríkisins. Viðunandi
leigukjör hafi ekki boðist. Þá er
bent á að nokkur ráðuneytanna
eru í dýru leiguhúsnæði og leigu-
samningur fyrir húsnæði Hag-
stofunnar rennur senn út.
5,5 miljónum verður veitt til
Víðishússins og er ætlað til að
ljúka ýmsum frágangi utanhúss.
Þá eru 17 miljónir ætlaðar í
stjórnsýsluhúsið á ísafirði, sem
ætlað er að hýsa m.a. skrifstofu
fógeta, skattstofu, lögreglustöð
og fulltrúa verðlagsstjóra.