Þjóðviljinn - 22.10.1986, Side 9
VtÐHORF
Rödd að austan
Sverrir Haraldsson skrifar
Ég var að hlusta á stjórnmálaá-
lyktanir nýafstaðins flokksþings
Alþýðuflokksins, sem þuldar
voru í útvarpinu.
Þar var margt fallegt að heyra,
enda oft ólík fyrirheit og efndir,
og allur þótti mér málflutningur-
inn einkennast af stórum orðum,
fullyrðingum og glamri, ekki
lausan við andlegan óþef og bera
ættarmót flokksformannsins.
Annars má segja, að Alþýðu-
flokkurinn geti verið tiltölulega
ánægður þessa síðustu dagana,
þegar þingmenn Bandalags jafn-
aðrmanna hafa stungið skottinu
milli fóta sér og skriðið skömm-
ustulegir aftur heim til föðurhús-
anna og jafnvel einn þeirra ekki
hnnt á flóttanum fyrr en í herbúð-
um Sjálfstæðisflokksins, og
minnt einna helst á hunda, sem
stungu af frá húsbændum sínum
og hugðust lifa í sjálfsmennsku,
en gáfust upp og læddust aftur
heim, skömmustulegir og iðr-
andi. Enda hefur þessi blessaði
flokkur verið algerlega höfuðlaus
her síðan hinn mæta og hugsjón-
aríka stofnanda hans leið. En
naumast má kalla þessa uppgjöf
Bandalagsins annað en svívirð-
ingu við minningu Vilmundur
heitins Gylfasonar.
Já, nú á að bæta og breyta, þeg-
ar hinn „stóri“ Alþýðuflokkur
sest að völdum, nema í einu stór-
AFMÆLIS-
ÞJÓÐVILJANS
Gefum Þjóðviljanum afmælisgjöf!
Greiðið happdrættismiðana sem
fyrst!
Gleymið ekki gíróseðlunum!
Blaðið okkarþarfá þínum stuðningi að halda
Dregið eftir 9 daga
3i-pwiyili
1 Afmæiishappdrætti
þlóÐViUi^
oi »i
] tappdrættlsmlöi í ,Vr 12023 ! MkLivciö kr. 150 Upplýsingar i sima 681333 Drtgid 31. októbtr im "<:4 4' <4»* ***’ i
,yAnnars má segja að Álþýðuflokkurinn
geti verið tiltölulega ánœgður þessa
síðustu daga, þegar þingmenn
Bandalags jafnaðarmanna hafa stungið
skottinu á millifótanna ogskriðið
skömmustulegir aftur heim... “
máli. Þar skal allt verða sém áður
og á ég þar við utanríkismálin.
Pau skulu óbreytt. Samþykkt
skal áframhaldandi dvöl erlends
setuliðs í landinu. Enn sem fyrr
skal seta bandaríska leikarahers-
ins halda áfram að stórauka þá
hættu, sem hún leiðir yfir fsland,
ef til styrjaldar kemur. Enn sem
fyrr skal síauka hernaðarbrölt
herraþjóðarinnar, byggingar
hernaðarmannvirkja, fjölgun á-
rásartækja og njósnarstöðva o.fl.
o.fl. Og bágt á ég með að skilja
þann íslending, sem treystir þeim
flokki og kýs fulltrúa hans á þing,
sem svo reynist sjálfstæði okkar,
hvort sem hann kennir sig við al-
þýðu, sjálfstæði eða framsókn.
En svo ég vendi nú mínu kvæði
í kross, þá las ég klausu í Þjóðvilj-
anum þann 5. okt. sl. Þar var þess
getið, að á samkomu Hvíta-
sunnusafnaðarins hafi verið beð-
ið fyrir Alberti Guðmundssyni.
Hvítasunnumenn eru taldir mjög
bænheitir og er vonandi, að eftir
þessar fyrirbænir verði Albert
betri maður og sannari vinur.
Sömuleiðis er þar sagt frá því
að „kristilegur bóksali,“ Helgi
Vigfússon, sem kannski er enn
kunnari fyrir annað en kristilega
starfsemi, svo sem hverskonar
sölu og „ritstörf" hafi staðið fyrir
undirskriftum Alberti til stuðn-
ings. Mér er tjáð, að meðal ann-
arra hafi þar ljáð nöfn sín hátt-
settir kirkjunnar menn, iúterskir
og katólskir.
Það er munur að njóta svo álits
og stuðnings geistlegra manna.
Betur að fyrirbænir og stuðning-
urinn við Albert Guðmundsson
beri tilætlaðan árangur. Ekki
mun nú af veita.
Og að lokum ein fróm spurn-
ing: Er það ekki hlutleysisbrot
hjá ríkisútvarpinu að útvarpa að-
eins á ensku fréttum frá þjóð-
höfðingjafundinum og undirbún-
ingi hans, en ekki á rússnesku
líka?
Sverrir Haraldsson
Herstöövaandstæði ngar
Landsráðstefna Samtaka herstöðvaandstæð-
inga verður haldin að Hótel Hofi, Rauðarárstíg 18
laugardag 25. október og hefst kl. 10 f.h.
Miðnefnd SHA.
Útför eiginkonu minnar og móður okkar
Sigríðar Gísladóttur
frá Stóra-Hrauni
fer fram frá Kópavogskirkju fimmtudaginn 23. október kl. 15.
Per Krogh
Gísli Pétursson
Sólveig Pétursdóttir
KYNNING
y/ á vefstólum frá Glimákra
íslenzkur Heimilisiðnaður á 35 ára afmæli og
kynnir af því tilefrii hina viðurkenndu Glimákra
vefstóla.
Kynningin verður dagana 20.-31. október, og
verður veittur 10% afsláttur af vefstólum sem
pantaðir eru meðan á kynningunni stendur. Við
bjóðum 10% afslátt af öllum fylgihlutum í vef-
stóla, og einnig 10% af öllu vefnaðargarni.
Verið velkomin að skoða vefstólana.
Myndlisti og verðlisti liggur frammi.
ÍSLENZKUR HEIMILISIÐNAÐUR
Hafnarstræti 3
Sími11784
NYJUNG!
VIÐGERÐARÞJÓNUSTA
Á RAFTÆKJUM
Er bilað raftæki á heimilinu t.d.
brauðrist, hraðsuðuketill, kaffivél,
vöfflujárn, straujárn, rakvél, ryksuga,
lampi eða eitthvert ámóta tæki? Ef
svo er komdu með það í
viðgerðarbílinn og reyndu
þjónustuna
Vlðgerðarbíll verður staðsettur við
eftlrtaldar verslanir samkvæmt
tímatöflu
ÞRIÐJUDAGAR:
Grímsbær, Efstalandi26
kl. ICROfil 1230
Verslunln Ásgeir, Tlndaseli 3
kl. 16°°til 1800
MIÐVIKUDAGAR:
Verslunln Árbæjarkjör, Rofabæ 9
kl. 1030 til 1230
Kaupgarður, Englhjalla 8
ki.ieootins00
FIMMTUDAGAR:
Verslunln Kjötog flskur,
Seljabraut 54
kl. 1030 til 1230
Hólagarður, Lóuhólum2-6
kl. 16°°til 1800
FÖSTUDAGAR:
Verslunln Breiðholtskjör,
Arnarbakka 4-6
ki.ioootinz30
Fellagarðar, Eddufelli 7
ki.ieootina00
RAFTÆKJAVIÐGEROIR
SÆVARS SÆMUNDSSONAR
VERKSTÆDI - VIÐGERÐARBlU
ÁLFTAHÓLUM 4 - SlMI 72604
ÞRÍR
FRAKKAR
CAFÉ
RESTAURANT
Baldursgötu 14
í Reykjavík
23939