Þjóðviljinn - 22.10.1986, Qupperneq 13
HEIMURINN
Vísindamenn
frá Bandaríkjunum segja ástæðu
þess að gat myndast á óson-
laginu á vorin yfir Suðurskautinu,
vera vegna „efnafræðilegra á-
stæðna". Þeir vita ekki nákvæm-
ari orsakir fyrir gatinu og einn vís-
indamannanna sagði í gær að
þeir treystu sér ekki enn til að
segja hvort það ætti sér náttúru-
legar orsakir eða hvort það væri
vegna mikillar notkunar jarðar-
búa á úðabrúsum. Ósonlagið ver
jörðina fyrir útfjólubláum geislum
sólar en þessir geislar geta ors-
akað húðkrabbamein í fólki.
Vegna aðvarana vísindamanna
um gatið hafa nokkur efnafyrir-
tæki tekið við sér. Þannig hefur
Du Pont fyrirtækið lýst sig sam-
mála einhverjum takmörkunum á
notkun flúorkarbonefna sem not-
uð eru í úðabrúsa ýmis konar.
11.000
volta rafstraum þurfti á Indlandi
um síðustu helgi til að stöðva 4
metra háan, brjálaðan fíl sem
hafði orðið 10 manns að bana.
Fíllinn mun hafa ráðist yfir akra í
Assan fylki á Indlandi og troðið
fólk undir sem reyndi að forða
sér. Fíllinn reif niður rafmagns-
girðinguna við teekru nokkra en
lést af rafmagnslostinu sem hann
fékk. Tennur fílsins mældust
rúmlega einn og hálfur metri á
lengd.
Verkfall
er nú skollið á í Frakklandi meðal
opinberra starfsmanna og er
þátttaka svo mikil að skólum var
lokað og umferð í lofti og með
lestum tafðist mjög. Þá tafðist
bílaumferð mjög inn í París og
aðrar borgir þar eð verkfalls-
menn fóru í stórum stíl á bílum
sínum til liðs við mótmælagöng-
ur. Þetta eru fyrstu meiri háttar
verkföllin sem veröa í Frakklandi
frá því hægri stjórn Chiracs tók
við völdum í mars síðastliðnum.
Opinberir starfsmenn eru með
verkföllunum að mótmæla áætl-
unum stjórnvalda um bann við
launahækkunum og uppsögn-
um.
Bandarísk
stjórnvöld tilkynntu í gær að þau
hefðu ákveðið að reka 55 so-
véska diplómata frá Bandaríkjun-
um. Er það túlkað sem svar við
brottrekstri fimm bandarískra
sendimanna frá Moskvu um
helgina. Talsmaður utanríkis-
ráðuneytisins bandaríska sagði,
að aðeins fimm þessara 55
manna hefðu verið reknir vegna
brottrekstra Bandaríkjamann-
anna 5 um helgina, hinir 50 hefðu
verið reknir til að jafnvægi kæm-
ist aftur á með sendimönnum ríkj-
anna. Sovétríkin fordæmdu
brottreksturinn í gær.
Forseti
Zambíu, Kenneth Kaunda, sak-
aði í gær S-Afríkustjórn um að
bera beina ábyrgð á því, að flug-
vél með Samora Machel innan-
borðs brotlenti á sunnudaginn
með þeim afleiðingum að
Samora lést. „Ég saka þá (S-
Afríkustjórn) um beina aðild að
dauða Machel forseta þar til al-
þjóðlegir sérfræðingar hafa af-
sannað hana.“ Kaunda sagðist
ekki myndu taka gilda niðurstöðu
s-afrískrar rannsóknar á flugslys-
inu.
IBM,
stærsta tölvufyrirtæki heims, til-
kynnti í gær að það hefði ákveðið
að hætta starfsemi í S-Afríku
með því að selja dótturfyrirtæki
sitt í landinu. Þetta er enn eitt
áfallið fyrir efnahag S-Afríku, en
að undanförnu hafa mörg stær-
stu fyrirtæki heims tilkynnt brott-
hvarf sitt frá S-Afríku. Þar á með-
al eru General Motors og Coca
Cola fyrirtækið. í tilkynningu IBM
sagði að þessi ákvörðun hefði
veriö tekin vegna versnandi á-
stands í stjórnmálum og efna-
hagsmálum landsins. Starfs-
menn IBM í S-Afríku eru 1500
talsins og verður starfsemi IBM
seld til einstaklinga í S-Afríku.
Svíþjóð/Opinberir starfsmenn
Verkfal Isaðgerðir á ný
Fjölmennir hópar opinberra starfsmanna eru afturfarnir í verkfall eftir að samninga
viðrœður fóru út um þúfur á elleftu stundu, vilja ekki verða annars flokks vinnuafl
Stokkhólmi - Um það bil 30.000
opinberir starfsmenn fóru í
gær í verkfall á ný, eftir samn-
ingaviðræður dag og nótt í þrjá
sólarhringa sem fóru út um
þúfur á síðustu stundu, í gær-
morgun.
Um það bil 30.000 manns fóru
strax í verkfall, aðrir í sama fé-
lagi, 200.000 manns, munu neita
að vinna yfirvinnu. Álíka margir
voru í verkfalli þar til í síðustu
viku að þeir hættu vegna nýrra
samningaviðræðna. Annað stétt-
arfélag innan sambands opin-
berra starfsmanna sem telur 8000
manns, mun fara í verkfall innan
sjö daga verði launadeilur ekki
leystar fyrir þann tíma. Þá myndi
járnbrautakerfið í Svíþjóð stöðv-
ast, einnig tvö kjarnorkuver og
mikil röskun yrði á póstþjónustu.
Það sem stöðvaðist í dag voru
fjölmargar deildir sjúkrahúsa,
dagheimili og samgöngukerfi í
mörgum borgum.
Haft var eftir heimildar-
mönnum úr samningaviðræðun-
um að lítið hefði vantað upp á að
launadeilur yrðu leystar. Opin-
berir starfsmenn krefjast trygg-
ingar fyrir því að þeir dragist ekki
aftur úr launafólki hjá einkafyrir-
tækjum og verði annars flokks
vinnuafl. Starfsfólk hjá einka-
fyrirtækjum fékk nýlega 9%
launahækkun fyrir næstu tvö ár.
Opinberum starfsmönnum er nú
boðin 8,46% launahækkun fyrir
sama tímabil.
Nicaragua/Hasenfus
Krafist þyngstu refsingar
Hasenfus hefur lýstsig „stríðsfanga“. Lögfrœðingur
hans gagnrýndi Alþýðudómstólinn harðlega
ERLENDAR
FRÉTTIR
INGÓLRJR
hjörleifsson/k fc U i E K
Managua - Bandaríkjamaður-
inn Eugene Hasenfus, sem nú
er í haldi í Nicaragua, hefur
verið kærður fyrir hryðjuverk
og verður hugsanlega dæmd-
ur í 30 ára fangelsi. Réttarhöld í
máli hans hófust í fyrrakvöld.
Hann hefur verið sakaður um
að hafa tekið þátt í tilraunum til
að bylta stjórn Sandinista í Nicar-
agua. Hasenfus hefur Týst sig
„stríðsfanga" og hefur fengið
iögfræðing úr stjórnarandstöð-
unni í Nicaragua til að verja sig.
Lögfræðingurinn gagnrýndi í
fyrradag Alþýðudómstólinn
harðlega en sá réttar í máli hans.
Fyrir troðfullu húsi las Rodrigo
Reyes, dómsmálaráðherra Nic-
aragua, upp ákæru á hendur Has-
enfus og krafðist þyngstu refsing-
ar sem gæti orðið, 30 ára fangelsi.
Hasenfus, hann á nú á hættu að
lenda í fangelsi í Nicaragua,
í 30 ár.
Tilraunabann
Eftirlitskerfi samþykkt
Sovéskir og bandarískir vísindamenn hafa samþykkt nýtt
eftirlitskerfi með kjarnorkuvopnatilraunum
A-Berlín - Sovéskir og banda-
rískir vísindamenn hafa sam-
þykkt að koma fyrir samskipta-
kerfi milli landa sinna, sem
myndi gera þeim kleift að fylgj-
ast með banni við tilraunum
með kjarnorkuvopn.
Það var austur-þýska frétta-
stofan ADN sem tilkynnti þetta í
fyrrakvöld. ADN greinir frá því
að í frétt frá Kazakhstan í Sovét-
ríkjunum segi að sovéskir og
bandarískir vísindamenn hafi
samþykkt samskiptakerfið eftir
röð tilrauna með eftirlit. Það fel-
ur í sér að sérstökum. eftir-
litsgervihnetti verður komið á
loft fyrir lok þessa árs. Gervi-
tunglið mun senda upplýsingar
um höggbylgjur, sem verða við
kjarnorkusprengingar neðan-
jarðar í sovésku tilraunastöðinni
nálægt Semípalatínsk, til Mos-
kvu, Washington, San Diego og
bandaríska tilraunasvæðisins T'
Nevada eyðimörkinni.
Gervitunglið mun senda upp-
lýsingar báða vegu og gæti þannig
nýst til að staðfesta tilraunir með
kjarnorkusprengingar milli
Bandaríkjanna og Sovétríkj-
anna.
Dauði Mozambiqueforseta
Mótmæli í Harare
Námsmenn íHarare, höfuðborg Zimbabwe, réðustígœr að
stöðvum S-Afríku í borginni og ásökuðu yfirvöldþar um
slysið, þar semforseti Mozambique lést. 60 daga þjóðarsorg í
Mozambique. Vangaveltur um nœstaforseta landsins
Harare, Maputo - Þúsundir
ungmenna gengu í gærmorg-
un berserksgang um götur
Harare, höfuðborgar Zimba-
bwe. Beindist reiði þeirra yfir
dauða Samora Machel, forseta
Mozambique, að skrifstofum
S-Afríku og Malawi.
Fólkið braut rúður á jarðhæð í
skrifstofunum, kastaði eld-
sprengjum, braut rúður í bflum
hvítra og kastaði grjóti að versl-
unarmiðstöð S-Afríku íborginni.
Lögreglan hrakti fólkið á brott
með táragasi. Lögreglan notaði
einnig táragas síðar til að reka
ungt fólk burt frá aðallögreglu-
stöð borgarinnar. Fólkið kom þar
saman til að krefjast lausnar
tveggja námsmanna við Zimba-
bwe háskóla. Ekki er vitað um
nein alvarleg meiðsli.
Mótmælin eru þau mestu sem
orðið hafa í langan tíma, en Har-
are er þekkt fyrir góð samskipti
ólíkra kynþátta. Námsmenn
munu hafa verið leiðandi í að-
gerðunum og hrópaði fólkið
slagorð gegn aðskilnaðarstefnu
S-Afríkustjórnar og kenndi
henni um flugslysið þar sem Mac-
hel lést. í ritstjórnargrein Herald
dagblaðsins í Harare er að finna
sama álit. Þar segir: „Þrátt fyrir
allar afneitanir - Pretoría myndi
líkast til aldrei viðurkenna sekt
sína - virðist líklegasta ástæðan
fyrir slysinu vera bein s-afrísk
árás á forsetaflugvélina".
Yfirvöld í S-Afríku hafa kennt
mistökum flugmanns um slysið.
Embættismenn í S-Afríku, sem
ekki vildu geta nafns, sögðu að
svo virtist sem flugmaður hinnar
sovésku Túpóljef flugvélar for-
setans hefði lækkað flug of
snemma þegar hann var að undir-
búa lendingu. Rannsóknarnefnd
flugslyssins, sem í eiga sæti full-
trúar Mozambique og Alþjóða-
flugeftirlitsins, hefur fengið hinn
svonefnda svarta kassa, þ.e. upp-
töku á samskiptum flugmanns og
flugturns, í sínar hendur.
1 Maputo, höfuðborg Moz-
ambique, hefur verið lýst yfir 60
daga þjóðarsorg og fólk grét í gær
á götum úti vegna láts forsetans.
En þrátt fyrir það velta menn nú
vöngum yfir því hver verði lík-
legur eftirmaður Machels. Þrír
menn eru nú taldir líklegastir í
forsetaembættið. Joaquim Chiss-
ano, hann er núverandi utanríkis-
ráðherra. Einnig er til nefndur
Marcelino Dos Santos, félagi í
stjórnmálanefnd Frelimo miðn-
efndarinnar, sem fer nú með
æðsta vald ríkisins, en hann er
einnig forseti þings landsins.
Þriðji maðurinn er Mario Mac-
hungo, forsætisráðherra. Hann
var óvænt settur í forsetaemb-
ættið í júlí síðastliðnum svo Mac-
hel gæti einbeitt sér að því að
stjórna stríðinu gegn hinum hæg-
risinnuðu uppreisnarmönnum í
landinu. Átökin við þá hafa harð-
nað mjög á undanförnum vikum.