Þjóðviljinn - 22.10.1986, Blaðsíða 16
MOOVIUINN
1936-1986 ÞJÓÐVILJINN 50 ÁRA
Miðvikudagur 22. október 1986 240. tölublað 51. órgangur
Aðalsími: 681333. Kvöldsími: 681348. Helgarsími: 681663.
Vestfirðir
Forval
2. nóvember
Bindandi kosning um
þrjú sœti ísíðari umferð
Fyrri umferð í forvaii Al-
þýðubandalagsins á Vestfjörðum
vegna komandi þingkosninga fer
fram 2. nóvember n.k. Síðari um-
ferðin fer síðan fram 23. nóvem-
ber.
Forvalið fer þannig fram að í
fyrri umferðinni skal kjósa 6
menn. í síðari umferð komast 6
efstu úr fyrri umferð en uppstill-
ingarnefnd má bæta við þá tölu. í
síðari umferð verður kosið um
þrjú efstu sætin og verður niður-
staða forvalsins bindandi fyrir
uppstillingarnefnd. -Ig.
Rannsóknalektorsstaðan
Sverrir
svaraði
engu
Gengur undir nafninu
„ráðherrann með valdið“
á Háskólalóðinni
Eina ferðina enn hefur „ráð-
herran með valdið“ eins og
hann er kaiiaður í Háskólanum,
beitt valdinu þvert á vilja Há-
skólans og ekki farið að lögum,
sagði Sigríður Dúna
Kristmundsdóttir í gær þegar
hún gagnrýndi Sverri Hermanns-
son fyrir að setja dr. Hannes
Hólmstein Gissurarson í nýja og
óumbeðna stöðu rannsóknalekt-
ors í sagnfræði fyrr í haust.
Sigríður Dúna lagði tvær fyrir-
spurnir fyrir ráðherrann af þessu
tilefni: Af hverju þessi staða
hefði verið búin til og af hverju
ekki hefði verið auglýst eftir um-
sóknum í hana. Ráðherrann svar-
aði engu, en Ólafur Þ. Þórðar-
son, sem var eini þingmaðurinn
sem blandaði sér í orðræður
þeirra Sigríðar Dúnu þakkaði
ráðherranum fyrir að hafa ekki
sett kennsluskyldu á Hannes
Hólmstein! Sjá bls. 5.
-ÁI.
Borgarstjórn
Ekkert
hópstarf
Af 6 unglingum sem tóku þátt í
hópstarfinu ásamt foreldrum
sínum í vor sýndu 5 verulega já-
kvæðan árangur, sagði Guðrún
Ágústsdóttir borgarfulltrúi AB á
borgarstjórnarfundi á
fimmtudag, þegar hún mælti
fyrir tillögu um aukafjárveitingu
að upphæð 80.000 krónur til þess
að hægt væri að halda áfram
starfi með unglingum sem eiga
við vandamál að stríða vegna of-
neyslu áfengis og vímuefna.
Árni Sigfússon formaður fé-
lagsmálaráðs lagði til að málinu
væri vísað aftur til félagsmálaráðs
og taldi að byrja ætti á þessu starfi
eftir næstu áramót vegna þess að
hér væri um aukafjárveitingu að
ræða. Vilhjálmur Þ. Vilhjáims-
son borgarfulltrúi Sjálfstæðis-
flokks tók undir það og dró um
leið í efa gagnsemi hópstarfsins.
Málinu var vísað til félagsmála-
ráðs og er væntanlega úr sögunni
á þessu ári. -vd.'
Reykjavík
Ráðhús við Tjömina
Samkeppni um teikningu að ráðhúsi við Tjörnina opnuð ígœr
Eg tel löngu tímabært að borgin
eignist ráðhús og legg áherslu
á að bygging þess taki skamman
tíma, sagði Davíð Oddsson borg-
arstjóri þegar samkeppnisreglur í
keppni um teikningu að ráðhúsi
Reykjavíkur voru kynntar í
Höfða í gær.
Húsið á að verða tæpir 3400
fermetrar að nettóstærð og stað-
setningin er á norðvesturhorni
Tjarnarinnar á lóðinni nr. 11 við
Vonarstræti. Húsið sem þar
stendur nú verður flutt á annan
stað. Öllum íslenskum arkitekt-
um er boðið til keppninnar og er
skilafrestur á tillögum til 4. mars
1987. Verðlaunafé er samtals 2,1
milljón og verða þrenn verðlaun
veitt. Davíð Oddsson borgar-
stjóri er formaður dómnefndar-
innar og auk hans eiga í henni
sæti fyrir hönd borgarinnar Þor-
valdur S. Þorvaldsson arkitekt og
forstöðumaður borgarskipúlags
og Sigrún Magnúsdóttir borgar-
fulltrúi. Fulltrúar Arkitektafé-
lagsins í dómnefnd eru þeir
Guðni Pálsson og Þorsteinn
Gunnarsson.
í samkeppnisreglunum er lögð
áhersla á „aðlögun að umhverf-
inu og tengsl við Tjömina“ og ber
höfundum tillagna að gera grein
fyrir frágangi Tjarnarbakkanna
og útliti Vonarstrætis og Tjarn-
argötu. Við hönnun ráðhússins
eiga samkeppnisaðilar að ganga
út frá Kvosarskipulaginu, sem
enn er ósamþykkt. Ekkert þak er
sett á kostnað við framkvæmdir
og engin skilyrði eru sett fyrir
hæð hússins.
- vd.
GuðrúnSiguröardóttirogGuðgeirJónsson: Þaðhefuraldreiþurftaðtalaámilli okkar. Ljósm. E.ÓI.
Brúðkaupsafmœli
Sfötííi ár í sæhi og sorg
93 ára gömul hjón halda uppá
Það hafa engin boðaföll verið í eru 93 ára gömul, kynntust fyrst
sem smábörn þegar þau voru í
bamaskóla. Þau kynni endurný-
juðu þau þegar þau hittust aftur
14 ára gömul í stúkustarfi í Góð-
templarahöllinni. „Það var nú
samt síðar sem við fórum að gefa
hvort öðru auga fyrir alvöru“
okkar sambandi og aldrei hefur
þurft að tala á milli okkar, sögðu
lijónin Guðgeir Jónsson og Guð-
rún Sigurðardóttir um hjóna-
band sitt, en þau héldu uppá 70
ára brúðkaupsafmæli sitt í gær.
Guðgeir og Guðrún sem bæði
70 ára brúðkaupsafmœli sitt
sögðu þau Guðrún og Guðgeir Guðgeir svarar:
sem giftu sig 23 ára gömul.
Þau eignuðust 7 börn og eru
afkomendur þeirra nú um 60. Þar
á meðal eru 2 barna-barna-
barna-barnabörn og geri aðrir
betur. En hvað er nú eftirminni-
legast úr 70 ára hjónabandinu?
Maður er nú
farinn að ryðga í kverinu. Yfir-
leitt eru minningarnar ánægju-
legar en þó hefur gengið á ýmsu
eins og gengur og gerist í lífinu.
Ætli það sé nokkuð hægt að skera
úr um hvað sé eftirminnilegast“
sagði Guðgeir að lokum. -K.Ól.
Auglýsingamarkaðurinn
Tveir milljarðar
Blöðin ráða yfir 55 % af auglýsingamagninu.
Útvarpsstöðvarnar samtals 24%
Tveimur milljörðum var varið í
auglýsingar síðustu 12 mán-
uði samkvæmt úttekt Miðlunar,
og er hér aðeins átt við birting-
arkostnað. Hlutdeild dagblað-
ánna er langstærst á auglýsing-
amarkaðnunt eða tæp 55%.
Næststærsti auglýsingamiðillinn
er Rás 1, hlutdeild hennar er tæp
19%. í kjölfarið siglir Sjónvarpið
með 13,4%.
Á Rás 2 var auglýst fyrir 87,3
milljónir síðustu 12 mánuöi sam-
kvæmt úttekt Miðlunar, sem er
4,5% af auglýsingum ársins. Byl-
gjan fór vel af stað sinn fyrsta
mánuð og fékk 9,5 milljónir fyrir
auglýsingar í septembermánuði,
um Vi%. Það er helmingi meira
af leiknum auglýsingum en á Rás
2 í sama mánuði. Auglýsingar í
tímaritum eru um 7,8% af
heildinni. Þess skal getið að inni í
þessum tölum er ekki fram-
leíðslukostnaður, og þegar hlut-
fallstölur eru nefndar er átt við
magn auglýsinga en ekki kostn-
að, sem er misjafn eftir miðlum.
Hlutdeild blaðanna er þannig
að Morgunblaðið er stærst, á eftir
því kemur DV, þá NT/Tíminn,
Þjóðviljinn, Dagur, Alþýðublað-
ið og loks HP, en á síðastnefnda
blaðinu er langmest sveifla í aug-
lýsingamagni eftir mánuðum. í
heildina litið er erfitt að draga
ákveðnar niðurstöður af þessum
tölum þar sem lítið er um saman-
burðarheimildir, nema úr árs-
skýrslum Ríkisútvarpsins. Þær
sýna að nokkur samdráttur virð-
ist hafa átt sér stað hjá Ríkisút-
varpinu síðan á árunum 1981 oe
1982.
Einnig má af þeim ráða að tölu-
verður samdráttur í auglýsingum
hafi átt sér stað á Rás 2 síðan í
fyrrasumar. - vd.
I
Kaupmannahöfn
íslendinga-
útvaip
Frá Gesti Guðmundssyni, fréttaritara Þjóð-
viljans í Kaupmannahöfn:
Þann 17. júní síðastliðinn hóf-
ust útvarpssendingar á íslensku í
Kaupmannahöfn og síðan í júlí er
útvarpað vikulega í einn og hálf-
an tíma á laugardagskvöldum.
Útvarp Kaupmannahöfn send-
ir fréttir að heiman, fréttir af fé-
lagsstarfi íslendinga í Kaup-
mannahöfn en annað efni er m.a.
viðtöl, upplestur og tónlista-
þættir.
Fram að þessu hefur þetta starf
byggst á þrem einstaklingum en
nú hafa 15 manns tekið höndum
saman um útvarpssendingarnar
enda fer hlustun batnandi meðal
íslendinga í Kaupmannahöfn.