Þjóðviljinn - 29.10.1986, Page 15
ÍÞRÓTTIR
Drengjalandslið
Jafnt í
Freiburg
A. Þjóðverjar unnu
3-2 samanlagt
Drengjalandslið Austur-
Þýskalands og Islands skildu jöfn,
1-1, í Evrópukeppninni fyrir 16
ára og yngri í Freiburg í gaer.
Þetta var seinni leikur þjóðanna,
Austur-Þjóðverjar unnu þann
fyrri hér á landi og komast áfram,
3-2 samanlagt.
Austur-Þjóðverjar voru betri í
fyrri hálfleik og náðu þá forystu á
25. mínútu. Island lék betur í
seinni hálfleik og strax á 7. mín-
útu jafnaði Ingólfur Ingólfsson.
Síðan fengu bæði lið ágæt færi en
fleiri mörk voru ekki skoruð. Að
sögn Sveins Sveinssonar farar-
stjóra áttu Kristján Finnbogason,
Guðbjartur Auðunsson og Har-
aldur Ingólfsson bestan leik í ís-
lenska liðinu.
-VS
Laugardalshöll 28. október
Ísland-DDR 21-22 (11-13)
0-2, 1-3, 3-5, 4-6, 6-6, 7-7, 7-10,
9-10, 9-12, 10-13, 11-13-12-13, 12-
15,14-15,14-18,15-20,18-20,20-21,
20-22, 21-22.
Mörk íslands: Siguröur Gunnarsson
9(5v), Kristján Arason 3, Þorgils Óttar
Mathiesen 3, Guðmundur Guömunds-
son 2, Héðinn Gilsson 2, Júlíus Jónas-
son 1, Valdimar Grímsson 1.
Mörk DDR: Rudiger Borchart 5,
Ingolf Wiegert 5, Frank Wahl 4, Frank
Pysall 2, Mathias Hahn 2, Uwe Dreyer
2, Olaf Pleitz 2(1 v).
Dómarar: Broman og Blademo
(Svíþjóð) - þokkalegir.
Þorgils Óttar Mathiesen fyrirliði íslands brýst framhjá Peter Pysall og skorar. Mynd: E.ÓI.
ísland - Austur-Þýskaland
England
Cardiff
vann
Chelsea!
Allt gengur á afturfótunum hjá
Chelsea þessa dagana og í gær-
kvöldi dundi enn eitt áfallið yfir-
2-1 tap gegn 4. deildarliðinu Car
diff í 3. umferð deildabikarsins
Nicky Platnauer, sem lék með Co'
ventry í fyrra, gerði bæði mörk
Cardiff.
Úrslit í gærkvöldi urðu þessi:
Arsenal-Manch.City.......3-1
Cambridge-lpswich........1-0
Cardiff-Chelsea..........2-1
Charlton-Q.P.R...........1-0
Coventry-Oldham..........2-1
Everton-Sheff.Wed........4-0
Shrewsbury-Hull..........1-0
Everton hefur ekki tapað fyrir
Sheff.Wed. í 21 ár og vann Iétt í
gærkvöldi. Paul Wilkinson
skoraði 2 markanna. Paul Davis
skoraði tvívegis fyrir Arsenal í ör-
uggum sigri á Manchester City.
Cambridge, sem leikur í 4. deild,
vann Ipswich úr 2. deild óvænt
með marki frá David Crown.
Aðrir leikir í3. umferð fara fram í
kvöld.
-VS/Reuter
Frábær vamarleikur
Austur-Þjóðverjarskoruðu2mörká!7mínútumennáðuað sigra22-21
Kvennahandbolti
Skellur
á Spáni
íslenska kvennalandsliðið fékk
skell, 23-7, í vináttuleik gegn Spán-
verjum í Valencia í gterkvöldi. ís-
lenska liðið býr sig þar undir C-
heimsmeistarakeppnina sem hefst á
fóstudag.
Staðan í hálfleik var 10-2 en að
sögn Helgu Magnúsdóttur fararstjóra
voru spænsku stúlkurnar ekki svona
mikið betri þó þær væru betri. Guð-
ríður Guðjónsdóttir skoraði 3 mörk,
Erla Rafnsdóttir 2 og Katrín Fre-
driksen 2. Kolbrún Jóhannsdóttir
varði 13 skot í leiknum.
-Ibe
Það er langt síðan stemmningin
í Laugardalshöllinni hefur jafnast
á við þá sem ríkti í leik íslands og
Austur-Þýskalands í gærkvöldi.
Bronsliðið frá HM virtist með
auðunninn leik í höndunum,
leiddi 15-20 þegar 13 mínútur
voru liðnar af seinni hálfleiknum.
En á þeim 17 mínútum sem eftir
voru sýndi íslenska liðið stórkost-
legan varnarleik, Kristján Sig-
mundsson kom í markið og fékk
aðeins 2 mörk á sig á þessum tíma
- en það dugði ekki alveg -
Austur-Þjóðverjar héldu út og
sigruðu 22-21. Ahorfendur voru
vel með á nótunum og stuðningur
þeirra við íslenska liðið í síðari
hálfleiknum var með ólíkindum.
„Ég er auðvitað aldrei ánægð-
ur með tap en ég er ánægður með
varnarleikinn og baráttuna sem
íslenska liðið sýndi í síðari hálf-
leiknum," sagði Bogdan Kow-
alczyck landsliðsþjálfari eftir
Karl-Marx-Stadt
Þrír lykilmenn
þýskra meiddir
Austur-Þýskaland - ísland kl. 16 í dag í beinni
útsendingu
Þrír af sterkustu varnar-
mönnum Austur-Þjóðverja geta
ekki leikið með í Evrópuleiknum
við ísland í Karl-Marx-Stadt í
dag. Það eru þeir Frank Baum,
Ronald Kreer og Rico Steinmann,
allir léku gegn Norðmönnum í
síðasta mánuði en eiga allir við
meiðsli að stríða.
Ásgeir Sigurvinsson leikur
ekki með íslenska liðinu vegna
veikinda og óvíst er með Guð-
mund Þorbjörnsson sem er
meiddur í nára.
„íslenska landsliðið er mun
sterkara en meðalgeta íslenskra
knattspyrnumanna segir til um,“
sagði austur-þýski landsliðsþjálf-
arinn Bernd Stange í gær. Lið
hans hefur ekki náð að skora
mark í síðustu 7 landsleikjum og
pressan á því er því orðin geysi-
lega mikil.
Leikur þjóðanna hefst kl. 16 í
dag og verður sýndur í beinni út-
sendingu í íslenska sjónvarpinu.
ísland hefur sem kunnugt er
hlotið 2 stig úr 2 leikjum, Austur-
Þjóðverjar 1 stig eftir 1 leik.
Sovétmenn og Norðmenn mætast
einnig í riðlinum í Moskvu í dag.
-VS/Reuter
leikinn. „Vörnin var hinsvegar
slök í fyrri hálfleiknum. Við
töpum leiknum þegar upp er
staðið á slæmri nýtingu á dauða-
færum, á meðan Austur-
Þjóðverjar voru fljótir að nýta sér
okkar mistök. Okkur vantaði
marga leikmenn og það voru fjór-
ir með litla reynslu í byrjunarlið-
inu. Miðið við það var þessi
leikur mjög góður uppá framtíð-
ina,“ sagði Bogdan.
„Þetta gekk betur en ég bjóst
við,“ sagði Þorgils Óttar Mathie-
sen fyrirliði. „Baráttan var góð,
leikkerfin gengu ágætlega og við
skoruðum falleg mörk. En við
hefðum mátt fá meira útúr hrað-
aupphlaupunum, við vorum
stundum of hræddir við að keyra
upp hraðann," sagði Þorgils Ótt-
ar.
„Það fór gífurleg orka í vörnina
í síðari hálfleiknum. Við lékum
nánast maður gegn manni en með
þessu tókst okkur að minnka
muninn og ér er hissa á hvað þeir
gerðu mikið af klaufavillum
þarna undir lokin. Breiddin er
ekki mikil hjá okkur í augnablik-
inu og nýir menn þurfa sinn tíma
þannig að þessi vetur verður ekki
dans á rósum,“ sagði Kristján
Arason.
Kristján var lykilmaður í vörn
og sókn, skoraði þrjú glæsimörk
og átti stórkostlegar sendingar.
Sigurður Gunnarsson gerði góða
hluti, var þó mistækur á kafla í
seinni hálfleiknum en sýndi
mikið öryggi í vítaköstunum.
Þorgils Óttar og Guðmundur
Guðmundsson komust vel frá
leiknum en Valdimar Grímsson
náði sér ekki á strik. Júlíus Jónas-
son var mistækur í sókninni en
varnarleikurinn hjá honum var
góður. Héðinn Giísson skipti við
hann af og til og lofar góðu. Geir
Sveinsson var traustur í vörninni
að vanda. Einar Þorvarðarson
náði sér ekki fyllilega á strik í
markinu en Kristján Sigmunds-
son var vel með á nótunum á bak-
við öfluga vörnina síðustu 17
mínúturnar. í heild er ekki hægt
annað en að vera sáttur við
frammistöðu íslenska liðsins, það
sýnir góða breidd að vanta fjölda
góðra leikmanna en tapa samt
naumlega gegn einhverju albesta
landsliði heims.
Austur-Þjóðverjar léku lengi
mjög vel og virtust hafa leikinn í
hendi sér framí seinni hálfleik.
Snillingarnir Frank Wahl og Ing-
olf Wiegert virtust nánast geta
skorað að vild og Peter Hoff-
mann varði mjög vel. En undir
álaginu í seinni hálfleik voru þeir
við það að brotna, gerðu sig þá
seka um óvenjulegar villur í
sókninni - en með góðum varnar-
leik og markvörslu Hoffmanns
héldu þeir út.
Þjóðirnar mætast aftur í Höll-
inni í kvöld kl. 20.30 og þar má
búast við öðrum hörkuleik.
-VS
Úrvalsdeildin
Valur í vanda
Vann Fram á lokasprettinum
Valsmenn mörðu sigur á botn-
liði Fram, 57-49, með því að
skora síðustu 9 stig leiksins í
Hagaskólanum í gærkvöldi.
Framarar sýndu að þeir ætla ekki
að gefast upp baráttulaust en það
var greinilegt að Valsmenn áttu
ekki von á að lenda í miklum
vandræðum með þá.
Eins og sjá má á tölunum var
hittnin ekki góð. Bæði lið léku
stífan varnarleik, einkum þó
Framarar sem hafa ekki leikið
betur til þessa í haust. Valsmenn
hófu seinni hálfleik með látum,
léku vörnina framarlega og gafst
það nokkuð vel. Hinsvegar var
sóknarleikurinn slakur og illa
gekk að komast í gegnum sterka
vörn Framara.
Bestir í liði Vals voru þeir Ein-
ar Ólafsson og Sturla ðrlygsson
en þeir Tómas Holton og Torfi
Magnússon áttu ágæta spretti
inná milli. Hjá Fram átti Jóhann
Bjamason góðan leik, sterkur í
vörninni, og sama má segja um
Þorvald Geirsson. Þá átti Jón Júl-
íusson ágætan leik.
-Ibe
Uerdingen
Sigurmarkið kært
Nurnberg hefur kært úrslitin í
leik sínum við Bayer Uerdingen í
vestur-þýsku bikarkeppninni í
knattspyrnu sem fram fór síðasta
laugardag. Sigurmark Uerdingen
var umdeilt, dómarinn sá ekki að
boltinn færi yfir marklínu Nurn-
berg en línuvörður úrskurðaði
hinsvegar að svo hefði verið. Mál-
ið er í rannsókn en fordæmi er
fyrir því í vestur-þýsku knatt-
spyrnunni að svona kæra hafi
verið tekin til greina.
-VS/Reuter
Miðvikudagur 29. október 1986 PJÓÐVILJIUN - SÍÐA 15
Hagaskóli 28. október
Fram-Valur 49-57 (25-26)
6-6,6-11,16-15,25-26 - 33-29,39-
39, 49-48, 49-57.
Stlg Fram: Þorvaldur Geirsson 18,
Jóhann Bjarnason 10, Jón Júlíusson
10, Guðbrandur Lárusson 6, Auðunn
Ellasson 3, Örn Þórisson 2.
Stig Vals: Torti Magnússon 14,
Tómas Holton 14, Einar Ólafsson 11,
Sturla Örlygsson 10, Leifur Gústafs-
son 5, Björn Zoega 3.
Dómarar: Jón Otti Ólafsson og Sig-
urður Valgeirsson - sæmilegir.
Maður leiksins: Jóhanr Bjarna-
son, Fram.