Þjóðviljinn - 10.12.1986, Side 6

Þjóðviljinn - 10.12.1986, Side 6
LANDSBYGGÐIN Æðarbœndur getrmuía VINNINGAR! 16. leikvika - 6. desember 1986 Vinningsröð: 1 1 X - 2 1 1 - X 1 1 -1 1 1 1. vinningur: 12 réttir, Kr. 15.700.- - 142 1569(3/11) 2251 3562 19630 16326(3/11) 21064+ 40349(4/11) 41708(4/11) 43235(4/11) 44383(4/11) 45430(4/11) 46233(4/11) 46811(4/11) 49192(4/11) 50861(4/11)+ 52223(4/11) 52661(4/11) 54104(4/11) 54743(4/11) 55510(4/11) 56734(4/11)+ 60591(4/11) 63746(4/11) 64122(4/11) 65064(4/11)+ 66450(4/11) 71431(4/11)+ 95331(6/11) 97078(6/11) 97677(6/11)+ 98055(6/11) 90089(6/11) 98209(6/11) 98255(6/11) 98722(6/11) 99762(6/11)+ 101754(6/11) 102005(6/11) 102776(6/11) 105037(6/11) 125083(6/11) 126286(6/11) 126700(6/11) 127052(6/11)+ 127053(6/11) 127526(6/11)+ 127564(6/11) 127688(6/11)+ 127975(6/11) 128934(6/11) 129892(6/11) 130637(6/11) 130821(6/11)+ 130856(6/11) 131262(6/11)+ 184730(4/11) 201628(9/11) 201705(7/11) 202769(7/11)+ 202903(10/11)+ 203844(7/11) 203847(14/11) 204055(14/11)+ 209282(12/11)+ 209366(12/11) 209853(12/11) 211122(11/11)+ 212536(11/11) 212809(7/11)+ 213056(9/11) 213710(12/11) 213738(12/11)(♦) 214079(9/11) 214084(13/11) 214102(16/11) 214110(10/11) 214113(10/11) 214156(9/11) 214232(11/11) 214242(8/11) 210401(10/11) 545714(3/11) 2. vinningur: 11 réttir, Kr. 360,- Alls komu fram 1.550 ra&ir. Vinningur fyrir ellefu rétta verður sendur vinningshöfum nú í vikunni. Þeir vinningshafar sem ekki hafa fengið vinninga sína innan viku frá birtingu þessarar aug- lýsingar, vinsamlegast hafið samband við a&alskrifstofu Is- lenskra getrauna. íslenskar Getraunir, Iþróttamidstöðinnt vlSigtún, Reykjavik Kærur skulu vera skriflegar. Kærueyðublöð fást hjá umboðsmönnum og á skrifstofunni í Reykjavík. Vinningsupphæðír geta lækkað, ef kærur verða tekn- ar til greina. Handhafar nafnlausra seðla (+) verða að framvísa eða senda stofninn og fullar upplýsingar um nafn og heimilisfang til íslenskra Getrauna fyrir loka kæru- frests. Auglýsing Ráðuneytið vekur athygli útgerðarmanna á því að frestur til að sækja um staðfestingu ráðuneyt- isins á færslum aflakvóta milli skipa rennur út 29. desember nk. Umsóknir, sem síðar berast verða ekki teknar til greina. Jafnframt vekur ráðuneytið athygli á því að ekki verður unnt að gefa út leyfi til botnfiskveiða 1987 til þeirra skipa, sem ekki hafa sent afla- eða sóknarmarksskýrslur fyrir árið 1986. Tekið skal fram að nauðsynlegt er að senda skýrslurnar þó skipið hafi ekki stundað veiðarnar. Sjávarútvegsráðuneytið, 9. desember 1986. Bókavörður Óskum að ráða bókavörð í V2 starf. Góð al- menn menntun áskilin. Umsóknir með upp- lýsingum um menntun og starfsreynslu sendist bæjabókaverði fyrir 20. des. Bókasafn Kópavogs Fannborg 3-5. Sími 45077. Útför Elísabetar Júlíu Árnadóttur Furugerði 1, er andaðist þann 28. nvoember sl., fór fram frá Fossvogs- kapellu 8. desember, í kyrrþey, að ósk hinnar látnu. Kristín Guðmundsdóttir. Vaxandi áhugi á æðairækt Frá aðalfundi Æðarrœktarfélagsins Sautjándi aðalfundur Æðar- ræktarfélags íslands var fyrir nokkru haldinn í Reykjavík. Mættir voru fulltrúar úr flestum landshlutum, en í þeim öllum eru starfandi deildir nema á Suður- landi. Félagsmenn eru 300. í upphafi fundarins minntist formaður félagsins, Sigurlaug Bjarnadóttir frá Vigur, Gísla Kristjánssonar ritstjóra, sem lést í des. sl., en Gísli var einn af stofnendum Æðarræktarfélags- ins og heiðursfélagi þess síðustu árin. í máli Sigurlaugar kom það m.a. fram, að Æðarræktarfélagið vinnur nú að því í samráði við sjávarútvegsráðuneytið og Haf- rannsóknastofnun, að kannað verði hversu mikið af æðarfugli ferst árlega í grásleppunetum. Þá fóru fram umræður um sjóða- gjöld af æðardún. Virtust flestir fundarmenn meðmæltir því, að greiða áfram í Stofnlánadeild, þó gegn því, að lánað væri út á fleiri framkvæmdir en nú er gert. Á liðnu ári átti Æ.I. þátt í að sett var lágmarksverð á æðardún til útflutnings og leiddi það til þess, að birgðir þær, sem fyrir voru sl. vor, seldust upp í sumar. Þá hefur og utanríkisráðuneytið tekið vel í að auglýsa æðardún og afla markaða í gegnum sendiráð- in. Félagið mun taka þátt í land- búnaðarsýningu þeirri, sem ráð- gerð er í Reykjavík að sumri. Nefnd á vegum menntamála- ráðuneytisins vinnur nú að athug- un á aðferðum á fækkun máva og hrafna. Æ.í. á fulltrúa í nefndinni og væntir góðs af starfi hennar. Útflutningstekjur 35-40 miljónir Magnús Friðgeirsson, fram- kvæmdastjóri Búvörudeildar SÍS, sagði dún ekki seljast eins ört og sl. haust. Þó væru söluhorf- ur alls ekki slæmar. í athugun er t.d. að senda fljótlega 300 kg af æðardúni til Japan og eru góðar vonir bundnar við þann markað. Beinar útflutningstekjur af æðar- dún 1985 voru á milli 35 og 40 milj. kr. Verð til bænda nú er kr. 15.300 fyrir kg, komi þeir með dúninn hreinsaðan. í tengslum við leiðtogafundinn í Reykjavík í haust var æðardúnninn kynntur ásamt öðrum íslenskum vörum, og afhenti Búvörudeildin leiðtog- unum fjórar æðardúnssængur að gjöf. Magnús sagði of mikið ber- ast af lélegum dún til hreinsunar og hvatti til úrbóta. Yfir 400 æðarbæir Árni Snæbjörnsson, æðarrækt- arráðunautur, sagði aukinn áhuga á æðarrækt og margir haft samband við sig ýmist um að koma upp varpi eða endurnýja gamalt varp. í sumar fór Árni um Vesturland, Vestfirði, Skaga- fjörð og víðar og hitti æðarbænd- ur, þar á meðal marga, sem eru að koma upp nýju varpi. Æðar- varp er nú á yfir 400 bæjum. Árni hefur látið gera nýja gerð varp- skýla hjá Vírneti hf. í Borgarnesi og verða þau reynd á nokkrum stöðum næsta vor. Langleiðis er nú komið að gera skrár um allar varpjarðir á landinu. Örninn ger- ir alltaf talsverðan usla í æðar- vörpum og margir bændur óá- nægðir með þær undirtektir, sem þau mál fá. Nokkrir aðilar voru með ungauppeldi sl. vor. Er nú talsverð reynsla komin á það, 6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Varp gekk víöast hvar vel í vor. sem auðveldar leiðbeiningar til þeirra, sem eru að byrja. Varp gekk víðast hvar vel í vor þó að ýmiss konar vargur herji sífellt á æðarvörp. Páll Hersteinsson, veiðistjóri, greindi frá aðgerðum gegn varg- inum en þar setur þröngur fjár- hagur strik í reikning. En allir voru á einu máli um að þar sem menn veiðistjóra hefðu komið og fækkað vargfugli hefði mun betri friður ríkt í varplöndum en áður. Aðild að Stéttar- sambandinu Félagið er nú fullgildur aðili að Stéttarsambandi bænda. Fulltrúi þess þar er nú Sveinn Guðmunds- son, bóndi í Miðhúsum. Gerði hann grein fyrir störfum sínum á Stéttarsambandsfundi, þar sem hann hefði lagt kapp á að kynna mikilvægi æðarræktar. Samþykktar voru tillögur um stofnun tveggja nýrra æðarrækt- ardeilda: í Vestur-Húnavatns- sýslu og í Eyjafjarðar- og Suð- ur-Þingey j arsýslu. Gestir fundarins, Jónas Jóns- son, búnaðarmálastjóri og Sveinbjörn Dagfinnsson, ráðu- neytisstjóri, fluttu fundinum kveðjur og minntu á mikilvægi æðarræktar á tímum samdráttar í hefðbundnum búgreinum. Eysteinn Gíslason í Skáleyj- um, sem setið hefur í aðalstjórn félagsins undanfarin sex ár og þar áður í varastjóm, baðst nú undan endurkjöri. í stað hans var kjör- inn Hermann Guðmundsson, Stykkishólmi. Auk hans skipa aðalstjórnina Sigurlaug Bjarna- dóttir, frá Vigur, formaður og sr. Þorleifur Kristmundsson, Kol- freyjustað. í varastjórn eru: Árni G. Pétursson, Vatnsenda og Agnar Jónsson, Reykjavík -mhg Gunnar Bjarnason: Burt með opinber afskipti - Ég er algjörlega andvígur því að hið opinbera hafl nokkur af- skipti af hrossaversluninni, sagði Gunnar Bjarnason, fyrrverandi hrossaræktarráðunautur í hressi- legu erindi, sem hann flutti á ný- afstöðnum aðalfundi Félags hrossabænda. Um hrossasölu til Ameríku, sem menn eru að gera sér vonir um að geti orðið veruleg, sagðist Gunnar ekki hafa trú á að af henni yrði í umtalsverðum mæli fyrr en Ameríkanir gætu sjálfir farið að rækta íslensku hrossin. Þá vék Gunnar Bjarnason nokkuð að landbúnaðarlöggjöf- inni og kvað það sína skoðun, að afnema þyrfti 70% þeirra laga, sem lytu að íslenskum landbún- aði. Hvað sem öðru líður þá verður ekki sagt að Gunnar Bjarnason hafi talað neina tæpitungu fremur venju. -mhg

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.