Þjóðviljinn - 25.01.1987, Blaðsíða 18
KROSSGÁTA ________________________________________Nr. 553
Setjið rétta stafi í reitina hér fyrir neðan. Þeir mynda
þá nafn á götu í Hafnarfirði. Sendið þetta nafn sem
lausn á krossgátunni til Þjóðviljans, Síðumúla 6,
Reykjavík, merkt: „Krossgáta nr. 553“. Skilafrestur
er þrjár vikur. Verðlaunin verða send til vinnings-
hafa.
Stafirnir mynda íslenskt orö eöa mjög kunnugleg erlend heiti nvort sem lesið er
lá- eöa lóörétt.
Hver stafur hefur sitt númer og galdurinn við lausn gátunnar er sá að finna
staflykilinn. Eitt orö er gefiö og á þaö að vera næg hjálp því aö með því eru
gefnir stafir í allmörgum orðum. Þaö eru þess vegna eðlilegustu vinnubrögðin
aö setja þessa stafi í hvern sinn reit eftir því sem tölurnar segja til um. Einnig er
rétt aö taka fram, aö í þessari krossgátu er geröur skýr greinarmunur á
grönnum sérhljóöa og breiðum, t.d. getur a aldrei komið í staö á eða öfugt.
Ingibjörg Gísladóttir, Hultafors
í Bollubygd í Svíþjóö, fékk verð-
launin fyrir krossgátu nr. 550.
Lausnarorðið var Droplaug. Hún
fær senda bókina Líf og list Man-
ets.
Verðlaun þessa vikuna eru
ferðaminningar Guðrúnar Guð-
varðardóttur af Vestfjörðum,
Kögur og Horn og Heljavík, sem
starfsmannafélag Þjóðviljans gaf
út fyrir jólin.
SKÁK BRIDGE
3 2 H- 7 T 1Z 73
1 T~ 3 w s 7T~ 7 ) 8 T T~ 10 11
u \3 ls )lc 17- T >8 )2 4j 2o T
W~ 2/ 7 W~ 7 T )2 2Ö )0 23 T ‘ó T T
u )S 2Ö 7 )4 )S T w~ T S ls> % T /9 )(p
)S 2 W W~ )2 )H 5 7 T 7 V T 3 2 )g
T is Í3 TT )S T 2 )(p T )b 23 )H S2
27 25 T~ M 20 )0 2 25 )°i 23 T 7 )(p )S
T~ /7 T /D TT~ 2 7 T 'Zi) 7 9 9 T vl
°i 12 25 T )ti )i (0 H T 2o 7 23
5' 10 v- io /9 T 25 2 18 u IS T /5 '2! 'kh
7 9 20 s? + 2 5 0 )/ ir 7 a /o ‘Jj n d
T n )S )S 7 7 n 23 7~ ‘X3 T 18 3
27 T~ 2 w~ T 9 12 25 )7 2 /í> TT~ is
AÁBDÐEÉFGHIÍJKLMNOÓPRSTUÚVXYÝÞÆÖ
Frá Gausdal
Svæðamótinu í Gausdal lauk
með sigri Svíans Ernst sem hlaut
6V2 vinning af níu mögulegum. í
öðru sæti varð Jóhann Hjartar-
son með 6 vinninga, en hærri á
stigum en þeir Hellers og Jón L.
Árnason sem einnig hlutu 6 vinn-
inga. Jóhann hefur tryggt sér
sæti á millisvæðamóti með þess-
um árangri, en svæðamótin eru
sem kunnugt er fyrsti liður í
keppni um heimsmeistartitilinn.
Hinir íslendingarnir á mótinu
urðu neðar, Guðmundur Sigur-
jónsson hlaut 4 vinninga og Sæ-
var Bjarnason 3. Mótið var afar
sterkt því þar tefldu sex
stórmeistarar, níu alþjóðlegir
meistarar og tveir Fide-
meistarar. Aðeins einn þátttak-
andi bar ekki alþjóðlegan titil,
Hansen frá Færeyjum, enda var
hann leikinn allhart og náði að-
eins hálfum vinningi.
Við skulum líta á tvær skákir
frá mótinu:
Hvítt: Jóhann Hjartarson
Svart: Ernst
Kóngsindversk vörn.
1. d4 - Rf6 6. 0-0 - Rc6
2. c4 - g6 7. Rc3 - a6
3. Rf3 - Bg7 8. h3 - Hb8
4. g3 - 0-0 9. Be3 - b5
5. Bg2 - d6
Svartur fer fullgeyst því hvítur er
vel undir það búinn aö mæta framrás
hans á drottningarvæng. Honum lá
ekki á og gat t.d. undirbúið e7-e5 eða
komið drottningarbiskupnum út
fyrst.
10. Rd2 - Ra5 13- Rxc4 - bxc4
11. cxb5 - axb5 14. b5 - d5
12. b4 - Rc4 15. a4 - Bf5
Hvítur hefur eignast frípeð á a-
línunni og stefnir að því að leika því
eins langt fram og unnt er. Svartur á
valdar frípeð á c4 en riddari hvíts
skorðar það kyrfilega. Hvítur stendur
1561111 17. h4 - ...
16. a5 - Dd7
17. ... - Rg4
Hér er eðlilegra að leika 17. ...
Re4. Hvítur má varla skipta á riddar-
anum á c3 því þá hangir b-peðið.
Hann verður því að leika 18. Bxe4
Bxe4 19. f3 Bf5. Þá hefur hann veikt
kóngsvænginn og svartur fær meiri
gagnsóknarfæri en í skákinni. Svartur
fórnar nú peði og fær samstæð frípeð
á c- og d-línunni en gallinn er sá að
jafnframt opnast fyrir biskup hvíts á
g2 og hann á eftir að styðja vcl við
frípeðið á a-línunni.
18. Bf4 - e5
19. dxe5 - d4
20. Bc6 - Dd8
21. Bg5 - f6
22. exf6 - Bxf6
23. Bxf6 - Rxf6
24. Ra2 - d3
25. Da4 - Dd4
Ef25.... dxe2kemur26. Dxc4+ og
27. Dxe2.
26. e3 - Dg4
27. a6 - Be6
28. a7 - Ha8
Býður upp á skiptamun en hvítur
hirðir ekki um hann því þá veikist
kóngsstaðan um of. Svartur fórnar
manni í örvæntingu en sókn hans er
hættulaus. Lokin urðu þannig:
29. Rc3 - Rh5
30. b6 - Rxg3
31. fxg3 - Dxg3+
32. Bg2 - Dxe3+
33. Khl - Dg3
34. Re4 - Dxh4+
35. Kgl - Bd5
36. Dd7 - Hf-d8
37. Dxc7 - Ha-c8
38. Rf6+ - Kh8
39. De5
Svartur þarf að valda e-peðið en
betra er að gera það með 8. ... Bg4.
9. Rh4 - Re7
Hér er líklega best 9. .. Dd7, Bb7
og 0-0-0 og sjá svo til hvernig á að
koma mönnunum á kóngsvæng út.
Svartur hefur leikið of mörgum peðs-
leikjum í byrjuninni. Jón finnur leið
til að rífa upp miðborðið og skirrist þá
ekki við að fórna manni.
10. f4 - Bb7
11. d5 - c6
12. c4 - exf4
Hvítur hótaði að kæfa svart með
f4-f5. Peðakaup á drottningarvæng
gera aðeins illt verra svo svartur af-
ræður að þiggja manninn. Skárra var
þó 12. ... Dc7 og 0-0-0.
13. Hxf4 - g5
14. Dh5+ - Kd7
15. Hxf6 - Db6+
16. Khl - gxh4
17. Df7 - Hd8
Svartur hefur teflt af álíka lítilli
fyrirhyggju og íslenskir ráðherrar.
Hvítur hótaði m.a. Bf4 og Hxd6 og er
þá skammt til loka. Hvíta drottningin
Íamar samspil svörtu mannanna og
hinn gerði Íeikur bjargar engu. Nú
vinnur hvítur lið sitt til baka með
vöxtum.
18. Hxd6+ - Kc8
Eða 18. ... Kxd6 19. De6+ Kc720.
Bf4 mát (19. ... Kc5 20. Be3 og drott-
ningin fellur).
19. De6+ - Kb8
20. Hxd8+ - Dxd8
21. De5+ - Ka8
22. Dxh8 - Rg6
23. Dd4 - c5
Svartur gafst upp.
Hvítt: Jón L. Árnason
Svart: Agdestein
Spánskur leikur
1. e4 - e5
2. Rf3 - Rc6
3. Bb5 - a6
4. Ba4 - b5
5. Bb3 - Ra5
6. 0-0 - d6
7. d4 - Rxb3
8. axb3 - f6
Hvítur á skiptamun og tvö peð yfir
þannig að skákinni er í rauninni lok-
ið. Agdestein tefldi þá allt þar til hann
varð mát.
24. Df2 - Bd6
25. Rc3 - bxc4
26. Rb5 - Bb8
27. Dxc5 - h3
28. Be3 - hxg2+
29. Kxg2 - Re5
30. Db6 - Dc8
31. h3 - Rd7
32. Dd4 - Dg8+
33. Kfl - Dg3
34. d6 - Dxh3+
35. Kel - Dhl+
36. Kd2 - Dg2+
37. Kc3 - Bxe4
38. Hxa6+ - Kb7
39. Ha7+ - Kc8
40. Dh8+ - Rf8
41. Dxf8.
Mát.
Ur ýmsum áttum
Ýmislegt er á döfinni þessa dagana
hjá Bridgesambandinu. Dagana 13.-
16. febrúar nk., verður Bridgehátíð
haldin á Hótel Loftleiðum. Hátíðin er
tvískipt, annars vegar tvímennings-
keppni 44-48 para og hins vegar opin
sveitakeppni, Flugleiðamótið.
Viðbúið er að ásókn verði mikil í
báðar keppnir mótsins, þó sérstak-
lega tvímenninginn, því þátttaka er-
lendra para virðist ætla að vera sú
mesta frá upphafi. Yfir 20 pör eru
skráð til leiks erlendis frá. Það þýðir,
að hart er í ári hjá smáfuglunum hér á
klakanum, hvað varðar að komast
inn í tvímenninginn. Virðist það ljóst
mál, að til lengri tíma litið er það
heppilegra að breyta keppnisformi í
þessu móti og opna það meir fyrir
innlendum þáttakendum. Það fer að
verða óþolandi að sífellt sömu and-
litin „sitji“ fyrir ísvona mótum. Það á
EKKI að vera forréttindi að fá að
taka þátt í tvímenning með
heimsfrægum keppendum, sérstak-
lega þegar nánar er að gætt að inni í
erlenda hópnum leynast pör frá ná-
grannalöndum okkar, sem vafasamt
erindi eiga í mót sem þetta, umfram
íslensk pör. Á ég þar við keppendur
frá Grænlandi, Færeyjum og Skand-
inavíu.
Eftir tólf umferðir af 21 í Reykja-
víkurmótinu í sveitakeppni, er staða
efstu sveita þessi: Páll Valdimarsson
234, Pólaris 228, Samvinnuferðir 222,
Atlantik 203, Delta 202, Ólafur Lár-
usson 198, Jón Hjaltason 197 og Sig-
fús Örn Árnason 188.
Næstu fjórar umferðir verða spil-
aðar í dag og á morgun í Sigtúni.
Átta pör sóttu um þátttöku í Evr-
ópumótinu í tvímenningskeppni, sem
spiluð verður í PArís helgina 27.-29.
mars nk. Þessi átta pör eru: Þórarinn
Sigþórsson - Þorlákur Jónsson, Ás-
mundur Pálsson - Karl Sigurhjartar-
son, Páll Valdimarsson - Magnús Ól-
afsson, Hermann Lárusson - Ólafur
Lárusson, Guðlaugur R. Jóhannsson
- Örn Arnþórsson, Valgarð Blöndal -
Ragnar Sv. Magnússon, Guðmundur
Pálsson - Pálmi Kristmannsson, Júlí-
us Sigurjónsson -Jakob Kristinsson.
Því miður eigum við aðeins rétt á
að senda 7 þör til keppni, þannig að
„slátra" verður einu pari af þessum
átta.
Bikarkeppni Bridgesambands
Reykjavíkur er hafin. Sveitunum 24
er skipt í átta riðla og kemst sigurveg-
ari áfram í 2. umferð. Minnt er á að
tímamörkin fyrir 1. umferð renna út
23. febrúar, svo og að þátttökugjaldið
kr. 3.200 pr. sveit, verður að greiðast
fyrir 1. febrúar. Sé því ekki hlýtt, telst
viðkomandi sveit ekki með í keppn-
inni.
Annan miðvikudag hefst baromet-
er-tvímenningskeppni Bridgefélags-
ins. Hjá Breiðfirðingum (á
fimmtudögum) er hafin skráning í
næstu keppni félagsins, sem einnig er
barometer. Hjá Kvenfélaginu er ný-
hafin sveitakeppni 16 sveita. Hjá
Skagfirðingum er nýlokið sveitak-
eppni 13 sveita (sigurvegari varð sveit
Lárusar Hermannssonar). Hjá TBK
er hafin sveitakeppni.
ÓLAFUR
LÁRUSSON g
Nokkur stórmót verða væntanlega
haldin með vorinu. Á Akureyri verð-
ur hið árlega stórmót um miðjan mars
og hjá Sandgerðis-mönnum opið
stórmót (barometer) laugardaginn 7.
mars. Breiðfirðingar í Reykjavík eru
að íhuga opið stórmót með vorinu.
Gjalddagi árgjalda félaganna til
BSÍ, var 15. janúarsl. Enn eiga nokk-
ur félög eftir að gera full skil. Hér
með er skorað á þau að gera svo.
Greiðslu má koma í pósthólf 272 -
121 Reykjavík.
Landsliðsnefnd (Jón Steinar
Gunnlaugsson, Hjalti Elíasson, Sig-
urður B. Þorsteinsson) hefur skilað af
sér ákvörðunum, varðandi val á lið-
um til keppni á þessu ári. f Kvenna-
flokki og flokki yngri spilara, f. eftir
1962, verður haldin Butler-
tvímenningskeppni helgina 21.-22.
febrúar. Hún er opin öllum spilurum
sem hug hafa á þátttöku í landsliðum í
viðkomandi flokkum. Skráningar-
frestur er til 10. febrúar, til skrifstofu
BSÍ og með hverri umsókn verður að
fylgja stutt yfirlit yfir kerfi paranna. I
Ópnum flokki verða hins vegar valin
6 pör, sem munu reyna með sér á
komandi vikum. Úr þeim hópi verða
svo endanlega valin 3 pör í landslið.
Verkefni Tiðanna í ár eru: Opinn
flokkur og kvennaflokkur fara til
Brighton 1.-15. ágúst á Evrópumótið
og yngri flokkurinn keppir á Norður-
landamótinu á Hrafnagili í Eyjafirði
20.-27. júní.
18 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN. Sunnudagur 25. janúar 1987