Þjóðviljinn - 01.02.1987, Síða 3

Þjóðviljinn - 01.02.1987, Síða 3
Ef vera kynni að telpum geðjaðist ekki að skrímslum bjuggu framleiðendur Með leikföngum eins og Masters of the Universe er seld hönnuð dagskrá sem kallar sífellt á viðbót.... Masters of the Universe annan heim fyrir þær: Töfrasvanir, skjaldmeyjar.... Fimmtán boðorð um leikföng Leikföng eiga að örva forvitni og skilning, leikföng eiga ekki að vera dulbúin kennslutæki, leikföng eiga að örva blíðu og hreyfingagleði... Segir Georg Schottmeyer, pró- fessor í uppeldisfræðum við há- skólann í Hamburg í fimmtán heilræðum um leikföng sem hann hefur saman tekið. Vikublaðið Stern birti heilræðin nýlega í tengslum við tíðindi af leikfang- amarkaði - meðal annars þeim að með gífurlega sterkri og útsmog- inni auglýsingaherferð koma stórfyrirtæki í umferð „syrpu“ eins og „Masters of the Uni- verse“, þar sem skrímslum af geimsöguætt fylgir hlutverka- skipan og vissar leikrænar línur eru lagðar, sem kalla á sífelld við- bótarkaup. Og eru margir leik- fangafróðir heldur óhressir með þá framleiðslu og aðra skylda. En hver eru þá leikfangaboð- orðin fimmtán? - Börn þurfa leikföng sem þau geta í rauninni leikið sér að. Þau vilja láta reyna á ímyndunaraflið og búa eitthvað til og því eru þau leikföng, sem mest eru örvandi, einatt einfaldir og náttúrlegir hlutir (vatn og sandur og steinar að sjálfsögðu), ekki má heldur gleyma allskonar afgöngum, spýtum og efnisbútum og náttúr- lega litir og leir. Aftur á móti eru leikföng, sem útsmognar tækni- brellur eru smíðaðar inn í, til þess fallin að gera börn óvirk og slöpp. - Gott er það leikfang sem vek- ur forvitni og eflir skilning á um- hverfi. Hér koma til skjala algeng verkfæri og ýmislegt kubba- og samsetningarkyns, sem oft má nota. - Leikföng ættu að ýta undir félagslyndi, ekki koma í staðinn fyrir að börn geri eitthvað í sam- einingu, heldur hjálpi þeim til þess. Hér verða til nefndir borð- leikir með einföldum reglum, meiriháttar kubbakassar, brúðu- leikhús og fleira. - Börnin þurfa að geta um- gengist leikföngin án aðstoðar fullorðinna, því eru þau litin homauga sem heimta flóknar notkunarreglur. - Leikföng svari þörfum barna fyrir blíðu og umhyggju, loðin kvikindi og tuskubrúður til dæm- is. Menn skulu varast að gera úr slíkum leikföngum einskonar safn, og þau falla í rauninni í gildi ef þau eru of tæknileg (talándi og gangandi brúður osfrv.). - Þau leikföng eru skárri en önnur, sem ekki skipta börnum í drengi og stúlkur. - Leikföng ættu að stuðla að leikni: börn læra að nota hend- urnar við að umgangast einfalda hluti, frá þeim skulu menn fikra sig til þeirra sem flóknari eru. - í borgum samtímans eru nauðsynleg leikföng sem hvetja til hreyfingar - boltaleikir, hjól- askautar, brunbretti. - Börn þurfa góðar bækur sem efla þá ánægju sem þau hafa af þvf að glíma við tungumálið. - Leikföng eiga að þola hn j ask, þau eiga ekki að venja börn á siði þess samfélags sem er sífellt að senda nýlegar dægurflugur á rusl- ahaugana. - Leikföng eiga ekki að vera dulbúin kennslutæki, þau eiga ekki að koma í staðinn fyrir skólann. - Veljið leikfangið ekki eftir tísku heldur eftir því sem þið vitið um bamið. - Leikfang á ekki að vera hættulegt, en má gjarna venja börn á að umgangast hættur. Engar flísar, skarpar brúnir, eng- in hættuleg efni. En á hitt er að líta, að maður lærir ekki að negla, án þess að berja á fingur sér, með því að nota plasthamar, heldur alvöruhamar. - Forðist leikföng sem gera of- beldi og stríð glæsileg og eins og sjálfsagðan hlut af lífinu. - Betra er að flikka upp á leikfang frá í fyrra, fjölga kubb- um osfrv., en að henda því og koma með nýtt í staðinn. (áb. endursagði). Útboð - Vararafstöð Hagkaup hf. Lækjargötu 4, Reykjavík, óskar eftir tilboði í vararafstöð fyrir verslanamiðstöð í Kringlumýri í Reykjavík. Vararafstöðin á að vera 200 kVA (160 kW) að stærð og heimilt er að bjóða nýja eða nýupp- gerða lítið notaða vél. Bjóðandi á að koma vélinni fyrir og prófa og skal verkinu lokið fyrir 15. júlí 1987. Útboðsgögn verða afhent á Verkfræðistofu Sig- urðar Thoroddsen hf. Ármúla 4, Reykjavík frá og með þriðjudeginum 3. febrúar 1987 gegn 5.000,- kr. skilatryggingu. Tilboðum skal skila til Hagkaups hf., Lækjargötu 4, Reykjavík fyrir kl. 11.00 þriðjudaginn 3. mars 1987 en þá verða þau opnuð þar að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska. Hagkaup hf. Lækjargötu 4, Reykjavík * ilcVcUrKeuJL. GRAFÍK - MYNDMENNT Fyrirhugað er að haida 8 vikna námskeið í Náms- flokkum Reykjavíkur, Miðbæjarskóla. Kennt verður á fimmtudagskvöldum 4 kennslustundir í einu. Kennari: Svala Jónsdóttir. Kennslugjald kr. 3.000.- Innritun næstu daga á skrifstofu Námsflokkanna frá kl. 13-21 í símum 12992 og 14106. m FÓSTBRÆÐUR TAKA LAGIÐ með sunnudagskafiinu [^wj) í h'óslbræðrahcimilinu að Langhollsvcgi 109—111 sunnudaginn 1. febrúar (húsið opnað kl. 3 e.h.). kalfihlaðborð, hcimabakaðar kökur, á aðeins 300 krónur (150 kr. fyrir börn). i'ósthnrdiiiktmur Bókmenntaviðburður TENGSL Ný ljóðabók eftir Stefán Hörð Grímsson. Vönduð útgáfa. Tengsl er fyrsta bókin í afmælisröð Máls og menningar. Hún verður seld með 30% afmælisafelætti í einn mánuð. Mál og menning J- j

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.