Þjóðviljinn - 01.02.1987, Blaðsíða 19

Þjóðviljinn - 01.02.1987, Blaðsíða 19
1786 í Landsbóka- safninu Grundafjörður, ísafjörður, Akureyri, Eski- fjörður og Vestmannaeyjar fengu kaupstaðaréttindi árið 1786 um leið og Reykjavík. Gunnar Sveinsson hefur sett upp sýningu íanddyri Landsbókasafnsinsíti- lefni af því Reykvíkingar héldu upp á tvö hundruð ára afmæli sitt sl. sumar og var ekkert til sparað. Þeir voru þó ekki einir um að eiga stóraf- mæli því fimm kaupstaðir aðrir héldu einnig upp á að tvö hundr- uð ár eru síðan þeir fengu kaupstaðaréttindi, þó sumir þeirra hafi reyndar misst þau á tímabili. Þeir kaupstaðir sem fengu rétt- indi árið 1786 voru auk Reykja- víkur, Grundafjörður, ísafjörð- ur, Akureyri, Eskifjörður og Vestmannaeyjar. Nú hefur verið komið upp lítilli sýningu í anddyri Landsbóka- safnsins þar sem afmælis þessara fimm byggðalaga er minnst. Það er Gunnar Sveinsson, skjala- vörður, sem á veg og vanda af þessari sýningu. Gunnar sagði að sýningin hefði komið upp skömmu fyrir jól og tók hún við af sýningu um Sigurð Nordal. Bjóst hann við að þessi sýning myndi standa eitthvað fram á árið, að önnur sýning leysti hana af hólmi. Á sýningunni gefur að líta hverjir fæddust fyrstir í kaupstöðunum, eftir að þeir fengu réttindi og hvaða persóna lést fyrst. Eru þessar upplýsingar fengnar úr elstu sóknamannatöl- um og kirkjubókum, að sögn Gunnar Sveinsson, skjalavörður skoðar kirkjubók Grundarfjarðar. Mynd Sig. Gunnars. t.d. á Akureyri, en þar voru átta kom úr Dóma- og þingabók Þá kennir ýmissa annarra grasa hús á þessum árum. Einnig er Eyjafjarðarsýslu 1771-1788. þarna. Upplýsingar um fjölda sýndur skrifsandur, blandaður Sandurinn þjónaði sama hlut- íbúa kaupstaðanna, skrá yfir hús neftóbaki og óhreinindum, sem verki og þerripappír. -Sáf Loftskipastríð Ijósmyndarisa Ljósmyndafyrirtækin Fuji og Kodak heyja nú grimman og sér- stæðan loftbardaga yfir Japan. Risastór loftskip, skreytt vöru- merkjum þessara tveggja vold- ugu filmuframleiðenda, sigla nú yfir Tokyo og koma einatt svo nálægt hvort öðru, að áhorfend- um sýmist sem raunverulegur loftbardagi geti brotist út hvenær sem er. Orusta þessi hófst í ágúst sem leið þegar Kodak leigði sér eina loftskipið í Japan. Japanir vildu ekki láta sinn himin eftir amerísk- um aðskotafuglum, og fluttu þeir sitt eigið loftskip, Stóra-Fuji, sem hefur verið á sveimi yfir London, heim til Japan. Mikið er í húfi - því að Fuji ræður nú þrem fjórðu hluta japanska markaðarins. Skrifstofur Rauða kross Islands eru nú að Rauðarárstíg 18, Reykjavík. Sjúkrahótelið verður enn um sinn að Skipholti 21, Reykjavík. Símanúmer Rauða krossins eru: -skrifstofa RKÍ Rauöarárstíg 18 - Sjúkrahótel Skipholti 21 skrifstofa gestir - Hjálpartækjabankinn Nóatúni 21 - RK-húsið Tjarnargötu 35 - símaráðgjöf fyrir börn og unglinga - Reykjavíkurdeild, Öldugötu 4 - Múlabær Ármúla 34 - Hlíðabær Flókagötu 53 - Hjálparsjóður RKÍ (símsvari) - kassadeild (símsvari) - Akureyrardeild, Kaupangi v/Mýrarveg 91/26722 91/20520 91/20521 91721333 91/622266 91/622260 91/28222 91/687122 91/621722 91/21900 91/29179 96/24402 Rauðakrosshótelið verður opnað í vor að Rauðarárstíg 18, Reykjavík Telexnúmer Rauða krossins er 2180 RAUÐI KROSS ÍSLANDS.HP

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.