Þjóðviljinn - 01.03.1987, Síða 11
Dr. Erlendur Haraldsson: Sumir sögöust hafa séð nálarför á líkama sínum. Mynd E.ÓI
2/3 tilvika hafði sjúklingurinn
þjáðst af meininu í ár eða lengur.
Þarna var um ýmis konar sjúk-
leika að ræða, allt frá alvarlegum
hjartasjúkdómum og krabba-
meinum til gigtar og óljósra bak-
verkja. Þá var þess oft getið að
fyrst hefði verið leitað eftir hug-
lækningum eftir að aðrar lækn-
ingaaðferðir höfðu brugðist.
72 töldu sig
fá bata
Um árangurinn er það helst að
"segja að 28 af hundraði töldu að
ekki hefði verið um neinn bata að
ræða, í 32 tilvikum um nokkurn
bata og í 40 tilvikum var fullyrt að
náðst hefði fullur bati fyrir at-
beina huglæknis, en fyrir þessu
höfum við aðeins orð fólksins
sjálfs.
Við sáum nokkuð samband á
milli þess um hvers konar sjúk-
leika var að ræða og hvort bati
náðist, það voru aðallega þeir
sem þjáðust af minniháttar og
óljósum sjúkleika sem töldu sig
hafa náð fullum bata. Það skipti
hins vegar ekki neinu máli svo
mark væri takandi á hvaða hugl-
ækningaaðferð var beitt, né hver
huglæknirinn hefði verið. Ég
verð þó að geta þess að hér var
um lítið úrtak lækna að ræða, og
tilgreindir voru 8 læknar sem
fleiri en einn höfðu leitað til.
Von sjúklings um bata virtist
hafa nokkur áhrif, þeir sem voru
vongóðir áður en leitað var til
huglæknis virtust hafa meiri líkur
á að fá bata að eigin mati. Það
fannst einnig nokkuð samband á
milli lækninga og trúhneigðar
fólks, trúað fólk taldi sig fremur
hafa náð bata en aðrir. Það kom
reyndar koma fram að trú-
hneigðin, guðstrúin, skipti frem-
ur máli en trú á dulræn fyrirbæri.
Lœkning frá
andalœkni
Við spurðum ennfremur um
það hvernig menn túlkuðu þessar
lækningar. Þriðjungur þeirra 72
sem sögðust hafa fengið einhvern
Dr. Erlendur
Haraldsson
dósentí
sálfrœði segir
frá kðnnun sinni
umviðhorf
íslendinga og
reynslu þeirra
aflœkningum
frá öðrum heimi
bata töldu að lækningin hefði
komið frá andalækni, þ.e. látnum
lækni, og jafnmargir töldu að
lækningin hefði orðið vegna
máttar fyrirbæna. 17 töldu að
lækninguna mætti rekja til ein-
hvers afls sem huglæknirinn
byggi yfir og 10 töldu að þeirra
eigin trúhneigð hefði ráðið mestu
um lækninguna. 13 sögðust ekki
vita hvað olli batanum.“
-Hefur þú sjálfur leitað til hug-
lœknis eða myndirðu gera það ef
þú þyrftir á þvíað halda, nú þegar
þú hefur kynnt þér þessi mál
svona ítarlega?
„Ég get ekki sagt hvað ég
myndi gera ef þörfin væri brýn,
en ég hef aldrei leitað til hug-
læknis enda ekki þurft á því að
halda sem betur fer.“
Að lokum Erlendur, ertu trú-
aðri nú en áður á árangur hugl-
œkninga?
„Ég held að viðhorf mín hafi
lítið breyst við að framkvæma
þessa rannsókn, ég tek þessu með
sama fyrirvara og ég gerði áður,
en tel rétt að vera opinn gagnvart
því sem við vitum fjarska lítið
um.“
-vd.
með SS-saltkjöt á borðum
SALTKJÖT OG BAUNIR ERU ÓMISSANDI Á Faröu í einhverja SS-búöina og keyptu hæfilegan
S.PRENGIDAG. Þá skiptir mestu að saltkjötið sé hæfi- skammt af saltkjöti, baunum, kartöflum, lauk,
lega salt, mjúkt og gómsætt. Þessa kosti hefur SS-salt- rófum, gulrótum, selleríi, blaðlauk og ef til vill
kjötið. ÞÁÐ ER EINFALT MÁL AÐ MATREIÐA VEISLU- beikoni, sem mörgum þykir gefa gott bragð.
MATINN Á SPRENGIDAG. VERÐI YKKUR AÐ GÓÐU.