Þjóðviljinn - 01.03.1987, Blaðsíða 15
Andy Warhol, sem varð fræg-
ur fyrir að gera myndir af
myndum, er látinn. „Ég vildi
óska þess að ég væri vél,“ var
eitt sinn haft eftir honum
Úr kvikmyndinni „Flesh“
Andy Warhol er látinn. Hvort
þjóðsögnin um Andy Warhol dó
með honum er hinsvegar óljóst
enn. Maðurinn sem var frægur
fyrir að gera myndir af myndum
fékk heilablóðfall aðeins 59 ára
að aldri.
Andy Warhol byrjaði feril sinn
sem auglýsingateiknari en fór síð-
an að gera myndir af auglýsing-
unum og var heimsfrægur fyrir.
Hann var einn af popplistamönn-
unum bandarísku, sem vöktu
mikla athygli á sjöunda áratugn-
um. Árið 1964 málaði Warhol
sína frægu dósamynd af Camp-
bells tómatsúpu. Tveim árum
áður hafði hann útfært ljósmynd
af þokkadís auglýsingaskrums-
ins, Venus bandaríska neyslu-
þjóðfélagsins, Marilyn Monroe.
Seinna átti hann eftir að gera
myndir í svipuðum dúr af fleiri
kvikmyndagyðjum, nú síðast af
Ingrid Bergman, sem til skamms
tíma hafa hangið uppi í Norræna
húsinu.
Maður
endurtekninganna
Warhol var maður endurtekn-
inganna, þessvegna bjó hann líka
til myndir af veggfóðri með
blómamunstri og öðru með kýr-
hausum. Myndirnar af veggfóðri
voru veggfóður. Hann bjó líka til
mynd af dollurum, röð af þessum
grænu seðlum sem auglýsinga-
heimurinn snérist í kringum.
En það voru ekki bara myndir
af ytra borði hins ameríska raun-
veruleika sem urðu viðfangsefni
hans. Fræg er mynd hans af raf-
magnsstólnum og önnur af hrylli-
legu bílsslysi.
Sumum finnst ekki mikið til
myndlistarmannsins Andy War-
hol koma og eiga erfitt með að sjá
hann sem þann brautryðjanda
sem aðrir vilja gera hann að.
Hinsvegar dylst engum að hann
hafði þýðingu. Erfiðara er aftur á
móti að gera sér grein fyrir því
hvaða þýðingu hann hafði. Hann
átti sinn þátt í því með öðrum
popplistamönnum að afhjúpa
innihaldslausa tilveru neyslu-
þjóðfélagsins. Ekki bara með
myndum sinum. Ekki síður með
sjálfum sér og lífi sínu.
Giftur segulbandi
Hann bjó með hundi sínum
Archie í New York, sjónvarps-
tækjum og segulbandi: „Seint á
sjötta áratugnum hófst ástarsam-
band mitt við sjónvarpstæki og
það hefur haldið áfram allt til
dagsins í dag. í svefnherbergi
mínu eru fjórir imbar. En ég gift-
ist ekki fyrr en 1964 þegar ég
eignaðist mitt fyrsta segulbands-
tæki. Ég og eiginkona mín, segul-
bandið, höfum verið gift í áratug
núna. Þegar ég segi „við“ á ég við
segulbandið mitt og mig. Fjöldi
fólks skilur það ekki.
hann fékk ekki fullnægingu í
munn minn.“
Um fegurðina: „Það fallegasta
við Tokyo er McDonald's. Það
fegursta við Stokkhólm er
McDonald‘s. Það fegursta við
Flórens er McDonald's. Peking
og Moskva hafa enga fegurð enn.
Ameríka er reglulega falleg en
hún væri fallegri ef allir ættu nóga
peninga til að framfleyta sér.“
„Það er þrennt sem mér finnst
ætíð fallegt: gömlu skórnir mínir
sem særa mig ekki, rúmið mitt og
tollverðirnir í Bandaríkjunum
þegar ég kem heim.“
Um tímann: „Ég lifi fyrir fram-
tíðina, vegna þess að þegar ég hef
sælgætisöskju get ég ekki beðið
eftir að bragða síðasta bitann. Ég
sleppi því j afnvel að bragða á hin-
um bitunum. Ég vil bara ljúka
þessu af og henda burt öskjunni
svo ég þurfi ekki að hugsa meira
um hana. Ég vil bitann nú eða
ekki svo ég geti hætt að hugsa um
hann. Þeir dagar koma því að ég
óska þess að ég sé orðinn ellilegur
útlits svo ég geti hætt að hugsa um
það hvernig ég verð þegar ellin
ber að dyrum.“
Bókin er auðvitað full af mót-
sögnum einsog vera ber hjá
helsta páfa popplistarinnar en
þessar mótsagnir eru líka afhjúp-
andi, ekki bara um hugarheim
listamannsins heldur einnig um
umhverfið sem hann hrærist í.
Andy Warhol var ekki við eina
fjölina felldur í list sinni. Áður
hefur verið minnst á myndlistina
og heimspekiþanka hans, en
hann kom víðar við.
Kvikmyndir
Á vegum Warhols voru fram-
leiddar fjöldinn allur af kvik-
myndum. Það byrjaði með sjö
tíma langri kvikmynd um Empire
State bygginguna. Það eina sem
gerðist í þeirri kvikmynd var að
ljós voru tendruð og slökkt í
gluggum byggingarinnar. í kjöl-
farið kom svo fjöldinn allur af
'kvikmyndum sem fjölluðu um þá
þætti borgarlífsins sem sjaldnast
er greint frá í bandarískum kvik-
myndum. Kvikmyndimar voru
mjög bersöglar kynferðislega og
þeim ekkert heilagt. Þó var hér
ekki um klámmyndir að ræða
heldur fjölluðu þessar myndir um
einmanaleikann í fólksmergð-
inni, um það hvemig tilfinninga-
fatlað fólk leitar sambands við
sína líka; um tómleikann.
Warhol leikstýrði fæstum af
kvikmyndunum, heldur ungaði
hann út hugmynd og lét aðra um
að vinna úr henni. Þó fæstar af
þessum kvikmyndum nytu al-
mannahylli þá hafa þær samt haft
sín áhrif. Þær urðu til þess að
fjöldinn allur af kvikmyndagerð-
armönnum í Bandaríkjunum
eygði möguleika til að gera kvik-
myndir óháðar stóru kvikmynda-
verunum. Heil kynslóð óháðra
kvikmyndagerðarmanna fylgdi í
fótspor Warhol, Casavetty er
bara einn þeirra.
Popptónlist
Og frá kvikmyndunum skulum
við halda inn á svið tónlistarinn-
ar. Þó ekki sé vitað til þess að
Warhol hafi haldið lagi né kunn-
að gamla Nóa á píanó hafði hann
mikil áhrif á þróun popptónlistar-
innar með því að koma ákveðn-
um listamönnum innan hennar á
framfæri. Það byrjaði með Vel-
vet Underground í New York.
Það var Andy sem uppgötvaði þá
og útvegaði þeim staði til að flytja
tónlist sína á. Frá Velvet Under-
groun komu tónlistarmenn á
borð við Lou Reed, Nico og John
Cale. Fleiri hljómsveitir tók hann
upp á arma sína þó engin hafi náð
jafn langt og Velvet á sínum tíma.
Að lokum skal svo minnst á
það að Andy Warhol gaf út eigið
tímarit: Andy WarhoPs Intervi-
ew Magazine, eða Viðtalsritið.
Það fer ekkert á milli mála að
Warhol var mikill áhrifavaldur í
bandarískri listsköpun, hver svo
sem skoðun manna er á persón-
unni og verkum hennar.
„Ég vildi óska þess að ég væri
vél,“ var haft eftir Warhol.
-Sáf
Þessi orð eru úr heimspekiriti
Andy Warhol, Frá A til B og aft-
ur til baka, sem kom út árið 1975.
í þeirri bók kennir ýmissa
skemmtilegra grasa. Þar stígur
fram allt annar Andy en í mynd-
unum. Bókin er mjög opinská um
persónu hans. „Móðir mín sagði
mér að hafa engar áhyggjur af
ástinni, það eina sem ég yrði að
ábyrgjast væri að giftast. En ég
vissi alltaf að ég myndi ekki gift-
ast, vegna þess að ég vildi ekki
eignast börn, ég vildi ekki að þau
hefðu sömu vandamál og ég. Ég
held að enginn verðskuldi það.“
Það er hægt að grípa niður í
bók Andy Warhols hvar sem er:
„Ég hugsa mikið um það fólk sem
sagt er laust við öll vandamál,
fólk sem giftist og lifir og deyr og
allt er dásamlegt. Ég þekki eng-
ann sem þannig er ástatt um. All-
ir mínir kunningjar hafa einhver
vandamál, þó ekki sé nema það
að ekki er hægt að sturta niður f
klósettinu hjá þeim.“
Fegurðin
er McDonald's
Um ástina: „Skoðanir manna á
ástinni eru mismunandi. Stúlka
sem ég þekki sagði við mig; ég
vissi að hann elskaði mig þegar
Campbell's
Sunnudagur 1. mars 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15