Þjóðviljinn - 01.03.1987, Side 19
Knattspyrna
Þetta má
hann ekki
segja
Markvörður vesturþýska landsliðsins skrifar
bók um lyfjanotkun, flokkadrœtti og kynlíf.
Markvörður vesturþýska
landsliðsins, Toni Schumacher,
hefur skrifað bók um líf sitt og’
annarra knattspyrnustjarna sem
hefur vakið mikla reiði áður en
hún sér dagsins Ijós - enda er
þar fjallað um viðkvæm mál eins
og lyfjanotkun, kynlíf knatt-
spyrnumanna, klíkufjandskap og
fleira þesslegt.
Bókin er skrifuð í samvinnu við
franskan blaðamann, Michel
Meyer. Vikublaðið Spiegel er
þegar farið að birta úrdrætti úr
bókinni og er þar fyrst gripið nið-
ur sem vesturþýska landsliðið er
mætt til Heimsmeistarakeppni í
Mexíkó og vegnar vel - nema
hvað Schumacher sleppir boltan-
um í netið í úrslitaleik gegn Arg-
entínumönnum og kennir sjálf-
um sér um og grætur beisklega
eins og þar stendur.
Örvandi lyf
í þessum kafla er mikið fjallað
um innbyrðist átök í liðinu,
stjörnudrauma manna eins og
Rummenigge, sem hafa selt sál
sína með vafasömum kjörum fyr-
irtækjum eins og Adidas og Fuji,
og svo þann eilífa og þungbæra
þrýsting til afreka sem hvílir á
knattspyrnuhetjum. Schumacher
viðurkennir fúslega að bæði hann
og aðrir knattspyrnumenn
freistist oftar en ekki til að lyfta
sér á kreik, vinna gegn þeirri
þreytu sem er óhjákvæmilegur
fylgifiskur álagsins, með ýmsum
örvandi lyfjum. Hann minnist
þess til dæmis að hann og félagar
hans, atvinnumenn í Köln, hafi
fyrir mikilvægan leik haustið
1984 sturtað í sig hóstasaft, sem
inniheldur verulegt magn af eph-
edrini, sem á að auka úthald
manna og efla með þeim árásar-
hvöt.
Schumacher varar mjög
stranglega við þessum og öðrum
tilraunum knattspyrnumanna til
að snúa á líkamann - eftirköstin
séu afleit, svefnleysi og náttúru-
leysi. En hann segir að notkun
örvandi lyfja sé algeng, enda séu
Toni Schumacher (fyrir miðju) hefur stokkið út úr marki í úrslitaleik við Argentínumenn í Heimsmeistarakeppninni í
Mexíkó: álagið er feiknalegt...
knattsyrnumenn ekki undir eins
sterkulyfjaeftirliti og ýmsir aðrir
íþróttamenn - nema þá í Evrópu-
meistarakeppni og Heimsmeist-
arakeppni.
Þegar Schumacher ræðir um
Mexíkódvölina ásakar hann
lækna landsliðsins fyrir að dæla
alltof miklu af allskonar efnum - í
pillum og sprautuformi - í skrokk
knattspyrnumanna, enda hafi
þeir þjáðst af niðurgangi og fleiri
óþægindum fyrir bragðið. Hér fer
margt saman - svefntöflur til að
hvflast betur, plöntuseyði til að
styrkja mótstöðuafl líkamans, ví-
tamín C og B12 í stórum
skömmtum, hunangsseyði til að
styrkja hjarta og blóðrás, extrakt
úr kálfsblóði til að vinna gegn af-
leiðingum hins þunna lofts í Mex-
íkó. Þar fyrir utan E-vítamín í
stórum stfl.
Konur og
blaðamenn
Að því er varðar kynlíf er Schum-
acher sjálfur á því að best sé að
halda sér frá kvenfólki meðan á
harðri keppni stendur - þá gangi
mönnum best að einbeita sér að
því að „vera bestur í heimi",
koma sjálfum sér í sigurvænlegt
ástand. Hitt kunni svo ekki góðri
lukku að stýra þegar menn alhæfa
um of í þessum málum - mark-
vörðurinn vill t.d. grípa til þjón-
ustu „öruggra“ vændiskvenna ef
það getur hjálpað einhverjum til
að spila betur.
Bók Schumachers hefur þegar
vakið upp mikla gemju áður en
hún kemur út eins og fyrr seeir.
Sjálfur skýtur hann óspart á blöð
og blaðamenn fyrir að blása til
illinda milli knattspyrnumanna -
landslið án árekstra og haturs er
alls ekkert spennandi fyrir blöðin
segir hann.. Engu líkara en á rit-
stjórnarskrifstofunum sitji menn
og búi til allskonar sögur sem við
eigum svo að ganga inn í, gegna
hver því hlutverki sem til er ætl-
ast.
Markverðinum heimsfræga
liggur sérlega illt orð til þeirra
dálkahöfunda blaðanna, sem
sjálfir eru fyrrverandi knatt-
spyrnumenn og þjálfarar - þeir
noti tækifærin sem þeir hafa fyrst
og síðast til að spýja galli haturs
síns yfir þá sem enn hrekja bolta á
milli marka. (byggt á Spiegel)
GETUR DUANHENNAR
Hún er alltaf laus
og býöurþér
★ Háa vexti frá fyrsta innborgunardegi
★ Vexti sem færðir eru á höfuðstól
tvisvar á ári
★ Hávaxtaauka reynist verðtryggð
kjör betri
_ : ttrarla
....
■
agp
HAVAXTA
BÖK
ArsAvúxtun
204%
0
MVINNUBANKI