Þjóðviljinn - 22.03.1987, Síða 7
GLÆTAN
P^lítíl€ Jón Baldvin, einn af tíu pólitíkusum
■ 1wlllllVog eini kratinn, með uppblásinn
smokk. - Ætli smokkurinn sé örugg-
ari en fylgi Alþýðuflokksins?
Sigþór Sigurðsson, formaður ne-
1nÍ®111”I mendafélags Fjölbrautaskólans í
Breiðholti. Hann hélt einmitt
smokkaballið fræga.
með?
ekki farið út í skiptingu milli fé-
laga, þótt því sé ekki að neita að
ÍR-ingar eiga engan fulltrúa.
Handboltalandsliðið er skiljan-
lega vinsælt, en einungis tveir eru
úr fótboltanum Pétur Ormslev
(eiginmaður Helgu Möller) og
Þorgrímur Þráinsson. Það sem
vekur þó athygli er að enginn úr
skáksveitinni okkar er með: Hvar
eru Helgi, Margeir, Jón L. og Jó-
hann?
Eðvarð Þór Eðvarðsson
íþróttamaður ársins, Einar Vil-
hjálmsson og íris Grönfeldt eru
með. Jón Páll að sjálfsögðu einn-
ig. Leikarar fengu sama kvóta og
íþróttamenn og pólitíkusar. Þar
eru spaugararnir vitaskuld áber-
andi og verður að vona að unga
fólkið taki þá alvarlega.
Síðan eru einir sjö rithöfundar.
Steinunn og Thor auðvitað enda
urðu þau aflahæst á nýliðinni
vertíð. Unglingabókahöfundarn-
ir Eðvarð Ingólfsson og Andrés
Indriðason mæla báðir með
smokknum við lesendur sína,
sömuleiðis Ólafur Haukur, Þór-
arinn Eldjárn og Sjón. Fleiri rit-
höfundar fengu ekki úthlutun að
þessu sinni.
Bissnessmennirnir í bandinu
eru sex talsins, allir dágóðir full-
trúar uppakynslóðarinnar: Guffi
á Gauknum, Gerður í Flónni,
Halldór í Henson og Broadway-
Laufdal. Áberandi viðskiptajöfr-
ar á borð við Davíð Scheving og
Arkar-Helga komast ekki á blað.
Aðrir hópar eiga síðan færri full-
trúa; menntaskólanemar, feg-
urðardísir, kvikmyndagerðar-
menn, læknar, danskennarar og
dansarar.
Latínuskólinn getur þó unað
glaður við sitt, forsetar Framtíð-
arinnar síðustu tvö árin eru báðir'
með: Birgir Ármannsson (sem
mætti teljast með stjórnmála-
mönnum líka) og Kristján
Hrafnsson (sem eins ætti heima í
skáldahópi). Faðir Kristjáns,
Hrafn Gunnlaugsson, er einnig á
plakatinu og eru þeir einu feðg-
arnir, að því er næst varð komist.
Enginn
kaupfélagsstjóri!
Prestur sem ég ræddi við hafði
sitthvað til málanna að leggja:
„Við kirkjunnar menn höfum
mikla áhyggjur af þessum válega
gesti - eyðni - og viljum leggja
okkar af mörkum. Hins vegar er
enginn guðsmaður á þessu vegg-
spjaldi. Ekkert nema fjölmiðlaf-
ígúrur og popparar. Eins og ein-
hver taki nú mark á þeim! Við
prestar erum allt eins reiðubúnir
að mæla með notkun smokksins.
Og ég vil gera það hér með!“
En prestar eru vitaskuld ekki
eina stéttin sem útundan varð. í
því sambandi er fróðlegt að rifja
upp, að samkvæmt könnun sem
gerð var fyrir fáeinum árum þá
bera íslendingar gífurlegt traust
til kirkjunnar og lögreglunnar.
Fjölmiðlar voru í könnuninni
skör lægra. Hvar eru þess vegna
löggumar? Bjarki Elíasson til
dæmis? Eða Óskar Ólason, Arn-
ar Jensson og Sigurjón Sigurðs-
son?
Það er einnig athyglisvert að
Reykvíkingar em nánast einráðir
á markaðinum. Samt hafa þessi
plaköt verið hengd upp útum allt
land. - Það vita allir hversu illa
landsbyggðinni er við það að taka
við fyrirmælum að sunnan.
Hvernig bregst unga fólkið á Súð-
avík við? Kannski væri ráð að
staðfæra þessi plaköt fyrir ein-
stök byggðarlög: Þar gætu
kaupfélagsstjórinn, presturinn,
hreppstjórinn og formaður ung-
mennafélagsins haldið á smokki.
Úr kaupfélaginu. - Þessu er hér
með kornið á framfæri!
-þj.
MORFÍS:
En MR tapaði úrslitakeppninni fyrir FG
Lið Fjölbrautaskólans í Garða-
bæ bar sigur úr býtum í Mælsku-
og rökræðukeppni framhalds-
skólanna, þegar það mætti MR-
ingum í Háskólabíói á dögunum.
Menntaskólinn í Reykjavík sigr-
aði tvö fyrstu árin sem keppnin
var haldin og átti þess kost að
vinna til eignar forláta bikar sem
Visa-ísland gaf á sínum tíma.
Úrslitakeppnin var afar jöfn og
tvísýn; MR-ingar urðu lítið eitt
hærri að stigum en Fjölbrauta-
skólanemar voru hins vegar hærri
hjá tveimur dómumm af þremur
og töldust því sigurvegarar á
hinni svokölluðu og afar um-
deildu „2-1 reglu“. Ræðumaður
kvöldsins var úr MR, Illugi
Gunnarsson sem þar með tryggði
sér þann titil í fjórða sinn í vetur.
-M-
lllugi vann
í fjórða sinn
Súrmiólk
mntwiimmti n iii'iwiíiiiwtnBiinwTOaMimwiiaMMMwiwwiwMww
llítri
VIÐ UÓÐUM
EINS OC OKKtJR SÝNIST
Fjölbrautaskólinn í
Breiðholti getur af sér
skáldahóp í kringum
súrmjólk. Síðastvar
þaðsúrrealismi. Hvað
næst?
LJÓÐAGERÐ
súrmjólk 1 lítri
- Súrmjólkur■
hópurinn arf-
taki súrrealist-
anna í FB?
Glætunni hefur borist Ijóðabók
eftir nokkra framtakssama unga
menn, sem að sögn stunda nám í
Fjölbrautaskólanum í Breiðholti.
Kverið heitir Súrmjólk I lítri, að
því er best verður séð, en undir-
titillinn er: „Við ljóðum eins og
okkur sýnist“.
Alls eru 15 ljóð í bókinni eftir
sex höfunda, þá Helga, Orra,
Hlyn, Steinar, Óskar og Árna.
Viðfangsefnin eru í bland tengd
reynsluheimi ungra drengja en
fara út í heimspekilegar vanga-
veltur um hinstu rök þessa heims
og annars.
Nú er ekki að vita nema
Súrmjólkurdrengirnir eigi eftir
að gerast stórtækari í landnámi
sínu á akri skáldskaparins: Eins
og alþjóð er kunnugt reis upp í
þessum sama skóla hópur pilta
fyrir fáeinum árum og stofnaði
félagið Medúsu í kringum súrre-
alistíska ljóðagerð. Piltaflokkur-
inn úr Medúsu hefur unnið til
margra metorða, þótt menn
greini einatt á um hvort allir hafi
þeir haft erinui sem erfiði.
En fordæmi súrrealista getur
orðið þeim Súrmjólkurdrengjum
gott vegarnesti og lærdómsríkt.
-þj.