Þjóðviljinn - 22.03.1987, Qupperneq 14

Þjóðviljinn - 22.03.1987, Qupperneq 14
Bjöm Brynjólfur Björnsson: Flokkarn- ir eru aö verða sér úti um ákveðna ímynd. Sé auglýsing unnin af viðvan- ingum verður það sú ímynd sem flokkarnir koma á framfæri. Ólafur Ragnar Grímsson: Við ættum kannski að taka upp kjörorðið „Kjósið ekki eftirlíkingar". Kjartan Gunnarsson: Ég á ekki von á því að Sjálfstæðisflokkurinn auglýsi aftur í Þjóðviljanum. Kosningabaráttan orðin auglýsingabarátta.Áherslan lögð á menn en ekki málefni. Framboðsfundir á undanhaldi. Má búast við auglýsingaflóði í sjónvarpi? Rœtt við nokkra aðila sem málið varðar Lesendur Þjóðviljans ráku upp stór augu þegar þeim barst Sunnudagsblaðið í hendur um síðustu helgi. ( blaðinu gat að líta heilsíðu auglýsingu frá Sjálfstæðis- flokknum í Reykjanesi. Efstu menn listans staddir í hávað- aroki við Svartsengisvirkjun og gufustrókur í baksýn. Merkilegt hvað þessi staður er vinsæll hjá auglýsingamönnum. Þarna var Icyflokkurinn með tískusýningu fyrir dægurlagasam- keppnina og Bubbi notaði Blá- lónið í upptöku á myndbandi. Nú átti hinsvegar að selja stjórnmálamenn út á umhverfið. Hvað er eiginlega að gerast þegar Sjálfstæðismenn eru farnir . að auglýsa í málgagni sósíalisma, þjóðfrelsis og verkalýðshreyfing- ar? Er kosningabaráttan bara auglýsingabarátta? Er nema von að barnið spyrji? Og allir aðrir líka. Daglega birtast heilsíðu auglýsingar frá stjórnmálaflokkunum í dag- blöðum, stundum jafnvel heilar opnur og dæmi eru um að auglýs- ing hafi verið upp á fjórar síður. Er þetta kannski framhald á auglýsingastrfði einstakra fram- bjóðenda í prófkjörum? Auglýs- ingastríði sem flestir flokkar fordæmdu. ímynd komið á framfœri „Það er í sjálfu sér ekkert nýtt við það að flokkar auglýsi fyrir kosningar, það sem er nýtt við þessar auglýsingar núna er það að það er leitað til fagmanna til að gera auglýsingarnar," sagði Björn Brynjólfur Bjömsson hjá auglýsingastofunni Gott fólk. Björn sagði að með þessum auglýsingum væru flokkarnir að verða sér úti um ákveðna ímynd og sé auglýsing unnin af viðvan- ingum verður það sú ímynd sem flokkurinn kemur á framfæri. Það var G-listinn á Reykjanesi sem byrjaði kosningabaráttuna með heilsíðu auglýsingum í DV og Þjóðviljanum þar sem fimm efstu menn listans voru kynntir. í kjölfar auglýsinganna fylgdi svo veglegt tímarit en hingað til hafa flokkarnir látið sér nægja að gefa út kosningablöð. Kjósið ekki eftirlíkingar „Við ættum kannski að taka upp kjörorðið Kjósið ekki eftir- líkingar," sagði Ólafur Ragnar Grímsson, sem er í baráttusætinu á Reykjanesi. Ólafur sagði að sér hefði verið bent á að aðrir flokkar hermdu eftir kosningabaráttu G- listans í kjördæminu. „Við höfum lagt áherslu á að ná til fólksins með einföldum og skýrum boð- skap og er áherslan jafnt á per- sónur og málefni. íslenskt þjóðfélag hefur verið að breytast úr fámennisþjóðfélagi í nútíma fjölmiðlasamfélag og megintækin til að koma boðskap á framfæri við fólk eru fjölmiðlar. Því hafa flokkarnir neyðst til að fara inn á þær brautir að kaupa sér pláss í blöðum til að koma stefnu og stíl á framfæri.“ Auglýsingastarfsemin nægir þó engan veginn heldur hafa fram- bjóðendur lagt ríka áherslu á grasrótarvinnu. „Við höfum lagt ríka áherslu á vinnustaðaheim- sóknir og þangað förum við ekki til að messa yfir fólkinu heldur til þess að ræða við það í góðu tómi og kynnast skoðunum þess og kynna okkar skoðanir í návígi við kjósendur. Kosningastarf okkar hefur því verið sambland af fjölmiðla- og auglýsingastarfi og skipulagðri grasrótarvinnu. Þetta tvennt verður að fara saman. Kosningabarátta í fjölmiðlum einum án grasrótarstarfsemi verður fljótt innantóm og gras- rótarstarfsemi án virkrar fjöl- miðlabaráttu nær aldrei virki- legum styrk.“ Á móti nýja stílnum Kjartan Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri Sjálfstæðisflokks- ins, er ekki sammála Ólafi Ragn- ari. Hann segist alfarið á móti þeim nýja stfl sem nú er yfir kosn- ingabaráttunni. Segir hann kosn- ingabaráttuna frekar eiga að fara fram í gegnum ritstjórnir dag- blaðanna en auglýsingadeildir, án þess þó að hann sé að kasta neinni rýrð á ágæti auglýsinga- deildanna sem slíkra. „Því miður virðast aðrir flokk- ar en Sjálfstæðisflokkurinn ætla að heyja sína kosningabaráttu í gegnum auglýsingadeildirnar. Það ríkir einhver ofurtrú á glansí- myndir af stjórnmálamönnum og þetta Hollywoodandrúmsloft sem skapað hefur verið í kringum stjórnmálin er ekki skemmtilegt. Það má hinsvegar vel vera að það skili árangri og er vel hugsanlegt að það reki okkur til að grípa til svipaðra ráða.“ Að sögn Kjartans háði Sjálf- stæðisflokkurinn kosningabar- áttu byggða á blaðaauglýsingum árið 1979 en þau vinnubrögð hafa ekki verið tekin upp síðan, hvað sem nú verður. Nú sló framboðslistinn á Reykjanesi nýjan tón þegar hann auglýsti í Þjóðviljanum um síð- ustu helgi? „Ég á ekki von á að það endur- taki sig. Persónulega tel ég að það eigi að dæma menn af verk- um þeirra og vil að þau verði látin tala. Einsog þú heyrir þá virðist ég vera á móti allri kosningabar- áttu en eðli slíkrar baráttu er að berjast um tiltekinn hóp kjós- enda síðustu vikurnar fyrir kosn- ingar og vitaskuld mun Sjálfstæð- isflokkurinn taka þátt í þeirri bar- áttu. Ég býst við því að kosninga- baráttan verði yfirþyrmandi þeg- ar dregur nær kosningum.“ Hugsjónin horfin Kvennalistinn er eini þingflokkurinn án málgagns en samt sem áður hafa þær auglýst lang minnst af flokkunum. „Við munum eitthvað auglýsa en tæp- ast jafn mikið og hinir þingflokk- arnir. Við höfum einfaldlega ekki það fjármagn sem þarf til að fara út í slíkt," sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borgarfulltrúi Kvennalistans. „Það sem einkennir þessar auglýsingar flokkanna er að öll áherslan er lögð á efstu menn list- anna. Þá sem eru öruggir inn og næstu menn við. Við þekkjum þessar auglýsingar, 5 góðar ástæður til að kjósa krata, fimm efstu menn á G-listanum í Reykjanesi, 6 efstu menn G- listans í Reykjavík og sömu sögu er að segja um framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesi og gott ef Framsóknarflokkurinn er ekki farinn að kynna sig á svip- aðan hátt líka. Það er einsog þetta fólk sé í framboði en aðrir á listanum séu stuðningsfólk. Per- sónulega finnst mér þetta miður. Málefnabaráttan hefur orðið að víkja fýrir persónum. Sú hugsjón sem varð til þess að flokkarnir voru stofnaðir á sínum tíma hefur horfíð í skuggann. Menn en ekki málefni Er það svo að kosningabarátt- an sé farin að snúast meira um menn en málefni? Auglýsingarn- ar virðast fyrst og fremst til þess ætlaðar að kynna efstu menn á framboðslistunum einsog Ingi- björg Sólrún benti á. Það má segja að þessi stfll hafi fyrst komið fram í síðustu borg- arstjórnarkosningum þegar efstu menn G-listans stilltu sér upp í fjölskyldumyndatöku og aug- lýstu sjálfa sig upp einsog fyrir- myndarfjölskyldu úr sjónvarps- þáttaröð. Listanum vegnaði mjög vel í slagnum og fékk næst bestu útkomu sem Alþýðubanda- lagið hefur fengið í borgarstjórn- arkosningum. Nú virðist sérhver framboðslisti hafa upp á fyrir- myndarfjölskyldu að bjóða. „Það er spurning hvort þetta er í sjálfu sér nokkuð nýtt. Kosning- ar hafa alltaf snúist um persónur að einhverju marki. Það er ekki sama hver framfylgir stefnunni. Það nýja núna er kannski það að listarnir eru að flagga svokölluð- um „sterkum“ mönnum sem þykj ast haf a patentlausnir í hand- arkrikanum. Þegar Guðrún Helgadóttir fór fram fyrir Al- þýðubandalagið á sínum tíma var vissulega mikil áhersla lögð á hana en það var allt öðru vísi að því staðið en nú,“ segir Ingibjörg Sólrún. Spurning um traust Jóni Baldvini hefur verið þakk- að það að kratar virðast hafa náð sér sæmilega á strik eftir lægðina fyrri hluta níunda áratugarins. Við höfðum samband við Bjarna P. Magnússon, kosningastjóra Alþýðuflokksins og spurðum hann hvort baráttan væri meira stfluð upp á persónurnar nú en áður. Bjarni taldi svo ekki vera. „Kosningabarátta hlýtur alltaf að snúast um tvennt, annarsvegar málefnin og hinsvegar um það hvort fólk treystir mönnunum til að framfylgja málefnunum. Svo er það annað mál, að þegar flokk- ur er í uppsveiflu hlýtur kastljósið að beinast að þeim manni sem leiðir uppsveifluna, einsog Jóni Baldvini nú. Við þekkjum þetta frá Spáni, þar sem allt snérist um Gonsalez. Við sjáum þetta víðar, í Bandaríkjunum og á hinum Norðurlöndunum, Olof Palme var í augum margra Sósíaldem- ókrataflokkurinn." Ólafur Ragnar er nokkuð sam- mála Bjarna P. „Ég tel tvímæla- laust að kosningar snúist meira um persónur en látið er í veðri vaka, einkum nú eftir að sjón- varpið er komið til sögunnar. Sjónvarpið er mjög afhjúpandi. Það er gegnumlýsandi miðill sem erfiðara er að dyljast í en í dag- blaðagreinum. Sjónvarpið er 14 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 22. mars 1987

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.