Þjóðviljinn - 22.03.1987, Page 17

Þjóðviljinn - 22.03.1987, Page 17
Eldur ceðum stuðningsmanna Það orkar ekki tvímælis að Al- bert Guðmundsson, iðnaðarráð- herra, er nafn vikunnar að þessu sinni. Uppljóstrun Helgar-pósts- ins fyrr í vikunni um að Albert væri í rannsókn hjá Skatt- rannsóknarstjóra og að Þorsteinn Pálsson hefði rætt stöðu Alberts í þingflokknum og hygðist setja hann út af sakramentinu kom fólki kannski ekki mjög á óvart. Viðbrögð Þorsteins sama dag og fréttin birtist komu hinsvegar einsog þruma úr heiðskíru. í sjálfu sér sagði Þorsteinn fátt markvert á blaðamannafundi þeim sem hann efndi til á fimmtudaginn, en þó lá í orðum hans dulin hótun til Alberts um að hann yrði látinn víkja úr emb- ætti iðnaðarráðherra og senni- lega vikið úr fyrsta sæti D-listans í Reykjavík. A meðan á þessu stóð var Al- bert Guðmundsson staddur í Kaupmannahöfn á fundi nor- rænna iðnaðarráðherra. Frétta- ritari Þjóðviljans í Höfn hitti Al- bert að máli í gær, föstudag. Albert var fyrst spurður hvað honum fyndist um stöðu sína eftir blaðamannafundinn sem Þor- steinn Pálsson hélt í fyrradag. - Ég er satt að segja ekki inni í því sem Þorsteinn Pálsson sagði á þessum fundi, sagði Albert. - Það hafa allir mögulegir menn verið að hringja til mín að heiman með fréttirnar, en ég get ekki svarað þessu fyrren ég hef talað við Þorstein sjálfan. Þorsteinn sagði málið alvar- legt. Er það ekki rétt hjá honum? - Það er ekki eins alvarlegt einsog Þorsteinn og fleiri vilja vera láta. Mín staða í þessu máli er ekkert öðruvísi en þeirra sem fá athugasemdir frá skatt- rannsóknarstjóranum vegna framtals síns. Það getur komið fyrir alla að fá slíkar athuga- semdir. Ég rek ekki heildverslun- ina lengur, sonur minn hefur rek- ið hana í þrettán ár, og það er enginn glæpur út af fyrir sig að umræddar greiðslur hafi ekki ver- ið bókfærðar. Hann sagði mér áður en ég fór út að hann hefði ekki fengið fylgiskjöl fyrir tveimur af þremur greiðslum frá Hafskip, og það sé ástæðan fyrir því að greiðslurnar hafa ekki ver- ið bókfærðar. Ég vil ítreka það að það er enginn maður sem ekki getur búist við því að fá athuga- semdir við framtal sitt. Þorsteinn hefur verið með þessar upplýsingar í höndunum frá því í febrúar. Hverjar telur þú ástæðumar fyrir því að hann situr á þeim svona lengi? - Ég veit það ekki. Skatt- rannsóknarstjóri er með mörg mál í athugun og úrvinnsla þeirra tekur tíma. Telur þú mögulegt að Þor- steinn hafi kosið að bíða með upplýsingamar fram yfir lands- fundinn? - Ég vil ekki ætla Þorsteini slíkt. Þú neitar sjálfur að Þorsteinn hafi krafist afsagnar þinnar. Þor- steinn sjálfur hinsvegar játar því hvorki né neitar að hann hafi far- ið fram á afsögn. Hvað segir þú um þessi viðbrögð Þorsteins? - Þetta em mjög eðlileg við- brögð. Attu von á því að afsagnar þinnar verði krafist? - Það kæmi mér mjög á óvart ef svo yrði. Er staðan sem þú ert kominn í ekki kærkomin andstæðingum þínum innan flokksins? Heldur þú að þeir reyni ekki að nota tæk- ifærið til að koma þér út af fyrsta sæti framboðslistans? - Ég hef lengi haft hóp á móti mér innan flokksins og þessi hóp- ur hefur alltaf haft hátt. Ég hef hinsvegar ekki trú á því að fólkið sem ræður því hverjir em á fram- boðslista flokksins taki því þegj- andi að illa sé farið með mann. Fólk er betur upplýst en marga grunar. En ef afsagnar þinnar verður krafist og þér verður kippt út úr fyrsta sætinu, - stefnirðu þá í sérf-' ramboð? - Ég hef ekkert hugsað út í það. Veldur staðan þér áhyggjum? - Ekkí áhyggjum, heldur leiðindum. En það er eldur í æðum stuðningsmanna minna. -K.Ól./Kaupmannahöfn -Sáf __________________________LEIÐARI____________________________________ Tvöföldum framlagtil menningarmöla opinbera til myndlistar í skötulíki. Starfslauna- sjóð vantar, samkvæmt fjárhagsáætlun á að kaupa listaverk fyrir 3 milijónir og allt þangað til í síðustu viku var allur efniviður til listsköpunar hátollavara. Svona mætti taka hverja listgreinina á fætur annarri fyrir. Þjóðleikhúsið er að hrynja yfir ötult starfsfólks þess vegna þess að krónurnar sem ætlað er til viðhalds hússins nægja vart þess albráðnauðsynlegasta svo húsið sé regn og vindhelt. Óperan berst í bökkum og þrátt fyrir að framlag til kvikmyndasjóðs hafi verið aukið til muna verða þeir sem leggja í slíkt ævintýri sem kvikmyndagerð er, enn sem fyrr að leggja höf- uðið að veði. Á sama tíma og fjölþjóða engilsaxnesk menning sækir að okkur er menningarstefna hins opinbera ekkert annað en hálfkák. Þessu verður að breyta hið snarasta og Alþýðubanda- lagið leggur til að framlög til menningarmála verði tvöfölduð. Þessi mál og ýmis fleiri verða til umræðu á málþingi sem Alþýðubandalagið efnir til á Hótel Sögu í dag, sunnudaginn 22. mars. Eru allir áhugamenn um íslenska menningu hvattirtil að mæta hvar í flokki sem þeir standa. -Sáf Mótmælir nokkur því að íslendingar séu menningarþjóð? Nei og það sem meira er, flest- ir láta í veðri vaka að menningin sé okkur nauðsynleg. Svo er einnig farið með þá sem stýra landi og þjóð og hafa það hlutverk að skipta þjóðarkökunni af réttsýni og fyrirhyggju. Þeir láta oft stór orð falla um nauðsyn menning- ar og göfugt hlutverk lista. Orð þeirra reynast aftur á móti innantóm þegar verk þeirra eru skoðuð. Útgjöld ríkisinstil menningarmála áfjárlögum ársins í ár eru tæp 1,4% af heildarútgjöldum. Séu hinsvegar dregin frá útgjöld til íþróttamála, æskulýðsmála og ýmissar annarrar starfsemi, sem vissulega má flokka undir menningarstarf- semi en tæpast til lista eru útgjöldin rúmt 1 % af heildarútgjöldum. Ef við höldum reikningsdæm- inu gangandi og drögum frá útgjöld til ýmissa safna og stofnana sem þjóna fyrst og fremst varðveisluhlutverki og fræðastörfum og ein- angrum þannig framlög ríkisins til skapandi og túlkandi listamanna í landinu, kemur í þeirra hlut 0,6% af heildarútgjöldum ríkisins, eða tæpar 300 milljónir króna og þar af fá tvær stofnanir, Þjóðleikhúsið og Sinfónían 150 milljónir króna. Framlag ríkisins til skapandi listamanna er því hlægilega lítið. Þrátt fyrir það er mikil gróska í öllum listgrein- um hér á landi. Sjálfsagt verður þessa tímabils minnst sem eins mesta blómaskeiðs íslenskrar listsköpunar og er þá sama hvar drepið er niður fæti. Á sviði bókmennta er hvert stórvirkið á fætur öðru unnið. Mikill kraftur er í skáldsagnagerð, smásagan upplifirendurreisnartíma, leikritun er í örri sókn og hafa sennilega aldrei áður verið frumsýnd jafn mörg íslensk leikverk og á þessu leikári og hinn fíngerði Ijóðagróður ber marglit- ari blóm en oftast áður. Þrátt fyrir það að bókin hafi aftur verið hafin til vegs og virðingar og kaupsýslumenn standi agndofa yfir hinni miklu sölu bóka, þá bera rithöfundarnir minnst úr bý- tum og framlag ríkisins til þeirra er ekki nema örlítið brot af því sem ríkið græðir af vinnu þeirra í formi söluskatts. Næstum daglega opnar ný myndlistarsýning einhversstaðar á landinu. Auðvitað eru þær mismerkar en furðu margar af þessum sýning- um eru fullrar athygli verðar. í vikunni sem nú er að líða voru opnaðar sjö nýjar myndlistasýning- ar í Reykjavík og vikunni þar áður fimm. Flestar af þessum sýningum eru þess eðlis að áhuga- fólk um myndlist getur ekki látið þær fram hjá sér fara. Þrátt fyrir það er allur stuðningur hins Sunnudagur 22. mars 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 17

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.