Þjóðviljinn - 20.06.1987, Blaðsíða 1
Verðlagsstofnun gerði könnun
á verði aðgöngumiða og gosdryk-
kja á 19 skemmtistöðum, 16 í
Reykjavík, 2 á Akureyri og ein-
um á ísafirði. Könnunin leiddi í
ljós að verð aðgöngumiða er afar
mismunandi, allt frá 100 krónum
upp í 450 krónur á diskótekum og
milli 190 og 600 krónur leiki
hljómsveit fyrir dansi. Dýrast er
að sækja skemmtun á Hótel
Borg.
Niðurstöður könnunarinnar á
gosdrykkjaverði eru einnig mjög
athyglisverðar. í ljós kom að á
skemmtistöðunum var lagt allt að
950% á verð gosdrykkja. Um-
reiknað í verð á lítra kostar ótil-
tekinn gosdrykkur 667 krónur í
Broadway, Hollywood og á Hót-
el Borg, en á þessum stöðum er
gutlið dýrast. Lægst er verðið á
Helgarveðrið
Áframhaldandi
blíðviðri
Ingvar Stefánsson þulur les síðustu hádegisfréttir frá Skúlagötu 4 í stúdíói 6, en þaðan var síðasti hádegisfréttatíminn sendur út í gær. Atli Rúnar Halldórsson
fréttamaður fylgist með hinni sögulegu stund. Mynd Sig.
Askemmtistöðum borgarinnar
þekkist allt að 950% álagning
á gosdrykki. Þá hefur verð að-
göngumiða hækkað um 350% frá
mars 1984 en á sama tíma hefur
framfærsluvísitalan hækkað um
97%.
unglingaskemmtistaðnum Top
ten, en þar kostar lítrinn 200
krónur.
Vert er að geta þess að eitt af
þeim skilyrðum sem sett eru fyrir
veitingu vínveitingaleyfa er að á
boðstólum séu fjölbreyttir ó-
áfengir drykkir á hóflegu verði.
-gg
Bifreiðaeftirlitið
Of einhliða
aðgerðir
Á fundi starfsmannaráðs Bif-
reiðaeftirlits og fulltrúa úr
dómsmálaráðuneytinu kom fram
af hálfu ráðuneytismanna að of
einhliða hafí verið staðið að þeim
sparnaðarráðstöfunum sem for-
stöðumaður kynnti fyrir starfs-
mönnum í vikunni. Rétt hcfði
verið að hafa starfsmenn með í
ráðum.
Að sögn Vagns Gunnarssonar
tók slysavakt embættisins strax til
starfa og líklegt er að starfsemin
komist í sæmilegt horf í næstu
viku þar sem unnið verður á
vöktum áfram.
Eftir að starfsmenn höfðu
gengið á fund dómsmálaráðherra
í gærmorgun og mótmælt aðgerð-
um yfirmanna sinna fóru málin
að hreyfast. Fulltrúar ráðuneytis-
ins héldu síðan fund með Bif-
reiðaeftirlitsmönnum eftir há-
degi. -gsv
Laugardagur 20. júní 1987 130. tölublað 52. órgangur
Skemmtistáðir
Alagning nærri
þúsund prósent
Verðhœkkanir aðgöngumiða úr takt við framfœrsluvísitölu. Dœmi um allt
að 950% álagningu á gosdrykki. Lítri afgosi á 667krónur íBroadway,
Hollywood og Hótel Borg
Um helgina verður ágætis
veður um land allt með hægri
breytilegri átt. Bjart veður verð-
ur inn til landsins og skýjað með
köflum við ströndina og sums
staðar má reikna með þoku-
bökkum. Hitinn verður á bilinu
10-16 stig.
Þeim sem vilja fá sólina beint í
æð um helgina eru samkvæmt
þessari spá ráðlagt að þoka sér frá
ströndinni og inní landið.
Ríkisútvarpið kveður Skúlagötuna
Nýja útvarpshúsið við Efstaleiti vígt ígœr. Ríkisútvarpiðfluttfrá Skúlagötu 4 í glœsilegt og rúmgotthúsnæði.
Ingvar Stefánsson þulur: Tilhlökkun er mikil að hefja störfí nýju húsnœði. Því erþó ekki að neita að mönnum
er nokkur sút ísinni yfir að þurfa að kveðja Skúlagötuna
tarfsmenn Ríkisútvarpsins
fluttu með allt sitt hafurtask í
gær í nýtt og glæsilegt útvarpshús
við Efstaleiti og kvöddu þar með
Stjórnarmyndun
Þríhjólið inn á hliðargötu
Ljóst er að Jón Baldvin Hanni-
balsson hefur verið of yfirlýs-
ingaglaður þegar hann taldi að ný
ríkisstjórn væri að fæðast. í gær
kornu fram óvæntar tillögur frá
íhaldinu sem munu verða til þess
að þríhjólið verður í fyrsta lagi til
eftir viku.
Jón Baldvin gekk á fund Vig-
dísar Finnbogadóttur í gær og
skýrði henni frá gangi viðræðn-
anna og fékk endurnýjað umboð.
Áður hafði þingflokkur krata
fundað.
Stjórnmálamenn sem Þjóðvilj-
inn ræddi við í gær telja að við^
ræðurnar hafi dregist um of á
langinn en kratar benda á að Stef-
án Jóhann Stefánsson hafi verið í
tvo mánuði að mynda Stefaníu
árið 1947, en Stefanía var sam-
stjórn sömu flokka og nú reyna
með sér, undir forsæti krata.
Tillögur íhaldsins fela í sér
miklar stjórnkerfisbreytingar
þannig að ráðuneytin verði færri
og stærri. Telja viðmælendur
Þjóðviljans að með þessu sé Þor-
steinn að undirbúa jarðveginn
fyrir að hafa bara þrjá ráðherra
eins og kratar og Framsókn og
sjálfan sig sem forsætisráðherra.
Framsóknarmenn hafa að und-
anförnu lagt ofuráherslu á
Steingrím við stýrið en það er
Ijóst að kratar geta ekki sætt sig
við það. Að sögn krata sem rætt
var við í gær kom fram að þeir
eiga mun auðveldara með að
sætta sig við Þorstein undir stýri
og framsóknarmenn mega vart til
þess hugsa að Jón Baldvin fari
með forsætið.
-Sáf
Skúlagötu 4, þar sem útvarpið
hefur verið til húsa í fjölda ára.
. Við búferlaflutninginn breytist
starfsaðstaða útvarpsmanna
(Verulega til hins betra, en hús-
iræj^sþrengsli hafa verið starf-
seimVitvarpsins nokkur fjötur um
fót um langan tíma. Einhver bið
• verður á því að Ríkissjónvarpið
flytji í nýja útvarpshúsið, þar sem
frágangi innanhúss er ekki enn að
fullu lokið.
Vigdís Finnbogadóttir forseti
vígði nýja útvarpshúsið í gær að
viðstöddu fjölmenni, starfsfólki
Ríkisútvarpsins og fleiri gestum.
í tilefni dagsins hafði Ríkisút-
varpið mikið við fyrir landsmenn,
en vígsluathöfninni var útvarpað
og sjónvarpað í beinni útsend-
ingu.
„ Vissulega eru okkur það mikil
gleðitíðindi að flytja í nýtt og
rúmgott húsnæði. Samt fylgir því
nokkur eftirsjá að yfírgefa Skúla-
götuna. Þrátt fyrir að húsakynni
og starfsaðstaða hafi ekki verið
uppá það besta hér, eigum við öll
skemmtilegar minningar héðan,“
sagði Ingvar Stefánsson, þulur
Ríkisútvarpsins, um leið og hanií
fór í síðasta sinn inn í stúdíó 6, til
þess að lesa fréttir í síðasta há-
degisfréttatímanum sem sendur
var út frá Skúlagötu 4.
„Því fylgir mikið rask og óvissa
fyrir starfsemi stofnunar eins og
þessarar að standa í flutningum.
Dagskráin verður að hafa sinn
vanagang og hér eru menn ,á
hlaupum með upptökutæki, rit-
vélar og fréttahandrit, á milli
húsa, til þess að geta sent út frá
nýja staðnum eftir auglýstri dag-
skrá,“ sagði Ingvar Stefánsson.
-RK