Þjóðviljinn - 20.06.1987, Blaðsíða 2
P.SPURNINGIN.
Hvað finnst þér um tillög-
ur um óbundinn af-
greiðslutíma í verslun-
um?
Ingólfur Einarsson
afgreiðslumaöur
Mér finnst að verslunareigendur
megi ráða því hvenær þeir hafa
opið, en þaö er ekki hægt að
skylda starfsfólk til að vinna á
hvaða tíma sem er þannig að
þetta hlýtur að fara eftir því hvort
starfsfólk fæst í slíku kerfi.
Þorbjörg Guðjónsdóttir
verslunareigandi og
afgreiðslumaður
Mér finnst alveg sjálfsagt aö leyfa
þetta. Svo er það undir hverju fyr-
irtæki komið hvort það veldur
vaktaálagi.
Þór Mýrdal afgreiðslumaður
Vinnutími hjá verslunarfólki er allt
of langur nú þegar þannig að
lengri opnunartími þyrfti að
byggjast á vaktaálagi.
Guðbjörg Ólafsdóttir
afgreiðslumaður
Ég er ekki hrifin af þessum til-
lögum. Það yrði að koma upp
vaktavinnufyrirkomulagi.
Sigrún Runólfsdóttir
verslunareigandi og
afgreiðslumaður
Ég er meðmælt þessum hug-
myndum. Miðað við eftirspurn
viðskiptavina virðist fólk hafa
áhuga á þessu. En auðvitað
kemur þetta niður á eigendum lí-
tilla verslana ef þeir vilja hafa
opið lengur.
FRETTIR
Umferðarhraði
Fleiri öldur
- færri slys
Minnihlutinn íborgarstjórn: Tekið
verði meira mið afumferðaröryggi við
gerð hverfaskipulags í tengslum við að-
alskipulag. Sérstakt átak í uppsetningu
hraðahindrana
Borgarfulltrúar Alþýðubanda-
lags, Alþýðuflokks, Fram-
sóknarflokks og Kvennalista
fluttu í fyrrakvöld tillögu þess
efnis að við gerð hverfaskipulags í
tengslum við nýtt aðalskipulag
verði sérstaklega hugað að öryggi
gangandi vegfarenda í íbúðar-
hverfum borgarinnar. Tillagan
gerir ráð fyrir að aksturshraði í
íbúðarhverfum verði ekki meiri
en 30 km/klst. og að sérstakt átak
verði gert í uppsetningu hraða-
hindrana eða aldna.
Tillögunni var vísað til skipu-
lagsnefndar og umferðarnefndar
en henni var fremur vel tekið af
fulltrúum Sjálfstæðisflokksins á
borgarstjórnarfundinum í fyrra-
kvöld.
Nú þegar hafa verið settar upp
Dagblöðin
Tíminn
úr takt
Könnun á lestri blaða.
Mogginn enn út-
breiddastur. Pjóðviljinn
heldur í horfinu. Dagur
útbreiddur fyrir norðan
Útbreiðsla Tímans er mun
minni nú en árið 1983 en litlar
breytingar hafa orðið á lestri ann-
arra dagblaða. Þetta er í grófum
dráttum helsta niðurstaða
könnunar Félagsvísindastofnun-
ar á lestri dagblaða, en það var
Samband íslenskra auglýsinga-
stofa sem lét framkvæma könnu-
nina.
Spurt var hvort fólk sæi dag-
blöðin daglega, oft, sjaldan eða
aldrei. Flestir sjá Morgunblaðið
en fæstir Alþýðublaðið.
Sé litið á þá sem sjá blöðin dag-
lega eða oft eru það 75% sem sjá
Moggann, 67% DV, 20% Þjóð-
viljann, 19% Tímann, 11% Dag
og 5% Alþýðublaðið.
Árið 1983 sáu um 26% Tímann
daglega eða oft og hefur lesend-
um hans því fækkað um 7%.
Þjóðviljinn stendur í stað, 20%
1983 og sama nú. DVhefur tapað
lesendum en 70% lásu DV árið
1983. Mogginn stendur í stað.
Útbreiðsla Dags er mjög svæð-
isbundin en 79% á Norðurlandi
eystra og 33% á Norðurlandi
vestra sjá Dag daglega eða oft.
-Sáf
nær 100 umferðaröldur í Reykja-
vík og þykir sumum sjálfsagt nóg
um, en þær eru taldar hafa verið
mjög árangursríkar við að ná nið-
ur ökuhraða.
í greinargerð með tillögunni
segir til að mynda að síðan öldum
var komið fyrir á Reykjavegi hafi
meðalhraði á götunni farið úr
60,5 km/klst. í 27,5 km/klst.
Niðurstaða mælinga í Jaðarseli er
mjög sambærileg. Þá er vitnað til
góðrar reynslu af umferðaröldum
erlendis.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
Sjálfstæðisflokki tók undir til-
löguna, en benti á að öldurnar
gætu í sumum tilvikum orkað tví-
mælis. Vilhjálmur sagði vert að
athuga fleiri möguleika til þess að
draga úr umferðarhraða, t.d.
svonefndar vistgötur.
Haraldur Blöndal, formaður
umferðarnefndar, sagði hraða-
hindranir vissulega leysa ákveð-
inn vanda á vissum stöðum, en
einnig þyrfti að leita annarra
leiða til þess að draga úr aksturs-
hraða og umferðarþunga í íbúð-
arhverfum. Nefndi Haraldur þar
m.a. að beina þyrfti umferð í
meira mæli fram hjá þessum
hverfum. ~gg
Þorsteini velt
Þorsteinn Pálsson spennti beltin í
gær áður en hann reyndi hvernig er
að lenda í bílveltu. Almennar tryg-
gingar hafa fengið til landsins bíl með
tilheyrandi veltibúnaði og gefst al-
menningi næstu daga kostur á að
reyna hvernig er að velta heilan hring
í fólksbíl njörvað niður í bílbelti. Koma
bílsins hingað til lands er liður í sér-
stöku kynningarátaki Almennra
trygginga, er ber yfirskriftina „Lífið
veltur á beltunum." Bíllin verður stað-
settur á Lækjartorgi fram til mánu-
dagskvölds. Mynd Sig.
Fiskeldi
Ráðgjöf og þjónusta
Guðmundur Valur Stefánsson: Viljum koma í veg fyrir mistök
Fiskeldisþjónustan hf. er nýtt
fyrirtæki sem stofnað var í_
vikunni. Það er í eigu íslenskra og
norskra aðila. Stofnfé fyrirtækis-
ins er 1.5 millj. kr. og skiptist á
milli Fiskeldisþjónustunnar hf.
60%, Valax hf. 20% og Ingeniör
Brentsen 20%.
Markmið fyrirtækisins er að
veita þjónustu og ráðgjöf varð-
andi margs konar eldi í sjó og
fersku vatni innanlands sem
utan. Markaðssetja á sérhæfðan
hugbúnað fyrir seiðaeldi ásamt
tölvubúnaði og íslenskan eldis-
búnað á erlendum markaði.
Að sögn Guðmundar Vals
Stefánssonar framkvæmdastjóra
hins nýja fyrirtækis vilja þeir
stuðla að því að færri mistök
verði gerð í uppbyggingu þessar-
ar atvinnugreinar og hjálpa
mönnum að komast af stað.
Ingeniör Brentsen er norskt
verkfræðifyrirtæki sem hefur að-
setur skammt frá Bergen og starf-
ar að ýmsum verkefnum í Evr-
ópu. 70% verkefna þess eru á
sviði fiskeldis. Norsku aðilarnir
munu sjá um tæknilega ráðgjöf
en þeir íslensku um eldisráðgjöf.
Nýja fyrirtækið hefur þegar
boðið í tvö stórverkefni, annað í
Noregi og hitt í Saudi-Arabíu.
-gsv
Hörpuútgáfan
Heimildarit um Akranes
Hörpuútgáfan á Akranesi sendi
í gær frá sér litmyndabók um
Akranes og ber hún titilinn Akra-
nes - vaxandi bær á Vesturlandi.
í bókinni eru um 90 litmyndir frá
Akranesi og nágrenni.
Friðþjófur Helgason Ijós-
myndari tók myndirnar sérstak-
lega fyrir þessa bók, sem er sú
fyrsta sinnar tegundar um Akra-
nes. Gunnlaugur Haraldsson
safnvörður skrifaði textann og
rekur þar sögu Akraness í stórum
dráttum allt frá landnámstíð til
okkar daga.
-gg
Hvað ertu elginlega
að dunda við hér
í myrkrinu?
Mikilvægt verkefni
í þágu þjóðarinnar.
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 20. júní 1987