Þjóðviljinn - 20.06.1987, Síða 3
ÖRFRÉTTIR
Friðarhlaupararnir
komu til Akureyrar skömmu fyrir
miðnætti í gærkvöldi. í dag kl. 10
árdegis verður uppákoma í tilefni
þess að friðarhlaupið er komið í
höfuðstað Norðurlands. Séra
Þórhallur Höskuldsson sóknar-
prestur mun svo hlaupa fyrsta
spölinn frá Akureyri.
Hana nú
fer vikulega á bæjarrölt um Kópa-
vog á laugardögum. Göngugarp-
ar hittast kl. 10 árdegis að Digra-
nesvegi 12, drekka molakaffi og
rabba saman. Síðan er gengið
um bæinn í klukkutíma og eru allir
Kópavogsbúar velkomnir.
Jónsmessuhátíðin
að Staðarfelli
verður haldin dagana 26-28. júní.
Þetta er fjölskylduhátíð Styrkt-
arfélags Staðarfells í Dölum.
Fjölbreytt dagskrá verður alla
dagana m.a. söngur, leikir fyrir
börn, íþróttir, varðeldur, diskótek
og hljómsveitin Popprósin mun
leika fyrir dansi föstudags- og
laugardagskvöld. Öllum ágóða
verður varið til styrktar uppbygg-
ingu eftirmeðferðarheimilisins að
Staðarfelli. Rútuferðir eru frá
Rauða húsinu kl. 18 á föstudag
og kl. 10 á laugardag.
Sólstöðugangan
verður nú á sunnudag, 21. júní.
Gangan hefst á Valhúsahæð á
miðnætti og stendur allan sólar-
hringinn. Fjörubál verður kveikt í
Bakkavík kl. 1 og horft verður á
sólina koma upp á þessum
lengsta degi ársins. Farið verður í
söguferð um Reykjavík síðla
nætur og síðan farið í Viðey og
snæddur árbítur þar. Þannig
verður haldið áfram til miðnættis
undir leiðsögn staðkunnugra og
sögufróðra manna.
Greifarnir
eru að fara í reisu um landið. Þeir
munu halda í norðurátt og halda
ball í Búðardal á laugardag. Á
sunnudag verða svo tónleikar á
Blönduósi og síðan munu þeir
þræða flest byggð ból á landinu
og enda hringferð sína á þjóðhá-
tíðinni í Vestmannaeyjum.
Göngudagur
fjölskyldunnar
þjóðarátak gegn hreyfingarleysi,
er kjörorð fjölskyldugönguferða
sem Bandalag íslenskra skáta og
Ungmennafélag íslands stendur
að nú á sunnudag, 21. júní.
Skátafélög og ungmennafélög
um allt land munu standa að
gönguferðum og eru allir vel-
komnir. Til staðfestingar á þátt-
töku sinni fá allir þátttakendur af-
hent merki sem teiknað var sér-
staklega af þessu tilefni.
FRETTIR
Byggingaryfirvöld
Linkind og aðhaldsleysi
Gunngeir Pétursson hjá embætti byggingafulltrúa: Byggingaryfirvöld beita oft ekki
nógu mikilli hörku gegn reglugerðarbrjótum. Tilvik eins og Hamarshúsið
undantekningar. Astand brunavarna almenntgott
Það má vissulega segja að í til-
vikum eins og þessu með
Hamarshúsið hafi byggingaryfir-
völd ekki beitt nógu mikilli hörku
til þess að knýja fram úrbætur.
Aðhaldið mætti vera meira.
Byggingarnefnd hefur tvo mögu-
leika á að knýja á um úrbætur
auk almcnnra tilmæla, dagsektir
og lcyfissviptingu. En sem betur
fer eru vinnubrögð eins og í Ham-
arshúsinu ekki algeng, sagði
Gunngeir Pétursson skrifstofu-
stjóri hjá embætti byggingafull-
trúans í Reykjavík í samtali við
Þjóðviljann í gær.
Eins og skýrt var frá í Þjóðvilj-
anum í gær voru byggingarreglu-
gerðir og samþykktir byggingar-
nefndar þverbrotnar í breyting-
um sem voru gerðar á Hamars-
húsinu, Tryggvagötu 4-6, fyrir
nokkrum árum. Um ár er liðið
síðan farið var fram á það við
byggingameistarann, sem annað-
ist breytingarnar, að gerðar yrðu
úrbætur á húsinu, en því hefur
ekki verið sinnt. Nú hefur borg-
arstjórn hins vegar ákveðið að
gengið skuli eftir efndum að við-
lögðum dagsektum.
Gunngeir sagði í gær að oft
gætti ákveðinnar linku af hálfu
yfirvalda gagnvart aðilum sem
brytu gegn byggingarreglugerð.
„Þótt slóðaskapurinn í sambandi
við Hamarshúsið sé alveg sér-
stakur, koma alltaf upp ljót
dæmi. En almennt má þó segja að
þetta sé í nokkuð góðu lagi. Al-
gengast er að almenningur brjóti
lítillega gegn reglugerðum,"
sagði Gunngeir.
Aðspurður um ástand bruna-
varna í húsum borgarinnar sagð-
ist hann telja það almennt gott. „í
u U3 O
.D r
Hamarshúsið við Tryggvagötu, en í því hafa samþykktir byggingamefndar
verið þverbrotnar. Mynd Sig.
þessu sambandi er ég hræddastur
við brunavarnir í skrifstofuhús-
næði, þar sem er rík tilhneiging til
þess að hafa létta innveggi
timbri," sagði Gunngeir.
-gg
III
Bjöm H. Jónsson og Jón Þorvaldsson, verðlaunahafar í samkeppni Útflutningsráðs fslands, um tillögu að
táknmerki ráðsins og vígorði, en úrslit samkeppninnar voru tilkynnt í gær. Björn hlaut verðlaun fyrir tillögu að merki en Jón
fyrir vígorðið: „fslenskt - það veit á gott.“ Alls bárust í samkeppnina 260 tillögur um merki og 206 að vígorði. Almenningi
gefst kostur á að skoða úrval úr tillögunum, i Gallerí Borg í Pósthússtræti fram til næsta mánudagskvölds. Mynd. Sig.
Burðarþolsskýrslan
Aðalatriðin hafa gleymst
Hafsteinn Pálsson, einn höfunda skýrslunnar: Menn hafa þyrlað upp moldviðri. Aðalatriðið
er að skýrslan sýnir framá að þolhönnun bygginga er áfátt
Því miður hefur sú umræða,
sem hófst í kjölfar niður-
staðna af athugun á burðarþoli
nokkurra nýbygginga í Reykja-
vík, snúist alltof mikið um auka-
atriði í stað aðalatriða. Athugun-
in leiddi i ljós að eftirliti með
burðarþolshönnun er ábótavant.
Það er aðalatriðið og menn ættu
því fremur að huga að því hvernig
unnt sé að herða eftirlit, í stað
þess að vera með hnútukast í allar
áttir, sagði Hafsteinn Pálsson,
verkfræðingur og einn höfunda
margumræddrar burðarþols-
skýrslu.
„Niðurstöður þessarar athug-
unar voru ótvíræðar. Burðarþoli
bygginga er augljóslega víða á-
fátt. Það er þó rétt að taka það
fram að þótt burðarþolinu sé á-
fátt við hönnun bygginganna
gegn jarðskjálftaálagi, þýðir það
ekki að þessar byggingar séu í
verulegri hrunhættu," sagði Haf-
steinn Pálsson.
í greinargerð, sem Rannsókn-
arstofnun byggingariðnaðarins
sendi frá sér í gær segir, að í kjölf-
ar umræðna um réttmæti þess að
miða við jarðskjálfastuðulinn Z
0.75 fyrir Reykjavík, hafi
skýrsluhöfundar endurmetið
burðarþolsmat þeirra fjögurra
húsa, sem ekki stóðust kröfur.
Við þetta endurmat hefur verið
gengið út frá stuðlinum Z 0.5,
sem byggingafulltrúinn í Reykja-
vík telur rétta viðmiðun um þær
kröfur sem gera eigi til bygginga í
Reykjavík. Samkvæmt prófun-
um út frá lægri skjálftastuðli stóð-
ust þau fjögur hús sem athuga-
semdir hafa verið gerðar varð-
andi burðarþol og gögn voru fyrir
hendi til að leggja mat á slíkt.
-RK
Þjóðviljinn
nT
útgáfu-
stjóm
Flokksformenn úr
stjórninni
Á aðalfundi Útgáfufélags Þjóð-
viljans í fyrrakvöld var kjörin ný
stjórn fyrir félagið, og koma f]ór-
ir nýir félagar í aðalstjórn í stað
þeirra Öddu Báru Sigfúsdóttur,
Kristínar Á. Ólafsdóttur, Ólafs
Ragnars Grímssonar og Svavars
Gestssonar sem öll báðust undan
endurkjöri.
í aðalstjórn sitja nú: Álfheiður
Ingadóttir, Guðni Jóhannesson,
Guðrún Hallgrímsdóttir, Halldór
Guðmundsson, Helgi Guð-
mundsson, Hrafn Magnússon,
Olga Guðrún Árnadóttir, Mörð-
ur Árnason og Ragnar Árnason.
Ásamt þeim sitja í stjórn Þjóð-
viljans fulltrúar frá Miðgarði hf.
og frá Prentsmiðju Þjóðviljans
hf., og voru það á síðasta starfsári
Úlfar Þormóðsson og Sigurjón
Pétursson.
Varamenn í stjórn Útgáfufé-
lagsins voru kjörnir Sigríður
Hanna Sigurbjömsdóttir, Kristín
Ólafsdóttir, Páll Baldvin Bald-
vinsson og Sæunn Eiríksdóttir.
Á aðalfundi Útgáfufélagsins
var meðal annars samþykkt til-
laga þar sem stjórn var falið að
endurskoða rækilega alla rekstr-
arþætti fyrirtækisins.
-Sáf
Neskaupstaður
Góð afkoma hjá Sfldarvinnslunni
Hagnaður afrekstri ífyrra tœpar 77 miljónir. Greiðslufjárstaðan neikvœð um
tœpar 100 miljónir
H
eildarvelta Sfldarvinnslunnar
hf. í Neskaupstað á sl. ári nam
um 1240 miljónum króna sem er
28% aukning frá fyrra ári. Út-
flutningsverðmæti innlendrar
framleiðslu og selds afla erlendis
nam um 1 miljarði.
Hagnaður af rekstri fyrirtækis-
ins fyrir afskriftir nam rúmum
163 miljónum og hagnaður af
starfsemi nær 77 miljónum eða
6.2% af heildarveltu.
Á aðalfundi félagsins kom
einnig fram að greiðslufjárhags-
staðan í árslok var neikvæð um
100 miljónir sem rekja má til
þungrar greiðslubyrgði af lang-
tímalánum og uppsafnaðs taps
frá fyrri árum.
Á sl. ári störfuðu að meðaltali
um 450 manns hjá Síldarvinnsl-
unni og námu kaupgreiðslur til
þeirra 292 miljónum kr.
-*g-
Laugardagur 20. júní 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3