Þjóðviljinn - 20.06.1987, Síða 10

Þjóðviljinn - 20.06.1987, Síða 10
Staða upplýsingafulltrúa Staða upplýsingafulltrúa Reykjavíkurborgar er laus til umsóknar. Upplýsingafulltrúa er ætlað að hafa frumkvæði að kynningu á hinum ýmsu þáttum í starfi Reykja- víkurborgar og að aðstoða almenning og félaga- samtök við öflun upplýsinga um einstök atriði í rekstri Reykjavíkurborgar. Upplýsingafulltrúi skal vera tengiliður borgaryfir- valda við hverfasamtök borgarbúa. Upplýsingafulltrúi skal svara ýmis konar fyrir- spurnum um Reykjavíkurborg er berast erlendis frá og hann skal vera ferðamálanefnd til aðstoðar varðandi kynningu á ferðamannaþjónustu í Reykjavík. Upplýsingafulltrúi tekur laun skv. kjarasamning- um Reykjavíkurborgar við Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar og í samræmi við úrskurð starfskjaranefndar um röðun starfsins í launa- flokk. Umsóknir um starf upplýsingafulltrúa sem greini náms- og starfsferil umsækjanda sendist til skrif- stofu borgarstjórnar, Austurstræti 16, fyrir 10. júlí n.k. Borgarstjórinn í Reykjavík 18. júní 1987 ALÞJÓÐLEG UNGMENNASKIPTI Julio frá Costa Rica, Daniela frá Sviss, Michael frá Nígeríu, Pirjo frá Finnlandi og 14 aðrir skipti- nemar víðs vegar að koma til landsins í næsta mánuði til ársdvalar. Á meðan þau eru að kynnast og læra fyrstu orðin í íslensku dvelja þau í Reykjavík. Um miðjan ágúst fara þau öll í sveitina. AUS óskar eftir fjölskyldum, sambýlum eða ein- staklingum á höfuðborgarsvæðinu sem vilja opna heimili sín fyrir skiptinemunum í þær 3-4 vikur sem þau dvelja í Reykjavík. Pétur og Sigurlaug veita upplýsingar á skrifstof- unni, Mjölnisholti 14, eðaísíma24617kl. 13-16. Sonur minn, faðir minn og sambýlismaður Alfreð Flóki lést á Landspítalanum 18. þ.m. Guðrún Nielsen Axel Flókason Inglbjörg Alfreðsdóttir Eiginmaður minn Sigfús Jóhannsson Sléttahrauni 15, Hafnarfirði veröur jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði, þriðjudaginn 23. júni kl. 15. Bára Guðbrandsdóttir Alúðarþakkir fyrir vinsemd og hlýhug við andlát og jarðarför Gísla Sighvatssonar Birkíhvammi 13, Kópavogi Ólöf Helga Þór Gunnar Sveinn Elín Ágústsdóttir Sighvatur Bjarnason Kristín Slghvatsd. Lynch Charles Lynch Bjarnl Slghvatsson Aurora Friðriksdóttir Viktor Sighvatsson Ásgelr Sighvatsson Elín Slghvatsdóttir Krlstín Þór Arnaldur Þór ERLENDAR FRÉTTIR Fallinn Persi nærri Basra. Hvenær mun ósköpunum linna? Persaflóastríðið írökum vex ásmegin Stjórninni í Bagdað hefur tekistað beina sjónum umheimsins að Persaflóastríðinu og er áfram um að Sameinuðuþjóðirnar knýi írana að samningaborði. Sérfrœðingar segja íraska herinn hafa eflstað undanförnu Arás íraskrar orrustuþotu á bandarísku freigátuna Stark í síðasta mánuði færði Persaflóa- stríð Iraka og írana enn á ný inn í miðdepil heimsathyglinnar og af- leiðingin varð stóraukinn alþjóð- legur þrýstingur á stríðsaðila um að slíðra sverðin og semja um frið. Það eru írakar sem sjá hag í þessari þróun. Þeir hafa um langa hríð viljað binda enda á styrjöld- ina en klerkastjórnin í Teheran hefur ekki ljáð máls á neinum friðarsamningi meðan Saddam Hussein situr við völd í Bagdað. írakar gera sér vonir um að Ör- yggisráð Sameinuðu þjóðanna geri gangskör að því innan skamms að knýja stríðsaðila að samningaborðinu en beiti þá harkalegum refsiaðgerðum láti þeir sér ekki segjast. Sú spurning gerist nokkuð áleitin hvort árásin á Stark hafi verið það slys sem bæði íraks- stjórn og sú bandaríska vilja vera láta. Ýmsir fréttaskýrendur hafa látið að því liggja að árásin hafi verið gerð að yfirlögðu ráði til að knýja Bandaríkjamenn til af- skipta af stríðinu og auka alþjóð- legan þrýsting á Irana svo þeir söðli um og fallist á að friðmæl- ast. Margir telja þessa kaldrifj- uðu ráðagerð runna undan rifjum Kuwaitmanna sem stutt hafa ír- aka með ráðum og dáð en hafa áhyggjur af aukinni ólgu meðal síta í eigin landi sem samúð hafa með trúbræðrunum í Persíu. En eigi þessi kenning ekki við rök að styðjast þá er það mikil kaldhæðni örlaganna að árásin á Stark skuli hafa skapað aðstæður sem eru írökum mjög í hag. Það eru Bandaríkjamenn sem hyggj- ast taka málið upp í Öryggis- ráðinu og hefur íraksstjórn ástæðu til að ætla að ályktun þess um friðarskilmála verði á sömu nótum og fyrri ályktanir Samein- uðu þjóðanna sem eru nánast samhljóða tillögum hennar sjál- frar. í þeim er gert ráð fyrir tafar- lausu vopnahléi, að hersveitir stríðsaðila haldi inn fyrir landa- mæri eigin ríkja og að hvor aðili um sig sleppi öllum stríðsföngum úr haldi. En það er fleira sem eykur sjálfstraust íraskra ráðamanna um þessar mundir en um tíma var ekki hátt á þeim risið því þá var engu líkara en að írana skorti að- eins herslumun til sigurs í stríð- inu. Sérfræðingar fullyrða að her íraka standi nú betur að vígi en sá íranski eftir frækilega vörn sunn- anborgarinnar Basra fyrr á þessu ári. írakar hafi þá sýnt mikla framför í herlist frá fyrri viður- eignum en þeir glötuðu hafnar- borginni Faw á fyrri hluta árs 1986 og þeim mistókst að ná á sitt vald íranska bænum Mahran um miðbik sama árs. Einkum sýni þeir meiri sveigjanleika í her- stjórn með því að færa ákvarð- anavald í auknum mæli til lægra settra hersveitaforingja. Við þetta bætist að nýverið hafa borist mörg ný og fullícomin vígtól í vopnabúr Bagdaðstjórn- arinnar. Sovétmenn hafa selt þeim orrustuþotur af gerðinni MIG-23 og skriðdreka sem heita T62 og T72 og kváðu öll þessi vopn vera hin ágætustu. Enn- fremur hafa Brasilíumenn selt þeim fyrsta flokks bryndreka. Efnahagur íraka er að sönnu slæmur en það stendur til bóta því að í september verður tekin í notkun ný olíuleiðsla sem liggur vel utan seilingar írana eða um Tyrkland. En þótt ekki verði nein frið- mæli í bráð þá er talið óhugsandi að íranir blási til sóknar í suðri einsog sakir standa. Þó ekki kæmi annað til þá er hitinn óskaplegur þar á þessum árstíma. Hvað gerist með haustinu skal ósagt látið en sókn að Basra yrði Teheranstjórninni mjög dýr- keypt. Þegar þeir lögðu síðast til at- lögu komust þeir aðeins nokkur hundruð metra innfyrir víglínur óvinarins þrátt fyrir stanslausa bardaga í fjóra mánuði sem kost- uðu 15000 íraka lífið en hvorki meira né minna en 75000 íranir féllu. -ks. Fundur páfa og Waldheims Gyðingar ævareiðir Bandarískir gyðingaleiðtogar hyggjast sniðganga páfa í heimsókn hans vestur. Æðsti rabbíni Rómaborgar mótmælir Gyðingar vítt og breitt um heiminn hafa mótmælt harð- lega væntanlegum fundi Jóhann- esar Páls II páfa og Kurts Wald- heims, forseta Austurríkis, sem fyrirhugaður er í Vatíkaninu í næstu viku. Hin ýmsu samtök bandarískra gyðinga hafa í hyggju að leiða hjá sér heimsókn páfa til Bandaríkj- anna í september næstkomandi. Leiðtogar tveggja þeirra, Ráðs um rekstur samkunduhúsa gyð- inga í Bandaríkjunum og Al- þjóðagyðinganefndarinnar, höfðu þegar mælt sér mót við páfa í Miami en hyggjast nú snið- ganga hinn heilaga föður. í Los Angeles hafa fyrirmenn Jóhannes Páll II. Gyðingar eru hon- um gramir. Simon Wiesenthal miðstöðvar- innar, sem fæst við rannsóknir á öllu því er viðkemur helför gyð- inga á valdaskeiði Hitlers, tekið í sama streng og ætla ekki að funda með páfa þegar hann hefur við- dvöl þar í borg. Yfirrabbíni Rómarborgar, Elio Toaff, og leiðtogi samfélags gyðinga í borginni, Giacomo Sa- ban, sendu páfa harðorð mót- mæli vegna heimsóknar Wald- heims í gær og áður höfðu honum borist mótmæli ísraelsstjórnar. Ennfremur eru líkur á að við- ræðum gyðinga og fulltrúa Vatí- kansins um helförina, orsök hennar og hvaða lærdóma megi draga af hörmungunum, verði siglt í strand. -ks. 14 S(ÐA - ÞJÖÐVILJINN Laugardagur 20. Júnf 1987

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.