Þjóðviljinn - 20.06.1987, Qupperneq 16
Aðaisími
681333
Kvöldsími
681348
Helgarsími
681663
þlÓÐVIUINN
I /-*i innrHnm ir OH ii ir\í 1 007 1*50 IAIi iklnA RO ir
Laugardagur 20. júní 1987 130. tölublað 52. órgangur
l5KOlAtéLTÁ;i
ÍBDIN
AÐB«VIS€LU
SKÓLACÖNCU
SAMVINNUBANKI
ÍSLANDSHF
/
Svart á hvítu
Gagnabanki
um ísland
Einar Valur Ingimundarson, hjá Svörtu á
hvítu: Skráum allar upplýsingar um land og
þjóð. Reykjanesið tilbúið íhaust. Verkefni
upp á tugi milljóna nœstu árin. Gagnastjafnt
skólum, fyrirtœkjum og almenningi
Menn hcfur lengi dreymt um
að eiga auðveldan aðgang að
óheyrilega fjölbreyttu magni upp-
lýsinga um ísiand. Með þessum
gagnabanka, sem við erum að
vinna að, rætist þessi draumur
manna von bráðar, sagði Einar
Valur Ingimundarson, umsjónar-
maður með uppsetningu gagna-
banka á vegum bókaforlagsins
Svarts á hvítu. Ætlunin er að
gagnabankinn hafi í náinni fram-
tíð að geyma allar tiltækar upp-
lýsingar um land og þjóð og geta
menn þegar í haust fengið marg-
víslegar upplýsingar um
Reykjanesið úr bankanum.
„Við erum byrjaðir að skrá inn
á tölvu upplýsingar um Reykja-
nes, svo sem um landafræði og
sögu svæðisins, náttúrufar og ör-
nefni. Meiningin er sú að menn
geti síðan fengið hverjar þær upp-
lýsingar, sem þá kann að vanhaga
um, á disklingi eða útskrift, hvort
heldur er um svæðið í heild eða
einstaka hluta þess,“ sagði Einar
Valur Ingimundarson.
Svart a hvítu hefur nýverið
tekið svo kallaða lestölvu í þjón-
ustu sína, sem „les“ allan texta
inn á móðurtölvu, en úr henni er
síðan hægt fá textann fram á skjá
og vinna frekar úr honum. „Við
getum lesið mörghundruð blað-
síður inn á tölvuna á dag. Án
þessa tækis væri nánast óhugs-
andi að ætla sér að efnistaka allar
heimildir og setja inn í gagna-
banka,“ sagði Einar Valur Ingi-
mundarson.
Þeir hjá Svörtu á hvítu áforma
að kostnaður við uppsetningu
gagnabankans muni kosta 60 til
100 milljónir á næstu þremur til
fimm árum. „Vitanlega er þetta
mikill kostnaður, en við búumst
fastlega við því að ýmsir aðilar
sjái sér hag í því að styrkja þetta
framtak og þar á meðal ríkisvald-
ið, en það gagn sem skólakerfið
kemur til með að hafa af slíkum
gagnabanaka er ómetanlegt,"
sagði Einar Valur Ingimundar-
son.
-RK
Ormarr Örlygsson sækir hér að marki FH, en Halldór Halldórsson ver. Framarar sigruðu þó, 1 -0. Mynd: E.ÓI. Sjá bls. 15.
Hafnarfjörður
Staðbundinn vatnsskortur
Björn Árnason bœjarverkfrœðingur: Eyðið ekki vatninu ívitleysu.
Dæluútbúnaður í Kaldársel kostar 16 milljónir króna. Tíu ára áætlun upp á 100
milljónir
Ibúar á Hoitinu f Hafnarfirði
hafa orðið varir við vatnsskort
að undanförnu. Sömu sögu er að
segja um iðnaðarhverfið við
Kaplakrika. Vatnsskortur þessi
er þó ekki alvarlegur og nægt vatn
í vatnsbólinu. Þrátt fyrir það hafa
bæjaryfirvöld séð ástæðu til að
hvetja fólk til að fara sparlega
með vatnið.
„Ástæðan fyrir vatnsskortin-
um er sennilega sú að nú í þurrk-
unum hefur óvenjumikið vatn
verið notað í garðúðun,“ sagði
Björn Árnason, bæjarverkfræð-
ingur. Hann sagði að með þessu
væri ekki verið að banna fólki að
úða garðan, aðeins verið að
benda því á að nota ekki vatnið í
vitleysu.
Vatnsveita Hafnarfjarðar er 35
ára gömul og fer því að styttast í
að auka þurfi afkastagetu henn-
ar. Ætlunin er að leiða rafmagn
upp í Kaldársel og koma upp dæl-
uútbúnaði þar. Sú framkvæmd
mun kosta um 16 milljónir og
auka afkastagetuna um 10-20%.
Pá er til tíu ára áætlun um styrk-
ingu vatnsveitunnar og aukna
vatnsmiðlun upp á 100 milljónir
króna.
-Sáf
GEGN
STEYPU
SKEMMDOM
STEINVARI 2000_
hefur þá einstöku eiginleika aö
vera þétt gegn vatni í fljótandi
ástandi, en hleypa raka í
loftkenndu ástandi auöveldlega í
gegnum sig, tvöfalt betur en
heföbundin plastmálning.
Viljir þú verja hús þitt skemmdum
skaltu mála meö
STEINVARA 2000.
NÝTT SÍMAMJMER:
69 69 00
c§3Húsnæðisstofnun ríkisins
LAUGAVEGI 77 101 REYKJAVÍK
LáNADEILD • TÆKNIDEILD • RÁÐGJAFARST®)
ÓSAf5IA