Þjóðviljinn - 28.07.1987, Blaðsíða 2
FERÐABLAÐ
Spilumtil vinnings
Viðtal við Kjartan Lárusson
Sá maður sem er hvað
oftast nefndur á nafn þegar
ferðamál ber á góma er tví-
mælalaust Kjartan Lárus-
son formaður Ferðamála-
ráðs og forstöðumaður
Ferðaskrifstofu ríkisins.
Engum þeim sem fylgist
með þessum málum dylst
að hérna er á ferðinni einn
af eldhugunum í íslenskri
ferðamannaþjónustu. Alltaf
er hann í miðri hringiðunni
og á ferðinni að sinna þess-
um málum vítt og breitt um
landið og einnig erlendis að
nema lönd í túrismanum.
Við leituðum því til Kjartans
og báðum hann um að svara
nokkrum spurningum um störf
sín og ferðamál almennt í landinu
en þau hafa á undanförnum árum
verið að taka miklum stakka-
skiptum.
Byrjaði í bílaþvotti
Hve lengi hefur þú starfað að
ferðamálum og hvernig leiddist
þú út í þessi störf í upphafi?
Ætli það sé ekki með mig eins
og flesta aðra að það var einhver
hending í lífinu að ég var að að-
stoða einhvern mann við að þvo
drulluga bflaleigubíla 1965 ef ég
man rétt. Þessi bflaieiga var í eigu
ferðaskrifstofu sem var nú ekki
svo óalgengt þá og hét Lönd og
Ieiðir. Þetta þróaðist út í það að
ég gerðist rútubflstjóri og
leiðsögumaður. Ég fór á nám-
skeið til að ná réttindum í hvoru
tveggja og síðan má segja að eitt
hafi leitt af öðru.
Getur þú lýst því í stuttu máli
hvernig ferðamannaþjónustan
hefur breyst á þessu 20 ára tíma-
bili?
Jú-jú, þegar maður hugsar til
baka þá fyllist maður rómantík,
að gömlu góðu dagarnir komi
aldrei til baka og svo framvegis,
þetta þekkja allir. í>að er veru-
legur munur, áþreifanlegur mun-
ur á ferðaþjónustu hér nú í sam-
anburði við það sem hún var þeg-
ar ég var að byrja. Ég vil sérstak-
lega nefna að öll aðstaða hefur
náttúrlega batnað, bæði hvað
varðar hótel- og veitingarekstur.
Hvað varðar ýmsar aðrar greinar
ferðamannþjónustu, t.d. sam-
göngur og hvaðeina þá var þetta
miklu fábrotnara og í raun ótrú-
legt hve ör breytingin hefur orðið
á stuttum tíma. Þá var þjálfun
starfsfólks í hinum ýmsu þáttum
þjónustumálanna miklu minni
eða miklu styttra á veg komin.
Enn fremur vil ég nefna einn
mikilvægan þátt í viðbót sem við
erum reyndar ennþá að berjast í,
en það er barátta okkar ferða-
þjónustumanna fyrir því að fá
viðurkenningu almennings á því
að ferðamannaþjónusta sé sjálfs-
tæð atvinnugrein. Að auka skiln-
ing hins íslenska ríkisborgara á
því að fjölgun ferðamanna væri
sé hinu góða og að hún skapi tekj-
ur, umtalsverðar tekjur í í þjóð-
arbúið. Þó ekki væri nema af því
einu þá sé rétt fyrir okkur að vera
jákvæðir gagnvart ferðamönnum
sem hingað vilja koma.
30% af
sjávarvöruútflutningi
Hversu stór atvinnugrein er
þetta? Er hægt að lýsa því í ein-
földu máli?
Ferðaþjónustan sem ein
heildar atvinnugrein er að verða
einn af helstu atvinnuvegum
þjóðarinnar. Þótt við séum langt
fyrir aftan sjávarútveg og iðnað
erum við komnir langt með að
hlaupa uppi bændur. En fjöldi
ársstarfa sem hér er lagður til
grundvallar, er ekki raunhæf við-
miðun, heldur arðsemi og mikil-
vægi í heildarafkomu þjóðarbús-
ins. Þar má nefna að gjaldeyris-
tekjur ferðaþjónustu okkar í
heild eru um 30% af heildar sjá-
varvöruútflutningi landsmanna.
Ný áætlun um
ferjusamgöngur
Hvar er uppbyggingin helst
ferðamálunum í dag?
Það sem við vorum að tala um
hérna áðan þ.e. hvernig þetta
hefði nú verið fyrir tuttugu árum,
það er enn að breytast. Það verð-
ur alltaf þannig alla tíð að ferða-
þjónustan breytist með nýjum
kröfum fólks. Hún fær á sig nýjar
hliðar því þetta er fyrst og fremst
þjónsuta við mannfólkið. Til að
standast nýjar kröfur verður
ferðaþjónustan alltaf að vera í síf-
elldri endurskoðun.
Kannski mest áberandi er ann-
ars vegar hvað varðar frumþætti í
þessari þjónustu sem eru hótel-
rekstur, veitingaþjónusta og
samgöngur, að þar er núna og er
fyrirsjáanleg mikil uppbygging
bæði í þéttbýlinu og úti um allt
land. Hótelum er að fjölga mikið
og fjölbreytni í gistiaðstöðu og
veitingastöðum er miklu meiri
nú. Samgöngunetið í landinu er
sífellt að tengjast betur saman á
landi og í lofti. Og síðast en ekki
síst liggur nú fyrir nýtt skipulag
og áætlun um uppbyggingu ferju-
samgangna í landinu sem á eftir
að hafa geysileg áhrif á ferða-
möguleika hérlendis. íslendingar
hafa til skamms tíma verið aftar-
lega á merinni með slíkar sam-
göngur og mættu þeir þar ýmis-
legt læra af frændum okkar í Fær-
eyjum. Það er rétt að gera miklu
betur í þessum efnum og stytta
ferðir fyrir djúpa og langa firði.
Fíngerða þjónustan
eykst
Fyrir utan þessa frumþætti þá
má nefna það sem hefur verið
mjög áberandi nú á síðustu árum,
hvað þjónustunetið er að þéttast
mikið. Það eru að koma inn alls
konar fíngerðir þjónustuþættir
sem enginn hefði látið sig dreyma
um fyrir fimm til átta árum. En
auknar kröfur og aukin ferða-
þjónusta sér til þess að þetta
leiðir hvað af öðru. Til þess að
nefna nokkur dæmi, þá vil ég
nefna þetta klassíska sem við höf-
um nú búið við í nokkur ár og
jafnvel áratugi en er miklu meiri
kraftur í núna, t.d. hestaleigur,
alls kyns ferðir með fólk upp á
jökla, bátsferðir út á vötn og út
fyrir nes og inní víkur. Nú það
nýjasta er að fara á flekum og
prömmum niður jökulárnar. Ég
vil auðvitað leggja áherslu á að
þar verði farið varlega. Þó að
alltaf sé gaman að prófa eitthvað
nýtt og bjóða nýja möguleika
fyrir ferðafólk þá verðum við að
gæta okkar þarna.
Nú, það má kannski nefna líka
sem er mjög að aukast og hefur
ekki verið mikið af áður en það
eru vetrarferðir. Fyrir um það bil
tíu árum skipulögðum við hér hjá
Ferðaskrifstofu ríkisins slíkar
vetrarferðir á gönguskíðum og
jafnvel á snjósleðum. Við rákum
slíkar ferðir að ég held í 4-5 vetur
en höfum ekki verið með neitt
slíkt 2-3 ár og aðrir komið þar inn
í staðinn. Þetta er alveg dæmigert
fyrir nýja þætti í ferðamennsk-
unni að oft er erfitt að festa rætur.
Framsýni og djörfung
Veturinn er langur og strang-
ur, það er hið fornkveðna. En ef
við lítum á það sem snýr að nú-
tímanum og veruleikanum, tækni
og vísindum þá hefur veturinn
gjörbreyst. Það sem hefur haft
mest áhrif nú í seinni tíð er að
vetur hafa nú um nokkurra ára
skeið verið einmuna mildir. Þetta
endurspeglast svo í tölum er-
lendra ferðamanna sem koma til
landsins í ár, því fjölgun þeirra
fyrstu fimm mánuði ársins er
áberandi. Það er með ólíkindum
hvað aukningin hefur verið mikil
og þetta hefur ekki alveg gerst af
sjálfu sér. Á undanförnum árum
hafa verið að koma upp hér þttir
sem geta þjónað þessu fólki að
vetri til. Vetraríþróttir eru í vax-
andi mæli að kalla á erlenda
ferðamenn hingað. íslendingar
eru enn fremur miklu meira á
ferðinni á veturna en áður og það
sést ef til vill best á því að menn
eru farnir að keyra upp á hæstu
toppa Vatnajökuls í febrúar og
mars líkt og niður Laugaveginn.
Þetta sýnir hvað hlutirnir
breýtast hratt.
Ég vil sérstaklega geta þeirrar
framsýni og djörfungar sem
Jöklarannsóknafélagið sýndi
með þ ví að leggj a hitaveitu í sælu-
húsið efst á Vatnajökli. Slík
framsýni á eftir að draga margt
annað á eftir sér í þessum málum.
Þetta kannski sannar fyrir fólki
það sem ég hef oft verið reyna að
segja og reyndar fleiri og margir
eru nú orðnir hálfleiðir á. En það
er að rétt fyrir 1970 eða fyrir rúm-
um 15 árum var það almenn
skoðun fólks og flestir voru
sannfærðir um, að vötnin undir
Vatnajökli væri ekki hægt að
brúa. Orfáum árum seinna fannst
öllum sjálfsagt að keyra þarna
um og þá var þetta gleymt. Hin
aldagamla trú um óbrúanlegu
vötnin var að engu orðin, hún
hafði horfið á einni nóttu
Svona miðaldafordómar eru
enn í fari okkar íslendinga hvað
varðar hálendið. Stór hluti þjóð-
arinnar trúir því enn qþ hálendi
landsins sé óbyggilegt. Þetta er
mesti miskilningur.
En við vorum að tala um ferða-
mennskuna og þróunina síðustu
árin. Þó að margt sé ennþá ógert í
okkar ferðaþjónustu þá er þróun-
in jákvæð og framfarirnar eru
áþreifanlegri en oft áður. Ég held
að við séum á réttri leið. Við
verðum að halda vöku okkar fyrir
allri uppbyggingu ferðaþjónsutu í
framtíðinni gagnvart landi okkar
og þjóð og ekki hvað síst gang-
vart íslenskri náttúru og varð-
veitingu hennar.
Vor- og haust-
ráðstefnur
Ef við snúum okkur að ferða-
mönnunum sjálfum Kjartan.
Samkvæmt nýjustu tölum eru
frændur okkar áhugasamari um
að heimsækja okkur en áður.
Hvernig stendur á því?
Já, þetta kemur fram í júní-
tölunum yfir erlenda ferðamenn
það er rétt. Þetta kemur mér hins
vegar ekkert á óvart. Skýringin er
sú að í júní eru haldnar hér fleiri
norrænar ráðstefnur en áður. Ég
man t.d. eftir rúmlega 800 hundr-
að manna læknaþingi og þarna
komum við að einum mjög mikil-
vægum punkti en það er
ráðstefnuhaldið
Allt tekur þetta nokkurn tíma
að byggja upp. Fljótlega upp úr
1970 voru komnar hingað nokk-
uð stórar ráðstefnur. Ég man
eftir 6-700 manna Baháii-
ráðstefnu og 1300 manna lög-
fræðingaþingi. Á síðasta áratug
höfum við verið með fjölda ráð-
stefna en þær duttu flestar yfir
okkur um hásumarið og þar með
mesta ferðamannatímann. Nú er
það hins vegar að gerast að okkur
er að takast að færa ráðstefnu-
haldið í jaðartímann fram á vorið
og aftur á haustið. Þetta er að
takast hjá okkur og ég vona að
Hreyfill býður saetaferðir til Keflavíkur
Ef þú ert á leið til útlanda er þægilegt að fara fyrsta spölinn í Heyfilsbíl.
Hringdu í okkur með góðum fyrirvara og greindu frá áætluðum flugtíma. Við vekjum þig
með hressilegri símhringingu, óskir þú þess.
68 55 22