Þjóðviljinn - 28.07.1987, Blaðsíða 8
FERÐABLAÐ
Lækjargötu 8. Sími 71562 Siglufirði
Pylsur - gos
sælgæti - tóbak.
2 billiardborð.
Opið frá kl.
13-23.30
alla daga
Veitingastofan
Lækjargötu 2 Siglufirði
Kjúklingabitar - samlokur
hamborgarar - pítur
kaffi - kókó og heimabakaðar
kökur.
Allur venjulegur sjoppuvarningur.
Veitingastofan er opin alla daga frá
kl. 8.30-22.00. Sími 71919
Hótel Örk í Hveragerði er vitni um stórhuga framkvæmdir í ferðaþjónustumál-
um.
/ ferðaþjónustu
Bjarni Sigtryggsson: Við höfum dæmi um
slíka uppbyggingu í ferðaþjónustu hér á
síðustu árum
Sú þróun sem er augljós í
ferðaþjónustu sem og annarri
afþreyingarþjónsutu erlendis
og á eflaust engu að síður við
hérer það sem kalla mætti: 1 +
1=3, segir Bjarní Sigtryggs-
son aðstoðarhótelstjóri Hótel
Sögu í grein í nýjasta hefti
Bóndans.
Með þessu er átt við að þjón-
ustuframboð af einhverju tagi
njóti góðs af því að vera í ná-
grenni við annað boð, sem upp-
fylli það að einhverju leyti,
jafnvel þótt það kunni að vera í
samkeppni.
Þetta byggist á því að neytend-
ur laðast að þessum stöðum þar
sem þeir hafa úr einhverju að
velja, helst miklu. Nafngiftin 1 +
i = 3 er til komin af því, að
samanlagður árangur tveggja
staða sem keppa innbyrðis getur
á þennan hátt orðið meiri, en ef
hvor væri á sínum stað, einangr-
aður. Þetta helgast af því að sam-
keppnisstaða þessara staða hefur
breyst gangvart öðrum tilboðum
á markaði.
Til nánari skýringar má nefna
þá þróun sem hefur orðið í smá-
söluverslun, þar sem mest
aukning er í stórverslunum eða
verlunarsamstæðum, þar sem
fleiri en ein verslun er. Þetta er
vegna þess að neytandinn vill fá
að velja og þá er ráðið að stýra
honum inn á þann farveg að hann
geti valið, en innan þess ramma,
sem við markaðsmenn höfum
fyrirfram skapað. Þetta er hið
sama og sagt var um Henry
heitinn Ford, að hann hefði boð-
ið kaupendum upp á T- módelið í
hvaða lit sem menn vildu, svo
lengi sem það væri svart.
Til að flýta fyrir þessari þróun
gæti það hugsanlega orðið eðli-
legt forgangsverkefni þeirra ferð-
amálasamtaka sem nú eru að
vaxa úr grasi, að koma á sam-
vinnu nálægra aðila um vöruþró-
un að það sem kalla má
„samkeppnis- samstarf". Slíkt
samstarf er eitthvert vanda-
samast verkefni sem ráðist er í
vegna þess einfaldlega að algengt
er að menn skilgreini hugtakið
samkeppni alrangt. Menn líta of
oft á búðina hinu megin við götu-
na sem helsta keppinautinn. Svo
er þó ekki alltaf.
Tökum sem dæmi Hótel Sel-
foss og Hótel Örk. Tvö ný hótel í
nálægð hvors annars. Þau keppa
um þjónustu og matseðil, jafnvel
um gæði herbergja eða önnur
einstök atriði, en þau styðja
hvort annað að því leyti að þau
draga athygli ferðalanga að hé-
raðinu og þau bæta hvort við gist-
irými annars. Þegar þessi staða
kemur upp er þörf á samkeppnis-
samstarfi. Það er að segja sam-
keppnu varðandi einstaka þætti
þjónustunnar, en samstarf um
stefnumótun. Á máli herfræðinn-
ar væri þetta kallað sameiginleg
„strategía" en samkeppni um
„taktík“.
Félagsheimilið á Selfossi: Þar er rekið Hótel Selfoss sem er líkt og Hótel Örk
rekið af stórhug. Þessi tvö stóru hótel með svo stuttri vegalengd á milli skapa
grundvöll fyrir ýmsa aðra starfsemi í ferðaþjónustumálum í hóraðinu I kring.
Mynd: Rúnar Armann Arthursson.
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN