Þjóðviljinn - 28.07.1987, Blaðsíða 6
FERÐABLAÐ
Ferðafélag (slands
60 ára
íhaust
Afmælisgöngurnar á sunnudögum vinsælar
„Þetta hefur gengið mjög vel í
sumar hjá okkur og er svipað í
sniðum og í fyrra en þá ferðuðust
um 6000 manns með okkur um
landið. Nú hafa 200 manns gengið
frá Reykjavík og upp í Reykholt í
þremur afmælisgöngum á sunnu-
dögum. Fjórða gangan verður á
sunnudaginn. Fólki finnst gaman
að ganga gamlar þjóðleiðir það er
greinilegt af þessari þátttöku,“
sagði Þórunn Lárusdóttir hjá
Ferðafélagi íslands.
„Ferðaframboðið hjá okkur er
fjölbreytt og fólk getur valið sér
stuttar gönguferðir í kringum
Reykjavík alla sunnudaga,
dagsferðir einnig á sunnudögum,
helgarferðir á þekkta ferða-
mannastaði og lengri dvöl t.d.
viku á milli ferða. I sumar hafa
tæplega 100 manns farið í gönguf-
erðir á Heklu í þeim tveimur
ferðum sem farnar hafa verið.
Þórsmerkurferðirnar eru geysi-
vinsælar og einnig Landmanna-
laugar og gönguferðum á milli
þessara staða fer fjölgandi,"
sagði Þórunn.
í haust verður afmælis Ferðafé-
lagsins minnst með einhverjum
hætti en engin ákvörðun hefur
verið tekin um hvernig.
-GíS
Þórsmörk er einn vinsælasti ferðamannastaðurinn. Þar hafa Ferðafélag islands og Útivist komið upp góðri aðstöðu fyrir
ferðamenn. Myndin er frá vígslu göngubrúar yfir Krossá í fyrra en félagar í Ferðafélagi islands byggðu brúna i
sjálfboðavinnu: Mynd: Sibl.
Útivist
OPIÐ
um helgina.
Tjöld, bakpokar,
svefnpokar og allur
viðleguútbúnaður.
Tjöldum öllu
því sem
til er.
Aldrei meira
úrval.
e^\ager<fy
EYJASLOÐ 7 - SIMI 621780
Þriðjungur
í Þórsmerkur-
ferðum
Leggjum áherslu á Þórsmerkurdvöl
„Síðasta ár var metár hvað
varðar þátttöku í okkar ferðum
og mér sýnist þetta ætla að verða
svipað í ár. Við vorum með tæp-
lega 6000 manns í okkar ferðum í
fyrra og ég held að fullyrða megi
að Þórsmörkin sé vinsælust því
um þriðjungur allra fara í þær
ferðir hjá okkur,“ sagði Kjartan
M. Baldursson hjá Útivist.
Við viljum leggja áherslu á
ferðir okkar um verslunarmanna-
helgina og Þórsmerkurdvöl. Gist
verður í Útivistarskálanum í Bás-
um og gönguferðir verða við allra
hæfi. Við bjóðum upp á ferð í
Núpsstaðaskóg sem er einn af
fallegustu stöðum á Suðurlandi,
gönguferð um Lakagíga og
Leiðólfsfell og heim um Eldgjá
og Laugar og að lokum förum við
um Kjöl, um Skagafjörð og út í
Drangey en Drangeyjarsiglingar
eru ógleymanlegar,“ sagði Kjart-
an. -GíS
Útivistarskálinn í Básum í Þórsmörk.
6 SÍÐA - ÞJÓÐVIUINN