Þjóðviljinn - 28.07.1987, Page 16
FERÐABLAÐ
Ferðahugvekja
Frá Palmýru
til Hellisheiðar
Á uppvaxtarárum mínum á
mölinni minnist ég þess að mér
stóð alltaf hálfgerður stuggur af
ferðalögum innanlands. Helsta
andlega fóður mitt þá voru æsi-
spennandi æfintýrasögur, sem
gerðust einhvers staðar í innsveit-
um Langtíburtistans, þar sem
mættust frumskógar, fjöll og
eyðimerkur og týndar borgir risu
mitt í óþekktum dölum, og lét ég
mig dreyma um leiðangra á þeim
hálfum. Lýsingar sagnanna sáu
fyrir sviðsmyndinni, og gat ég
auðveldlega ímyndað mér sjálfan
mig á sveimi um landslag með
völundarhúslegum stórskógum,
gulum og ávölum fjöllum og fljót-
um, sem voru heitari en vatnið í
Sundhöllinni og full af regnboga-
fiskum og grimmum en auð-
blekktum vatnaormum. Það fylg-
di myndinni, að í slíku landi þyrfti
litla Ííkamlega áreynslu til að sigr-
ast á verstu torfærum: hægt væri
að vaða stórfljótin léttilega og
stikla á trjábolum og krókódflum
og sveifla sér á fjaðurmjúkum
greinum yfir hvaða hindrun sem
var... Stórrigningarnar voru eins
og hæg sturta, og þar sem þær
voru svo reglulega lóðréttar var
alltaf hægt að smeygja sér milli
dropa.
Ferðir á íslandi komu mér hins
vegar fyrir sjónir sem alger and-
stæða þessara æfintýrabóka-
draumsýnar. Ég tengdi þau alltaf
við kulda og vosbúð, og sá þá
fyrir mér menn, sem voru að
kúldrast í rigningu og súld, renna
í hálum þúfum, klöngrast í
skriðum og steypast á hausinn
niður í óvistlegar lautir, um leið
og þeir lofsungu hástöfum hvað
það væri gott að vera úti í sumar-
blíðunni, svo að blessuðvertu-
sumarsólin bergmálaði í þeirri
þoku, sem byrgði úti allt raun-
verulegt sólarljós. Eina undan-
komuleiðin undan vosbúðinni
virtist vera sú að flýja inn í þröng-
ar rútur, en þegar þangað kom
voru menn yfirleitt orðnir svo
blautir, að loftið varð brátt illþol-
anlegt. Við þessar aðstæður virt-
ist íslenskt landslag undarlega
„hallærislegt" og einhvern veginn
allt öðru vísi en það átti að vera:
fjöllin þunglamalega dökk og
ruglingsleg, þegar á annað borð
sást til þeirra í gegnum rigning-
arslæður, þýfðir móarnir eins og
húðsjúkdómur á landinu, og
mýrarnar eins konar gildrur án
nokkurs skiljanlegs tilveruréttar.
Lárétta rigningin sem kom úr
öllum áttum í einu kórónaði svo
þetta brokkgenga sköpunarverk.
Ég hefði kannske getað tekið
undir þau orð framsóknarmanns-
ins að Esjan væri eins og fjós-
haugur, ef mér hefði ekki þótt sá
samanburður jafnhallærislegur
og allt annað, svo og framsóknar-
maðurinn sjálfur.
Rætur þessarar hryggðar-
myndar, sem ég geymdi í kollin-
um, voru vafalaust margvíslegar
og ekki einungis oflestur æfin-
týrabóka. Sú afstaða íslendinga,
sem lengi var áberandi, að telja
það sérlega karlmannlegt að láta
sér líða illa á ferðalögum og vaða
sem mest út í kuldann og vosbúð-
ina, helst með einhver hreystiyrði
á vörum, í staðinn fyrir að skýla
sér, hefur komið illa við marga og
fælt þá frá útivistum. Sama máli
gegnir um þá undarlegu áráttu að
gera gönguferðir að e.k. keppni
um það hver er duglegastur við
að ganga alla aðra af sér, þangað
til flestir göngugarparnir eru ör-
magna og dreifðir út um holt og
hæðir... Við þetta bættist sá
eiginleiki bókaorma að þola illa
að koma út undir raunverulegt
bert loft, hvernig svo sem það
bera loft annars er. En kannske
var kjarni málsins sá, að ég var
illa fær um að sjá það sem bjó
raunverulega í íslenskri náttúru:
ég sá e.t.v. liti og línur en fann
enga merkingu í því öllu.
Svo leið tíminn og um síðir fór
svo að ég komst sjálfur í ferðalög
inn í nokkrar nálægar sveitir í
Langtíburtistan, að vísu ekki inn í
hjarta þess lands en nógu langt
samt til að finna andrúmsloftið.
Það vantaði svo sem ekki að það
væri nógu æfintýralegt: eyði-
mörkin var síbreytilega dularfull,
bedúínahöfðinginn, sem ég gisti
hjá, lifði gamlatestamentislegu
lífi í helli með konunum sínum
þremur, og fornar og hálfyfir-
gefnar yeðimerkurborgirnar, þar
sem annarlegir strengleikar bár-
ust eftir auðum götum, voru
miklu æfintýralegri en nokkur æf-
intýrabókalestur gat nokkurn
tíma gefið til kynna. Jafnvel
tunglið lá á hliðinni í óraunveru-
legum litum, svo að ég hefði get-
að sagt að það væri eitthvað ann-
að en helvískur Hornafjarðarm-
áninn. En erfiðleikarnir voru
engu minni en heima á Skerinu,
þótt svitabað kæmi stundum í
staðinn fyrir útvortis vosbúð: hit-
abreytingarnar voru miklu meiri
og kuldinn gat þess vegna verið
miklu meira bítandi, þannig að
mér var kaldara í sólarupprás við
Palmýru en í gjóstri á Hellis-
heiðinni í marsmánuði. Eyði-
merkurstormurinn var líka ólíkt
grimmari en lárétta rigningin, þó
svo að hún kæmi úr öllum áttum í
einu.
Á þessum slóðum Iærði ég þó
smám saman að yfirvinna slíka
erfiðleika, og jafnvel að líta á þá
sem hluta af „æfintýri“. En jafn-
framt gerðist nokkuð annað: við-
miðunin snerist nefnilega við.
Þegar ég umgekkst fólk sem var
sæmilega hagvant í eyðimerkur-
vinjum en leit á norðurslóðir sem
hið mesta æfintýraland, brá svo
við að ég fór að sjá ísland með
augum þess og byrjaði, eftir
eyðimerkurgöngurnar, að líta á
eldfjallalandslag, jökla og dökk
blágrýtisfjöll allt að því sem há-
mark exótismans, svo ekki sé
minnst á þessa dularfullu, þýfðu
móa... Lárétta og áttavillta rign-
ingin varð nánast því að háspeki-
legu eða ontólógísku tákni, sem
virtist geta orðið óþrotlegt efni í
spaklegar hugleiðingar. Hvort
sem ég fór nú að líta á íslenskt
landslag með augum einhvers
Arabahöfðingja eða ekki, fékk
það alveg nýja merkingu, eða
öllu heldur: ég fór nú loksins að
sjá eitthvað af því sem bjó raun-
verulega í náttúru landsins.
Öll þessi eyðimerkurganga
mín hafði sem sé ekki verið ann-
að en risastór krókaleið að þeirri
staðreynd, að öll æfintýri eru
íyrst og fremst hið innra með
manninum sjálfum, í skynjun
hans, næmleika og hugsun.
e.m.j.
Velkomin til
Búðardals
Kaupfélagið býður
ferðamönnum
þjónustu sína
Kaupfélag Hvammsfjarðar
Sími: 93-4180, 370 Búðardal
10 ARA
Utivtsl er siungt
terðafelag er byður
upp a tjolbreytt urval
lengri og skemmri
terða um Island
Sumardvöl
í Þórsmörk
Ódýrt og skemmtilegt sumarleyfi. Fjölskyldu-
afsláttur. Tilvaliö að dvelja í heila eða hálfa
viku í Útivistarskálanum Básum.
Miðvikudagsferðir hefjast 17. júní. Helgar-
ferðir allar helgar. Verð frá miðvikud,-
sunnud.: Fyrir félagsrr\enn kr. 3.050.- fyrir
utanfélagsmenn kr. 3.600.- 50% afsl. fyrir
börn 7-15 ára og frítt undir 7 ára.
Upplýsingar og farmiðar á skrifstofunni,
Grófinni 1, sími 14606 og 23732.
SJÁUMST!
GÓÐA FERÐ!
NJÓTIÐ GÓÐRfi VCmNGfi OG
MAAGS KONfifi ÞJÓNUSTU
Á staðnum er
svefnpokapláss
sundlaug
gufubað
félagsheimili
póst- og símstöð
og fleira
Verið velkomin
Opið fró kl. 8.00-23.30
Hótel Varmahlíð
Skagafirði
Símar 95-6170 og 6130