Þjóðviljinn - 28.07.1987, Page 17
FERÐABLAÐ
r Ferðaþjónustan
Ur Sölutuminum í Ingólfsstræti
Nýupplýsinga-
miðstöð. Að
rekstrinum standa
Ferðamálaráð
íslands, Ferðamála-
samtök lands-
byggðarinnarog
ferðamálanefnd
Reykjavíkur
Eins og Reykvíkingar a.m.k.
vita hefur gamli Söluturninn
hans Sveins heitins Gunnars-
sonar frá Mælifellsá staðið
niðri á Lækjartorgi nú um sinn
og gegnt því hlutverki, að hýsa
upplýsingaþjónustu fyrir
ferðafólk. Aðstaða öil í turnin-
um og við hann var hinsvegar
með þeim hætti, að ógerningur
mátti heita að veita ferða-
mönnum þá þjónustu, sem
brýna nauðsyn bar þó til.
Það má því vera fagnaðarefni
að hinn 8. júlí s.l. var opnuð ný
upplýsingamiðstöð fyrir ferða-
fólk í ákaflega vistlegum og rúm-
góðum húsakynnum að Ingólfs-
stræti 5. Þeir aðilar sem starfa að
ferðamálum, sýndu þessu máii
þegar mikinn áhuga, og mörg hin
helstu þeirra lögðu fram fjármuni
til þess að koma miðstöðinni á
fót. Hún er hinsvegar rekin af
Ferðamálaráði íslands, Ferð-
amálasamtökum landsbyggðar-
innar og ferðamálanefnd Reykja-
víkurborgar.
Megin verkefni miðstöðvar-
innar í Ingólfsstræti verður það,
að veita almennar upplýsingar
um ferðalög og ferðamöguleika á
íslandi, m.a. með því að dreifa
bæklingum, þar sem margháttað-
ar leiðbeiningar og fróðleik er að
finna. Þá hefur og verið komið á
myndbandasýningum. Einnig er
að því stefnt, að stofna tölvu-
væddan upplýsingabanka, þar
sem fræðast má um sem flest það,
sem snertir ferðaþjónustuna inn-
anlands, og verður unnið að því í
vetur. Fyrirhugað er og að þarna
geti farið fram ýmiss konar kynn-
ingar, enda sýnist húsnæðið með
Nýtt húsnæði fyrir ferðamenn. Hin nýja Upplýsingamiðstöð er til húsa að Ingólfsstræti 5 í Reykjavík. Mynd: Ari.
þeim hætti, að það ætti að vera
auðvelt. Búnaðarbankinn rekur
þarna afgreiðslu til að greiða fyrir
gjaldeyrisskiptum. Frímerki
koma til með að verða til sölu og
einnig verður veittur aðgangur að
almenningssíma. Er þannig að
því stefnt að ferðamenn geti feng-
ið sem mesta og fjölþættasta
þjónustu á einum stað, í stað þess
að þurfa að snúa sér til þess í ýms-
ar áttir. Enn má nefna að skrif-
stofan tekur að sér að panta þjón-
ustu og gistirými fýrir ferða-
menn, gegn greiðslu staðfesting-
argjalds. Hinsvegar er Upplýs-
ingamiðstöðin engin sölubúð.
Þar eru ekki seld kort, minjagrip-
ir né ferðir, enda er slíkt utan
starfssviðs hennar.
Á það skal sérstaklega bent, að
Upplýsingamiðstöðin veitir
öllum þeim þjónustu. sem um ís-
land ferðast, jafnt Islendingum
sem erlendum gestum.
Þótt nokkuð hafi verið liðið á
hinn hefðbundna ferðamanna-
tíma þegar Upplýsingamiðstöðin
tók til starfa, hafa þar þó verið
linnulausar annir. Er því
augljóst, að hér var bætt úr
brýnni þörf.
Upplýsingamiðstöðin mun
starfa árið um kring. Og til að
byrja með a.m.k. er hún opin alla
daga vikunnar frá kl. 8 að morgni
til kl. 20 að kvöldi, - og virðist
ekki veita af. Síminn er 623045.
Forstöðumaður er Áslaug Al-
freðsdóttir og starfsmenn yfir
sumarmánuðina eru fjórir.
Það er ekki löng leið frá Sölu-
turninum á Lækjartorgi og upp í
Ingólfsstræti. En það er breitt bil-
ið milli aðstöðunnar, sem þar er
búið við og þeirra möguleika til
margháttaðrar og góðrar þjón-
ustu, sem hið nýja húsnæði veitir.
Og það er ánægjulegt, að þarna
hafa lagst á eina ár þeir aðilar,
sem mikils má af vænta í þeirri
þýðingarmiklu og vaxandi at-
vinnugrein, sem ferðamálin eru.
„Það er von þeirra, sem að
Upplýsingamiðstöðinni standa,
að hún eigi eftir að þjóna þeim
vel, sem ferðast um lsland og að
hún fái tækifæri til að þróast í al-
hliða upplýsingamiðstöð, þar
sem flestir eiga erindi," sagði Ás-
laug Alfreðsdóttir, forstöðumað-
ur. Undir þau orð skal tekið.
- mhg
Mest seldu
bíltækin á íslandi
Einstök tæki
Einstakt verð
í ALLA BÍLA
VERÐ
AÐEINS
KR.
11.890,-
ON/OFFA/OL
AUDÍOUNE AUTO-REVERSE
Al}TO-SCAN -38 A‘ÆMORY TUNiNG
MAX DOWN
i’HASE I.OCK LOOi’ OUARTZ-LIQUiD CRYSTAL OiSPLAY
Aðrir útsölu-
staðir:
Öll kaupfélög
og stærri versl-
anir í landinu
auk Esso oliu-
stöðvanna.
LW-MW-FM Stereo-sjálfvirk stöðvaleitun og minni á 18 stöðvar-Digital klukka-nætur-
lýsing-hraðspólun áfram/afturábak á kassettu auk síspilunar báðum megin ofl. ofl.
50 Watt
SJÓNVARPSMIÐSTÖÐIN HF.
Síðumúla 2 - Símar: 39090 og 689090