Þjóðviljinn - 11.08.1987, Page 7
Sólarströnd við Faxaflóa
Aldan fer mjúkum höndum um þessa sæfara, en hún getur verið öllu grimmari í
vonskuveðrum á veturna.
Dagheimilið Steinahlíð
Óskum eftir starfsfólki, helst í fullt starf. Uppeldis-
menntun og/eða reynsla æskileg. Hafðu sam-
band í síma 33280.
Hann er kaldur sjórinn þótt veðrið sé gott. Hrollurinn fór þó fljótlega úr þeim þegar þeir lögðust í heitan sandinn og létu
sólina verma sig.
Frá Grunnskóla
Njarðvíkur
Laus er staða kennara við grunnskóla Njarðvíkur
næsta skólaár. Óskað er eftir kennara í raun-
greinum en annað kemur þó til greina. Skólinn er
aðeins í 40 km fjarlægð frá Reykjavík og er þægi-
legt að fara á milli daglega. Fargjöld verða
greidd. Upplýsingar veitir Gylfi Guðmundsson
skólastjóri í heimasíma 92-14380 eða í skólanum
í síma 92-14399.
Hvað skyldi vera svona spennandi?
Þjóðviljinn litast um á
Langasandi,
útivistarparadís þeirra
Skagamanna
Langisandur hefur iöngum
verið fjölsótt paradís Skaga-
manna, einkum yngri kynslóðar-
innar, og það virðist ekkert lát
vera á vinsældum þessa víðáttu-
mikla leikvaliar. Þegar sólin skín
eins og um síðustu helgi drífur að
bæði unga og aldna og þeir láta
sig ekki muna um að taka sund-
sprett sér til skemmtunar og
heilsubótar enda þótt sjórinn sé
yfirleitt heldur í kaldara lagi.
Á góðviðrisdögum er undan-
tekningarlítið margt um manninn
á sandinum og yfirleitt má sjá
fólk á gangi og í náttúruskoðun
þótt ekki sjáist endilega til sólar.
Langisandur er einnig vinsælt æf-
ingasvæði knattspyrnumanna á
vorin.
1 margra augum er þetta úti-
vistarsvæði þó ekki síður spenn-
andi á veturna, þegar æðisgengið
brimið gengur á land í vonsku-
veðrum.
Tíðindamaður Þjóðviljans
stóðst ekki freistinguna að sóla
sig í sandinum þegar hann var á
ferð um Akranes um síðustu
helgi og festi nokkra lífsglaða
krakka á filmu í leiðinni.
-gg
Henni liggur á í land þessari hnátu, en
ekki er gott að segja hvers vegna.
Kannski hefur krabbi bitið hana í stór-
utána.
Þriðjudagur 11. ágúst 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7
Skólastjóri