Þjóðviljinn - 11.08.1987, Qupperneq 9

Þjóðviljinn - 11.08.1987, Qupperneq 9
ítalskir kommúnistar á útifundi. eitt að segja um góðan ásetning flokksins í hinum ýmsu málefn- um, en hins vegar muni árangur aldrei nást nema flokkurinn nái að skapa vitund og skilning með- al fjöldans á því nýja ófrelsi sem nútíma kapítalismi hafi innleitt og felist í tvístrun einstaklingsvit- undarinnar og upplausn hinnar pólitísku heildarsýnar að undir- lagi fjölþjóðlegrar valdasam- steypu auðmagnsins. Tómt mál sé líka að tala um „þriðju leiðina" er yfirstígi til- raunir jafnaðarmanna með vel- ferðarþjóðféiagið án þess að taka upp alræðisstjórnarfar Austur- Evrópuríkjanna nema tekið sé mið af slíkri heildargagnrýni. Að þessu sögðu lýsti Ingrao því yfir að hann gæti ekki greitt fram- söguerindi formannsins atkvæði sitt og að hann teldi jafnframt alla viðleitni kommúnistaflokksins til samstarfs við sósíalista eða aðra flokka dæmda til að mistakast nema tekið væri á þessum grund- vallaratriðum. leitt til þess að ímynd hans er orð- in óljósari í augum fjöldans. Flokkurinn hefur að vísu hvít- þvegið sig svo af þeirri grímu stal- ínískrar alræðishyggju, sem ands- tæðingarnir hafa reynt að sverta hann meö og nota sem tylliást- æðu fyrir útilokun flokksins frá stjórnaraðild, þannig að þessi gríma er ekki brúkleg lengur fyrir andstæðingana sem tylliástæða. En um leið kemur að því að flokksmenn þurfa að spyrja sjálfa sig þessarar spurningar: úr því að ég er ekki Stalín, eins og ands- tæðingarnir hafa haldið fram, hver er ég þá? Óljós sjálfsímynd Svarið liggur í stefnuskrá flokksins, segir Natta. Og hann gerir í löngu rnáli grein fyrir stefnu flokksins í hinum ýmsu málum. Oftast er þar farið al- mennum orðum um hlutina, án þess að fara út í smáatriði. Margt er þar fallegt og vel hugsað, en þó held ég að mörgurn fari eins og mér, að svarið við fyrrgreindri spurningu er jafnvel ennþá fjar- lægara eftir þann lestur. Og það verður freistandi að taka undir þau gagnrýnisorð Pietro Ingrao, hins gamla leiðtoga vinstri- armsins í flokknum, sem segir að stefnuskráin sé jafn óljós og raun ber vitni vegna þess að flokkur- inn hafi ekki náð að greina þá breytingu sem orðið hefur á kap- ítalismanum á síðustu árum. Og að þessi skortur á greiningu feli í sér að flokkurinn hafi ekki áttað sig á hvar skóinn kreppir í þjóðfé- laginu, hvar átakapunktarnir liggi í baráttunni fyrir frelsi ntannsins og möguleikum til þess að nýta sköpunargáfu sína og bæta umhverfi sitt. Þversögn ósigursins En áður en út í þessa gagnrýni er farið er rétt að huga að nokkr- um mikilvægum atriðum í stefnu- ræðu formannsins. í fyrsta lagi bendir hann á þá þversögn að þótt flokkurinn og hugmyndir hans um „lýðræðis- legan valkost" hafi ekki fengið brautargengi hjá kjósendum í kosningunum í 14. júní sl., þá feli úrslitin engu að síður í sér að kommúnistar standa nú nær því að rjúfa einangrun sína í ítölskum stjórnmálum en nokkru sinni fyrr. Fimmflokkastjórnin sé liðin undir lok sem pólitískt bandalag er byggi á fyrirframútilokun kommúnista. Hin nýja stjórn Gi- ovanni Goria er að vísu mynduð af sömu fimm flokkum og ríkt hafa undanfarin 4 ár, en grund- völlur hennar er ekki pólitískt bandalag eins og áður, heldur stjórnarsáttmáli, og bæði sósíal- istar og kaþólskir ræða nú tiltölu- lega opinskátt um mögulegt sam- starf við kommúnista ef upp úr stjórnarsamstarfinu slitnar. Kosningarnar fela semsagt í sér að í stað tveggja meginpóla í ít- ölskunt stjórnmálum eru pólarnir nú orðnir þrír, og kommúnistar eru ekki lengur sú hreina mey að hún geti ekki leyft sér að stíga í vænginn við báða mótherjana ef því er að skipta, þótt sósíalista- flokkurinn sé nú sem stendur hinn eftirsótti biðill. Utanríkismál I öðru lagi bendir Natta rétti- lega á að utanríkisstefna flokks- ins þurfi ekki endilega að koma í veg fyrir samstarf við aðra flokka. Þau meginatriði sem flokkur- inn leggur áherslu á eru, að þrýst verði á að árangur náist í afvopn- unarviðræðunum, einnig að því marki að ítalir geti losnað við stýriflaugarnar í Comiso á Sikii- ey. En svo er að skilja að brott- flutningur þeirra sé í augum flokksins samningsatriði við So- vétmenn. í þessu sambandi eru þeir andvígir því að staðið verði fast á að halda í gömlu Pershing- flaugarnar í V-Þýskalandi. Deiiurnar fyrir botni Miðjarð- arhafsins eru ofarlega á blaði, og þar vill flokkurinn alþjóðlega ráðstefnu um frið. Vaxandi ójöfnuður í sam- skiptum Suðurs og Norðurs er flokknum áhyggjuefni, og flokk- urinn vill að Ttalía og Evrópu- bandalagið taki sjálfstætt frum- kvæði er miði að nýjum viðskipt- areglum þessara heimshluta, þar sem fyrsta verkefnið sé að leiðrétta þann skuldabagga sem hái nú öllum framförum í þriðja heiminum. Flokkurinn vill halda fast við þau markmið að Evrópu- bandalagið verði einn og opinn markaður árið 1992. Hann vill að Ítalía vinni að því að tryggja sjálf- stæði Nicaragua og að Sovétríkin yfirgefi Afghanistan. Flokkurinn varar við vaxandi hernaðaríhlut- un Bandaríkjanna eða annarra í Persaflóa, en vill að þrýst verði á friðsamlega lausn í anda sam- þykktar Sameinuðu þjóðanna. Flokkurinn lýsir sig hlynntan kjarnorkuvopnalausum svæðum í Evrópu. í ræðunni er hvergi minnst á flotastöðvar Bandaríkjanna á ít- alíu, né heldur aðildina að NATO, en það var liður í hinni auknu „Evrópuhyggju" flokksins að samþykkja aðildina að NATO um leið og flokkurinn lagði áherslu á aukið frumkvæði Ítalíu og Evrópu innan bandalagsins. Efnahagsmálin Hvað varðar efnahagsmálin þá segir Natta að hin efnahagslega uppsveifla sem fylgt hafi í kjölfar Iækkandi markaðsverðs á olíu og hráefnum sé búin að ná sínu há- marki og að nú fari að halla undan fæti. Án þess að eiga bein svör við því hvernig forðast eigi endurtekningu þess vítahrings sem felist í takmörkun peninga- ÓLAFUR GÍSLASON m magns, vaxtahækkun, fram- leiðslustöðnun og auknu atvinnu- leysi, eins og gerðist í síðustu kreppu, þá bendir hann á að leið núverandi ríkisstjórnar sé sú versta mögulega: að láta reika á reiðanum. Natta segir að stærsti efnahags- vandi ítala felist í ójöfnuðinum á milli norður- og suðurhluta landsins, og að með sama áfram- haldi megi búast við að atvinnu- leysið á S-Ítalíu fari upp í 25% á meðan það verði um 6% í norðurhlutanum. Við þessu eigi að bregðast með auknum fjár- festingum ríkisins. í almennum orðum segir Natta að flokkurinn leiti samstarfs um lausn efnahagsvandans við öfl sem standi utan hinnar hefð- bundnu verkalýðsstéttar. Verka- lýðsstéttin er ekki miðpunktur alls, segir hann, en án hennar er heldur ekki hægt að takast á við vandamálin og skapa samstöðu með ungu atvinnuleysingjunum, tæknistéttunum og mennta- mönnunum og þeim framkvæmd- aaðilum sem þurfa bætt umhverfi til vaxtar. Engar rósrauðar hillingar Mörg önnur þjóðþrifamál eru reifuð í ræðu formannsins. Flokkurinn lýsir sig andvígan á- framhaldandi uppbyggingu kjarnorkuvera án þess að hafa á reiðum höndum lausn á orku- vandamálinu, flokkurinn leggur áherslu á jafnrétti kynjanna, urn- hverfismál o.s.frv. Það sem hins vegar skortir er heildstæð fram- tíðarsýn, að minnsta kosti ef bor- ið er saman við þá rósrauðu hill- ingu hinnar sósíalísku byltingar sem eitt sinn var kommúnista- flokkum Evrópu að leiðarljósi. Gagnrýni frá vinstri Eins og gefur að skilja urðu líf- legar umræður á miðstjórnar- fundinum um ræðu formannsins. Nokkuð bar þar á svartsýni. Urðu meðal annars ýmsir til þess aö benda á að menningarleg áhrif flokksins færu þverrandi, jafnvel svo að lægi við hruni. Aðrir kvörtuðu undan innri deilum og vöntun á sjálfsímynd, en ákveðn- ust gagnrýni á formanninn kom eins og áöur er getið frá Pietro Ingrao, hinum gamalgróna leið- toga vinstri arntsins í flokknum. Ingrao segir að flokkurinn hafi ekki áttað sig á þeirri nýju gerð yfirdrottnunar sem hafi grafið um sig á alþjóðavettvangi jafnt sem innanlands og hafi á bak við sig samsteypu fjármagnseigenda og iðjuhölda, en hasli sér í æ ríkari mæli völl á sviði þekkingar, þjón- ustu, í opinberum stofnunum og meðal þeirra afla sem séu ráðandi um mótun tísku og lífsmáta. Ing- rao segir að þessi nýja yfirdrottn- un komi ekki bara niður á gæðum og afköstum framleiðsluferlisins, heldur snerti hún frelsi mannsins, möguleika hans til þekkingar og skapandi starfs, afstöðu hans til starfsins og umhverfisins, og þessi nýja yfirdrottnun, segir hann, hefur haft í för með sér grundvallarbreytingar á þjóðfé- laginu. Ingrao segir að skilningsleysi flokksins á þessu nýja formi yfir- drottnunar og firringar hafi vald- ið því að hann hafi dregið það of lengi að taka afstöðu til kjarnork- unnar, að hann hafi vanrækt frið- arhreyfinguna og að hann hafi ekki náð að skipuleggja eða bera uppi fjöldahreyfingu um grund- vallarréttinn til þekkingarinnar og um leið fyrir styttingu vinnu- tímans, en þessi atriði eru, segir Ingrao, þau grundvallaratriði er varða valdið og frelsið í okkar þjóðfélagi. Athyglisvert er að Ingrao nefnir ekki hina hefð- bundnu launabaráttu í þessu sambandi né heldur ágreining um utanríkismál. Nýtt ófrelsi Ingrao segir jafnframt að til þess að samhæfa þessa baráttu þurfi flokkurinn að beita sér fyrir víðtækum stjórnkerfisbreyting- um. Hann hefur ekki nema gott Flokksbrot Pietro Ingrao myndar minni- hluta í miðstjórn ítalska kom- múnistaflokksins ásamt með hinni skeleggu Luciönu Castel- linu. Annað flokksbrot telst hæg- ra megin við miðju, og leiðtogar þess eru þeir Luciano Lama, fyrr- verandi leiðtogi verkalýðssam- bandsins CGIL og Giorgío Nap- oletano, núverandi talsmaður flokksins í utanríkismálum. Luci- ano Lama er nú varaforseti efri deildar ítalska þingsins. Hægri armurinn hefur lagt enn ríkari áherslu á samstarfsvilja við sós- íalista og jafnframt við jafnaðar- mannaflokkana í Evrópu og Al- þjóðasamband jafnaðarmanna. Þótt þannig sé talað um hægri arm, þá verður ekki sagt að um djúpstæðan ágreining sé að ræða á milli hans og flokksformanns- ins, sem er fulltrúi miðjumanna. Annað hverfandi flokksbrot er í kringum gamla bresjnefistann Cossutta, en hann á ekki lengur sæti í miðstjórn flokksins. Mið- stjórnarfundinum lauk því með því að stefnuræða formannsins var samþykkt með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða, um leið og samþykktar voru nokkrar skipu- lagsbreytingar í forystu flokksins, meðal annars með það að mark- miði að leggja aukna áherslu á stefnumótun í nánustu framtíð. Sögulegt hlutverk Hvað sem segja má um þær innri deilur sem nú eiga sér stað í ítalska kommúnistaflokknum, þá verður því ekki neitað að flokk- urinn hefur gegnt og gegnir enn sögulegu hlutverki í evrópskri vinstri-hreyfingu. Flokkurinn státar af betri skipulagningu en flestir sambærilegir flokkar í álf- unni, og þau skoðanaskipti sem eiga sér stað innan flokksins hafa verið og eru blessunarlega laus við persónuníð og baktjalda- makk eins og einkennt hefur marga aðra hliðstæöa flokka ál- funnar. Þegar flokkurinn beið þann ósigur í síðustu kosningúm að fá ekki nema um 26% atkvæða urðu ýmsir flokksmenn til þess að benda á fordæmi franskra komm- únista í varnaðarskyni og tala um „frönsku hættuna". Áttu þeir þar við þá uppdráttarsýki franska kommúnistaflokksins, sem lýst var í ágætri grein Einars Más Jónssonar hér í blaðinu í síðustu viku. Þótt ýmsar blikur séu á lofti fyrir ítalska kommúnistaflokkn- um, þá eru trúlega aðrir vinstri- flokkar í álfunni sem hafa ríkari ástæðu til þess að horfast í augu við þá hættu af meiri alvöru en ítalskir kommúnistar. -ólg. Þriöjudagur 11. ágúst 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍ0A 13

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.