Þjóðviljinn - 20.08.1987, Blaðsíða 6
LANDSBYGGDIN
FLÓAMARKADURINN
Sóleyjarsaga
Ógallað eintak af „Sóleyjarsögu”
eftir Elías Maróskast keypt, I. og II.
bindi. Hafið samband við Elías Mar í
síma 38218 eða 681333.
Dagmamma
Dagmamma óskast frá 1. okt. fyrir
10 mán. gamla stelpu hálfan dag-
inn, eftir hádegi. Bý í Hlíðahverfi.
Uppl. í síma 21262. Anna Rósa.
Tilsölu
stórt barnarimlarúm úr furu ásamt
dýnu. Verð kr. 2.500. Er úr Vöru-
markaðinum. Upplýsingar í síma
72072.
Starfsmann Þjóðviljans
vantar litla íbúð. Skilvísum
greiðslum og mjög góðri umgengni
heitið. Uppl. í síma 35236.
Veiðleyfi
Veiðileyfi í Langavatni. Góð að-
staða í húsum og traustir bátar.
Einnig er hægt að fá aðstöðulaus
veiðileyfi. Nánari upplýsingar gefur
Halldór Brynjólfsson í síma 93-
7355.
Tilsölu
blár Saab 99 árg. ’74. Verðhug-
mynd kr. 50 þús. Uppl.s. 625963 í
kvöld.
2ungirskólapiltar
óska eftir 2ja herb. íbúð frá og með
1. sept. Uppl.s. 39844.
Tilsölu
ýmsir notaðir munir á góðu verði,
þ.á m. sv/hv sjónvarp, Philco þvott-
avól o.fl. Uppl.s. 611762 föstudag.
Vantar 3ja-4ra herb. íbúð
fyrir fámenna fjölskyldu, helst á Sel-
tjarnarnesi eða í vesturbæ. Erum á
götunni. Fyrirframgreiðsla og með-
mæli ef óskað er. Sími 61762 föstu-
dag.
VWbjalla árg. ’73
1303 L til sölu í mjög góðu ásig-
komulagi. Uppl.s. 15564 eftir kl. 20
Óska eftir að kaupa
notaðan svalavagn, má vera nettur
og ódýr. Uppl.s. 15482.
Til sölu Citroén GS Club '78
vetrar- og sumardekk, útvarp/
kasetta, skoðaður '87, selst ódýrt.
Kenwood hljómflutningstæki, 20“
litsjónvarp. Uppl.s. 24836.
Tilsölu
Citroén Gs Club '74. Er gangfær en
með grænan skoðunarmiða '87
vegna ryðgaðra framhurða. Góð
dekk og fleira nýtilegt. Selst ódýrt
(tilboð). Uppl.s. 666914 e.h. og á
kvöldin.
Hjónarúmtilsölu
frá IKEA (bæsuð fura), 6-7 ára
gamalt með 2 náttborðum og dýn-
um. Uppl.s. 20045.
Óskaeftirað kaupa
notaða frystikistu, ekki mjög stóra.
Á sama stað er tvöfaldur ísskápur til
sölu. Skipti hugsanleg. Uppls.
71891 eftir kl. 19.
Óska eftir að kaupa gamalt
píanó
Sími 12252.
Búslóðtilsölu
vegna flutnings. M.a. ísskápur,
sófasett, hillur fataskápur, eldhús-
borð o.fl. Selst á sanngjörnu verði.
Til sýnis og sölu um helgina. Sími
14983.
Örugguraðili
óskar eftir að taka á leigu hús í
nokkur ár í Reykjavík eða nágrenni.
Raðhús kæmi til greina. Góð um-
gengni og öruggar greiðslur. Tilboð
sendist inn á auglýsingadeild Þjóð-
viljans merkt „Hús nr. 1” núna
næstu daga.
Dagmamma í Smáíbúða-,
Bústaða- eða Fossvogs-
hverfi
Okkur bráðvantar áhugasama og
góða dagmömmu til að sækja 3ja
ára stúlku í leikskólann og annast
hana síðari hluta dags. Uppl.s.
34212 eftir kl. 19.
Barnakerra
Óska eftir að kaupa góða skerm-
kerru með svuntu. Þarf að vera í
góðu lagi. Bjargey, sími 84793.
Heftilsölu
saxófón, ágætisgrip á góðu verði.
Uppl.s. 75913 eftir kl. 20.
Tilsölu
Toyota prjónavél. Uppl.s. 31519
eftir kl. 17.
Óska eftir að kaupa 2 borð,
mega vera gömul
Eldhús- eða borðstofuborð úr tré.
Sími 17087.
Barnastólláreiðhjól
óskast keyptur. Sími 28257 seinni
partinn.
Til leigu
Herbergi til leigu fyrir geymslu á
húsgögnum eða hreinlegri vöru.
Rakalaust, bjart og upphitað.
Uppl.s. 681455.
Óska eftir
herbergi með sérinngangi og baði.
Er lítið heima. Sjómaður. Sími
39844.
Starf á bókasafni
Menntaskólinn viö Sund óskar aö ráða aöstoöar-
mann á bókasafn skólans. Um hálft starf er að
ræða. Upplýsingar veitir Þórdís P. Þórarinsdóttir
bókavöröur í síma 33419.
Rektor
Þjóöviljinn vill ráöa umboðsmann í
Neskaupstað.
Vinsamlegast hafið samband við afgreiðslu
blaðsins í síma 91-681333.
lUðOVIUINN
Ferðaþjónusta bænda er einn f fjölmörgum þátttakendum í landbúnaðarsýningunni. Þetta snotra hús sem stendur á
hlaðvarpa Reiðhallarinnar er sýningarbás Ferðaþjónustunnar. Það nefnist annars „handverkshús” og er smíðað af
Rúnari Hermannssyni. Mynd: Sig.
Tímarit
Eiðfaxi 10 ára
Myndarlegt afmœlisblað
Út er komið 7. tbl. Eiðfaxa i ár.
Er það jafnframt afmælisblað því
Eiðfaxi er nú 10 ára. Af því tilefni
lætur ritstjórinn, Hjalti Jón
Sveinsson, það vera lokaorð
leiðarans að vonandi muni
„Eiðfaxi lifa góðu lífi næstu 10
árin, stuðla að áframhaldandi
framförum - styðja það sem já-
kvætt er, benda á það sem betur
mætti fara og mótmæla því sem
neikvætt er.”
Upphafsmenn að stofnun
Eiðfaxa fyrir 10 árum voru eink-
umþeir Gísli B. Björnsson, Pétur
Behrens og Sigurjón Valdimars-
son. Tveir starfsmenn Eiðfaxa
áttu með þeim þremenningum
rabbfund að Hnausi í Villinga-
holtshreppi, en þar var stofn-
fundur tfmaritsins haldinn.
Ræddu þeir félagar aðdragand-
ann að stofnun blaðsins, 10 ára
feril þess og framtíðaráform. Er
„fundargerð” þessa rabbfundar
birt í blaðinu. Sigurjón Valdi-
marsson ritar einnig sérstaka
grein um „Upphaf Eiðfaxa”,
fyrstu skrefin á þeirri braut og
ýmis umbrot og „útbrot” sem því
voru samfara. Þá er og birt frá-
sögn af síðasta aðalfundi Eiðfaxa
og ávarp formannsins, Ásgeirs S.
Asgeirssonar.
I hugleiðingum sínum um
kappreiðar síðustu 10 ár kemst
Þorgeir Guðlaugsson að þeirri
niðurstöðu að árangur hafi batn-
að, þátttakendum fækkað og
áhugi almennings minnkað.
Hjalti Jón Sveinsson á þarna
ágætt viðtal við Harald Sveinsson
á Hrafnkelsstöðum, formann
Hrossaræktarsambands Suður-
lands. Er þar á ýmsu gripið, vikið
að því sem vel hefur tekist en
einnig hinu sem úrskeiðis hefur
gengið. En niðurstaða Haralds er
sú að hrossaræktin sé á réttri leið
og miklar framfarir orðið síðustu
árin.
Sigurður Haraldsson á Kirkju-
bæ ritar um góðhestakeppni und-
anfarin 10 ár. Bendir hann þar
m.a. á tvennt sem til bóta gæti
horft: Gæðingakeppnin fari fram
á „opnum stórum velli” en ekki
lokuðum hringvelli eins og tíð-
kast hefur nú um sinn og að fram-
vegis verði tónlist notuð sem ívaf
keppninnar því „fátt veit ég
hljóma betur saman en ljúfa mús-
íktóna og hina voldugu mýkt í
hreyfingum gæðingsins.” - Sagt
er mjög ítarlega frá síðasta fjórð-
ungsmóti Norðlendinga á Mel-
gerðismelum.
Spjallað er við Leif Þórarins-
son, bónda í Keldudal í Skaga-
firði, um hrossarækt hans o.fl.,
en Leifur er meðal kunnustu og
fremstu hrossaræktarmanna á
landinu. Hjalti Jón Sveinsson rit-
ar um flutning á hrossum með
flugvélum, Kári Arnórsson um
Kirkjubæjarhrossin í 40 ár,
Gunnar Gunnarsson um „hesta í
draumi” og Sigrún Björgvins-
dóttir um hryssuna Perlu. Þá eru
og birtar nokkrar vísur eftir þá
kunnu hagyrðinga og hestamenn
Jóa í Stapa og Jón í Skollagróf.
Að venju er svo í ritinu fjöldi
mynda. Allt er þetta afmælisblað
hið besta úr garði gert.
-mhg
Fjórðungsþing
Norðlendinga
Haldið á Dalvík 26. og 27. ágúst - Ræðir tvö meginmál
Fjórðungsþing Norðlendinga
verður að þessu sinni haldið á
Dalvík 26. og 27. ágúst n.k. Að
kvöldi hins 27. sitja þingfulltrúar
kvöldverðarboð lyá Dalvíkurbæ.
Að þinginu loknu, eða 28. ágúst,
verður fulltrúum og gestum boð-
ið að kynna sér iðnsýningu á veg-
um Akureyrarbæjar og jafnframt
þátttaka i ráðstefnu um iðnað og
atvinnumál á Norðurlandi, sem
haldin verður í Hótel KEA sama
dag.
Meginmál þingsins verða tvö:
Þriðja stjórnsýslustigið og breytt
verkefna- og fjárhagsskil milli
ríkis og sveitarfélaga, ásamt stað-
greiðslukerfi skatta. Sigurður
Helgason, bæjarfógeti, ræðir um
stjórnsýslustigið og Sigurgeir Sig-
urðsson, bæjarstjóri um verk-
efna- og fjárhagsskilin og stað-
greiðslukerfið. Síðan kynnir
Áskell Einarsson, framkvæmda-
stjóri Sambandsins nefndarálit
um skipan héraðsnefnda og
byggðasamlaga. Bárður Hall-
dórsson, skrifstofustjóri, kynnir
Háskólann á Akureyri og Lárus
Jónsson, fyrrv. bankastjóri fjár-
festingarfélög landshlutanna.
Formaður Sambandsins greinir
frá starfi fjórðungsstjórnar, sam-
starfshóps landshlutasamtak-
anna og leggur fram tillögur
fjórðungsstjórnar. Fram-
kvæmdastjóri flytur skýrslu sína
og leggur fram ársreikninga og
fjárhagsáætlun.
Verulegur hluti af starfi þings-
ins mun fara fram í nefndum. Hjá
atvinnumálanefnd mun Lárus
Jónsson sitja fyrir svörum um
fjárfestingarfélög. Hjá menning-
armálanefnd Bárður Halldórsson
um Háskólann á Akureyri. Hjá
fjórðungsmála- og allsherjar-
nefnd Hlöðver Þ. Hlöðversson,
formaður Samtaka um jafnrétti
milli landshluta. Hjá byggða- og
strjálbýlisnefnd Egill Bjarnason
ráðunautur og verða þar á dag-
skrá samdráttaraðgerðir í land-
búnaði. Ingi Bjömsson, fram-
kvæmdastjóri Iðnþróunarfélags
Eyjafjarðar, gerir grein fyrir iðn-
ráðgjafarstarfseminni. Guð-
mundur Sigurðsson, formaður
Ferðamálasamtaka Norðurlands
ræðir um ferðamálin. Haukur
Ágústsson, formaður Menning-
arsamtaka Norðlendinga, mun
kynna þau. Markús Örn Antons-
son útvarpsstjóri, Bjarni Hafþór
Helgason, sjónvarpsstjóri og
Steindór Steindórsson formaður
Hljóðbylgjunnar ræða málefni
ljósvakans. Guðmundur Ingi
Leifsson fræðslustjóri ræðir mál-
efni fræðsluráða og grunnskóla-
frumvarpið. Tómas Ingi Olrich
mun kynna húsnæðismál Náttúr-
ufræðistofnunar Norðurlands.
Gert er ráð fyrir að nefndir
ljúki störfum fyrir hádegi 27. ág-
úst og þinginu Ijúki svo sem með
afgreiðslu mála og ákvörðun um
næsta þingstað. - mhg
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Flmmtudagur 20. ágúst 1987