Þjóðviljinn - 21.08.1987, Page 1

Þjóðviljinn - 21.08.1987, Page 1
Fóstudagur 21. ágúst 1987 182. tðlublað 52. árgangur Búnaðarbankinn Sturlumálið i Erlent verkafólk Innflutningur kannaður Niðurstöður okkar athugunar eru þær að það vanti fljótt á litið nokkur hundruð manns, í störf hér á landi með haustinu, til að fullnægja eftirspurn eftir vinn- uafli. Við munum því bráðlega hefja leit að starfsfólki í Dan- mörku og á Bretlandi, sagði Víg- lundur Þorsteinsson, formaður Félags islenskra iðnrekenda, en samkvæmt athugun iðnrekenda er útlit fyrir að vinnuafls- skorturinn geti verið 10-12% af heildarmannaafla i atvinnu- vcgum, með haustinu þegar skólafólkið tekur að tínast af vinnumarkaðnum. Víglundur sagðist ekki sjá ann- að en að auðvelt yrði að fá hingað vinnuafl frá Danmörku og Bret- landi. - Þegar búið er að taka tillit til beinna skatta, þá sjáum við ekki annað en að launakjör á ís- landi í iðnaði séu síst verri, ef ekki betri en gerist í Danmörku og Bretlandi og þá er ég að miða við dagvinnulaun en ekki heildartekjur, sagði Víglundur. Ég get ekki séð að verkalýðsfé- lögin geti sett sig uppá móti ráðn- ingu erlends vinnuafls hingað til lands. Við erum aðilar að sam- norrænum vinnumarkaði, þannig að það þarf ekki nein leyfi til að ráða Norðurlandabúa í vinnu hér á landi, sagði Víglundur. - Það kemur mér vægast sagt spánskt fyrir sjónir ef dagvinnu- laun að frádregnum sköttum í iðnaði hér á landi eru sambærileg eða hærri en í nágrannalöndun- um, sagði Karl Steinar Guðna- son, varaformaður Verkamanna- sambandsins. Karl Steinar sagði að hann ætti enn eftir að sannfærast um það að vinnuaflsþörfin væri slík að hefja þyrfti innflutning erlends verka- fólks í stórum stfl hingað til lands. -RK Ágæt aftsókn og almenn ánægja er með landbúnaðarsýninguna BÚ '87. Ég hef séð allar landbúnaðarsýningar sem haldnar hafa verið hér á landi síðan 1947 og þetta er sú langsamlega stærsta og fjölbreyttasta, sagði roskinn maður sem Þjóðviljinn ræddi við i gær. Þá fór fram sýning á nokkrum úrvals kynbótahestum. Þar var í öndvegi sá aldni höfðingi, Sörli frá Sauðárkróki, 23 vetra. Hann var sýndur á landbúnaðarsýningunni í Reykjavík fyrir 19 árum og hlaut síðan heiðursverðlaun fyrir afkvæmi á landsmóti hestamanna í Skógarhólum. -mhg/Mynd Sig. Ihaldið klofið Sjálfstœðismenn á Suðurlandi andvígirþví að SÍSfái Búnaðarbankann. Þorsteinn í klemmu. Kratar lítt hrifnir af því að ráðherrarþeirra skipti ríkisbönkum milli auðvaldsaflanna. Sambandið skoðar kaup á Búnaðarbanka. Andstaða íframsókn og bœndahreyfingunni Ekki eru allir SjálfstæSismenn jafn hrifnir af þeirri hugmynd að selja Sambandinu Búnaðar- bankann til að miðla málum í deilunni um hver skuli hreppa Út- vegsbankann. Þá eru margir kratar lítt hrifnir af því að ráð- herrar Alþýðuflokksins séu í því hlutverki að skipta ríkisbönkun- um upp á milli tveggja helstu auðvaldsafla landsins, einsog það var kallað í leiðara Alþýðublaðs- ins í fyrradag. Búnaðarbankinn er sterkasti bankinn á Suðurlandi og eru flokksbræður Þorsteins þar lítt hrifnir af því að SÍS fái bankann. Segjast þeir ekki vilja gerast gísl- ar Sambandsins. „Það kemur ekki til mála að Búnaðarbankinn verði seldur Sambandinu,“ sagði forystumað- ur í Sjálfstæðisflokknum á Suður- landi við Þjóðviljann í gær. Þor- steinn er því í klemmu, þjónusta hans við ættarauðvaldið í Sjálf- stæðisflokknum og við flokksb- ræður í eigin kjördæmi fer alls ekki saman. En það er víðar en í Sjálfstæðis- flokknum sem skoðanir eru skiptar um sölu Búnaðarbankans til Sambandsins. Gömlum sóma- kærum krötum brá óneitanlega illilega í brún þegar þeir lásu leiðara Alþýðublaðsins í fyrra- dag. Þar segir leiðarahöfundur að hlutverk Alþýðuflokksins í þessu máli sé að „lægja öldurnar milli auðvaldsaflanna tveggja". „Jafnaðarstefnan hefur hingað til gengið út á annað,“ sagði á- hrifamaður í flokknum við Þjóð- viljann í gær. Sagði hann að Al- stöðu innan þingflokks Fram- sóknar og hjá bændasamtökun- um. Ríkisstjórnarfundi var frestað í gær fram á þriðjudag, en Jón Sig- urðsson átti fundi með þeim Val Arnþórssyni og Kristjáni Ragn- arssyni. Á þeim fundum mun hann hafa kannað hug Sam- bandsins annarsvegar og einka- geirans hinsvegar til kaupa á Búnaðarbankanum. Einka- geirinn hefur hafnað þeirri hug- mynd, en Valur sagst tilbúinn að skoða það, þó ólíklegt sé talið að niðurstaða þeirrar athugunar verði jákvæð. Guðjón B. Olafs- son, forstjóri Sambandsins, kem- ur heim á mánudag og vænta menn þess að mál skýrist eitthvað frekar þá. -Sáf þýðuflokkurinn þyrfti ekkert að óttast þó Sjálfstæðisflokkurinn sliti stjórnarsamstarfinu á þessu máli. Sambandið og forystumenn í Framsókn segjast nú tilbúnir að skoða þennan möguleika, en Ijóst er að þeir sjá marga meinbugi á því að Búnaðarbank- inn verði seldur, og er ljóst að sú hugmynd mun mæta mikilli and- Buenos Aires Úr öskunni í eldinn Það er alkunna að gripdeildir og hnupl eru af hinu illa. Það er efamál hvort er ömurlegra, að vera þjófur eða fórnarlamb þjófs. Að minnsta kosti getur argentín- ski vasaþjófurinn Jose Vallentes nú brotið heilann um þetta spursmál. Þegar hann var um það bil að ljúka störfum í stórmarkaði ein- um í Buenos Aires fyrir skömmu komst upp um hann, lögregla var kvödd á vettvang og hófst elt- ingaleikur mikill um verslunar- bygginguna. Eftir mikil hlaup kom þjófur að hurð einni, lauk henni upp og faldi sig. Eftir drjúga stund áræddi hann að stíga út og viti menn, hættan var liðin hjá og hann hélt heim. Þegar hann ætlaði síðan að fara að skoða feng dagsins voru vasar hans tómir. í kompunni hafði verið kollegi á fleti fyrir. -ks. Birgir bætir fyrir Sveiri Akureyri - Sigurður Hallmars- son, fráfarandi skólastjóri á Húsavík hefur verið settur fræðslustjóri í Norðurlandsum- dæmi eystra frá og með næstu mánaðamótum. Sigurður mun einungis gegna starflnu til bráða- birgða, meðan reynt verður að leita lausna á deilu skólamanna nyrðra og ráðuneytis mennta- mála. Ólafur Guðmundsson, sem settur var í embættið frá 1. júlí s.l., fær starf í menntamálaráðu- neytinu. Birgir ísleifur Gunnarsson hef- ur átt viðræður við fulltrúa fræðsluráðs, skólastjórnenda og Sturlu Kristjánsson, sem Sverrir Hermannsson rak úr embætti fræðslustjóra í vetur. -yk

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.