Þjóðviljinn - 21.08.1987, Blaðsíða 12
Úr dagskrá Sjónvarps á haustmánuðum
Ú7VARP - SJÓNVUÍpJ
Erlendir myndafíokkar
í Sjónvarpi
Sovésk þáttaröð, sem gerð er eftir
sögu Gogols „Dauðum sálum“ verð-
ur á dagskrá Sjónvarps í nóvember.
Dagskrá Sjónvarps fer von
bráðar í vetrarbúninginn. Að
venju verður dagskráin stokkuð
upp þegar hausti fer að halla og
nýir myndaflokkar koma inn í
stað þeirra sem gengið hafa í
sumar. Óhætt er að segja að
margt feitmetið verði í trogum
sjónvarpsáhorfenda í skammdeg-
inu.
Hinrik Bjarnason, dagskrár-
stjóri erlends efnis hjá Sjónvarp-
inu, upplýsti að strax uppúr mán-
aðamótunum næstu yrðu nýir
framhaldsþættir teknir til sýninga
í stað þeirra sem rúllað hafa í
súmar.
Af leikritamyndaflokkum,
sem bráðlega hefja göngu sína
má nefna franskan þátt, sem
gerður er eftir nokkrum smá-
sögum franska rithöfundarins
Maupassants. Þessi þáttaröð
tekur við í dagskránni af Borgar-
virki um miðjan september á
sunnudögum. Um miðjan nóv-
ember, á sunnudagskvöldum,
hefjast sýningar á sovéskum
myndaflokki, sem gerður er eftir
sögu Gogols, Dauðum sálum.
Pættirnir hafa hlotið mikið lof
gagnrýnenda víða um vestan-
verða Evrópu.
Ævintýri góða dátans Sveik í
heimsstyrjöldinni fyrri verða á
dagskrá á mánudagskvöldum frá
og með 7. næsta mánaðar í ein 13
skipti.
Léttmeti og hasar
Af léttmynda- og spennu-
myndaflokkum, sem teknir verða
til sýninga á haustmánuðum, má
nefna breska myndaflokkinn
Feðginin, sem verður á dagskrá
frá september og fram í miðjan
nóvember.
Hinrik Bjarnason, dagskrárstjóri er-
lends efnis hjá Sjónvarpinu.
Unnendur bandarísks létt-
metis fá einnig eitthvað við sitt
hæfi, en 9. september hefjast á
miðvikudagskvöldum sýningar á
Frenso - í sex þáttum sem er
skopstæling á svokölluðum sápu-
óperum eins og þær gjarnan birt-
ast í bandarísku sjónvarpi.
Þegar „sápuóperunum" lýkur,
tekur við sannkölluð þýsk sápu-
ópera - ættarsaga um auð, völd,
græðgi og átök. Þáttaröðin nefn-
ist Das Erbe der Guldenbergs.
Þættirnir eru í miklum metum
meðal þýskra sjónvarpsáhorf-
enda.
Þegar útsendingar Sjónvarps
hefjast á fimmtudögum 1. októ-
ber, hefjast um leið sýningar
tveggja nýrra myndaflokka. Sá
fyrri er Eastenders - um „austur-
bæinga“ í London, og sá síðari er
Robbery Under Arms, - ástral-
skur, og fjallar um landnemalíf í
Ástralíu.
Fyrirmyndarfaðirinn Bill Cos-
by kemur aftur á skjáinn 12. sept-
Fyrirmyndarfaðirinn Bill Cosby kemur aftur á skjáinn 12. september. Kemur nú
til að vera.
ember og verður þar eftir alltaf á
sínum stað á laugardagskvöldum.
Derrick hinn þýðverski leysir
torræðar gátur með sjónvarps-
áhorfendum allt til nóvember-
Ioka, en þá tekur kollegi hans úr
þýsku lögreglunni við með þátt-
aröðinni Der Fahnder.
Geðþekki ítalski lögreglufor-
inginn sem atti hér um árið kappi
við mafíósa á Sikiley og galt dýru
verði fyrir, kemur aftur á skjáinn
í októberlok, í þriðju þáttaröð-
inni af Kolkrabbanum.
Frœðsluefni
Spænskukennslan verður á sín-
um stað í dagskrá Sjónvarps og
veður þráðurinn tekinn upp að
nýju 19. september eftir sumar-
leyfi.
Meðal heimildamynda sem
verða á dagskrá á næstunni má
nefna fjögurra þátta verk frá
BBC um ferðir og landafundi við
Miðjarðarhaf á næstu öldum fyrir
Kristsburð.
Kapphlaupinu um himingeim-
inn verða gerð einhver skil í fjög-
urra þátta mynd frá Kanans
landi.
Einstætt náttúrufar Galapag-
oseyja verður til umfjöllunar í
breskum heimildarþáttum og
loks má nefna þrjá þætti frá BBC,
sem nefnast Making of a Contin-
ent og fjalla um ameríska megin-
landið. -rk
6.45 Vefturfregnir.
7.00 Fréttir.
7.03 Morgunvaktin. Hjördís Finnboga-
dóttir og Oðinn Jónsson. Fréttir sagðar
kl. 8.00 og veðurfregnir kl. 8.15. Frétta-
yfirlit kl. 7.30 en áður lesið úr forustu-
greinum dagblaðanna. Tilkynningar eru
lesnar kl. 7.25, 7.55 og 8.25. Þórhallur
Bragason talar um daglegt mál kl. 7.20.
Fréttir á ensku sagðar kl. 8.30.
9.00 Fréttir. Tilkynningar.
9.05 Morgunstund barnanna:
„Óþekktarormurlnn hún litla systir“
eftir Dorothy Edwards. Lára Magnús-
dóttir les þýðingu sína. (9).
9.20 Morguntrimm. Tónleikar.
10.00 Fréttir. Tilkynningar.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 Frá fyrri tíð. Þáttur i umsjá Finnboga
Hermannssonar. (Frá ísafirði).
11.00 Fróttir. Tilkynningar.
11.05 Samhljómur. Umsjón: Sigurður
Einarsson. (Þátturinn verður endurtek-
inn að loknum fréttum á miðnætti).
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Hádegisfréttlr.
12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar. Tón-
leikar.
13.30 Akureyrarbréf. Þriðji þáttur af fjór-
um i tilefni af 125 ára afmæli Akur-
eyrarkaupstaðar. Umsjón: Valgarður
Stefánsson. (Frá Akureyri).
14.00 Miðdegissagan: „( Glólundi" eftir
Mörthu Christensen. Sigriður Thorlac-
íus les þýðingu sina (5).
14.30 Þjóðleg tónllst.
15.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar.
15.20 Lesið úr forustugreinum lands-
málablaða.
17.05 Þættir úr verkum eftir Johannes
Brahms. a. Fyrsti þáttur úr Sinfóníu nr.
4 í e-moll op. 98. Tékkneska Filharm-
oniusveitin ieikur; Dietrich Fischer-
Dieskau stjórnar. b. Fyrsti þáttur úr
Fiðlukonsert í D-dúrop. 77. Leonid Kog-
an leikur með hljómsveitinni „Philharm-
onia“ í Lundúnum; Kyril Kondrashin
stjórnar.
17.40 Torgið. Umsjón: Þorgeir Ólafsson
og Anna M. Sigurðardóttir.
18.00 Fróttir. Tilkynningar.
18.05 Torgið, framhald. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Kvöldfráttir.
19.30 Tilkynningar. Daglegt mál. Endur-
tekinn þáttur frá morgni sem Þórhallur
Bragason flytur. Náttúruskoðun.
Veiðisögur. Jóhanna Á. Steingríms-
dóttir í Árnesi segir frá. (Frá Akureyri).
20.00 Tónlist að kvöldi dags. a. Konsert
fyrir altsaxófón og strengjasveit eftir Pi-
erre MaxDubiois. Eugene Rousseau
leikur með strengjasveit undir stjórn
Paul Kuentz. b. Þjóðlög frá ýmsum
löndum í útsetningu Luciano Berio. Cat-
hy Berberian syngur með „Juillard"-
sveitinni; Luciano Berio stjórnar.
20.40 Sumarvaka. a. Knæfur Miðfirðing-
ur, Jóhannes Sveinsson. Baldur
Pálmason les fyrsta hluta frásöguþáttar
eftir Magnús F. Jónsson úr bók hans
„Skammdegisgestum". b. Eyfirskur
vfsnasmiður og húmoristi. Bragi Sig-
urjónsson segir frá Gesti Ólafssyni
kennara og fer með stökur eftir hann. c.
Stjáni blái á Borgarfirði eystra. Sig-
urður Óskar Pálsson flytur frumsaminn
frásöguþátt.
21.30 Tifandi tónar. Haukur Ágústsson
leikur lótta tónlist af 78 snúninga
plötum. (Frá Akureyri).
22.00 Fréttir. Dagskrá morgundagsins.
Orð kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Vfsnakvöid. Aðalsteinn Ásberg Sig-
urðsson sér um þáttinn.
23.00 Andvaka. Umsjón: Pálmi Matthías-
son. (Frá Akureyri).
24.00 Fréttir.
00.10 Samhljómur. Umsjón: Sigurður
Einarsson. (Endurtekinn þáttur frá
morgni).
01.00 Veðurfregnir. Næturútvarp á sam-
tengdum rásum til morguns.
rIi
00.10 Næturútvarp Útvarpsins. Magnús
Einarsson stendur vaktina.
6.00 (bítið - Karl J. Sighvatsson. Fréttir á
ensku sagðar kl. 8.30.
9.05 Morgunþáttur i umsjá Kristínar
Bjargar Þorsteinsdóttur og Skúla Helga-
12.20Hádegl8fréttir.
12.45 Á milli mála. Umsjón: Gunnar
Svanbergsson og Hrafnhildur Halldórs-
dóttir.
16.05 Hringiðan. Umsjón: Broddi Brodda-
son og Erla B. Skúladóttir.
19.00 Kvöldfróttir.
19.30 Eftirlæti. Valtýr Ðjörn Valtýsson
flytur kveðjur milli hlustenda.
22.05 Snúningur. Umsjón: Vignir Sveins-
son.
00.10 Næturvakt Útvarpsins. Óskar Páll
Sveinsson stendur vaktina til morguns.
- Fréttir kl.: 7.00, 8.00, 9.00, 10.00,
11.00, 12.20, 15.00, 16.00, 17.00,
18.00, 19.00, 22.00 og 24.00.
7.00 Páll Þorsteinsson og morgun-
vaktin. Páll kemur okkur réttu megin
framúr með tilheyrandi tónlist og lítur yfir
blöðin. Fréttir kl. 07.00, 08.00 og 09.00.
9.00 Valdis Gunnarsdóttir á léttum
nótum. Sumarpoppið á sínum stað, af-
mæliskveðjur og kveðjur til brúðhjóna.
Fróttir kl. 10.00 og 11.00.
12.00 Fróttir.
12.10 Þorsteinn J. Vilhjálmsson á há-
degi. Þorsteinn ræðir við fólkið sem ekki
er í fréttum og leikur létta hádegistónlist.
Fréttir kl. 13.00.
14.00 Ásgeir Tómasson og föstudags-
poppið. Ásgeir hitar upp fyrir helgina.
Fréttir kl. 14.00, 15.00 og 16.00.
17.00 Salvör Nordal f Reykjavík sfðdeg-
is. Leikin tónlist, litið yfir fróttirnar og
spjallað við fólkið sem kemur við sögu.
Fróttirkl. 17.00.
18.00 Fréttir.
19.00 Anna Björk Birgisdóttir á flóa-
markaðl Bylgjunnar. Flóamarkaður
milli kl. 19.03 og 19.30. Tónlist til kl.
22.00. Fréttir kl. 19.00.
22.00 Haraldur Gfslason nátthrafn Bylgj-
unnar kemur okkur í helgarstuð með
góðri tónlist.
03.00 Næturdagskrá Bylgjunnar-Anna
Björk leikur tónlist iyrir þá sem fara
seint í háttinn og hina sem snemma fara
á fætur.
7.00 Þorgeir Ástvaldsson. Snemma á
fætur með Þorgeiri Ástvalds. Laufléttar
dægurflugur frá þvf i gamladaga fá að
njóta sfn á sumarmorgni. Gestir teknir
tali og mál dagsins í dag rædd itarlega.
8.30 Fréttir.
9.00 Gunnlaugur Helgason. Jæja...
Helgason mætturll Það er öruggt að
góð tónlist er hans aðalsmerki. Gulli fer
með gamanmál, gluggar í stjörnufræðin
og bregður á leik með hlustendum í hin-
um og þessum getleikjum.
9.30 og 12.00 Fréttlr.
12.00 Hádegisútvarp.
13.00 Helgl Rúnar Óskarsson. Lagalist-
inn erfjölbreytturá þessum bæ. Gamalt
og gott leikið af fingrum fram, með hæfi-
legri blöndu af nýrri tónlist. Helgi fylgist
vel með því sem er að gerast.
13.30 og 15.30 Fréttlr.
16.00 Bjarni Dagur Jónsson. Þessi
hressi sveinn fer á kostum með kántrý
tónlist og aðra þægilega tónlist, (þegar
þið eruð á leiðinni heim). Spjall við hlust-
endur er hans fag og verðlaunagetraun
er á sfnum stað milli klukkan 5 og 6,
síminn er 681900.
17.30 Fréttir.
19.00 Stjörnutfminn. Gullaldartónlisitn
ókynnt í einn klukkutíma. „Gömlu“
sjarmarnir á einum stað, uppáhaldið
þitt. Rolling Stones, Mindbenders, Se-
archers, Tremeloes, Brenda Lee o.fi.
20.00 Árni Magnússon.
Árni er kominn í helgarskap og kyndir upp
fyrir kvöldið.
22.00 Jón Axel Ólafsson. Og hana nú...
kveðjur og óskalög á vlxl. Hafðu kveikt á
föstudagskvöldum.
02.00 Stjörnuvaktin. Vaktmaður Stjörn-
unnar gerir ykkur lifið létt með tónlist og
fróðleiksmolum. Til kl. 08.00.
18.20 Ritmálsfréttir.
18.30 Nllli Hólmgeirsson. 28. þáttur.
Sögumaður örn Árnason. Þýðandi Jó-
hanna Þráinsdóttir.
18.55 Ævintýrl frá ýmsum löndum.
(Storybook International). Þýðandi Jó-
hanna Jóhannsdóttir. Sögumaður Edda
Þórarinsdóttir.
19.20 Á döflnnl. Umsjón Anna Hinriks-
dóttir.
19.25 Fréttaágrip á táknmáli.
19.30 Poppkorn. Umsjón: Guðmundur
Bjarni Harðarson og Ragnar Halldórs-
son. Samsetning: Þór Eiís Pálsson.
20.00 Fréttlr og veður.
20.35 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 Upp á gátt. Umsjón: Anna
Rögnvaldsdóttir. Stjórn upptöku: örn
Þórðarson.
21.10 Derrick. Þýskur sakamálamynda-
flokkur með Derrick lögregluforingja
sem HorstTappert leikur. Þýðandi Vet-
urliði Guðnason.
22.10 Kastljós. Þátturum innlend málefni.
22.50 Forsjónin. (Providence). Bresk/
frönsk bíómynd frá 1977. Leikstjóri
Alain Resnais. Aðalhlutverk: John Gi-
elgud, Dirk Bogarde og Ellen Burstyn.
Rithöfundur rifjar upp ævina að ævik-
völdi.
00.35 Fréttir frá Fréttastofu Útvarps.
16.45 # Sextán ára. (16 Candles).
Bandarísk gamanmynd frá árinu 1985
um unglingsstúlku og versta dag í Iffi
hennar, en það er sextándi afmælisdag-
urinn hennar. Með aðalhlutverk fara
Molly Ringwald, Paul Dooley, Justin '
Henry og Anthony Michael Hall. Leik-
stjóri er John Hughes.
18.15 Knattstpyrna - SL mótið.
19.30 Fréttir.
20.00 Sagan af Harvey Moon. (Shine On
Harvey Moon). Breskur framhalds-
myndaflokkur með Kenneth Cranham,
Maggie Steel, Elisabeth Spriggs, Linda
Robson og Lee Whitlock í aðalhlutverk-
um.
20.50 # Hasarleikur. (Moonlighting).
Bandarískur framhaldsmyndaflokkur
með Cybill Shepherd og Bruce Willis í
aðalhlutverkum. Maddie gefur Agnesi
ritara sinum miða í kvöldverðarboð.
Agnes hittir draumaprinsinn, en því mið-
ur er hann með skuggalega menn á
hælum sér.
21.40 # Einn á móti milljón. (Chance in
að million). Breskur gamanþáttur með
Simon Callow og Brenda Blethyn i aðal-
hlutverkum. Penny ætlar að fara að gifta
sig en allt gengur á afturfótunum og
Tom er sendur til að aflýsa brúðkaupinu.
22.05 # Skilnaður. (Breaking up). Ást-
rölsk sjónvarpsmynd frá 1985 með
Candy Raymond, Nick Enright og Matt-
hew Stevenson í aðalhlutverkum. Mynd
þessi fjallar um tvo unga bræður og þau
áhrif sem skilnaður foreldra þeirra hefur
á Iff þeirra. Leikstjóri er Kathy Mueller.
23.20 # Sendiráð. (Embassy). Banda-
rísk spennumynd frá árinu 1985 með
Nick Mancuso, Mimi Rogers og Richard
Masur í aðalhlutverkum. Yfirmaður
bandaríska sendiráðsins í Róm og ást-
kona hans komast á slóð hryðjuverka-
manna og njósnara. Leikstjóri er Robert
Lewis. Myndin er bönnuð börnum.
00.55 # Þei, þei kæra Charlotte. (Hush-
...hush, Sweet Charlotte). Bandarísk
hrollvekja frá 1965. Charlotte er fullorð-
in kona, sem býr ein á gömlu setri og
leikur sá orðrómur á að hún hafi myrt
elskhuga sinn. Þegar Charlotte á í
vanda, fær hún frænku sina Miriam, til
að flytja til sín, en við komu hennar fara
hræðilegir hlutir að gerast. Aðalhlut-
verk: Bette Davis, Joseph Cotten, Olivia
De Havilland. Leikstjóri: Robert Aldrich.
Myndin er stranglega bönnuð börnum.
03.05 Dagskrárlok.
12 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 21. ágúst 1987