Þjóðviljinn - 21.08.1987, Page 5

Þjóðviljinn - 21.08.1987, Page 5
Hvalveiðar í nafni vísindanna Greinargerð um áskorun 21 líffrœðings Undanfarið höfum við orðið vitni að miklum deilum um hval- veiðar, þar sem Islendingar horf- ast í augu við alvarlegan þrýsting frá ríkisstjórnum margra landa og alþjóðlegum umhverfisvernd- arsamtökum. Á nýafstöðnum fundi Alþjóðahvalveiðiráðsins var samj>ykkt að skora á Ríkis- stjórn Islands að hætta hval- veiðum í vísindaskyni. í umræðum um hvalveiðar fs- lendinga og áskorun hóps líffræð- inga til ríkisstjórnarinnar um að hætta hvalveiðum, þeim er kenndar hafa verið við vísindi, hefur gætt nokkurs misskilnings. Formælendur hvalveiða í vísinda- skyni hafa haldið því fram að ásk- orunin væri ekki reist á faglegum forsendum. í greinargerð þessari viljum við mótmæla slíkum full- yrðingum og leitast við að út- skýra hinar faglegu forsendur sem liggja að baki áskorun okk- ar. Rétt er að fram komi að sam- kvæmt alþjóðasáttmála getúr sér- hvert aðildarríki Hvalveiðiráðs- ins veitt eins marga hvali og það kýs, svo fremi það sé gert í vís- indalegum tilgangi. Erlendis hef- ur sú skoðun víða komið fram að allir íslenskir líffræðingar þjóni stjórnvöldum til þess að komast hjá tímabundinni veiðistöðvun. Tortryggni í garð íslenskra líf- fræðinga er skiljanleg því að önnur hvalveiðiríki hafa notað vísindi sem skálkaskjól fyrir áframhaldandi hvalveiðar þegar friðun hefur þótt nauðsynleg. Sú ákvörðun íslenskra stjórnvalda að hefja veiðar í vísindaskyni, einmitt þegar veiðistöðvunin var að taka gildi, eykur á slíka tor- tryggni. Má hér minna á álit vís- indanefndar Alþjóðahvalveiði- ráðsins þess efnis að hvalveiðar þær sem rannsóknaáætlun ís- lands gerir ráð fyrir muni „bæta sáralitlu við núverandi þekkingu að því er tekur til veiðistjómun- ar“ („provide only a minimal im- provement in our current knowl- edge with respect to providing management advice"). Formæl- endur hvalveiða í vísindaskyni halda því fram að þær séu ómiss- andi þáttur í heildarrannsóknum á hvölum. í ljósi þess að Alþingi íslendinga hefur fallist á tíma- bundna veiðistöðvun Alþjóða- hvalveiðiráðsins og annarra að- stæðna er eðlilegt að við sem líf- fræðingar spyrjum hvort hval- veiðar í vísindaskyni séu nauðsynlegar. Rannsóknir á stórhvelum em ýmsum erfiðleikum háðar. Fram á síðustu ár þótti eðlilegt að slíkar rannsóknir væm eingöngu í sam- bandi við hvalveiðar. Og veiddir hvalir vom því undirstaða rann- sókna af ýmsu tagi, stofnvist- fræðilegra rannsókna jafnt sem ýmissa grunnrannsókna. Vert er að benda á að aðeins lítill hluti þeirra athugana, sem hægt er að gera á veiddum hvölum, koma fyrirsjáanlega að haldi þegar ákvarða á veiðiþol stofnanna. Aðrar athuganir verða eftir sem áður grunnrannsóknir sem ekki eru í neinum sérstökum tengslum við vandamál okkar fslendinga, nefnilega að viðhaida veiðan- legum hvalastofnum. Við teljum ekki rétt að afsaka „hvalveiðar í vísindaskyni" með þörf á grunnrannsóknum af þessu tagi. Má kannski minna á að síðustu geirfuglarnir voru veiddir í vís- indaskyni? Á síðustu ámm hefur orðið ör tækniþróun, sem menn em smám saman að byrja að beita í stofnvistfræði. Má þar nefna að- ferðir til athugana úr lofti og notkun senditækja sem sett em á lifandi dýr, þar á meðal hvali. Fullvíst er að aðferðir þar sem beitt er hátækni muni verða undirstaða þeirra stofnmælinga sem eru nauðsynlegar til þess að hvalveiðar verði stundaðar. Markmið rannsóknanna Samkvæmt rannsóknaáætlun- inni er heildarmarkmið rann- sóknanna „...að auka á þekkingu okkar á ástandi hvalastofna sem nýttir em (árið 1985, innskot okkar) hér við land, á veiðiþoli þeirra og stöðu stórra og smárra hvala í lífkerfi íslenska hafsvæðis- ins. Rannsóknunum er ætlað að auðvelda endurskoðun ákvörð- unar um stöðvun hvalveiða, sem kveðið er á um í samþykkt Al- þjóðahvalveiðiráðsins frá 1982, og verða m.a. gmndvöllur að endurmati á áhrifum veiðistöðv- unar á hvalastofnana, sem ætlun- in er að fram fari eigi síðar en árið 1990.“ (Átak í hvalarannsóknum árin 1986-1990. Drög að rann- sóknaáætlun, Hafrannsókna- stofnun mars 1985). Gögn úr veiðinni Þær upplýsingar sem fást með veiðum og sagðar eru lúta að of- angreindu meginmarkmiði em eftirfarandi: 1) Samband afla og sóknar, þ.e. hversu lengi hvalbátarnir þurfa að leita að hval á miðunum. 2) Hlutfall kynþroska dýra. 3) Hlutfall þungaðra dýra. 4) Aldursdreifing dýra, þ.e. hve gamlir hvalimir eru þegar þeir veiðast. 5) Fæða dýranna. 6) Orkuinnihald vefja. 7) Erfðamörk. 8) Endurheimtur merkja sem áður hefur verið skotið í hvali. Hér á eftir skulu einstök atriði rædd nánar í ljósi þess hversu á- reiðanlegar upplýsingarnar em, hvort slíkar upplýsingar liggja fyrir, og hvort unnt sé að nota aðrar aðferðir. Afli og sókn Samband afla og sóknar hefur verið notað sem mælikvarði á stofnstærð langreyðar. Almennt er nú viðurkennt að vemlegir fræðilegir annmarkar em á að nota þetta samband til að meta breytingar á hvalastofnum. Að- ferðin er helst notuð ef engar aðr- ar aðferðir eru tiltækar, t.d. þeg- ar rannsökuð eru gögn um veiðar fyrr á öldinni. Þegar veitt er á frekar takmörkuðu svæði, sem jafnframt er eftirsóttasta átu- svæði hvalanna, er við því að bú- ast að ný dýr komi í stað þeirra sem drepin eru. Breytileiki í afla- brögðum milli ára er einnig svo mikill að líklegt er að raunvem- legar stofnbreytingar dyijist mönnum. Ef ástæða þætti til að halda áfram að safna gögnum um afla miðað við sókn, til saman- burðar við fyrri ár, væri nægilegt að hvalbátarnir leituðu hvalina uppi en skytu þá ekki. Kynþroski Upplýsingar um kynþroska- aldur em æskilegar við að áætla vaxtarhraða stofna. Meðalkyn- þroskaaldur getur breyst nokkuð með tímanum, og talið er að það endurspegli breytingar á vaxtar- skilyrðum dýranna. Breytingar á kynþroskaaldri langreyðar við ís- land em þó hægar, og ekki er hægt að búast við marktækum breytingum þau ár sem veiðistöv- un Hvalveiðiráðsins stendur. Þungunartíðni Tíðni þungunar þarf helst að vera þekkt til þess að unnt sé að áætla mögulegan vaxtarhraða hvalastofnanna. Stóm reyðar- hvalimir eiga afkvæmi annað hvert ár eða sjaldnar. Þungunar- tíðni langreyðar, sandreyðar og hrefnu er þekkt hér við land og breytingar milli ára afar litlar. Aidur Athugun á aldursdreifingu í stofnum er beitt til að reikna út dánartölu, en með henni og upp- lýsingum um stofnstærð ásamt þungunartíðni má áætla stofn- breytingar. Vegna skorts á upp- lýsingum um stofnstærð hefur ekki reynst unnt að áætla veiðiþol á hverjum tíma. Aldursdreifing í langreyðarstofninum er allvel þekkt hjá dýrum ofan ákveðinna stærðarmarka. Langreyðurin nær mannsaldri ef hún er heppin, og er því langlíf tegund. Nær útilok- að er að aldursdreifing í stofnin- um breytist að marki á því 5 ára tímabili sem veiðibannið gildir. Fæða Fæðusamsetning langreyðar, sandreyðar og hrefnu hér við land er vel þekkt. Sýnatökur á meðan veiðistövun Hvalveiði- ráðsins stendur yfir virðast því óþarfar, nema gert sé ráð fyrir miklum breytileika í fæðu milli ára, en ekkert bendir til þess að svo sé. Orkuinnihald Mælingar á orkuinnihaldi vefja í hvölum snerta útreikninga á næringarbúskap þeirra og „stöðu í lífkerfinu“. Þessar mælingar eru þó aðeins örlítið brot af þeim mælingum sem gera þarf til að athuga stöðu hvala í lífkerfi sjá- var. Fæstar þeirra mælinga verða gerðar á dauðum hvölum. Þau gögn sem veiðunum er ætlað að skila hrökkva skammt til að meta orkuflæði gegnum hvalastofna við ísland. Erfðamörk Rannsóknir á erfðabreytileika hvala geta gefið upplýsingar um tengsl milli hvalastofna. Hér- lendis er til mikið af gögnum um hvali veidda við ísland. Fyrst og fremst skortir gögn frá öðrum hafsvæðum í Atlantshafi. Ekki er fyrirsjáanlegt að þau gögn fáist á meðan veiðistöðvun Hvalveiði- ráðsins stendur yfir. Frekari gagnasöfnun hér við land virðist því varla tímabær. Merkingar Merkingar á hvölum með nú- verandi aðferðum (merki skotið í hval og endurheimt ef hvalurinn veiðist) þjóna þeim tilgangi (1) að kanna ferðir hvalanna og (2) að meta stofnstærðir þeirra. Upplýsingar af þessu tagi eru þýðingarmiklar en reynslan af notkun merkinga með hinum við- teknu aðferðum, sem byggjast á hvalveiðum, er vægast sagt ekki góð. Þær geta aldrei komið í stað- inn fyrir radíómerkingar og beinar athuganir sem eru óháðar veiðunum. Sem dæmi má nefna að ein langreyður sem merkt var með senditæki í júní 1980 ger- breytti hugmyndum manna um göngur þessarar tegundar hér við land. Lokaorð Öll túlkun á gögnum sem fást með veiðum byggist á því að þekkja í smáatriðum ferðir og dreifingu hvalanna í N- Atlantshafi. Ekki er vitað um vetrardvalarstaði langreyðar, sandreyðar, hrefnu og steypi- reyðar, svo dæmi séu nefnd, og samband milli veiðastofna er óþekkt. Við teljum að leggja beri kapp á að afla slíkra upplýsinga og höfum fagnað öllum tilraun- um í þá átt. Það er faglegt álit okkar að óþarfi sé að afía gagna með veiðum nú á meðan veiði- stöðvun stendur. Því áliti okkar, sem fram kom í áskorun til ríkisstjórnarinnar, að rangt væri að kenna hvalveiðar íslendinga við vísindi, var ekki beint til þeirra sem nýta sér dauða hvali til ýmiss konar líf- fræðilegra rannsókna. Við teljum þær rannsóknir í sjálfu sér hinar merkustu. Það er hins vegar mat okkar að öflun gagna með veiðum skili svo litlum viðbótar- upplýsingum um stærð og veiði- þol stofnanna að rangt sé að tala um „hvalveiðar í vísindaskyni“ og notfæra sér þannig undanþág- uákvæði í Alþjóðasáttmálanum um hvalveiðar. Reykjavík 17. ágúst 1987 Agnar Ingólfsson Arnþór Garðarsson Árni Einarsson Ástrós Arnardóttir Guðm. A. Guðmundsson Guðmundur V. Helgason Guðrún Narfadóttir Hrefna Sigurjónsdóttir Jón Gunnar Ottósson Jón S. Ólafsson Karl Skírnisson Kristinn H. Skarphéðinsson Kristján Lilliendahl Óiafur S. Andrésson Sigrún Helgadóttir Sigurður S. Snorrason Sigurður Á. Þráinsson Skúli Skúlason Snorri Baldursson Stefán Bergmann Þóra E. Þórhallsdóttir Föstudagur 21. égúst 1987 ÞJÓÐVIUINN - SÍÐA 5

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.