Þjóðviljinn - 21.08.1987, Qupperneq 15

Þjóðviljinn - 21.08.1987, Qupperneq 15
 Það er aðeins ein breyting á Stjörnuliði Þjóðviljans eftir 15. um- ferð. Vilhálmur Einarsson, Víði, kem- ur í liðið að nýju í liðið í stað lan Flem- ing, FH. Stjörnuliðið eftir 15. umferð, stjörnufjöldi í svigum: Birkir Kristinsson ÍA (12) Birgir Skúlason Völsung (8) Saevar Jónsson Val (11) Guðni Bergsson Val (12) Vilhjálmur Einarsson Víði (8) Gunnar Oddsson ÍBK (11) Andri Marteinsson KR (10) Halldór Áskelsson Þór (13) Pétur Ormslev Fram (16) Pétur Pétursson KR (12) Jón Grétar Jónsson Val (9) 4. deild Huginn og Hvöt í 3. deild Huginn og Hvöt hafa tryggt sér sæti í B-riðli 3. deildar. Huginn sigraði HSÞ.c., 7-1. Huginn hafði nokkra yfirburði og í hálfleik var staðan, 6-1. Sveinbjörn Jóhannsson skoraði þrjú mörk, tvö af þeim úr víta- spyrnum, Jóhann Stefánsson skoraði tvö mörk og þeir Þórir Olafsson og Birgir Guðmundsson eitt hvor. Mark HSÞ.c. skoraði Þórarinn Jónsson. Staðan í B-riðli úrslitakeppninnar: Huginn..........3 2 0 1 10-5 6 Hvöt............2 2 0 0 4-0 6 HSÞ.c...........3 0 0 3 3-12 6 Árvakur úr leik Möguleikar Árvakurs á sæti í 3. deild eru líklega úr sögunni. Þeir töpuðu gegn Bolungarvík 0- 1 á Bolungarvík. Það var Jóhann Ævarsson sem skoraði sigur- markið. Hallgrímur Óli Helga- son, markvörður Bolvíkinga varði tvítekna vítaspyrnu Árvak- ursmanna. Staðan í A-riðli úrlsitakeppninnar: Víkverji........4 2 11 5-6 7 Bolungarvík.....4 2 11 7-9 6 Grótta..........4 2 0 2 10-8 6 Árvakur.........4 1 0 3 8-7 3 -tbe Knattspyrna Sigur hjá Anderlecht Arnór Guðjohnsen og félagar hjá Anderlecht sigraðu í fyrsta leik sínum í Belgísku deildinni, en keppni þar hófst í fyrradag. Það gekk þó ekki jafn vel hjá Guð- mundi Torfasyni hjá Winterslag, sem tapaði sínum fyrsta leik. Einnig var leikið í Englandi og Frakklandi og fylgja úrslitin hér. Belgía Antwerp-Kotrijk..................3-0 Waregem-Molenbeek................1-1 Winterslag-Liege.................0-2 Ghent-Bruges.....................0-1 Beveren-Lokeren..................0-1 Anderlecht-Charleroi.............1-0 Cercle Bruges-Mechelen...........0-0 Standard Liege-Racing Jet........1-2 St.Truiden-Beerschot.............0-0 England ManchesterUnited-Arsenal.........0-0 Norwich-Nottingham Forest........0-1 Q.P.R.-Derby.....................1-1 Tottenham-Newcastle..............3-1 2. deild: Leeds-Leicester..................1-0 Frakkland Niort-St.Etienne.................2-1 Paris SG-Monaco..................0-1 Montpellier-Bordeaux.............0-0 LeHavre-Toulon...................1-1 Metz-RC Paris....................0-0 Toulouse-Cannes.................,. 0-1 Lens-Lille.......................1-1 Auxerre-Laval....................1-1 Nice-Nantes......................3-1 Marseille-Brest..................1-0 -Ibe/Retuer ÍÞRÓTT1R Sund Bœtti sitt eigið Norðurlandamet og hafnaði Í4. sœti áfrábœrum tíma. 7. besti árangur í heiminum í ár Eðvarð Þór Eðvarðsson setti í gær glæsilegt Norðurlandamet í 200 metra baksundi. Hann hafn- aði í 4. sæti í úrslitum á 2.02.79 mínútum og færir það hann í 7. sæti á heimslistanum. „Þetta er besta sund sem ég hef átt og tilfinningin var ólýsanleg," sagði Eðvarð í samtali við Þjóð- viljann í gær. „Ég átti von á að bæta mig, en ekki svona mikið.“ Eðvarð hafnaði í 6. sæti í und- anrásunum á 2.03.62 mínútum. „Ég var svolítið smeykur um að komast ekki í úrslit og þurfti að taka mig á undir lokin. í úrslitun- um fann ég mig mjög vel og gekk betur en ég átti von á.“ Tími Eðvarðs er sá 5. besti í heiminum samkvæmt síðustu skrá sem var gefin út 27. júlí. Tveir Bandaríkjamenn hafa hins- vegar synt á betri tíma nú síðustu vikur á Ameríkuleiknum og tími Eðvars því sá 7. besti í heiminum í ár. Sovétmaðurinn Sergei Zabol- otnov sigraði á 1.59.35 og landi hans Igor Poliansky hafnaði í 2. sæti á 1.59.37. Frank Baltrusch frá Austur-Þýskalandi hafnaði í Magnús Már Ólafsson sem keppti í dag. Hann setti ísland- smet í 100 metra skriðsundi, synti á 52.36 sekúndum, en það nægði honum ekki í úrslit. „Við erum alveg skýjum ofar og þetta var miklu betra en við bjuggumst við,“ sagði Guðmund- ur Harðarson þjálfari landsliðs- ins. „Við áttum jú von á góðu sundi, en þetta var frábært.“ „Þetta á án efa eftir að koma okkur í gang. Okkur hafði ekki gengið nógu vel,en þetta er búinn að vera góður dagur og stemmningin er mjög góð í hópn- um.“ „Það keppa allir á morgun nema Eðvarð og ég er viss um að okkur á eftir að ganga vel,“ sagði Guðmundur. _n,e Eðvarð Þór Eðvarðsson setti glæsilegt Norðurlandamet á Evrópumótinu í sundi og hafnaði í 4. sæti. Körfubolti „Eigum góða möguleika“ Segir Einar Bollason þjálfari íslenska landsliðsins, sem er á leið á Evrópumót 3. sæti á 2.00.22 mínútum. Tamas Deutsch hafnaði svo í 5. sæti á 2.03.18. Gamla Norðurlandametið átti Eðvarð sjálfur og það var 2.03.03 og það setti hann á Heimsmeist- aramóti í Madrid í fyrra. Auk Eðvarðs var það aðeins Staðan í 2. deild karla Víkingur 15 8 2 5 25-21 26 Þróttur 15 8 1 6 31-25 25 Leittur 14 8 3 3 20-14 24 Selfoss 14 6 5 3 26-22 23 IR 14 6 3 5 24-22 21 IBV 14 5 5 4 25-22 20 UBK 14 6 1 7 20-20 19 Einherji 14 5 4 5 17-21 19 KS 14 5 2 7 20-24 17 iBl 14 2 0 12 16-34 6 íslenska landsliðið í körfu- knattleik er byrjað að æfa fyrir Evrópumótið í Lausanne í Sviss, 10.-12. september. Allir bestu leikmenn okkar verða með. „Þetta er gullið tækifæri fyrir okkur til að komast í sjálfa Evr- ópukeppnina og við eigum góða möguleika,“ sagði Einar Bolla- son landsliðsþjálfari. „Við höfum aldrei átt betri möguleika en einmitt núna og á góðum degi getum við sigrað bæði Danmörku og Sviss. Auk þess eru Frakkar með okkur í riðli, en þeir eru mjög sterkir.“ Þau lið sem komast upp úr þessum riðlakeppnum taka þátt í nýrri Evrópukeppni. Þá er leikið í fjórum riðlum ails 16 lið. Leikið er heima og heiman og tvö efstu lið í hvorum riðli fara í sjálfa lok- akeppnina, eða alls 8 lið. „Það væri frábært að komast uppúr riðlinum, því þá fengjum við bestu lið Evrópu hingað til íslands, nokkuð sem okkur hefur alltaf dreymt um,“ sagði Einar. ísland oft leikið gegn Dönum, síðast á Noröurlandamótinu og tapaði þá með sinu stigi á síðustu sekúndunni. ísland hefur hins- vegar aðeins einu sinni leikið gegn Sviss, fyrir sex árum og sig- raði þá. Eftirtaldir leikmenn hafa verið vald- ir í 15 manna hóp: Torfi Magnússon Val Tómas Holton Val Leifur Gústafsson Val Sturla Örlygsson UMFN Valur Ingimundarson UMFN Jóhannes Kristbjörnsson UMFN ívar Webster Haukum Pálmar Sigurðsson Haukum Birgir Mikaelsson KR Guðni Guðnason KR Hreinn Þorkelsson ÍBK Guðjón Skúlason IBK Sigurður Ingimundarson (BK Jón Kr. Gíslason ÍBK Guðmundur Bragason UMFG Tvö verkefni bíða landsliðsins áður en haldið er til Lausanne. Fyrst er leikið gegn úrvalsiði há- skóla í Illinois fylki. Fyrsti leikur- inn er í kvöld í Grindavík og hefst kl. 20. Annar leikurinn er á morgun á Hafnarfirði og hefst kl. 16 og sá þriðji og síðasti í Njarð- vfk á sunnudag og hefst kl. 20. Þá verður einnig tekið þátt í móti í Ghent í Belgíu. Þar mæta til leiks belgíska landsliðið og sterk félagslið frá Frakklandi, Þýskalandi og Hollandi. -Ibe 2. deild Víkingar á toppinn Punktar úr 15. umferð Víkingur-Þróttur 3-2 * * Víkingar eru nú efstir í 2. deild eftir viðureign þeirra við Þrótt- ara í gærkvöldi, en hafa leikið einum lcik fleira en hin liðin og er keppninn um 1. deildar sætið að ári nú orðin yndislega spennandi. Fyrri hálfleikurinn var jafn og spennandi og sýndu Þróttarar oft á tímum meistaralegt spil. Strax á 4. mínútu lék Sigurður Hall- varðsson vörn Víkinga illa og komst einn í gegn, en Jón Otti Jónsson bjargaði með góðu út- hlaupi. Á 10. mínútu komst Sigfús Kárason einn innfyrir eftir mis- tök í vörn Víkings og skoraði með góðu skoti. Víkingar sóttu mjög í sig veðrið við þetta mark og á 21. mínútu jafnaði Atli Einarsson með föstu skoti rétt fyrir utan vítateig. Theódór Jóhannsson braut klaufalega á Atla Einarssyni inn í vítateig á 35. mínútu og var um- ^vifalaust dæmd vítaspyrna sem Trausti Ómarsson skoraði síðan úr. Trausti fékk stuttu síðar kjörið tækifæri til að auka enn niuninn en skaut framhjá markinu í dauðafæri eftir góða sendingu frá Atla Einarssyni. Þróttarar voru ekki aldeilis á þeim buxunum að gefast upp og sóttu mjög stíft að marki Vík- inga. Stuttu fyrir leikslok skoraði Sigurður Hallvarðs fallegt mark eftir að hafa leikið Víkingsvörn- ina grátt. Það var greinilegt að ekkert átti að gefa eftir í leiknum og fór síðari hálfleikurinn nánast fram á miðjum leikvellinum. Mikill darraðardans varð þó inn í vítateig Þróttara á 57. mín- útu eftir að Björn Bjartmanns hafði skallað á Atla Éinarsson. Boltinn barst þar á milli manna og endaði með því að einn varn- armanna Þróttar náði að sparka honum út úr vítateig og létta þar með pressunni. Mínútu fyrir leikslok var síðan Trausta Ómarssyni brugðið inn í vítateig og Víkingar fengu sitt annað víti í leiknum. Trausti tók vítið sjálfur og skoraði af öryggi, stöngin inn. Skömmu síðar flautaði dómarinn leikinn af og var fögnuður Víkinga mikill. Maður leiksins:Atii Einarsson Víking. -Ó.St. Sigurmark Péturs Ormslevs gegn FH var hans 50. mark í 1. deildarkeppninni. Hann er aðeins annar Framarinn sem nær þeim áfanga en Kristinn Jörundsson skoraði 61 mark fyrir félagið í 1. deild. Pétur og nafni hans Pétur Pétursson, KR, eru nú einu leik- mennirnir í 1. deild sem hafa náð 50 mörkum. Pétur P. skoraði sitt 50. rnark gegn Völsungi á Húsa- vík fyrir skömmu. Sigurður Lárusson, fyrirliði ÍA, lékgegn Val sinn 150. leikí 1. deild fyrir félagið. Hann hefur til viðbótar leikið 44 leiki fyrir Ak- ureyrarfélögin ÍBA og Þór. Grétar Éinarsson, Víði, lék gegn ÍBK sinn 50. leik í 1. deild. Hann hefur leikið alla 1. deildar- leiki félagsins nema einn. Guðmundur Valur Sigurðs- son, Þór, skoraði sín fyrstu 1. deildarmörk í leiknum við KR. Kristján Olgeirsson skoraði sitt fyrsta 1. deildarmark fyrir Völsung í ieiknum við KA. Fimm ár eru síðan hann skoraði síðast í 1. deildinni,þáfyrirÍAárið 1982. Valur hefiir nú leikið sjö 1. deildarleiki í röð gegn ÍA án taps, og unnið fjóra síðustu. FH hefur ekki náð að sigra Fram í síðustu 7 deildaleikjum liðanna, síðan í 2. deild 1983, og Fram hefur unnið í sex af þessum 7 leikjum. Víðismönnum tókst að ná stigi í deildaleik gegn ÍBK í fyrsta skipti í sex tilraunum. Reyndar vann Víðir leik gegn ÍBK í fyrra á kæru eftir að hafa tapað. -VS Föstudagur 21. ágúst 1987 ÞJÖnviLJINN - SÍÐA 15

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.