Þjóðviljinn - 18.09.1987, Blaðsíða 10
VIÐHORF
Afram útvarp Rót
Ragnar Stefánsson skrifar
Útvarp Rót er að verða að
veruleika. Svo virðist sem hluta-
bréfasala ætli að ganga vel. Mér
finnst vera tími til kominn að
opin umræða hefjist um hvernig
þetta útvarp eigi að vera. Þessi
grein er framlag mitt í þá um-
ræðu.
Það sem mér finnst vera mikil-
vægast er að útvarpsstöðin geti
hamlað gegn þeirri pólitísku ein-
stefnu, sem ríkir að mestu leyti í
fréttamiðlun og þó sérstaklega í
fréttaskýringum íslenskra fjöl-
miðla. A ég þar ekki síst við ríkis-
fjölmiðlana. Þótt þeir eigi að
heita hlutlausir beitir útvarpsráð
miskunnarlaust pólitísku meiri-
hlutavaldi, bæði í almennri
stefnumótun og til að koma í veg
fyrir ráðningu í fréttamannsstöð-
ur ef hinn pólitíski litur er ekki
nógu hagstæður.
Erlendar fréttir eru afskaplega
bandarískar að eðli. Reagan og
aðrir ámóta fá endalaust að út-
skýra sinn málstað. íhaldið á ís-
landi leggur ofurkapp á að hlutur
Bandaríkjanna og fylgifiska
þeirra sé gerður sem bestur, af
ótta við að annars mundi þjóðin
rísa upp á afturlappirnar gegn
hernáminu.
Innlendar fréttaskýringar eru
hallar undir atvinnurekendur og
stefnu þeirra. Vandi þjóðarbús-
ins er hinn sami og vandi atvinnu-
veganna, þ.e. ef þeir sem hafa í
dagvinnutaxta 30-40 þúsund á
mánuði, hækka í launum þá kem-
ur verðbólgan og allt fer til and-
skotans, sérstaklega hagur hinna
lægst launuðu sjálfra. Þetta er
hundalógíkin, sem tröllríður dag
hvern, vegna þess að íhaldið í
landinu er í óða önn að koma í
framkvæmd nýrri launastefnu,
með miklu meiri launamun en
áður hefur tíðkast. Og þeir vilja
sko sannarlega enga truflun í því
starfi af hendi einhverra verð-
bólguvaldandi láglaunahópa.
Eg gæti nefnt ótal dæmi um
svona einstefnu eða næstum því
einstefnu í íslenskri fjölmiðlun.
Ekki bara hvað snertir utanríkis-
og kjaramál, heldur hvað varðar
heilbrigðismál, menntamál, mál-
efni minnihlutahópa. f þessum
málum þjóna fjölmiðlarnir yfir-
leitt hagsmunum peningavalds-
Fjölmiðlarnir eru fyrst og fremst
farvegur fyrir skoðanir toppsins
niður í hausa almúgans, en ekki
öfugt. Svona til málamynda eru
auðvitað stundum viðtöl við al-
múgamanninn. Þá brosir frétta-
maðurinn góðlátlega, og við
eigum að skilja að það sé af sér-
stöku göfuglyndi, sem hann lýtur
svo lágt. Svipur fréttamannsins er
í algerri mótsögn við lotningar-
fullan svip hans, þegar hann spyr
fulltrúa yfirstéttarinnar með ótta
þótt þeir hafi aldrei gert það áður
og lifi af allt öðru starfi. Útvarp
Rót á að opna mönnum þann
möguleika að þeir séu ekki bara
hlustendur og þiggjendur, heldur
líka gerendur.
Útvarp Rót treður ekki músík-
ina í svaðið með því að gera hana
að ódýru uppfyllingarefni eins og
nú tíðkast svo mjög. Útvarp Rót
þarf að tengja listflutning og um-
fjöllun við viðleitni alþýðu
Það sem mérfinnst vera mikilvœgast er
að útvarpsstöðin geti hamlað gegn þeirri
pólitísku einstefnu sem ríkir að mestu
leyti ífréttamiðlun og þá sérstaklega í
fréttaskýringum íslenskra fjölmiðla
ins, frjálshyggjunnar og íhalds-
ins. Eg ætla ekki að fara að rekja
þetta nánar. Þetta þekkja allir
þeir, sem leggja við hlustir á
gagnrýnin hátt. Menn mega held-
ur ekki skilja mig þannig, að ekki
séu til góðir fréttamann og frétt-
amiðlarar séu allir eins. Síður en
svo. Ég er að tala um hina al-
mennu og yfirgnæfandi til-
hneigingu.
En það er ekki bara í pólitískri
boðun, sem íhaldsstefna er ríkj-
andi í fjölmiðlunum. Það er ekki
síður í aðferðinni. Þeir sem koma
fram í fjölmiðlunum er ofurlítill
hluti þjóðfélagsheildarinnar.
Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurfyrir hönd Hitaveitu
Reykjavíkur óskar eftir tilboðum í gufuháf úr stáli í
skiljustöð Nesjavallavirkjunar.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri að Frí-
kirkjuvegi 3, Reykjavík, gen kr. 5 þús. skilatrygg-
ingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðju-
daginn 29. sept. kl. 11.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 — Sími 25800
Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar fyrir hönd
Hitaveitu Reykjavíkur óskar eftir tilboðum í fólks-
lyftur fyrir stöðvarhús á Nesjavöllum.
Utboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorrí að Frí-
kirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn kr. 5 þús. skila-
tryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað
miðvikudaginn 7. okt. kl. 14.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 — Simi 25800
í augum hvort greiðsla umsam-
inna verðbóta um næstu mánaða-
mót muni ekki valda alveg hræði-
legri verðbólgu.
Hugmynd í
BSRB-verkfallinu
í mínum huga og margra ann-
arra fæddist hugmyndin um
launþegaútvarpið í BSRB-
verkfallinu 1984. f frjálsu íhalds-
stöðvunum sem þá risu upp sáu
menn hvílíkt valdatæki slíkar út-
varpsstöðvar gátu verið í stéttaá-
tökum. Umræður hófust strax
meðal verkfallsmanna um að
koma sér upp sinni eigin útvarps-
stöð til að vega upp á móti þeirri
einstefnu sem þarna ríkti.
Mönnum varð það líka ljóst að
þótt pólitísk einstefna birtist
þarna í sinni nöktustu mynd, þá
var hún líka fyrir hendi á öðrum
tímum, líka í hinum „hlutlausu“
fjölmiðlum. Þess vegna hélt
áfram umræðan um öðruvísi út-
varp, útvarp sem treysta mætti að
Iegðist ekki gegn baráttu þeirra
sem einarðast berjast fyrir bætt-
um kjörum og betra lífi. Ávöxtur
þeirrar umræðu er nú að koma í
ljós.
Hvers konar útvarp?
Útvarp Rót á að verða útvarp,
sem flytur ekki bara línu Vinnu-
veitendasambandsins, um hvert
sé ástand efnahagsmála með
þjóðinni, heldur líka línu Sigríðar
Kristins., Margrétar Pálu, Ás-
mundar Stefáns., Birnu Þórðar.,
Páls Valdimarssonar, Jóns Kjart-
anssonar o.s.frv., svo ég nefni
fólk nú bara í belg og biðu, hvort
sem það sveiflast á strátoppunum
eða situr þétt í grasrótinni.
Það á að vera útvarp, sem ekki
leggur bara út af orðum Daníels
Ortega, Winnie Mandela, Gor-
basjoffs og Khaddafys o.s.frv.
svo ég sé nú jafn óábyrgur í nafn-
aröðinni og áður.
Útvarp Rót á ekki bara að vera
útvarp sem boðar „rétta stefnu"
eða sendir fréttamanninn til að
spyrja alþýðuna hvað hún vill.
Útvarp Rót á að vera vettvangur
þar sem baráttusamtök, ýmis
réttindasamtök fjöldans og hópar
á vinnustöðum tjá sig á sjálfstæð-
an hátt og út frá sínum eigin for-
sendum. Á sama hátt og áhuga-
leikhúsið er vettvangur þeirra,
sem hafa gaman af að standa á
sviði og leika, þarf útvarp Rót að
verða vettvangur þeirra sem tjá
vilja lífssýn sína og list í útvarp,
manna til að skapa sjálf, til að
efla sjálfsvitund sína, til að efla
trúna á eigið gildi. Á sama hátt og
erfiðisvinnumenn í Dagsbrún
geta skapað alveg frábæra mynd-
list, eins og við vorum að sjá í
Listasafni ASÍ, munu hópar
þeirra búa til dagskrá í Útvarp
Rót.
Hvernig verður
hugmyndin
í framkvœmd?
Hugmyndin um útvarp Rót
verður ekki framkvæmd með
sömu aðferðum og gilda um aðr-
ar útvarpsstöðvar hér. Auglýs-
ingar munu ekki fást í sama mæli
til að standa undir kostnaði. Þótt
stöðin nái mikilli hlustun, verður
hún ekki þóknanleg nema litlum
hluta auglýsenda. Möguleikar
stöðvarinnar byggjast á því að
nýta þá þekkingu og þann kraft
sem býr í áhugamannasamtökun-
um, felast í að virkja sköpunar-
mátt þeirra, sem hingað til hefur
verið talin trú um að ættu bara að
hlusta.
Með því tvennu að halda
kostnaði við dagskrárgerð í lág-
marki með almannaþátttöku og
hinu að öðlast tiltrú og velvilja
alls félagslega sinnaðs fólks er
hægt að skapa stöðinni rekstrar-
grundvöll.
Verkalýðsfélög, félög áhuga-
fólks um hin ýmsu framfaramál
og einstaklingar þurfa að koma
nú þegar til að undirbúa og móta
útvarpsfélagið, undirbúa rekstur
Rótarinnar og dagskrárgerð.
Hlutabréfin í Rótinni kosta 5
þúsund krónur, sem mörgum
finnst vafalaust há upphæð, en er
ekki mikið með tilliti til þess
mikilvæga verkefnis, sem hér er
um að ræða.
í stofnsamþykktum félagsins
segir að enginn einn hluthafi geti
farið með meira en 4% atkvæða.
Þar stendur líka að arður sé ekki
greiddur til hluthafa, heldur
verði honum varið í samræmi við
markmið félagsins. Þetta þýðir
líklega að enginn mun leggja
verulega háar upphæðir í hluta-
bréf. Heldur verður að byggja á
því að hátt í þúsund félagasamtök
og einstakljngar kaupi bréf.
13.9. 1987
Ragnar Stefánsson
Dagheimilið
Steinahlíð
Við óskum eftir starfsfólki í 100% starf og 75%
starf.
Upplýsingar í síma 33280.
10 SfÐA - ÞJÓÐVIUINN
ÆSKULYÐSFYLKINGIN
Dagskrá landsþings ÆFAB
2.-4. okt. 1987 að Hverfisgötu 105, Reykjavík.
Föstudagur 2. okt.
20.00 Setning. 20.20 Skýrslur fluttar, umræður: a) framkvæmdaráðs, b)
gjaldkera, c) deilda, d) Utanríkismálanefndar, e) Verkalýðsmálanefndar, f)
Birtis. 23.00 Lagabreytingar og hópvinna kynnt. 23.30 Hlé.
Laugardagur 3. okt.
9.00 Lagabreytingar, fyrri umræða. 10.00 Hópavinna: a) unnið að þingmál-
um, b) Almenn stjórnmálaályktun, c) lagabreytingar. 12.00 Matur. 13.00
Hópavinnu framhaldið. 20.00 Matur. 21.30 Kvöldbæn.
Sunnudagur 4. okt.
9.00 Lagabreytingar, seinni umræða. 10.00 Hópavinna, niðurstöður. 13.00
Matur. 14.00 Kosningar. 15.30 Þingslit.
Þingið er opið öllum ÆF-félögum. Félagar sem greiða þurfa háan ferða-
kostnað utan af landi fá V2 fargjaldið greitt.
Skráið ykkur sem allra fyrst. Nánari upplýsingar færð þú á skrifstofunni í
síma 17500.
Framkvæmdaráð ÆFAB
ÆFR
Félagsfundur
Félagsfundur ÆFR verður haldinn fimmtudaginn 24. september kl. 20.30
að Hverfisgötu 105.
Dagskrá:
1) Kosning fulltrúa á Landsfund.
2) Starfið framundan.
3) önnur mál.
ÆFAB
Skrifstofutími
Skrífstofa ÆFAB er opin á miðvikudögum, fimmtudögum og föstudögum
frá kl. 14-19 að Hverfisgötu 105. Sími 17500.