Þjóðviljinn - 18.09.1987, Side 15
Evrópukeppni
Góðir möguleikar Vals og ÍA
Eiga möguleika á að komast í2. umferð í Evrópukeppni.
Frábœr árangur Valsmanna
Pétur Ormslev í baráttu við tvo varnarmenn Sparta Prag. Róðurinn verður án efa þungur hjá Frömurum í síðari leiknum. Mynd:E.Ol.
eftir fyrri umferðina, en nú að-
eins 0-2.
ÍA
Skagamenn ættu að eiga góða
möguleika gegn Kalmar FF. Lið-
ið sem er í 1. deild, en ekki í
Allsvenskan er ekki mjög sterkt
og á góðum degi ættu Skagamenn
að ná sigri. Þeir þurfa þó ekki
sigur, jafntefli, 1-1 nægir þeim,
því að þeir fengu ekki á sig mark á
heimavelli.
í fyrri leiknum var það norskur
dómari sem stal senunni og hann
réði úrslitum. Brottrekstur Guð-
bjarnar Tryggvasonar var stór-
furðulegur. Auk þess sleppti
hann tveimur vítaspyrnum á Sví-
ana. Það réði að sjálfsögðu mestu
um úrslit leiksins.
Lið Kalmar hefur ekki náð
góðum árangri á heimavelli og
þykir sterkara á útivelli! Mögu-
leikar Skagamanna ættu því að
teljast nokkuð góðir.
Valur
Valsmenn náðu frábærum ár-
angri á útivelli gegn Wismuth
Aue. Jafntefli, 0-0 er mjög gott.
Það má því segja að þeir byrji
síðari leikinn á núlli, sem er mjög
óvanalegt þegar íslensk lið leika í
Evrópukeppni.
íslandsmeistararnir ættu að
geta sigrað Þjóðverjanna. Vals-
menn hafa leikið mjög vel í
sumar, en lið Wismuth er um
miðja deild í A-Þýskalandi.
Það má kannski líkja leik Vals
cg Wismuth við leik Olympíuliða
ísland og A-Þýskalands. Islend-
ingar sigruðu í þeim leik, 2-0 og
bæði lið áttu 5 leikmenn í lands-
liðunum.
Það er heldur ekkert vafamál
að aðstæðurnar verða Vals-
mönnum í hag og þeir eiga líklega
bestu möguleikana af íslensku
liðunum.
Fram
Framarar eiga minnstu mögu-
leikana af íslensku liðunum. Þeir
voru mjög óheppnir og fengu á
sig tvö ódýr mörk á síðustu mín-
útunum gegn Sparta Prag. Það
eru því ekki miklar líkur á að
Framarar komist áfram, með tvö
mörk í mínus og eiga eftir að leika
á útivelii gegn tékknesku
meisturunum.
Tékkarnir eru mjög erfiðir
heim að sækja og hafa aðeins tap-
að þremur af 30 Evrópuleikjum
sínum á heimavelli.
Það má því segja að mögu-
leikar íslensku liðanna séu með
besta móti þetta árið og tvö lið
sem eiga góða möguleika. _jbe
1X2...1X2...1X2... 1X2... 1X2...
4. vika l5>E§£tÍI
£■5 Q i- Q Œ m co co
Arsenal-Wimbledon.......................1 11111111
Charlton-Luton..........................x x 2 2 x x 1 1 x
Chelsea-Norwich.........................1 11111111
Coventry-Nottingham Forest..............x 1 1 1 1 1 x 2 x
Derby-Sheffieid Wednesday...............1 111x12 12
Everton-Manchester United...............2 x x 1 1 x x 2 x
Oxford-Q.P.R............................2 2 2 x 2 x 1 1 2
Watford-Portsmouth......................1 1 1 1 1 1 1 1 x
WestHam-Tottenham.......................2 22x22222
Huddersfield-Aston Villa................x 12 1 1x2x2
Leicester-Plymouth......................1 112 11x12
ManchesterCity-Stoke....................1 11111111
Enginn var með 12 rétta aðra vikuna í röð og því leggst fyrsti vinningur við
næstu viku. Það var aðeins einn með 11 rétta og hann hlaut fyrir það
135.596.
Möguleikar íslensku félaganna Valsmenn náðu frábærum úrslit-
í Evrópukeppninni í knattspyrnu Um í A-Þýskalandi í fyrradag.
eru með besta móti þetta árið. Það má því segja að útlitið sé
Skagamenn ættu að geta sigrað heldur bjartar nú en á sama tíma í
lið Kalmar FF á góðum degi og fyrra. Þá var markatalan 0-19
Fylklr sigurvegari í 3. deild 1987. Eins og sjá má á myndinni var farið að skyggja þegar leiknum lauk. Mynd:E.ÓI.
3. deild
Fylkismenn meistarar
Sigruðu Tindastól í úrslitaleik eftir vítaspyrnukeppni
Fylkismenn tryggðu sér í gær
íslandsmcistartitilinn í 3. deild
með sigri gegn Tindastól, 9-8,
eftir vítaspyrnukeppni.
Staðan eftir venjulegan
leiktíma var 3-3 og það þurfti 12
vítaspyrnur til að skera úr um sig-
urvegara, en alls fengu áhorfend-
ur að sjá 14 vítaspyrnur!
Fylkismenn byrjuðu vel og
Orri Hlöðversson náði forystunni
á 6. mínútu. Óskar Theodórsson
bætti svo öðru marki við eftir að
hafa komist einni gegn. Fylkis-
menn fengu svo gott tækifæri til
að bæta þriðja markinu við á 24.
mínútu. Þá áttu þeir skot í stöng
,og skömmu síðar var bjargað á
línu.
Hólmar Ástvaldsson minnkaði
muninn á 36. mínútu með þrumu-
skoti, en fimm mínútum síðar
bætti Óskar Theodórsson þriðja
markinu við fyrir Fylki.
Tindastóll sótti í sig veðrið í
síðari hálfleik og á 56. minútu
fengu þeir vítaspyrnu sem Eyjólf-
ur Sverrisson skoraði úr og á 64.
mínútu jafnaði Eyjólfur með
glæsilegri hjólhestaspyrnu.
Það var því jafnt, 3-3 eftir
venjulegan leiktíma. Fylkismenn
fengu gullið færi til að tryggja sér
sigur á 23. mínútu framlengingar-
innar. Þá var dæmd vítaspyrna á
Tindastól, en Gísli Sigurðsson
varði glæsilega frá Gústaf Víf-
ilssyni.
Það er skemmst frá því að segja
að leikmenn liðanna skoruðu úr
fimm fyrstu spyrnum sínum, en
Tindastóll brenndi af þeirri
sjöttu. Það var svo Ólafur Jó-
hannesson sem tryggði Fylkis-
mönnum sigur.
Það er ekki hægt að segja ann-
að en að leikir þessara liða hafi
verið jafnir. Fyrst léku liðin á
Sauðárkróki og þeim leik lauk
með jafntelfi, 0-0 eftir framleng-
ingu. Það þurfti því rúmar 240
mínútur, auk vítaspyrnukeppni,
til að knýja fram úrslit.
-Ibe
Ogþetta
lika...
Sjúkraþjálfari
Valsmanna, Hilmir Ágústsson hefur
verið með alskegg svo lengi sem
elstu menn muna. Á ferð sinni í
Austur-Þýsklandi með Valsliðinu
varð hann hinsvegar fyrir því óláni að
tapa skegginu. Hann hét því að ef
Valur tapaði ekki fyrir Wismuth Aue
þá myndi hann raka sig og fékk að
standa við það.
Litli bróðir
Diego Maradona er nú kominn til
Spánar og mun leika með Granada,
sem leikur í 2. deild. Diego sjálfur
leikur með Napoli, en Hugo, sem er
yngstur, leikur með Ascoli á Ítalíu.
Hann mætir bróður sínum í fyrsta sinn
um helgina, en þá leika Napoli og
Ascoli.
Fjórir leikmenn
Tirana frá Albaníu fengu rauða
spjaldið í leik liðsins gegn Benfica í
fyrrakvöld. Leikurinn var í Evrópu-
keppni meistaraliða. Knattspyrnuráð
Evrópu mun koma saman til að á-
kveða hvort refsa skuli liðinu, en það
hefur aðeins einu sinni gerst áður að
fjórir leikmenn hafi verið reknir útaf í
Evrópukeppni. Leiknum lauk með
sigri Benfica, 4-0.
Alex Ferguson
framkvæmdastjóri Manchester Unit-
ed hefur hætt við að kaupa ítalska
markvörðinn Guilliano Terranea.
Hann hefur æft með liðinu, en í gær
ákvað Ferguson að hætta við kaupin.
Ársþing
Fimleikasambands íslands verður
haldið í íþrótttamiðstöðinni Laugardal
9.-10. október. Málefni og tilllögur
þarf að senda stjórn í síðasta lagi 15
dögum fyrir þingið.
Lokomotiv Sofia
frá Búlgaríu sigraði Dynamo Tiblishi
frá Sovétríkjunum í gær, 3-1, í fyrstu
umferð Evrópukeppni félagsliða.
Föstudagur 18. september 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA15