Þjóðviljinn - 22.09.1987, Blaðsíða 1
Suðureyri
Kúfiskvinnslan
að koma
„Við stefnum að því að opna
kúfiskverksmiðjuna hérna á
Suðureyri við Súgandafjörð 25.
september og erum þessa dagana
að samstilla vélarnar. Pað er
reiknað með að hún afkasti 4
tonnum á klukkutíma og að þar
vinni 8-10 manns á einni vakt,“
segir Erlingur Auðunsson skip-
stjóri við Þjóðviljann
Að sögn Erlings hafa tilrauna-
veiðar á Villa Magg ÍS gengið vel,
en þeim er lokið í bili. Hefur
skipið verið að veiða kúfisk í
beitu og hefur hann líkað vel.
grh
Verkamannasambandið
Samflotið fyrír bí
Austfirðingarsemja sjálfir. Björn Grétar
Sveinsson, formaður Jökuls: Sjáum ekki
ástæðu til að vera með í heildarsamfloti innan
VMSI. Pórir Daníelsson, framkvœmdastjóri
VMSÍ: Veikir samningsstöðuna
Framkvæmdanefnd Verka-
mannasambandsins hafði
frumkvæði að því að 24ra manna
samninganefnd var sett á laggirn-
ar, og það var gott út af fyrir sig.
En þegar það lá fyrir samkvæmt
túlkun Guðmundar J. Guð-
mundssonar, formanns Verka-
mannasambandsins, að nefnd-
inni væri ekki ætlað að móta kröf-
ur, þá sáum við ekki ástæðu til að
vera með, sagði Björn Grétar
Sveinsson, formaður verkalýðs-
félagsins Jökuls á Höfn í Horna-
firði, en Alþýðusamband Austur-
lands mun sjálft annast samnings-
gerð í komandi kjarasamningum
heima í héraði.
„Þetta er í framhaldi af því sem
áður var búið að samþykkja á
Austurlandi," sagði Björn Grét-
ar. „Ef ákveðnum skilyrðum í
sambandi við fiskvinnslufólkið
yrði ekki fullnægt, þá sæjum við
ekki ástæðu til að vera með í
heildarsamfloti innan VMSf.“
Aðspurður um hvert væri
næsta skrefið hjá Alþýðusam-
bandi Austurlands sagði Björn
Grétar að fundað yrði um næstu
helgi og þá farið yfir vettvanginn
og mótaðar ítarlegar kröfur. „En
það liggur ekki lífið á,“ sagði
hann. „Fyrst þarf að klára ýmis
smærri mál, svo sem síldar-
söltunarsamningana, og svo líður
að mánaðamótum og við sjáum
til hvað skeður þá.“
„Mér sýnist það hljóta að
veikja samningsstöðu Verka-
mannasambandsins þegar þetta
stór aðili ákveður að vera sér,“
sagði Þórir Daníelsson, fram-
kvæmdastjóri VMSÍ. „Hitt er
annað mál að félögin hafa sjálf
samningsréttinn, og ráða þvf al-
veg hvernig þau fara með hann.“
Blaðamaður hafði mörg úti-
spjót til að fá umsagnir um þetta
mál hjá formanni og varafor-
manni VMSÍ, en hafði ekki er-
indi sem erfiði. Varaformaður-
inn, Karl Steinar, er ekki á
landinu þessa dagana, og Guð-
mundur J. Guðmundsson, for-
maður Verkamannasambands-
ins, kvaðst ekkert eiga vantalað
við Þjóðviljann. HS
ir Ragnar Ómarsson og Kjartan Guðnason í útsýnistunnunni á laugardag. í stiganum má sjá vaktmann Hvals hf
num kafinn við að skera niður borðann, en Ragnar slapp með skrekkinn þegar vaktmaðurinn skar á líflínuna. Mynd M
Hvalfjörður
Hvalbátar stöðvaðir
Þrír félagar í Hvalavinafélagi
íslands fóru um borð í Hval 9
þegar hann var nýlagstur að
bryggju í Hvalfirði upp úr hádegi
á laugardag. Það voru þeir Ragn-
ar Ómarsson og Kjartan Guðna-
son sem klifruðu upp í útsýnis-
tunnuna og Benedikt Erlingsson,
sem hlekkjaði sig fastan við skut-
ulbyssuna.
Að sögn hvalavina var tilgan-
gurinn með þessu að stöðva hval-
veiðar eins lengi og unnt væri auk
þess að mótmæla því sem þeir
kalla siðlausar og löglausar hval-
veiðar íslendinga.
Stefán Andreasson, starfsmað-
ur á skrifstofu Hvals hf., sagði að
fyrirtækið hefði ekki beðið neitt
tjón af þessum aðgerðum. „Það
var bræla hvort eð var og bátur-
inn hefði því ekki farið á rniðin."
Hvalavinir halda því fram að
vaktmaður hafi stofnað lífi Ragn-
ars Ómarssonar í hættu með því
að skera á líflínu hans. Þessu neit-
ar Stefán og segir þetta einsog
hverja aðra þvælu frá hvklavin-
um. „Þeir hafa skorið sjálfir á
spottann til að sýna hann í sjón-
varpinu."
-Sáf
Ragnar Júlíusson, formaður
fræðsluráðs og skólastjóri
Alftamýrarskóla, hefur farið í
tvær kynnisferðir á vegum Menn-
ingarstofnunar Bandaríkjanna til
höfuðstöðva NATO í Brússel.
Hann fór einnig í fyrra en með í
för voru þá skólastjórar Folda-
skóla, Hagaskóla, Hlíðaskóla og
Hvassaleitisskóla.
„Áslaug Brynjólfsdóttir,
fræðslustjóri, lýgur, þegar hún
segist ekki hafa vitað af þessari
för okkar til Brussel,“ sagði
Ragnar Júlíusson við Þjóðviljann
í gær.
„Ragnar tilkynnti mér að hann
og Sigurjón Fjeldsted væru að
fara til Brússel, en í hvaða erind-
agjörðum þeir voru að fara hafði
ég ekki hugmynd um. Ég hélt satt
að segja að þeir væru að fara út af
OECD-skýrslunni, eða eitthvað
í erindum meirihlutans í borgar-
stjórn,“ sagði Áslaug. „Ég hafði
ekki hugmynd um að með í för
væru sex aðrir skólastjórar og að
ferðin væri á vegum Menningar-
stofnunarinnar til að kanna höf-
uðstöðvar NATO. Þessvegna
svaraði ég Þjóðviljanum þegar ég
var spurð um ferðina, að ég vissi
ekkert um erindi þessarar ferðar
né hverjir væru í henni. Og það er
fyrst núna að ég frétti af því að sex
skólastjórar hafi farið í sömu er-
indagjörðum í fyrra."
Samkvæmt reglugerð ber
skólastjórum grunnskóla að
senda leyfisbeiðni til viðkomandi
j fræðslustjóra. Hefð er fyrir því að
fræðslustjóri beri slíka leyfis-
beiðni undir fræðsluráð. Slíkt var
ekki gert í þessu tilfelli.
„Ég sótti um leyfi til mennta-
málaráðuneytisins," sagði Ragn-
ar og sá ekkert óeðlilegt við það
að hafa sniðgengið fræðsluskrif-
stofuna.
Ragnar sagðist ekki sjá neitt
athugavert við það að skóla-
stjórum væri boðið að skoða
höfuðstöðvar NATO. „Vorið
1984 fór fjöldi skólastjóra í 14
daga ferð til Kína á fullum
launum með styrk frá ríki og
borg, og var staðið eins að því að
sækja um leyfi til þeirrar ferðar
og hjá okkur nú.“
En sér Ragnar engan mun á því
að skólastjórar fari að skoða
skólakerfi í fjarlægu landi og að
skoða aðalstöðvar NATO?
„Skoðuðu þeir skóla í Kína?“
var svar formanns fræðsluráðs.
Aðspurð um það hvort ekki
hefði verið fjallað um Kínaferð-
ina í fræðsluráði, sagði Áslaug að
svo hefði verið og skýrsla var
samin um kynnisferðina og send
bæði fræðsluráði og ráðuneyti.
-Sáf
Sjá bls. 3
NATO-ferðin
Önnur för Ragnars
Ragnar Júlíusson, formaður frœðsluráðs, fór líka íNA TO-
ferð ífyrra. Áslaug Brynjólfsdóttir: Ragnar tilkynnti að hann
og Sigurjón Fjeldsted vœru aðfara til Brussel, en ekki hvert
erindið vœri né að 6 aðrir skólastjórar væru með íför.
Ragnar: Áslaug lýgur