Þjóðviljinn - 22.09.1987, Page 9
’gssýningin ’87 Sjávarútvegssýningin ’87 Sjávarútvegssýningin ’87
Sr. Karl Matthíasson, sóknarprestur
á Stað í Súgandafirði: „Það kemur
sér afar vel að hafa skipstjórann í
safnaðarstjórninni og ef illa fiskast
neðra er alltaf hægt að róa á efri mið."
(Mynd: Sig.)
tæki sem kemur öllum sem stunda
handfæraveiðar að miklum not-
um. ”
Telurðu sýninguna hafa
eitthvert gildi fyrir innlenda fram-
leiðendur?
„Já, það er engin spurning. Ég
held að svona sýning hafi mjög
mikið gildi, ekki einungis fyrir
framleiðendur, heldur fyrir alla
þá sem vinna við sjávarútveg.
Hvort sem um er að ræða fólk í
landi eða úti á sjó. Hvað okkur
varðar sem búum úti á landi er
svona sýning algjör hvalreki af
margs konar fróðleik og upplýs-
ingum um hagnýta hluti sem við
getum notfært okkur í lífsbarátt-
unni.”
Ein samviskupurning, Karl.
Ertu fiskinn?
„Það er nú það. Sjálfir segja
strákarnir sem með mér hafa ver-
ið til sjós að ég sé nú betri en
enginn. En svona okkar á milli þá
hef ég tromp á hendi ef illa fiskast
á neðri miðum. Þá er alltaf hægt
að róa og fiska á þeim efri. Nú svo
spillir það ekki fyrir að skipstjór-
inn á Sigurvon IS er í safnaðar-
stjórn, ef mig rekur í nauðir með
skipsrúm,” sagði Karl Matthías-
son sóknarprestur á Stað í Súg-
andafirði. grh
Smiðjumar
leiðandi í
nýjungum
„Það er nú erfitt fyrir mig að
segja til um það hvað sé mar-
kverðast á sjávarútvegssýning-
unni. Fyrir mína parta hef ég
mestan áhuga á öliu því sem við-
kemur þjónustu við togara, báta
og fískimjölsverksmiðjur, enda
er það í beinu sambandi við mitt
starf sem vélsmiður,” sagði Ágúst
Símonarson sem vinnur hjá
Vélsmiðjunni hf. á Akranesi.
Það var múgur og margmenni í
Laugardalshöllinni um helgina
þegar blaðamaður Þjóðviljans
átti þar leið um til að forvitnast
um það nýjasta í tækni og vísind-
um í sjávarútveginum. Við náð-
um að króa Ágúst af skamma
stund til að heyra álit hans á sýn-
ingunni og samanburð við sýn-
inguna sem haldin var hér fyrir
þremur árum.
„Allur samanburður við fyrri
sýninguna er henni í óhag. Þessi
sýning ber af og þetta er allt ann-
að líf nú en þá. Bæði er að sýning-
arsvæðið nú er miklu stærra og
fjölbreyttara úrval sem sýnt er.”
Er eitthvað hérna sem kemur
þér á óvart?
„Já og nei. Það er voðalega erf-
itt að gera upp á milli þess sem
hér er sýnt. í sannleika sagt er
það allt mjög merkilegt, ef út í
það er farið. En það sem kemur
mér einna mest á óvart er hvað
hér er mikið af útlendingum.
Bæði þeir sem eru að auglýsa
vörur frá sínum framleiðendum
en ekki síður þeir útlendingar
sem hér eru til að bjóða okkar
fiskimönnum gull og græna skóga
ef þeir sigla með aflann út til
þeirra og selja hann þar. Hér eru
fulltrúar frá mörgum borgum á
meginlandinu og Bretlandi sem
vilja fá sem mestan fisk til sín af
Ágúst Símonarson vélsmiður: „Þessi
sýning ber at miðað við þá fyrri sem
haldin var fyrir þremur árum. Hér er
allt miklu stærra, hvert sem litið er og
mikið úrval af alls kyns vörum."
(Mynd: Sig.).
Islandsmiðum. Þessi ásókn í
fiskinn okkar kemur mér einna
mest á óvart.”
Hvað með tilgang sýningarinn-
ar? Heldurðu að hún sé mikil
lyftistöng fyrir innlendan iðnað til
frekari útflutnings?
„Já, tvímælalaust. Og það vek-
ur athygli hvað innlendar
vélsmiðjur eru framarlega í þró-
uninni og á margan hátt leiðandi í
nýjungum á vélum og tækjum
fyrir sjávarútveginn. Ég er ekki í
neinum vafa um það að sýningin
vekur athygli umheimsins á fram-
leiðsluvörum okkar fyrirtækja og
kemur iðnaðinum ákaflega vel í
samkeppni hans við erlenda
framleiðendur , það er ekki vafi á
því,” sagði Ágúst Símonarson
vélsmiður frá Akranesi.
grh
Þrlðjudagur 22. september 1987 ÞJÓÐVILJINN — S(ÐA 13
Heiðurslaun
Brunabóta-
félags
Íslands1988
í tilefni af 65 ára afmæli Brunabótafélags
íslands, 1. janúar 1982, stofnaði stjórn fé-
lagsins til stöðugildis hjá félaginu til þess að
gefa einstaklingum kost á að sinna sérstök-
um verkefnum til hags og heilla fyrir íslenskt
samfélag hvort sem er á sviði lista, vísinda,
menningar, íþróttaeðaatvinnulífs. Nefnast
starfslaun þess, sem ráðinn er:
Heiðurslaun Brunabótafélags
íslands
Stjórn B.í. veitir heiðurslaun þessi sam-
kvæmt sérstökum reglum og eftir
umsóknum. Reglurnarfástáaðalskrifstofu
B.(. að Laugavegi 103 í Reykjavík.
Þeir, sem óska að koma til greina við
ráðningu í stöðuna á árinu 1988 (að hluta
eða allt árið) þurfta að skila umsóknum til
stjórnar félagsins fyrir 10. október 1987.
BRUNABÓTAFÉLAG
ÍSLANDS
Samtök um
kvennaathvarf
auglýsa eftir áhugasömum konum til sjálfboða-
starfa með hópi sem berst gegn nauðgunum.
Verkefni þessa hóps eru m.a.: Að veita konum
sem hefur verið nauðgað stuðning og ráðgjöf. Að
koma á fót sjálfshjálparhópi fyrir konur sem hefur
verið nauðgað. Að halda námskeið í sjálfsvörn
fyrir konur. Að fræða fólk um afbrotið nauðgun og
þolendur þess og auka þannig skilning á alvöru
þessa afbrots. Samtökin halda fræðslunámskeið
fyrir þær konur sem vilja starfa með hópnum.
Vinsamlegast hringið í síma 23720 milli kl. 10 og
12 virka daga.
Samtök um kvennaathvarf
Vantar pössun
5 ára strák vantar pössun. Er nýflutturfrá Noregi.
Þarf að vera með íslenskum jafnöldrum. Á heima
í Hlíðunum. Þolir illa reyk og ketti. Sími 10991.