Þjóðviljinn - 22.09.1987, Side 10
___________________HEIMURINN________________
Miðríkið
Þingað um meistara Kong
þráttfyrir andstöðu harðlínumanna íflokknum
Meistari Kong. Fræðimenn þinguðu nýskeð í Kína um 2500 ára gamla speki hans.
Heimspekingnum Konfúsíusi,
sem hlynntur var samræmi á
öllum sviðum, myndi sennilega
hafa fallið vel í geð sú ró, sem
áberandi var á fyrstu alþjóðaráð-
stefnunni sem haldin var nýlega
honum til heiðurs í Kína. En hætt
er við að deilurnar bak við tjöldin
hefðu valdið honum nokkrum
vonbrigðum.
Hætta var á að þessari tíma-
mótaráðstefnu 120 fræðimanna í
heimaborg meistara Kong yrði
frestað vegna kuldagjósturs frá
þeim sem stjórna kínverskum
menningarmáium í Peking fyrr í
sumar. Hugmyndafræðingar
kommúnistaflokksins voru ekki
hrifnir af þeirra hugmynd að
halda alþjóðlega ráðstefnu til að
ræða verk hugsuðar, sem hefur
haft gríðarleg áhrif í 2500 ár en
verið gagnrýndur harðlega í
heimalandi sínu sem ein af meg-
instoðum kúgunar lénsskipulags-
ins. Mjög var þrýst á prófessor
Xin Guanjie, varaformann kín-
verska Konfúsíusarfélagsins, til
að hann aflýsti ráðstefnunni, en
félag hans gekkst fyrir henni í
samvinnu við kínverska fræði-
menn frá Singapor, sem nú eru að
endurvekja hefðbundna mennt-
un í anda Konfúsíusar í skólum
borgarinnar. „Ekki var álitið
tímabært að halda slíka ráð-
stefnu", sagði kínverskur frétta-
maður, „en þeir sem stóðu fyrir
henni vildu ekki láta undan“. Síð-
an í júlí hefur verið farið fram á
það við frjálslynda menntamenn
að þeir segi lausum stöðum sínum
eða yfirgefi flokkinn vegna
rangra skoðana.
En meðan harðlínumenn í
flokknum höfðu áhyggjur af því
að menn sýndu þessu „tákni léns-
tímabilsins“ of mikinn áhuga,
kvartaði einn afkomandi Konfús-
íusar að menn sýndu heimspek-
ingnum ekki nægilega virðingu.
Prófessor Kong Linpeng, sem
kominn er af Konfúsíusi í 76. lið,
sagði að í leik- og danssýningu,
sem sett hafði verið á svið fyrir
ráðstefnugesti og nefnd „Konfús-
íusarrapsódía", hefði verið of lítil
heimspeki og of mikil ástamál.
„Það er varla hægt að sjá það af
sýningunni hvað Konfúsíus var
mikill andi“, hafði kínverska
fréttastofan eftir honum, „og það
voru of mörg ástaratriði milli
dóttur meistara Kong og eins af
lærisveinum hans“.
Umræðurnar á ráðstefnunni
fóru fram á mjög svo kurteisan
hátt í anda Konfúsíusar, þótt
komið hafi í ljós ágreiningur milli
sumra erlendu gestanna og kín-
verskra kollega þeirra. Margir
fræðimenn frá rauða Kína tóku
með nokkurri tortryggni áhuga
skólamanna frá Singapor á sið-
ferðiskenningum heimspekings-
ins, sem skrifaði einu sinni: „erf-
itt er að tjónka við alþýðufólk og
konur“.
Fræðimenn frá Singapor héldu
því samt fram, að kenna ætti já-
kvæðari hliðarnar á boðskap
Konfúsíusar, en hins vegar gætu
menn sleppt hugmyndum hans
um stjórnmál og félagsmál, sem
taldar eru mótaðar af stéttaskipt-
ingu og einveldi. „Við erum ekki
að boða stjórnmálakenningar
Konfúsíusar", sagði skólamaður-
inn Lau Wai Har frá Singapor í
hléi milli fyrirlestra, „einungis
góðu hluta siðfræði hans“. En Xu
Yuanhe, háskólamaður frá Pek-
ing, var á annarri skoðun. „Það
er ekki hægt að aðskilja siðfræði-
og stjórnmálahugmyndir
Konfúsíusar“, sagði hann á ráð-
stefnunni.
Þótt yfirvöldin í Peking væru
að vissu leyti andvíg ráðstefnunni
af pólitísicum ástæðum, lögðu
þau einnig belssun sína á hana á
þann hátt að opinber fulltrúi, Qu
Mu, flutti ávarp við setninguna,
14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN
og sagði einn af fræðimönnunum
frá Peking að það hefði verið
„mjög diplómatískt."
„Jafnvel þeir sem hlynntir eru
vestrænum áhrifum að öllu leyti
geta ekki losað sig fyllilega við
hefðbundna menningu og hug-
myndir lands síns“, sagði Qu, og
vék þar að „borgarlegum
menntamönnum", sem sættu
nokkrum árásum fyrr á þessu ári
fyrir að reyna að „flytja inn“ vest-
rænar stjórnmálahugmyndir
óbreyttar með húð og hári. En
svo bætti hann við: „Kínverjar
geta heldur ekki byggt framtíð
sína eingöngu á því að efla hefð-
bundna menningu og hugmynd-
ir“.
Á tímum „menningarbylting-
arinnar“ frá 1966 til 1976 stóðu
þáverandi yfirvöld Kína fyrir
harðri baráttu gegn kenningum
meistara Kong, en eftir 1980 hafa
yfirvöldin snúið varlega við blað-
inu og heiðrað minningu
heimspekingsins að nokkru leyti.
Gröf hans og hof í Qufu í Shand-
ong í Austur-Kína hafa verið
endurreist, og einn af afkomend-
um hans, Kong Demao, settur í
háa stöðu. Stjórnmálamenn í
Peking hafa höfðað til þeirra
dyggða sem Konfústus boðaði
fyrst og fremst, sjálfsaga og fé-
lagslegrar ábyrgðar, í baráttunni
fyrir því að koma efnahagslífinu í
nútímalegra horf.
„Kínverskir leiðtogar eru að
segja að þeir ætli að byggja efna-
hagsþróun á hefðbundnu gildi“,
sagði Reginald Little, sem er for-
maður samstarfsnefndar Ástralíu
og Kína og einn af fáum „vest-
rænum" þátttakendum á ráð-
stefnunni, sem lauk 8. septemb-
er. „Þeir hafa virt fyrir sér árang-
ursríka þróun mála í öðrum
löndum, þar sem áhrif Konfúsí-
usar eru sterk, eins og Japan og
Taiwan, og telja því að þessar
gömlu kenningar geti verið gagn-
legar“.
En opinber söguskoðun er
stöðugt á þá leið, að hin stranga
stéttaskipting í því þjóðfélagi sem
Konfúsíus boðaði hafi tafið fyrir
þróun Kína um margar aldir.
„Markmið slíkrar ráðstefnu er
einkum það að efla tengslin við
Kínverja erlendis og kannske við
Taiwan líka“, sagði blaðamaður'
frá Kína. „Kínverjar munu ekki
snúast til konfúsíanisma aftur“.
(Reuter)
Söluskattur
Viöurlög falla á söluskatt fyrir ágústmánuö 1987,
hafi hann ekki verið greiddur í síðasta lagi 25.
þ.m.
Viðurlög eru 4% af vangreiddum söluskatti fyrir
hvern byrjaðan virkan dag eftir eindaga uns þau
eru orðin 20%, en síðan reiknast dráttarvextir til
viðbótar fyrir hvern byrjaðan mánuð, talið frá og
með 16. október.
Fjármálaráðuneytið, 18. september 1987
Á Tilraunastöð
háskólans í meinafræði
er laus staða skrifstofustjóra, sem sér um dag-
legan rekstur, bókhald og fjármál. Laun sam-
kvæmt launakerfi ríkisstarfsmanna. Skriflegar
umsóknir með upplýsingum um menntun og
starfsreynslu skulu sendar forstöðumanni fyrir
15. október 1987.
Persaflóastríðið
Ágreiningur um
óformlegt“ vopnahlé
Iranirfallast á að hvíla vopn sín meðan
Sameinuðu þjóðirnar látafarafram rannsókn
á því hver hafi átt upptökin að stríðinu
3Í
Að sögn heimildamanna hjá
Sameinuðu þjóðunum hafa
íranir fallist á „óformlegt“
vopnahlé í stríðinu við íraka á
meðan hlutlaus athugun fer fram
á því hvor þjóðanna hafi hafið
stríðið. Sú könnun eigi að vera
gerð af fulltrúum Sameinuðu
þjóðanna.
En þeir kveöa íraksstjórn hafa
hafnað þessari hugmynd og kraf-
ist þess að bundinn yrði þegar í
stað endir á stríðið, „formlega"
og án skilyrða, einsog kveðið er á
um í ályktun Öryggisráðs Sam-
einuðu jjjóðanna frá 20. júlí síð-
astliðnum.
Stjórnir styrjaldarríkjanna
gerðu aðalritara Sameinuðu
þjóðanna, Perez de Cuellar,
grein fyrir sjónarmiðum sínum er
hann var á ferð í íran og frak
nýverið. Hann gaf síðan Öryggis-
ráðinu skýrslu.
Fyrrnefndir heimildamenn
segja stjórnvöld í Teheran hafa
dregið nokkuð úr andstöðu sinni
gegn vopnahléshugmyndum því
fyrir skemmstu harðneituðu þeir
að ljá máls á friði nema hann
sigldi í kjölfar fordæmingar Ör-
yggisráðsins á fraksstjórn fyrir að
hafa átt upptökin að stríðinu og
samþykktar refsiaðgerða gegn
þeim.
-ks.