Þjóðviljinn - 23.09.1987, Qupperneq 1
Miðvikudagur 23. september 1987 2
Kaup og kjör
Flótti frá Borginni
Vantar starfsfólk í 416 stöðugildi hjá Reykjavíkurborg.
Astandið verst ístörfum sem snúa að umönnun sjúkra,
aldraðra, öryrkja ogbarna. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir:
Grunar að hjúkrunarfólk ogfóstrur hafi dregist aftur úr
Mikil mannekla er hjá borg-
inni um þessar mundir og
það einkum í þeim starfsgreinum
sem snúa að ummönnun sjúkra,
aldraðra, öryrkja og barna. Nú
vantar starfsfólk í 416 stöðugildi.
Þessar upplýsingar voru lagðar
fram á fundi borgarráðs í gær, en
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
lagði fram fyrirspurn á fundi .
borgarráðs 1. september. Fyrir- \
spurnin var tvíþætt, annarsvegar
hversu mikil manneklan sé og
hinsvegar hvernig hún skiptist
niður á starfsgreinar.
„Það er lýsandi fyrir þetta að
manneklan er langmest í
uppeldis- og hjúkrunargreinum,"
sagði Ingibjörg Sólrún við I’jóð-
viljann í gær.
Verst er ástandið á Borgarspít-
alanum en þar vantar í 135 stöðu-
gildi. Hjá dagvist barna vantar í
81 stöðugildi. í garðyrkjuna vant-
ar í 35 stöðugildi og er það nær
eingöngu ófaglærí verkafólk. Hjá
heimilishjálpinni vantar í 23
stöðugildi miðað við þann fjölda
sem heimilaður er en þar þyrfti
að manna 40 stöðugildi til að
anna þörfinni. Hjá stofnunum
aldraðra vantar svo í 21 stöðu-
gildi.
Ingibjörg Sólrún lagði einnig
fram aðra fyrirspurn sem enn er
ósvarað, en hún snerist um launa-
hækkanir hjá borginni. Hún var í
þrem liðum. f fyrsta lagi hvaða
starfshópar fengu launaflokka-
hækkanir í síðustu kjarasamning-
um. í öðru lagi hvaða starfshópar
hafa fengið launaflokkahækkanir
í sumar í gegnum starfskjara-
nefnd og í þriðja lagi hvaða hópar
hafa ekki fengið neinar launa-
flokkahækkanir.
„Mig grunar að flestir hafi farið
fram úr þeim hópum sem sérstak-
lega var samið við í síðustu samn-
ingum, fóstrum og hjúkrunar-
fólki, nema þeir sem eru á botn-
inum og hafa ekkert fengið."
í sumar hefur starfskjara-
nefnd, en hana skipa þrír frá
Starfsmannafélagi Reykjavíkur
og þrír frá borginni, unnið að
starfsmati fyrir ákveðna hópa.
Með fyrirspurn sinni hyggst Ingi-
björg Sólrún kortleggja launa-
þróunina hjá borginni og hvort
þær greinar sem mest mannekla
er í séu þær greinar sem hafa orð-
ið undir í launum.
-Sáf
Sjá bls. 3
0. tölublað 52. árgangur
Launanefndin
Fundur í dag
Niðurstaða í vikulok
„Launancfndin kemur saman
til fundar kl. 11 í dag, og erum við
nú að fá í hendurnar gögn frá
Þjóðhagsstofnun og Seðlabanka
um stöðu mála,” sagði Hólmgeir
Jónsson framkvæmdastjóri
Sjómannasambandsins, en hann
á sæti í launanefnd ASI og VSI.
Launanefndin úrskurðar um
verðbætur á laun ef verðlags-
hækkanir verða meiri en miðað
er við í kjarasamningum, en eins
og kunnugt er hefur framfærslu-
vísitalan hækkað 5,65% umfram
rauð strik síðastliðna þrjá mán-
uði. Niðurstaða nefndarinnar á
að liggja fyrir 25. þessa mánaðar,
eða fyrir vikulok.
Auk Hólmgeirs á Ásmundur
Stefánsson, forseti ASÍ, sæti í
nefndinni af hálfu Alþýðusamb-
andsins, en fulltrúar Vinnuveit-
endasambandsins eru þeir Þórar-
inn V. Þórarinsson, fram-
kvæmdastjóri VSÍ, og Ólafur Da-
víðsson, framkvæmdastjóri fé-
lags iðnrekenda. HS
Hugbúnaður
Deitt um
söluskatt
„Hugbúnaður er ekki stór hluti
af sölunni hjá okkur, en hjá þeim
fyrirtækjum sem leggja áherslu á
hugbúnað gæti verið um tugi
milljóna króna að ræða,” sagði
Heimir Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Örtölvutækni, en
deildar meiningar eru um það
hvort greiða hefur átt söluskatt af
hugbúnaði frá árinu ’84 er sölu-
skattur af tölvum var felldur nið-
ur.
„Við fengum bréf frá skatt-
rannsóknadeild ríkisskattstjóra í
vor og vorum beðnir um að gera
grein fyrir seldum hugbúnaði síð-
astliðin þrjú ár, eða þann tíma
sem fyrirtækið hefur starfað. í
sumar kom svo annað bréf og í
því er sagt að við hefðum átt að
reikna söluskatt af hugbúnaði
þennan tíma, en okkar skilningur
er annar,” sagði Heimir.
Söluskattur af tölvum var felld-
ur niður árið ’84, og vilja hugbún-
aðarfýrirtækin meina að hugbún-
aður sé inni í því dæmi. Þá benda
þau á að ekki hafi verið lagður
söluskattur á vinnu forritara fyrr
en frá og með síðustu mánaða-
mótum, en hann nemur núna 10
prósentum.
NATO-ferðin
Þoitjöm
vill funcfl
Þorbjörn Broddason, eini full-
trúi minnihlutans í fræðsluráði
Reykjavíkur, hefur skrifað
Ragnari Júlíussyni, formanni
fræðsluráðs, bréf þar sem hann
fer fram á að fundur verði hald-
inn í fræðsluráði næsta mánudag
til að fjalla um meinta herflutn-
inga á átta skólastjórum til höf-
uðstöðva NATO í Brussel.
Sjá bls. 3
Söluskattur af tölvum var felldur niður árið ’84. Nú er deilt um hvort hugbúnaður sé inni í því dæmi: Kristín í Microtölvunni mundar varninginn. (Mynd: E.ÓI.)
y Húsgagnaiðnaður
VSI vill ónýta kauptaxta
Kristbjörn Árnason: Augljóstað atvinnurekendur vilja ekkigera fastlaunasamning
að er augljóst á þessu að at-
vinnurekendur vilja ekki gera
við okkur fastlaunasamninga,
sagði Kristbjörn Árnason, for-
maður Félags starfsfólks í hús-
gagnaiðnaði, en það slitnaði upp
úr viðræðum deiluaðila hjá sátta-
semjara klukkan tvö aðfaranótt
þriðjudagsins.
Kristbjörn sagði að þeir vildu
fá upp raunverulega rétt laun
tímakaupsmanna til að ganga út
frá við samningana og hefðu lagt
til að starfsmenn Kjararann-
sóknanefndar skæru úr um það
hver þau væru en því var hafnað
af atvinnurekendum.
„Málið er einfaldlega það að
atvinnurekendur vilja hafa ónýta
kauptaxta og geta ráðið yfirborg-
unum.“
VSÍ sendi frá sér fréttatilkynn-
ingu í gær þar sem segir að tilboð
Félags starfsfólks í húsgagnaiðn-
aði feli í sér 25-30% hækkun á
launakostnaði. Kristbjörn sagði
þetta rangfærslu sem væri ekki
samboðin reikniheilum VSÍ.
„Tilboð okkar í gær hefur ekki í
för með sér neinn kostnaðarauka
fyrir fyrirtækin. Við viljum búa til
launaflokka sem endurspegla hið
greidda kaup, einsog ráðgert var
að gera með fastlaunasamningn-
um.“
-Sáf