Þjóðviljinn - 23.09.1987, Side 3
FREITIR
Borgarstarfsmenn
40% hækkun nauðsynleg
Haraldur Hannesson: Þarfað hœkka laun um 10-20þúsund. Fyrst ogfremst mál borgaryfirvalda
að er ljóst að borgin er í bull-
andi samkeppni um vinnuafl
og ætli borgin sér að vera sam-
keppnishæf verður að hækka
laun borgarstarfsmanna um 10-
20 þúsund krónur á mánuði,
sagði Haraldur Hannesson, for-
maður Starfsmannafélags
Reykjavíkurborgar.
Haraldur sagði að þetta væri
það sem fólk talaði um að því
væri boðið annarsstaðar en hjá
borginni. „Það er slegist um
vinnuaflið og má raunar segja að
vinnuaflið sé á uppboðsmarkaði.
Þær yfirlýsingar atvinnurekenda
að ekki sé hægt að borga um-
samdar vísitölubætur eru því afar
furðulegar og sýna að þeir sem
hafa lægstu launin eiga enn einu-
sinni að sitja eftir.“
Borgarspítalinn
Vantar á annað
hundraö manns
Magnús Skúlason: Lítur mjög illa út. Erfitt aðfáfólk til
vinnu. Möguleiki aðþað verði að loka deildum. Ekki verið
kannað aðfáfólk erlendisfrá
Rúmlega 130 manns vantar í
vinnu hjá Borgarspítalanum
um þessar mundir. Þar af vantar
50 hjúkrunarfræðinga, 53 frá
Starfsmannafélagi Reykjavíkur,
aðallega sjúkraliða, og 30 frá
Sókn. Til að mæta þessari mann-
eklu hafa verið settar á aukavakt-
ir.
Magnús Skúlason aðstoðar-
framkvæmdastjóri sagði að það
ætti eftir að koma í ljós hvernig
málin þróuðust nú á haustmán-
uðum, en að útlitið væri mjög
slæmt.
Miðstjórn
Alþýðubandalagsins
Fundur um
helgina
Misskilningur að
Varmalands-
nefndin skili afsér
áfundinum
Miðstjórn Alþýðubandalags-
ins kemur saman í Reykjavík
n.k. laugardag og mun fundurinn
hefjast kl. 10 að morgni. Sam-
kvæmt boðaðri dagskrá verða
meginmál fundarins annars vegar
áfangaskýrsla Varmalandsncfnd-
ar og tillögur hennar að aðalmál-
efnaáherslum landsfundar en
hins vegar skýrsla atvinnu- og
efnahagsmaálanefndar.
Varmalandsnefndinni ber að
skila af sér á landsfundi sem hald-
inn verður í byrjun nóvember.
Nú mun hún aftur á móti gera
miðstjórn grein fyrir störfum sín-
um fram til þessa.
Stefanía Traustadóttir, sem er
sérstakur talsmaður Varma-
landsnefndar, hafði samband við
Þjóðviljann í gær og vildi láta það
koma fram að frétt á Stöð 2 þess
efnis að nefndin ætti að skila af
sér núna væri röng.
„Það er líka misskilningur að
nefndin sé óstarfhæf vegna
ósamkomulags," sagði Stefanía.
„Starfið í nefndinni hefur verið
mjög skemmtilegt og fræðandi
fyrir alla. Auðvitað eru menn
ekki sammála um alla hluti en við
stöndum þó öll að áfangaskýrsl-
unni og þeim tiilögum að mál-
efnaáherslum sem lagðar eru
fyrir miðstjórnina nú. Frétta-
maðurinn hefði betur leitað upp-
lýsinga hjá nefndarmönnum.“
-óp
„Það er mjög erfitt að fá fólk í
vinnu, en því veldur þenslan á
vinnumarkaðinum. Hér er oft á
tíðum um að ræða erfiða vinnu og
ekki mjög þrifalega. Svo virðist
fólk geta sótt í betur launuð störf
á hinum almenna vinnumark-
aði.“
Magnús sagði að það gæti
reynst erfitt að halda öllum
deildum sjúkrahússins opnum í
vetur ef ekki rættist úr, en það
kæmi betur í ljós um næstu mán-
aðamót.
Nú er ein deild lokuð á sjúkra-
húsinu, en undanfarin ár hefur
ákveðnum deildum alltaf verið
lokað yfir sumartímann vegna
sumarfría.
Magnús sagði að enn hefði
ekki verið ákveðið að kanna
hvort fólk erlendis frá gæti fyllt
skarðið, en helstu erfiðleikarnir í
sambandi við slíkt eru við að út-
vega fólkinu húsnæði. Nokkrir
erlendir meinatæknar og hjúkr-
unarfræðingar hafa starfað við
Borgarspítalann að undanförnu.
-Sáf
NATO-ferðin
Ráðuneyti blekkt
Bréf Þorbjarnar Broddasonar til Ragn-
ars Júlíussonar formanns Frœðsluráðs
Reykjavíkur
Reykjavík, 22. september 1987
Hr. formaður fræðsluráðs
Reykjavíkur
Ragnar Júlíusson.
Hér með vil ég óska eftir því að
á næsta fundi fræðsluráðs verði
tekið fyrir meint ferðalag 8 skóla-
stjóra grunnskólanna í Reykjavík
í herflugvél til höfuðstöðva
NATO í Brússel. Ég óska þess
einnig að ræddur verði kvittur um
að svipaður skólastjóraflutningur
hafi farið fram síðastliðinn vetur.
Ég óska þess að fundurinn verði
haldinn n.k. mánudag 28. þ.m.
Tildrög þessarar beiðni minnar
eru þau að í lok síðustu viku var
haft samband við mig frá tveim
skólum í borginni og ég inntur
eftir ofangreindu ferðalagi skóla-
stjóranna. Eftir nokkra leit að
ábyrgum aðilum náði ég sam-
bandi við deildarstjóra í mennta-
málaráðuneytinu sem tjáði mér
að þessi ferð hefði líklega verið
farin og myndir þú hafa komið
með bréf undirritað af Birni Hall-
dórssyni þar sem farið var fram á
leyfi til umræddrar ferðar. Þessa
sögu fékk ég svo staðfesta af Sól-
rúnu Jensdóttur, skrifstofu-
stjóra, í gær, en hún kvaðst hafa
samþykkt erindið í þeirri góðu
trú að þar sem sjálfur formaður
fræðsluráðs hefði flutt bréfið
hlyti það að hafa fengið eðlilega
meðferð ráðsins. Við vitum hins
vegar báðir að svo var alls ekki.
Hvorki fræðslustjóri né fræðslu-
ráð mæltu með þessu ferðalagi né
fjölluðu á nokkurn hátt um mál-
ið. Mér virðist því að skrifstofu-
stjórinn hafi verið blekktur,
hvort sem það var af ráðnum hug
gert eða ekki. Þetta eru þeim
mun furðulegri málsatvik þegar
haft er í huga að á síðasta fræðslu-
ráðsfundi lést þú að gefnu tilefni
lesa upp reglugerðarákvæði sem
taka af öll tvímæli um að
skammtímaleyfi eins og hér um
ræðir verður að bera undir
fræðslustjóra.
Ég óska eftir að eftirtaldar
upplýsingar liggi fyrir fræðslu-
ráðsfundinum:
Með hvaða hætti barst boð um
skólastjóraferð til höfuðstöðva
NATO?
Var öllum skólastjórum
grunnskólanna í Reykjavík boð-
ið? Ef ekki, hvemig var valið úr
þeim? Hver stóð fyrir því vali?
Hvers vegna var þetta mál ekki
borið með eðlilegum hætti undir
fræðslustjóra og fræðsluráð?
Er það rétt að 6 skólastjórar
hafi verið fluttir í herflugvél til
Brússel í fyrra? Ef svo er hvers
vegna var því haldið leyndu fyrir
fræðslustjóra og fræðsluráði?
Mér er ljóst að til þess að krefj-
ast fundar í fræðsluráði þarf tvo
fræðsluráðsfulltrúa, en ég skrifa
einn undir þetta bréf. Ástæða
þess er sú að hinn fulltrúi minni-
hlutans hljópst undan merkjum
sl. vor og gekk til liðs við ykkur í
meirihlutanum. Ég lít svo á að ég
sé einn fulltrúi í fræðsluráði fyrir
6 borgarfulltrúa en þú sért við 4.
mann fulltrúi 9 borgarfulltrúa. f
krafti þessara sérstæðu kringum-
stæðna mælist ég til þess að fund-
ur verði haldinn þótt ég kunni að
verða einn um að æskja þess.
Þorbjörn Bruddason
Haraldur sagði að eldri starfs-
menn borgarinnar hefðu viss rétt-
indi sem ekki væru á almennum
vinnumarkaði, t.d. meiri veik-
indaréttindi, betri lífeyrissjóð-
sréttindi og betri orlofsrétt. Þá
væru margir þeirra með æfiráðn-
ingu. „Það er því ýmislegt sem
heldur í eldri starfsmenn en fátt
sem laðar að ungt fólk.“
Þar sem borgarstarfsmenn
sömdu til tveggja ára í byrjun árs
er þetta fyrst og fremst mál borg-
aryfirvalda. „Það er undir
ákvörðun borgaryfirvalda komið
hvort borginni tekst að ná sér í
mannskap og ætli borgin sér að
vera samkeppnisfær verður að
hækka laun um 30-40%,“ sagði
Haraldur. _S£f
Grunnur að byggingu ísafoldar vestan Hagkaupshússins. Hús Fjölmiðlunar
kemur svo í framhaldi af henni. (Mynd: E.OI.).
Nýi miðbœrinn
Byggt ofan í
Borgarieikhlús
Stórhýsi rísa milli Hagkaupskringlu og
leikhússins
Borgarleikhúsið á að njóta sín
eftir sem áður, sagði Vil-
hjálmur Þ. Viðhjálmsson formað-
ur skipulagsnefndar í samtali við
Þjóðvifjann í gær, en samkvæmt
skipulagi munu tvær sambyggðar
stórbyggingar rísa milli Hag-
kaupskringlunnar og Borgarleik-
hússins; ísafold og Fjölmiðlun, og
verður gólfflöturinn samtalst
9.500 fermetrar.
Framkvæmdir við grunn ísa-
foldarhússins eru hafnar fyrir
nokkru, en það hús er nær Hag-
kaupum. Verður níu hæða turn á
því, en meginbyggingin er tvær
hæðir, og gildir það um bæði hús-
in. Hús Fjölmiðlunar verður á
hinn bóginn hæst sex hæðir.
Vilhjálmur var spurður hvort
þessar byggingar væru ekki of ná-
lægt leikhúsinu til að það fengi
notið sín, og svaraði hann því til
að það væri matsatriði hvað væri
nálægt og hvað ekki. „í deili-
skipulagsvinnunni í Nýja mið-
bænum var reynt að taka tillit til
Borgarleikhússins,” sagði hann,
„enda tekur hæð húss Fjölmiðl-
unar mið af nærveru þess. ísaf-
oldarhúsið er hærra, enda er það
hús í meiri fjarlægð frá Borgarl-
eikhúsinu.”
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
átti sæti í skipulagsnefnd þegar
gengið var frá skipulagi þessa
svæðis. 13. maí og 11. nóvember
’86 var fjallað um lóðina í borgar-
ráði og bókaði hún í bæði skiptin
að hún varaði við stærð húsanna
næst Borgarleikhúsinu vegna
þess að hún óttaðist að þau
myndu skyggja á leikhúsið. „Það
var ekkert með þetta gert, enda
þá búið að úthluta lóðinni, og
slíkt er ekki hægt að afturkalla
undir venjulegum kringumstæð-
um, nema borgin sé skaðabóta-
skyld,” sagði Ingibjörg Sólrún.
Heyrst hefur að Hagkaups-
menn vilji fá lóð ísafoldar keypta
og hefur heyrst tala eins og 23
milljónir fyrir lóðina eina. Það
fylgir sögunni að ísafoldar-
mönnum þyki tilboðið lágt.
HS
Mfðvlkudagur 23. september 1987 ÞJÓÐVILJINN - SlÐA 3