Þjóðviljinn - 23.09.1987, Qupperneq 4

Þjóðviljinn - 23.09.1987, Qupperneq 4
LEIÐARI Að þora ekki að Gífurleg þensla hefur ríkt í atvinnulífi íslendinga undanfarin misseri og ekki er sjáanlegt aö þar veröi lát á í bráð. Einkum hefur spennan verið mikil á suðvesturhorninu en sjávarpláss á landsbyggðinni hafa heldur ekki farið varhluta af henni. Mikill skortur á vinnuafli hefur leitt til gegndarlausrar yfirvinnu og óhóflegrar vinnu barna og unglinga. Víst er að þenslan hefur komið mörgum launþeg- anum vel. Atvinnurekendur hafa boðið í menn og greitt laun sem eru miklu hærri en umsamið taxta- kaup. Launaskriðið margfræga, eða hækkanir um- fram samninga, hefur þotið áfram. Á mörgu alþýðu- heimilinu hefur verið glaðst yfir hömlulausri yfirvinnu þótt fólk viti að hún geti rústað heimilin, sé til lenqri tíma litið. Hefur þá markaðurinn leyst öll vandamál við kjara- samninga? Þarf ekki lengur að setjast niður til að semja? Hækka launin ekki sjálfkrafa þegar skortur er á vinnuafli? Því fer víðs fjarri að unnt sé að svara þessum spurningum játandi. Það er barnaleg einföldun hjá postulum frjálshyggjunnar að halda því fram að markaðsöflin beini þróuninni ávallt á rétta braut, séu þau aðeins látin óáreitt. Launaskriðið svonefnda hefur alls ekki komið öllum launþegum til góða. Þess gætir að sjálfsögðu aðallega á þeim stöðum á landinu þar sem þenslan er mest og í þeim atvinnugreinum þar sem mest er um að vera. Þannig er Ijóst að laun þeirra iðnaðar- manna á suðvesturhorninu, sem vinna við mannvirkjagerð, hafa skriðið töluvert fram úr samn- ingsbundnum upphæðum einmitt vegna þess að unnið hefur verið í mörgum stórum verkum samtím- is. Þar má nefna til smíði flugstöðvar, byggingu versl- unarmiðstöðvar í Kringlunni og hernaðarfram- kvæmdir í Helguvík. En þeir launþegar eru líka til sem ekki hafa notið neins launaskriðs og þeir eru ekki svo fáir. Þar má t.d. benda á stóran hluta fólks sem vinnur við að þjóna sjúkum og öldruðum. Við þetta fólk dugar ekki að segja að búið sé að hækka kaupið við aðra launþega og það geti því miður ekki fengið um- samdar hækkanir, jafnvel þótt þær séu einvörðungu til að halda í við verðbólgu en auki kaupmáttinn ekki hót. Markaðslögmálin eru ágæt þar sem þau eiga við. Á þau má þó aldrei líta sem hinstu rök er allri skepnu beri að beygja sig fyrir. Barnalega trú á lögmál mark- aðarins má aldrei leiða til öndvegis í íslensku samfé- lagi. Auðvitað er það svo að íslensk stjórnvöld geta haft mikla stjórn á atvinnulífinu, hafi þau til þess djörfung. Með stjórnvaldsaðgerðum má hæglega stýra fjár- festingarhraða, jafnt í opinberum framkvæmdum sem í einkageiranum. En þá dugar ekki að skjálfa í hnjánum frammi fyrir einhverjum úreltum kenning- um um guðdómlega blessun markaðslögmálanna. Það er því fróðlegt að fylgjast með aðgerðum ríkis- stjórnarinnar í þessum efnum. Einkum beinist at- hyglin að Alþýðuflokknum því að hann á rætur í félagshyggju en einstakirforystumenn hans hafa því miður verið hallir undir rök frjálshyggjunnar. Margir virðast telja sveiflur í atvinnulífinu að öllu leyti óviðráðanlegar. Þjóðarbúið skekist eins og strá í stjóma vindi allt eftir því hvaðan hann blæs hverju sinni. Góður bóndi veit að hann á vissulega mikið undir sól og regni en þó ekki allt. Hann getur ekki ráðið veðri og vindum en sé hann nægjanlega veður- glöggur getur hann reynt að búa sig undir það sem koma skal. Þótt umfang þjóðarbúskaparins valdi því að taka verður með miklum fyrirvara öllum samlíkingum, er Ijóst að oft á tíðum gilda þar sömu lögmál og í smærri búskap og að stjórnendur þjóðarbúsins þurfa sann- arlega á að halda þeim hyggindum er í hag koma. Unnt er að segja fyrir um ýmsar þjóðhagsstærðir býsna langt fram í tímann. Því ætti að vera hægt að gera áætlanir um ríkisbúskapinn til nokkurra ára. Slíkar langtímaáætlanir þyrfti vissulega stöðugt að endurmeta jafnhliða því að nýjar upplýsingar um þjóðarhag kæmu fram í dagsljósið. En engu að síður væru þessar áætlanir meðvituð tilraun til að hafa áhrif á þjóðarbúskapinn og mæta með réttum við- brögðum þeim uppákomum í tilverunni sem ekki er unnt að stjórna. Það þarf að leggja í sjóð til mögru áranna. Og ekki er síður mikilvægt að styrkja beinin svo að þau þoli góðu dagana. Ríkisstjórnin hefur lagt meginlínur í fjárlögum næsta árs. Þrátt fyrir fögur fyrirheit er þar tjaldað til einnar nætur. Þrátt fyrir digurmæli fjármálaráðherra, formanns Alþýðuflokksins, um að stjórn ríkisfjármála eigi að taka mið af stöðu efnahagslífsins, er reiknað með halla á fjárlögum upp á 1,2 miljarða króna. Reynslan sýnir að þessi tala verður margfalt hærri þegar öll kurl verða komin til grafar. óp KLIPPT OG SKORIÐ Hefur boðað frjálslyndi og framfarir í sjötíu ár Ttmiim ÞRIOJUDAGUR 22 SEPTEMBER 1987-208 TBL 71. ÁRG Steingrimur Hermannsson, utanrikisráðherra á allsherjarþinginu i New York: Þrátt fyrir mistök eru Sameinuðu þjóðirnar helsta von mannkyns Steingrímur Hermannsson, utanrikisráðherra. flutti ræðu a allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í gær, þar sem hann lýsti nokkrum vonbrigðum sinum yfir störfum Sameinuðu þjóðanna i rúm fjörutiu ár. Hann skýrði ennfremur afstóðu islensku sendinefndarinnar til einstakra málaflokka og sagði að sendinefndin myndi vinna með eftirfarandi hætti: • Við munum leggjast gegn þeim sem virða ekki sjálfstæði nagrannans og hefja hernað og styrjaldir. Við munum styðja sanngjarnar leiðir til að leysa slikar deilur. • Við styðjum ákveðið viðleitni Öryggisráðsins til að binda enda á hernaðarátök i Austurlöndum. • Viðmunumstyðjaallarsanngjarnar tillögur um takmörkun og hugsanlega útrýmingu kjarnorkuvopna, einnig bann við tilraunum með kjarnorkuvopn jafnt og utrýmingu efnavopna.endaseeftirlitviðunandi. • Við lýsum okkur andviga kynþáttamismunun og sérhverri takmörkun á mannréttindum. • Island styður sterklega niðurstöður og tillögur heimsnefndar um umhverf ismal og þroun þeirra, og við treystum því að þær tillögur verði grundvöllur að alþjóðlegu átaki. Halldór Ásgrímsson: Setti sjávarútvegssýningu Höfðingja- blaðið mesta Tíminn er um þessar mundir orðinn mesta höfðingjablað landsins. Stundum kemur sú ár- átta til persónudýrkunar sem hér um ræðir fram í ofurviðkvæmni gagnvart Reagan Bandaríkjafor- seta og öllum fréttaflutningi af honum. Til dæmis um þetta má minna á Tímabréf um síðustu helgi, en þar eru fram tíndar af stakri andagt á sex eða sjö dálk- um allar líkur á því að Ronald Reagan sé íslenskrar ættar - en eins og menn vita er þetta pláss Tímans notað til pólitískra stór- verka í Útvegsbankaslagnum eða þá í baráttunni fyrir heiðri SÍS Frænda eða gegn uggvænlegum norrænum menningarkommún- isma. Hitt er svo rétt og skylt að viðurkenna að höfðingjadýrðin snýr hjá Tímanum enn rækilegar að leiðtoga Framsóknarflokksins en nokkrum manni útlendum. Nú er Tíminn ekki að byrja á þeirri iðju í gær að vera hollur sínum leiðtoga, en samt finnst manni einhvernveginn að sjú ljúfa lyfting sem Steingrímur Hermannsson fær í blaðinu reglu- lega sé ekki nógu þjóðleg, ef svo mætti segja. Ollu heldur hafi Framsóknarmenn öðrum betur komið auga á lögmál pólitísks áróðurs í nýjum, amrískættuðum sjónvarpsheimi. En þargildir það lögmál, eins og menn vita, að tefja fólk sem minnst á fjasi um málefni og rök, en minna það þeim mun oftar og rækilegar á tilveru leiðtogans í einhverju já- kvæðu samhengi. Og heimurinn beið Og því er það, að Tíminn leggur forsíðu sína í gær alla undir nokkur orð úr hefðbundnu ávarpi íslensks utanríkisráðherra á þingi Sameinuðu þjóðanna. Með stríðsletri er sú viska höfð eftir Steingrími Hermannsssyni að „þrátt fyrir mistök eru Sam- einuðu þjóðirnar helsta von mannkyns". Allir vitanáttúrlega, að heyrt hafa menn annað eins, oft og mörgum sinnum - en Tímamenn telja sig vita, að ef umbúðirnar eru mógu skraut- legar, letrið nógu rosalegt og þar fram eftir götum, þá getur svo farið að saklausar sálir telji að nú hafi formaður Framsóknar- manna mælt við heiminn þau orð sem lengi hafði verið eftir beðið. Ekki svo að skilja: Það var margt jákvætt í ræðu Steingríms. Hann var eins og góður og gegn sveitaklerkur: Á móti synd heimsins, eins og hún birtist í mannréttindabrotum, vopnuð- um yfirgangi, vígbúnaðarkapp- hlaupi og umhverfismengun. Slíkt ber ekki að vanmeta. Steingrímur minntist líka á fund þeirra Reagans og Gorbatsjovs í Reykjavík í fyrra og vildi sem vonlegt er að framhald yrði á slíku fundarhaldi. Hann sagðist vilja að land sitt yrði „griðastaður þeirra sem vilja hittast í friði til að leita lausna á hinum fjölmörgu vandamálum sem hrjá mannkynið“ og bauð alla leið- toga og diplómata heims velk- omna til íslands í því skyni. Þetta er ágætur þanki og meira að segja þjóðhagslega hagkvæmur nú á tímum mikilla fjárfestinga í hót- elum. En hitt er svo lakara, að það hlýtur að vera erfitt fyrir ríki að skapa sér stöðu griðastaðar, sem er aðili að hernaðarbanda- lagi, hefur herstöð annars risa- veldsins í landi sínu og hefur svo- sem aldrei hætt sér spönn í al- þjóðamálum frá því sem það sama risaveldi lagði blessun sína yfir eða gat sætt sig við. íslensk núllumræða Það sem að ofan var sagt gæti minnt á það sterka einkenni ís- lenskrar umræðu, að menn velta fyrir sér áberandi einstaklingum miklu heldur en málefnum. Þeg- ar svo komið er að málefnum, þá fer umræðan, eins og rakið var í blaðinu fyrir skemmstu, einatt út í svonefnda pottrökfræði: Aldrei skemmdi ég pott þinn granni, því hann var beyglaður þegar ég tók við honum og heill þegar ég skilaði honum og auk þess fékk ég aldrei lánaðan hjá þér pott. En kannski er þó það einkenni íslenskrar umræðu ótalið sem al- gengast er, en það er að stefna á núllið :Með röktínslu og vanga- veltum skrúfa menn sig niður í svosem ekki neitt. Gott dæmi um þetta má sjá í grein í Vesturlandi, blaði vestfirskra Sjálfstæðis- manna, á dögunum. en þar segir m.a. : Hvergi verður maður meira var við það en í stjórnmálaum- ræðu og stjórnmálabaráttu, hversu ólík sjónarmið einstakra manna og hópa geta verið til ein- stakra mála. Um eitt eru þó venjulega allir sammála og það er að þeir hafi gott eitt að markmiði en hjá hinum gæti í besta falli óheiðarleika og annarlegra sjón- armiða en í því versta þá beiti andstæðingarnir öllum brögðum til að koma í veg fyrir framgang hinna góðu mála. Oftast, senni- lega alltaf, er þetta misskilningur og stundum snúast mál einkenni- lega“. Það er nefnilega það. Sjónar- miðin eru ólík, en það er í raun- inni markleysa, vegna þess að all- ir vilja hið besta, en misskilja bar- asta hver annan - í „besta falli“ vegna óheiðarleika. Jamm það er nú svo. Þetta er líka partur af þjóðararfinum: Við skulum vera að tutla hrosshárið okkar... ÁB þlÓÐVILIINN Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis og verkalýðshreyfingar Utgefandi: Útgáfufólag Þjóðviljans. RltstjórarrÁrni Bergmann, Þráinn Bertelsson, össur Skarphéðinsson. Frótta8tjóri: Lúðvík Geirsson. Blaðamenn: Garðar Guðjónsson, Guðmundur Rúnar Heiðarsson, Hrafn Jökulsson, HjörleifurSveinbjörnsson, IngunnÁsdísardóttir, Kristín Ólafsdóttir, KristóferSvavarsson, Logi Bergmann Eiðsson (íþróttir), Magnús H. Gíslason, MörðurÁrnason, ólafurGíslason, Ragnar Karlsson, SigurðurÁ. Friðþjófsson, Stefán Ásgrímsson, Vil- borg Davíðsdóttir, Yngvi Kjartansson (Akureyri). Handrita-og prófarkalestur: Elías Mar, HildurFinnsdóttir. Ljósmyndarar: EinarÓlason, Sigurður MarHalldórsson. Útlitsteiknarar: Sævar Guðbjörnsson, Garðar Sigvaldason. Margrót Magnúsdóttir Framkvæmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir. Skrlf8tofustjóri: Jóhannes Harðarson. Skrlfstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Kristín Pótursdóttir. Auglý8lngastjóri: Siariður Hanna Sigurbjörnsdóttir. Auglýsingar: Unnur Agústsdóttir, Olga Clausen, Guðmunda Krist- insdóttir. Sfmvarsla: Hanna Ólafsdóttir, Sigríður Kristjánsdóttir. Bílstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir. Utbreiðslu- og afgreiðslustjóri: HörðurOddfríðarson. Afgreiðsla. Bára Sigurðardóttir, Hrefna Magnúsdóttir. Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, OlafurBjörnsson. Útkeyrsla, afgreiðsla, ritstjórn: Síðumúla 6, Reykjavík, simi 681333. Auglýsingar: Síöumúla 6, símar 681331 og 681310. Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf. Prentun: Blaðaprent hf. Verö í lausasölu: 55 kr. Helgarblöð: 65 kr. Askrlftarverð ó mánuði: 600 kr. 4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Mlövikudagur 23. september 1987

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.