Þjóðviljinn - 23.09.1987, Side 5
VIÐHORF
Aðgengi fyrir „léttfatlaða“
Hrafn Sœmundsson skrifar
Einhverjar skýringar hljóta að
vera á því að þeir sem teikna
mannvirki komast oft í ham þeg-
ar kemur að því að tryggja að-
gengi fyrir hreyfihamíað fólk.
t>að er eins og einhver ósýnilegur
óvinur sé kominn á vettvang og
það þurfi að setja sig í varnar-
stöðu til að verja einhverja fag-
lega hagsmuni.
Þetta ástand getur stundum
orðið grátbroslegt. Þannig var
það til að mynda þegar verið var
að sýna okkur teikningar af íbúð-
um og haft eftir arkítektinum að
þær væru teiknaðar þannig að
„léttfatlaðir" ættu greiðan að-
gang að þeim og taldi arkítektinn
þetta sér til hróss. Eða þegar fatl-
aðir áttu á teikningunni af nýjum
skemmtistað ekki að fá aðgang
að gangstéttinni og barnum. Eða
þegar salernið fyrir fatlaða var
staðsett annarsstaðar en salerni
fyrir karla og konur. Það fyrir-
bæri í arkitektúrnum er raunar
vel þekkt og vekur upp grun- gatnagerð og aðrar framkvæmdir kostnaðinn. Þannig eru mörg
semdir um endurholdgun arkí- er þessi eilífa barátta illskiljan- mannvirki sem byggð eru á slétt-
tekta frá tímum þrælahaldsins. leg. Það er vandséð hvaða til- um mel og hafa af einhverjum
„Það er útilokað að þessi martröð
margra arkítekta ogþeirra sem hanna
og vinna að ýmiskonar framkvœmdum
geti stafað afþekkingarskorti. Það er
útilokað að þœr reglur ogþeir staðlar
sem viðurkenndir eru getifariðframhjá
þessu fólkiu
Allt þetta er með vissum ólíkind- gangi það þjónar til að mynda að ástæðum verið gerð þannig úr
um. teikna rándýrar hindranir og slys- garði að ekki er hægt að komast
í nýjum mannvirkjum og við agildrur sem auka byggingar- um þau.
Það er útilokað að þessi mar-
tröð margra arkítekta og þeirra
sem hanna og vinna að ýmiskon-
ar framkvæmdum, geti stafað af
þekkingarskorti. Það er útilokað
að þær reglur og þeir staðlar sem
viðurkenndir eru geti farið fram
hjá þessu fólki. Samtök fatlaðra
og aðrir, svo sem ferlinefndirnar,
eru stöðugt í slag á þessum víg-
stöðvum og oft eru málin komin í
sama horf um leið og búið er að
snúa bakinu við þessum aðilum.
Ég hef ekki lengur trú á því að
venjulegur áróður eða upplýsing-
amiðlun breyti þarna miklu. Það
tungumál sem ef til vill skildist
best er að koma því þannig fyrir
að viðkomandi fagfólk yrði gert
persónulega ábyrgt fyrir þeim
kostnaði sem því er samfara að
lagfæra það sem gert er og þar
sem ekki er farið eftir settum
reglum.
Með baráttukveðjum
Hrafn Sæmundsson
Umhverfisvemd og geislamengun
Páll Theódórsson skrifar
Alþýðubandalagið efnir til
ráðstefnu um umhverfismál 11.
október næstkomandi. Umræður
og niðurstöður ráðstefnunnar
verða bandalaginu væntanlega að
leiðarljósi á komandi árum og er
því mikið í húfi að ráðstefnan tak-
ist vel. f Þjóðviljanum er farið að
undirbúa ráðstefnuna með því að
ræða efni, sem þar verða tekin
fyrir. Laugardag 5. þessa mánað-
ar birtist í blaðinu grein eftir rit-
stjóra þess þar sem er rætt um þá
hættu, sem okkur stafar af meng-
un geislavirkra efna frá væntan-
legri hr.einsistöð í. Dunreay í
Skotlandi. Umfjöllunin þarna er
á þann veg að full ástæða er til að
gera athugasemd við greinina í
von um að umræður ráðstefnunn-
ar um þessa geislamengun bygg-
ist á traustari rökum.
í greininni segir: „Staðurinn er
eins fjarri þéttbýlissvæðum Bret-
lands og kostur er. í kring eru
. dreifðar byggðir, og því óhægt
um vik að halda uppi miklum
mótmælum af íbúanna hálfu gegn
verinu. í ofanálag hefur staður-
inn þann kost að liggja að
straumum, sem taka hinn geisla-
virka úrgang og flytja hann rak-
leiðis norður um Skotland upp að
íslandi og lengra norðureftir.
Af þessum ástæðum einum er
ísland því í verulegri mengunar-
hættu þegar stækkunin í Dunreay
er komin í gagnið. Geislavirki
úrgangurinn er frá náttúrunnar
hendi þess efnis að hann eyðist
ekki nema á þúsundum ára.“
í von um að umræður á ráð-
stefnunni haldi sér betur við
staðreyndir, en fram kemur í
þessari tilvitnun, vil ég gera þrjár
athugasemdir og tek fyrst tvö
smærri atriðin. f fyrsta lagi blasir
við nærtækari skýring á því að
hreinsistöðin skuli ekki vera stað-
sett í hinum þéttari byggðum
Bretlands, en ótta við mótmæli
íbúanna. Þetta hefði ritstjórinn
átt að koma auga á. Fullyrðingin
um að geislavirkni úrgangsins
eyðist ekki nema á þúsundum ára
er mjög villandi. Úrgangurinn er
blanda af efnum sem missa
geilsavirkni sína mishratt. Það
efni sem er talið hvað varasamast
er cesín-137. Helmingunartími
þess er 30 ár.
Meginaðfinnsla mín er við full-
yrðinguna um að geislavirki úr-
gangurinn fari „rakleiðis norður
um Skotland upp að íslandi...“.
Þetta er alrangt. Um nær þriggja
áratuga skeið hefur verið rekin
svipuð hreinsistöð í Windscale
(sem nú heitir reyndar Sellafield)
og ráðgert er að setja upp í Dunr-
eay. Windcale liggur á vestur-
strönd Skotlands og frá þessari
stöð hefur verið hleypt í hafið
miklu magni af geislavirkum úr-
gangi, sem berst norður með
strönd Skotlands og framhjá
Dunreay. Úrgangur frá Dunreay
mundi því blandast í þennan
straum og fylgja honum. Fylgst
hefur verið náið með útbreiðslu
geislavirka úrgangsins frá Winds-
cale á liðnum árum af breskum,
þýskum og ekki síst dönskum vís-
indamönnum. Straumurinn fer
ekki „rakleiðis norður um Skot-
land ogupp að íslandi...", heldur
sveigir hann suður með austur-
strönd Skotlands og inn í Norður-
sjó. Hluti efnanna berst með haf-
straumum norður með strönd
Noregs og norður í íshaf. Þar
klofnar straumurinn í tvær grein-
ar, meginhluti hans fer austur í
Barentshaf en hluti hans sveigir
austur á við, upp að strönd Græn-
lands og hluti þessa straums leitar
svo inn á íslenskt hafsvæði.
Hollenski haffræðingurinn
J. T. F. Zimmermann hefur lýst
meginniðurstöðum margvíslegra
rannsókna á hafstraumum og
mengun á Norður-Atlantshafi og
í Norðursjó í grein í hinu þekkta
breska vísindariti Nature. Grein-
in birtist 13. september 1984. í
greininni segir í lauslegri þýð-
PÓST- OG
SÍMAMÁLASTOFNUNIN
óskar að ráða
verkamenn
við jarðsímalagnir á Stór-Reykjavíkursvæðinu.
Nánari upplýsingar veita verkstjórar jarðsíma-,
deildar, Suðurlandsbraut 28 og í síma 26000.
„íhreinsistöðinni í Dunreay verður
unnið með vatnslausnir við tiltölulega
lág hitastig og á nœsta hefðbundinn hátt.
Hœtta afmengunfrá slíkri stöð erþví
lítil. ... Enþað erönnurmengunarhœtta
sem íslensku hafsvœði stafar margfalt
meiri ógnfrá. Hœttuvaldurinn er hinn
miklifjöldi kjarnorkuknúinna kafbáta
með kjarnorkusprengjur sem eru
stöðugtásveimi umhverfis landið•
mgu, en í upphafsorðunum vísar
hann einkum til rannsókna dan-
skra og sænskra vísindamanna:
„Þeir vilja lýsa flutningstíma
og geilsamengun frá Windscale á
eftirfarandi hátt. Setjum styrk
mengunarinnar 1000 í hafinu
milli Englands og írlands, þar
sem viðkomutíminn er eitt ár.
Síðan líða um 3 ár þar til mengun-
in nær til Norðursjávar og er hún
þá komin niður í 100. Ferðin
norður með strönd Noregs tekur
enn eitt ár og styrkur mengunar-
innar þá kominn niður í 50, en
þegar hún nær strönd Grænlands
2-4 árum seinna er styrkur geisla-
virku efnanna um einn þúsund-
asti af upphaflegri rnengun."
Samkvæmt þessu fá Englend-
ingar og Norðursjávarþjóðirnar
100 til 1000 sinnum meiri mengun
yfir sig en við hér á íslandi af þeim
geislavirku efnum sem sleppa eða
sleppt er frá hreinsistöðvum á
Bretlandseyjum, og á hafsvæði
þar sem hin fengsælu fiskimið
þessara þjóða er að finna.
í hreinsistöðinni í Dunreay
verður unnið með vatnslausnir
við tiltölulega lág hitastig og á
næsta hefðbundinn hátt. Hætta af
mengun frá slíkri stöð er því lítil.
Engu að síður er rétt að fylgjast
með þeirri mengun sem þaðan
kemur og vinna af alefli að því að
henni sé haldið vel innan skað-
leysismarka. En það er önnur
mengunarhætta sem íslensku haf-
svæði stafar margfalt meiri ógn
frá. Hættuvaldurinn er hinn mikli
fjöldi kjarnorkuknúinna kafbáta
með kjarnorkusprengjur sem eru
stöðugt á sveimi umhverfis
landið. Við eigum umfram allt að
beina athygli okkar að þessari
hættu og verja kröftum okkar til
að berjast gegn henni.
Það er mín von að umræður á
fyrirhugaðri ráðstefnu verði
byggðar á traustum grunni, því
sendi ég blaðinu þessar athuga-
semdir.
PÓST- OG
SÍMAMÁLASTOFNUNIN
Póststofan í Reykjavík óskar að ráða
póstafgreiðslumenn
(með afgreiðslukassa)
Nánari upplýsingar verða veittar á skrifstofu
Póststofunnar, Ármúla 25, sími 687010.
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5