Þjóðviljinn - 23.09.1987, Síða 6
ALÞÝÐUBANDALAGK)
Borgarmálaráð ABR
Fundur í dag klukkan 17 á Borgarskipulagi Reykjavíkur, Borgartúni 3.
Dagskrá: Skipulagsmál miðbæjarins, m.a. ráðhús.
Ath. breyttan fundarstað!!
Miðstjórn Alþýðubandalagsins
heldur fund að Hverfisgötu 105, Reykjavík, 26. og 27. september nk.
Dagskrá:
Laugardagur 26.9.:
Kl. 10-12.30:
1. Skýrsla Varmalandsnefndar. Framsaga: Stefanía Traustadóttir.
Umræður.
2. Tlllögur Varmalandsnefndar um aðalmálefnaáherslur landsfundar.
Framsaga: Gunnar Rafn Sigurbjörnsson.
3. Skýrsla efnahags- og atvinnumálanefndar. Hugmyndir um meðferð
skýrslunnar og einstakir þættir hennar reifaðir.Framsaga:SvavarGests-
son.
4. Önnur mál.
Kl. 12.30-13.30: Matarhlé
Kl. 13.30 til kvölds:
5. Starfshópar. 1. Aðalmálefnaáherslur landsfundar og meginmarkmið
efnahags- og atvinnumálaskýrslunnar. 2. Aðalmálefnaáherslur landsfund-
ar og sjávarútvegsmál/kjaramál skv. E/A-skýrslunni. 3. Aðalmálefna-
áherslur landsfundar og landbúnaður/vaxtastefna skv. E/A-skýrslunni.
Sunnudagur 27.9.:
Klukkan 9.30-17: Skll starfshópa. Almennar umræður. Afgreiðsla
mála.
Hádegishlé verður milli klukkan 12.30 og 13.30 og matur seldur í
hádeginu á fundarstað báða daga. Stefnt er að fundarslitum klukkan 17.00
á sunnudag. Æskilegt er að miðstjórnarmenn tilkynni þátttöku í síma 91-
17500 fyrir klukkan 15.00 nú á föstudag, 25. september
Alþýðubandalagsfélag Selfoss og nágrennis
Aðalfundur
Aðalfundur félagsins verður haldinn 30. september n.k. að Kirkjuvegi 7,
Selfossi.
Dagskrá
1) Venjuleg aðalfundarstörf. 2) Fulltrúi frá Varmalandsnefndinni gerirgrein
fyrir starfi nefndarinnar.
Margrét Frímannsdóttir mætir á fundinn.
Nýir félagar sérstaklega boðnir velkomnir. Stjórnin
Alþýðubandalagið Ólafsvík
Félagsfundur
Félagsfundur verður haldinn í Mettubúð fimmtudaginn 24. september kl.
20.15.
Dagskrá: 1) Málefni Alþýðubandalagsins. 2) Málefni bæjarstjórnar- meiri-
hlutasamstarfið. Frummælandi: Herbert Hjelm.
Mjög áríðandi að félagar mæti stundvíslega. Stjórnin
ABR
Greiðið félagsgjöldin
Alþýðubandalagið í Reykjavík hvetur félagsmenn til að greiöa heimsenda
gíróseðla sem allra fyrst. Stjórnin
ÆSKULÝÐSFYLKINGIN
Dagskrá landsþings ÆFAB
2.-4. okt. 1987 að Hverfisgötu 105, Reykjavík.
Föstudagur 2. okt.
20.00 Setning. 20.20 Skýrslur fluttar, umræður: a) framkvæmdaráðs, b)
gjaldkera, c) deilda, d) Utanríkismálanefndar, e) Verkalýðsmálanefndar, f)
Birtis. 23.00 Lagabreytingar og hópvinna kynnt. 23.30 Hlé.
Laugardagur 3. okt.
9.00 Lagabreytingar, fyrri umræða. 10.00 Hópavinna: a) unnið að þingmál-
um, b) Almenn stjórnmálaályktun, c) lagabreytingar. 12.00 Matur. 13.00
Hópavinnu framhaldið. 20.00 Matur. 21.30 Kvöldbæn.
Sunnudagur 4. okt.
9.00 Lagabreytingar, seinni umræða. 10.00 Hópavinna, niðurstöður. 13.00
Matur. 14.00 Kosningar. 15.30 Þingslit.
Þingið er opið öllum ÆF-félögum. Félagar sem greiða þurfa háan ferða-
kostnaö wtan af landi fá Vz fargjaldið greitt.
Skráið ykkur sem allra fyrst. Nánari upplýsingar færð þú á skrifstofunni í
síma 17500. Framkvæmdaráð ÆFAB
ÆFR
Félagsfundur
Félagsfundur ÆFR verður haldinn fimmtudaginn 24. september kl. 20.30
að Hverfisgötu 105.
Dagskrá:
1) Kosning fulltrúa á Landsfund.
2) Starfið framundan.
3) Önnur mál.
VIÐHORF
Genim Alþýðubandalagið
öflugt og sterkt
Óskar Líndal Arnfinnsson skrifar
Síðastliðinn laugardag 19/9,
skrifar Össur Skarphéðinsson
grein í Þjóðviljann, sem hann
nefnir: „Nýr formaöur er ekki
nóg“. Undir þetta get ég tekið
heilshugar. Pað þarf meira, en
góðan röggsaman formann til að
stjórna heilum stjórnmálaflokki.
Það þarf samhenta forystu, skýra
og fastmótaða stefnu í öllum
helstu málum, sem skipta máli,
þar á ég við, stefnu í verkalýðs-
málum, efnahagsmálum, utan-
ríkismálum og svo framvegis.
Þessa stefnu þarf að marka á
næsta landsfundi Alþýðubanda-
Iagsins. Þá stefnu, sem þar verður
mörkuð, verða og þurfa flokks-
menn að sameinast um, og skapa
einhuga samstöðu um að hrinda
henni í framkvæmd. Úlfúð og
persónuleg illindi verða að víkja
fyrir því, sem við í Alþýðubanda-
laginu eigum sameiginlegt, það
er jákvæð sósíalísk þróun á sem
flestum sviðum þjóðfélagsins.
, Þær væringar, sem verið hafa
innan Alþýðubandalagsins verða
Pœr væringarsem
verið hafa innan
Alþýðubanda-
lagsins verða að
víkja, og við
verðum að sam-
stilla kraftana
að víkja og við verðum að sam-
stilla kraftana til að hrinda í fram-
kvæmd þeim mörgu góðu mál-
efnum, sem við höfurn barist
fyrir, og ættum að berjast fyrir.
Styrkur Alþýðubandalagsins hef-
ur fyrst og fremst verið, að hinn
almenni félagi hefur alltaf verið
tilbúinn að starfa þegar á hefur
reynt. Og ef við berum gæfu til að
velja okkur sterka, samheldna
forystu, þurfum við ekki að kvíða
framtíðinni. Ég vona að flokks-
bræður mínir í Alþýðubandalag-
inu noti nú tímann fram að lands-
fundinum í nóvember, samstilli
kraftana, mæti til landsfundar,
með það að leiðarljósi, að eftir
landsfundinn geti Alþýðubanda-
lagið hafið nýja sókn til sigurs í
næstu kosningum. Þær kosningar
gætu orðið fyrr en seinna. Notum
því tímann vel, með það að
leiðarljósi að Alþýðubandalagið
komi sterkt og einhuga afl að
landsfundi loknum.
Óskar Líndal Arnfinnsson
AUGLÝSING
Sveitarstjórnarmenn - sveitarstjórnarmenn
Áður auglýstum fundum samgöngumálaráðherra,
Matthíasar Á. Mathiesen,
með sveitarstjórnarmönnum um samgöngumál
er hér með frestað um sinn
af óviðráðanlegum orsökum.
Samgönguráðuneytið