Þjóðviljinn - 23.09.1987, Page 7

Þjóðviljinn - 23.09.1987, Page 7
Umsjón: Elísabet Kristín Jökulsdóttir Þjóðleikhúsið sýnir RÓMÚLUS MIKLA eftir Friedrich Durrenmatt Leikstjóri: Gísli Halldórsson Leikmynd: Gunnar Bjarnason Þýðing: Bjarni Benediktsson frá Hofteigi Diirrenmatt var einn þeirra leikskálda sem mestan svip settu á leiklistina á sjöunda áratugn- um. Sýningar LR á Eðlisfræðing- unum (1963) og Sú gamlakemur í heimsókn (1965) eru með eftir- minnilegustu sýningum þeirra tíma, enda eru þar á ferðinni verk sem sameina skarpa siðferðilega greiningu, snjalla persónu- sköpun og vel gerðar fléttur. Þetta eru verk sem eru líkleg til að eiga framhaldslíf fyrir hönd- um, einkum Sú gamla. Önnur verk Dúrrenmatts fyrir svið eru hins vegar tæplega líkleg til lang- lífis. Það verður að segjast um Rómúlus mikla að þetta verk er of gallað til þess að það hafi stað- ist tímans tönn. Það er barn síns tíma, ber þess skýr merki að vera skrifað af manni sem hafði rétt nýlega horft á hrunadans heimsveldanna frá sjónarhóli sín- Arnar Jónsson og Rúrik Haraldsson um í hlutleysi svissneskra fjalla. Rómúlus mikli var áreiðanlega ágætt verk á sínum tíma (árið 1949) þegar ferskleiki þess og tímabært efni vann upp bygging- argalla þess. En þetta á ekki við lengur. Rómúlus er síðasti keisari hins mikla heimsveldis sem er að hruni komið og bíður nú einungis komu hinna. Keisarinn hefur reyndar aldrei gert minnstu til- raun til að stjórna þessu hrynj- andi ríki heldur einbeitt sér að hænsnarækt og þeirri list að haf- ast ekki að. Hann neitar staðfast- lega að reyna að bjarga ríkinu með því að selja dóttur sína buxnaframleiðanda til að kaupa Rórn frið fyrir germönum. Við- horf hans er að Róm hafi engan rétt til að verja sig falli og allra síst vill hann stuðla að frekari blóðs- úthellingum. Það er margt hnytti- legt og spaklegt í þessum texta og fyrsti þátturinn er prýðilega saminn, myndin af hinum keisaralega hænsnaræktarmanni við morgunverðarborðið er bráðsnjöll. En þar með er raunar nánast allt efni leiksins komið fram. Að undanskildum ágætum samræðum Rómúlusar og Ódó- vakars í lokin gerast lítil tíðindi á sviðinu. Persónurnar eru líflitlar, það skortir dramatíska spennu og framvindu mála. Leikstjórinn Gísli Halldórsson virðist ekki hafa fundið þau ráð sem dygðu til að breiða yfir þessa galla, sem vissulega mætti að ein- hverju leyti gera með auknum hraða, fjölbreytni í leik, uppá- finningasemi í skoplegum tiltækj- um o.s.frv. En þvert á móti er sýningin þunglamaleg og alltof löng (þetta er ekki þriggja tíma leikrit) og leikurinn einkennist alltof víða af eintóna hávaða- semi. Hér bætir ekki úr skák að leikmynd Gunnars Bjarnasonar er klunnaleg og stórgerð og óþægileg í skiptingum. Ekki heldur að notast er við nær þrjá- tíu ára gamla þýðingu sem var vandað verk á sínum tíma en er nú stirðbusaleg, fornleg og bók- málsleg með afbrigðum. Allt eykur þetta á þyngsli sýningar- innar. Það sem stendur upp úr er ágætur leikur Rúriks Haralds- sonar í hlutverki hænsnakeisar- ans. Rúrik gæðir persónuna þeirri rósemi og góðlegri kímni sem við á og hefði svo sannarlega átt skilið betri umgerð um leik sinn. Hann fær þó verðugan mót- leik þegar Arnar Jónsson birtist í hlutverki Ódóvakars. Þá er allt í einu farið að leika á sviðinu og drunganum léttir að bragði. Flestum annarra leikara í þessari sýningu, og þeir eru margir, tekst hins vegar að sýna flestar verstu hliðar íslenskrar leiklistar, þeir eru uppspenntir og bísperrtir og standa á öndinni af æsingu og æpa. Undantekningar frá þessu voru einna helst Árni Tryggvason og Baldvin Halldórsson sem voru notalegir í hlutverkum herbergis- þjónanna. Sverrir Hólmarsson Miðvikudagur 23. september 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.