Þjóðviljinn - 23.09.1987, Page 10
ERLENPAR FRÉTTIR
Mið-Ameríka
Sjö vikur til stefnu
Gagnkvœm tortryggni og rótgróinnfjandskapur dreg-
ur úrfriðarlíkum í löndum þarsemlOO þúsund manns
hafa látið lífið á þessum áratug í borgarastyrjöldum
Fjölskylda í Nicaragua. Alþýða manna í Mið-Ameríku þráir ekkert heitar en að
fá að búa við frið í réttlátu þjóðfélagi.
Verði ekki búið að þagga niður
í vopnum stjórnardáta og
uppreisnarmanna í Nicaragua, E1
Salvador og Guatemala þann 7.
nóvember og koma á vopnahléi
verður friðaráætlun leiðtoga
fímm Mið-Ameríkuríkja að
dauðum bókstaf.
Svo sem kunnugt er undirrit-
uðu forsetar Nicaragua, E1 Salva-
dor, Honduras, Costa Rica og
Guatemala plagg nokkurt þann
sjöunda fyrra mánaðar í höfuð-
borg síðastnefnda landsins. Það
hefur að geyma yfirlýsingar
valdsherranna um að þeir hyggist
með ýmsum ráðum stuðla að því
að friður komist á í Mið-Ameríku
innan 90 daga og almenn lýðrétt-
indi verði virt á svæðinu.
Nú eru aðeins sjö vikur til
stefnu. Mörg ljón eru á veginum
og ýms teikn á lofti um að áætlun-
in fari út um þúfur.
Vandamálin komu berlega í
ljós á tveggja daga fundi utan-
ríkisráðherra ríkjanna fimm í
fyrri viku í Managua, höfuðborg
Nicaragua. „Það er út af fyrir sig
afrek að geta efnt til slíks fundar
Stefáns Björnssonar
Víðihvammi 13, Kópavogi
Jóhanna
Anna Stefánsdóttir
Ólöf J. Stefánsdóttir
Olga G. Stefánsdóttir
Sigríður A. Stefánsdóttir
Björn Stefánsson
tengdabörn og barnabörn
fulltrúa ríkisstjórna sem greinir á
um allt milli himins og jarðar,"
sagði fréttaskýrandi nokkur,
„lítið bara á írana og fraka. I
Mið-Ameríku er verið að reyna
að skapa frið milli ríkisstjórna
sem hafa gerólík markmið. Þar
berst rúmur tugur skæruherja
gegn yfirvöldum og sérhver
þeirra hefur sína eigin hug-
myndafræði. Að tjaldabaki eru
erlend stórveldi sem kynda undir
ófriðarkötlum og gremst að hafa
ekki verið með í ráðum við gerð
friðaráætlunarinnar."
Að loknum fundinum í Manag-
ua efndi utanríkisráðherra Nicar-
agua, Miguel DÉscoto, til frétta-
mannafundar. Hann sagði koll-
egana fimm hafa komið sér sam-
an um að skipa sérstaka
rannsóknarnefnd sem gæta á þess
að ráðamenn landanna reyni ekki
að slá ryki í augu hvers annars og
skjóta sér undan því að standa við
gefin fyrirheit. Nefndinni ber
jafnframt að fylgjast grannt með
því að allir geri samskonar ráð-
stafanir á sama tíma.
Öllu á að vera lokið þann sjö-
unda nóvember. Þá eiga almenn
lýðréttindi að hafa verið tryggð
öllum þegnum, þá ber ríkis-
stjórnum að hafa gefið pólitísk-
um andstæðingum upp sakir,
jafnt skæruliðum sem friðarsinn-
um, þá eiga stjórnvöld að hafa
látið af stuðningi við uppreisnar-
menn í nágrannaríkjum og rekið
þá úr bækistöðvum innan eigin
landamæra.
Þetta er vitaskuld hægara sagt
en gert. Á þessum áratug hafa að
minnsta kosti 100 þúsund manns
látið lífið í borgarastyrjöldum
Nicaragua, E1 Salvador og Gu-
atemala og þorri þeirra er úr
röðum óbreyttra borgara. Mörg
hundruð þúsund manns hafa
hrakist á vergang, efnahagslíf
landanna hefur orðið fyrir mikl-
um skakkaföllum og félagslegar
umbætur hafa verið litlar af þeim
sökum. Hið síðastnefnda á eink-
um við um Nicaragua þar sem
stjórn Sandinista hefur frá önd-
verðu verið mjög áfram um að
bæta hag þegna sinna.
í Nicaragua hafa Kontraliðar
herjað á landsmenn um nokkurra
ára skeið og notið mikils stuðn-
ings stjórnar Ronalds Reagans í
Washington sem sárnar mjög að
vinstrimenn skuli vera við völd í
landinu. Reagan hefur þegar
veitt Kontramálaliðum sínum
200 miljónir dala af bandarísku
almannafé til ástundunar hryðju-
verka og hyggst ekki láta staðar
numið þrátt fyrir friðarviðleitni
þjóðhöfðingjanna fimm. Hann
leitar nú hófanna hjá þing-
mönnum og fer þess á leit að þeir
fallist á að ausa 270 miljónum
dala í Kontrahítina á næstu 10
mánuðum.
í E1 Salvador er annað uppi á
teningnum. Ríkisstjórn Napóle-
ons Duartes nýtur heilshugar
stuðnings Bandaríkjastjórnar og
fær gífurlegar fjárupphæðir að
norðan eða um eina og hálfa milj-
ón dala á dag. Ekkert af því fé
rennur í vasa alþýðu manna sem
býr við mikla fátækt og sumstað-
ar algera örbirgð. í landinu berj-
ast fimm skæruherir vinstri-
manna fyrir skaplegri stjórnar-
háttum og réttlátara þjóðfélagi
og verður vel ágengt, ólíkt
Kontraliðunum í Nicaragua.
í Guatemala hafa vinstrimenn
ekki lagt niður vopn þótt lýðræð-
islega kjörin stjórn hafi leyst kúg-
unarstjórn herforingja af hólmi í
janúar á síðasta ári.
Þegar forsetarnir fimm skópu
friðarplan sitt í Guatemala höfðu
þeir enga uppreisnarmenn með í
ráðum. Leiðtogar þeirra hafa
bent á þetta og enn sem komið er
ekki ljáð máls á því að friðmælast
við fjendur sína ef þeir eigi einir
að setja skilmála.
Athygli umheimsins hefur
einkum beinst að átökunum í
Nicaragua en þeir sem gerst
þekkja til fullyrða að friðargjörð
verði enn torsóttara verk í E1 Sal-
vador en þar. Einum þessara
sérfræðinga farast svo orð:
„Kontraliðarnir fara í einu og
öllu að fyrirmælum frá Washing-
ton. í E1 Salvador eru málin með
öðrum hætti. Þar eru uppreisnar-
menn sínir eigin herrar og það er
undir þeim sjálfum komið og
engum öðrum hvort þeir setjast
að samningaborði með stjórnar-
herrum. Hið eina sem gæti orðið
þeim til trafala er innbyrðis sund-
urlyndi.“
Hernaðarlega eru Kontraliðar
í einu og öllu háðir örlæti Reag-
ans en í E1 Salvador og Guate-
mala verða skæruliðar sér sjálfir
úti um vopn, einkum með því að
ræna þeim frá stjórnardátum.
Sérfræðingum um hermál ber
saman um að uppreisnarmenn í
E1 Salvador séu mjög hæfir bar-
dagamenn og pólitísk staða
þeirra er sterk. Þeir hafa bæði
tögl og hagldir í mörgum héruð-
um úti á landsbyggðinni og hafa
hvað eftir annað greitt stjórnar-
hernum þung högg á þessu ári.
Skemmst er að minnast árásar
þeirra á stærstu herbúðir stjórn-
arhersins, E1 Paraiso, en þá féllu
64 úr röðum dáta Duartes og einn
bandarískur liðþjálfi.
Duarte hefur margsinnis boðið
skæruliðum til samningavið-
ræðna en jafnan sett skilyrði sem
þeir hafa ekki viljað fallast á.
Hann endurtók tilboð sitt
skömmu eftir fundinn í Guate-
mala en gat þess jafnframt að
áður en viðræður hæfust yrðu
Skæruliðar í El Salvador hafa gert
stjórnarhernum marga skráveifu á
þessu ári og telja sig ekki þurfa að
ganga til nauðungarsamninga við
stjórn Napóleons Duartes.
uppreisnarmenn að afhenda
vopn sín. Sumir telja það myndu
jafngilda sjálfsmorði í landi þar
sem dauðasveitir hægrimanna
eru með afbrigðum atorkusamar.
Skæruliðar vinstrimanna virðast
að minnsta kosti gjalda varhuga
við gylliboðum forsetans. Einn
leiðtoga þeirra ávarpaði félaga
sína í útvarpi nýverið og spurði:
„Hví skyldum við ganga til ein-
hverra nauðungarsamninga?
Staða okkar er mjög sterk.“
Hvorki í Nicaragua né Guate-
mala geta uppreisnarmenn státað
af ávinningum sem komast í
hálfkvisti við árangur skæruliða í
E1 Salvador. Kontraliðar hafa
aldrei unnið svo mikið sem lófa-
stóran blett lands af stjórnarher
Nicaragua og því fer víðs fjarri að
þeir ógni hernaðarlega mikilvæg-
um stöðum. Þeir virðast láta sér
nægja að murka lífið úr alþýðu
manna og má þá einu gilda hvort
fórnarlömbin eru konur og börn.
í Guatemala hafa skæruliðar
orðið fyrir miklum skakkaföllum
að undanförnu í bardögum við
her ráðamanna. Talið er að þeir
séu nú um helmingi færri en fyrir
fimm árum eða um 2 þúsund tals-
ins.
En þótt uppreisnarmenn í Nic-
aragua og Guatemala ógni ekki
stjórnum landanna er ekki þar
með sagt að þeir verði
auðteymdir að samningaborði
auk þess sem ráðamenn telja sig
ekki þurfa að koma verulega til
móts við þá þrátt fyrir friðaráætl-
unina.
í Guatemala er lýðkjörinni
stjórn settar þröngar skorður af
ýmsum valdamiklum hægri-
mönnum, herforingjum og
auðkýfingum. Þessir aðilar líta á
það sem algera goðgá að eiga svo
mikið sem orðastað við „komm-
únista.“
Ráðamenn í Managua vita sem
er að Kontraliðunum er fjarstýrt
frá Washington og segja út í hött
að standa í viðræðum við mála-
liða í stað þeirra er greiða þeim
málann. Þeir hafa ítrekað farið
fram á viðræður við fulltrúa
Bandaríkjastjórnar um frið í
landi sínu en þeirri ósk hefur æ
ofaní æ verið hafnað. Reagan ætl-
ar að kollvarpa Sandinistastjórn-
inni og hyggst ná því markmiði
með öllum tiltækum ráðum og
lætur sér fátt um finnast þó íbúar
Mið-Ameríku vilji frið. -ks.
I I
V wLy/ Atvinnumálanefnd Vestmanna-
eyjabæjar boðar til almenns
fundar um sjávarútvegsmál
„Þróun, staða og horfur í
fiskvinnslu í Vestmanna-
eyjum“
Fundurinn verður í Alþýðuhúsinu í
Vestmannaeyjum laugardaginn 26. september
kl. 13.30.
Dagskrá fundarins:
Fundarsetning: Magnús H. Magnússon, form. at-
vinnumálanefndar.
Framsaga: Hilmar Viktorsson, viðskiptafræðing-
ur.
Almennar umræður.
Fundarslit er áætluð eigi síðar en kl. 18.00.
Atvinnumálanefnd Vestmannaeyja.
Bæjarstjóri Vestmannaeyja
Sala auglýsinga -
vélritun
Starfsmaður óskast á auglýsingadeild Þjóðvilj-
ans frá og með 1. okt. n.k. Upplýsingar gefur
auglýsingastjóri í síma 681310 milli kl. 9 og 17.
þiömnuiHN
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát
og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa
Jónsdóttir
Ingibjörg Stefánsdóttir
Þórunn Stefánsdóttir
Birna Stefánsdóttir
Jón Stefánsson
10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 23. september 1987