Þjóðviljinn - 23.09.1987, Page 16
Aðalsími
681333
Kvöldsími
681348
Helgarsími
681663
þjómnuiNN
Miðvikudagur 23. september 1987 210. tölublað 52. árgangur
Þjónusta
íþínaþágu
SAMVINNUBANKI
ÍSLANDS HF.
Eskifjörður
Grjótharðir ákröfunum
15% á allanþorskfrá áramótum, 10% á allan annanfisk. Skriflegt samkomulag
Útvegsbankinn
Tíðindalaus
tilboðsmál
Fjármálaspekúlantarnir 33,
sem gert hafa tilboð í Útvegs-
bankann og fulltrúar Sambands-
ins, fóru erindisleysu á fund Jóns
Sigurðssonar viðskiptaráðherra,
til að reyna að greiða fyrir sölu
Útvegsbankans.
Á fundi tilboðsgjafa og ráð-
herra var m.a. rætt um hugsan-
lega sameiningu banka til lausnar
á þeim hnúti sem Útvegsbanka-
málið er komið í.
Viðskiptaráðherra og tilboðs-
gjafar hyggjast halda viðræðum
áfram á næstu dögum og reyna til
þrautar að ná samkomulagi um
kaup og sölu Útvegsbankans.
-rk
Sjómenn á Hólmanesi og
Hólmatindi voru með sam-
eiginlegan fund í fyrrakvöld þar
sem samþykktar voru kröfur
þeirra gegn útgerðinni. Þaer eru í
fyrsta lagi að greidd verði 15%
uppbót á allan þorsk frá ára-
mótum, greidd verði 10% uppbót
á allan annan fisk frá sama tíma
og í þriðja lagi að skriflegur
samningur verði gerður um fisk-
verð til áramóta, segir Eiríkur
Stefánsson frá Fáskrúðsfirði,
einn þriggja samningamanna sjó-
manna á Eskifirði.
í tæpa viku hefur togarinn
Hólmanes frá Eskifirði legið
bundinn við bryggju vegna deilu
sjómanna og útgerðarinnar,
undir forystu Aðalsteins Jóns-
sonar útgerðarmanns, um fisk-
verð. Frá þvíað fiskverð vargefið
frjálst um miðjan júní síð-
*astliðinn hefur útgerðin borgað
sjómönnum samkvæmt samningi
útgerðarmanna og sjómanna á
Vestfjörðum, en sem kunnugt er
hefur á næsta bæ við, á Fáskrúðs-
firði, verið borgað meðalverð
eins og það er á hverjum tíma á
fiskmarkaðinum í Hafnarfirði.
Töluverður munur er á þessu
tvennu sem kemur fram í því að
sjómennirnir á Eskifirði hafa
fengið hæst 29 krónur fyrir kílóið
af þorski meðan sjómenn á Fá-
skrúðsfirði hafa fengið um 40-45
krónur fyrir kílóið af þorskinum.
Að sögn Guðna Gunnarssonar
vélstjóra á Hólmanesinu hefur
Aðalsteinn Jónsson ekki verið til
viðræðu um kröfur sjómanna í
meira en sjö vikur og algerlega
hunsað sjómenn. Þessu una sjó-
menn að sjálfsögðu ekki og nú
hefur áhöfn togarans Hólmatinds
frá Eskifirði gengið í lið með sjó-
mönnum Hólmaness og eru báðir
togararnir bundnir við bryggju á
Eskifirði.
Að sögn Eiríks Stefánssonar
var útgerðinni afhent kröfugerð-
in í gær, en ekki er við því að
búast að hreyfing komist á samn-
ingaviðræður fyrr en Aðalsteinn
kemur aftur austur, en hann hef-
ur verið í Reykjavík frá því um
helgina að skoða sig um á sjávar-
útvegssýningunni og borið saman
bækur sínar við sína samherja,
svo sem stjórn Sambands fisk-
vinnslustöðva. En stjórnin sam-
þykkti á fundi sínum í fyrradag
harðorða ályktun þar sem vinn-
ustöðvun sjómanna á Eskifirði er
sögð vera ólögmæt.
„Við þessa kalla hér fyrir
austan þýðir ekkert að gera
munnlegt samkomulag um eitt
eða neitt. Þess vegna förum við
fram á það að gerður verði skrif-
legur samningur um fiskverðið.
Það gerum við að fenginni
reynslu,” sagði Eiríkur Stefáns-
son.
grh
Borgaraflokkurinn
Slagurinn
harðnar
Enn harðnar samkeppnin í
Borgarafiokknum um vara-
formannsembættið, sem kjörið
verður í á landsfundi flokksins
sem hefst á morgun. Benedikt
Bogason hefur tilkynnt að hann
gefi kost á sér, en auk hans sækj-
ast þeir Asgeir Hannes Eiríksson
og Júlíus Sólnes, þingmaður
flokksins í Reykjaneskjördæmi,
eftir vegtyllunni.
- Ég er enn í framboði til vara-
formanns og ég lít svo á að sama
gildi um Júlíus Sólnes, meðan
hann tekur ekki af öll tvímæli um
það hvort hann er hættur við eða
ekki, sagði Ásgeir Hannes
Eiríksson pylsusali, en í frétta-
bréfi Borgaraflokksins, segir Jú-
líus að mikið ríði á að um kosn-
ingu til trúnaðarstarfa fyrir flokk-
inn ríki einhugur.
- Mér finnst slagur milli manna,
um völd innan flokksins veik-
leikamerki. Ég hefði viljað sjá að
málefnin væru aðalatriði og völd
og frami einstakra manna auka-
atriði, sagði Júlíus Sólness.
Júlíus sagði að fyndist einhver
frambjóðandi sem fullt sam-
komulag ríkti um og menn
drægju framboð sitt til baka þá
skyldi hann einnig gera það með
glöðu geði.
Ásgeir Hannes sagði ekki
óeðlilegt að varaformaðurinn
væri úr röðum óbreyttra flokks-
manna þar sem Borgaraflokkur-
inn byggði á milliliðalausu sam-
bandi við kjósendur. - Ef til vill
gæti varaformannsembættið
reynst jringmanni fjötur um fót,
sagði Ásgeir Hannes.
Samkvæmt heimildum blaðs-
ins verður Albert Guðmundssyni
falin formennska í flokknum, -
hvort sem honum líkar það betur
eða verr, eins og einn viðmælandi
blaðsins orðaði það. Þau sjón-
armið hafa einnig heyrst að til
varaformanns verði að kjósa ein-
hvern, sem létt gæti pólitískri
ábyrgð af Albert.
-rk
Ásgeir Hannes Eiríksson pylsusali: Eðlilegt að varaformaðurinn komi úr röðum óbreyttra flokksmanna enda byggir
Borgaraflokkurinn á sem milliliðalausustu sambandi við kjósendur. Mynd E.ÓI.
íslensk utanríkisstefna
Stuðningur við
Mið-Ameríkusamninginn
Friðarsamkomulagið í Mið-
Ameríku nýtur stuðnings ís-
. lenskra stjórnvalda á alþjóðavett-
vangi og hvetja þau allar þjóðir til
að styðja það og aðstoða við
framkvæmd þess.
Þetta kom fram í ræðu utan-
ríkisráðherra, Steingríms Her-
mannssonar, á allsherjarþingi
Sameinuðu þjóðanna íNew York
á mánudaginn, en af slíkum
ræðum má stundum ráða íslenska
utanríkisstefnu. Eindreginn
stuðningur við friðarsamninginn í
Mið-Ameríku er á skjön við af-
stöðu Bandaríkjastjórnar sem
heldur hefur dregið lappirnar við
að samsinna friðaráætluninni í
Mið-Ameríku.
í ræðu sinni sagði Steingrímur
meðal annars að íslendingar
styddu viðleitni Öryggisráðs SÞ
til friðar í Mið-Austurlöndum og
hugsanlegt vopnabann á ríki þar.
Þá var lýst almennri andstöðu við
kynþáttamismunun, mannrétt-
indatakmarkanir og umhverfis-
eyðileggingu.
Steingrímur vék óbeint að
hvalamálinu og sagði allar lífver-
ur eiga rétt á vernd en þær skuli
jafnframt nýttar á skynsamlegan
hátt. „Við vísum á bug afskiptum
sjálfskipaðrar lögreglu, hversu
voldug sem slík þjóð kann að
vera. Þeir kasti ekki steinum sem
í glerhúsi búa.“
Utanríkisráðherra fagnaði ný-
boðuðu samkomulagi risaveld-
anna um meðal- og skammdræg-
ar flaugar, sagðist styðja „allar
raunhæfar tillögur" um kjarn-
orkuafvopnun. Að lokum
minntist Steingrímur á leiðtogaf-
undinn hér í október og sagðist
vilja að ísland gæti orðið griða-
staður þeirra sem leita lausna á
vanda mannkyns. „í þeim til-
gangi býð ég ekki aðeins leiðtoga
risaveldanna, heldur ykkur alla
velkomna til íslands.“
-m
Sjávarútvegssýning
Toghlerar
renna út
Toghlerarnir og kraftblakkirn-
ar frá stálsmiðju Jósafats Hin-
rikssonar, hafa runnið út eins og
heitar lummur ■
- Við önnum ekki nándar nærri
eftirspurninni. Fyrstu tvo dagana
seldum við 130 tonn af toghlerum
og blökkum og það er mikið um
pantanir erlendis frá, sagði Jósaf-
at Hinriksson.
Að sögn Jósafats hefur fyrir-
tækið á undanförnum árum
skapað sér markað fyrir smíða-
varning sem þennan í Noregi,
Færeyjum og Grænlandi. - Ég á
markaðinn fyrir toghlera í Fær-
eyjum eins og hann leggur sig og
um 80% af Grænlandsmarkaðin-
um og Norðmenn sýna þessari
framleiðslu aukinn áhuga. -rk