Þjóðviljinn - 10.11.1987, Side 9

Þjóðviljinn - 10.11.1987, Side 9
LANDSFUNDUR Guðbjörg: Svo framarlega sem menn standa heilir í baráttunni þá er ekkert að óttast. Afar ánægð Guðbjörg Róbertsdóttir: Flokkurinn á eftir að eflast Ég held að þetta hafi verið ágætur landsfundur og ég er afar ánægð með nýja forystu fiokks- ins, sagði Guðbjörg Róbertsdótt- ir um fundinn. „Ég hef fulla trú á því að þessi forysta geti rifið flokkinn uppúr þeirri ládeyðu sem hann hefur verið í að undanförnu. Flokkur- inn á eftir að eflast. Svo framar- lega sem menn standa heilir í bar- áttunni þá er ekkert að óttast“. K.Ol. Ágreiningur um foiystu eðlilegur Ármann Ægir Magnússon: Ánægður með skýra afstöðu í vali áfor- ystu um það hvernig landsfundurinn Ég er ánægður með þennan landsfund að mörgu leyti. Ég er t.d. mjög ánægður með að kosið var til formanns og að það haii komið fram skýr afstaða í vali á forystu. Það er ekkert nema eðii- legt í stjórnmálaflokki að fólk greini á um forystu, en eftir kosn- ingar á fólk að fylkja liði um nýja forystu og málefni flokksins, sagði Ármann Ægir Magnússon hefði til tekist. „Skipulag landsfundarins hef- ur hins vegar verið afar slæmt. Það er t.d. fráleitt að kosið sé í miðstjórn á síðasta degi fundar- ins. Margir landsbyggðarfulltrú- arnir þurfa að leggja af stað strax eftir hádegið á síðasta degi og missa þ.a.l. af kosningunni. Ég er ekki mjög hrifinn af þeirri tillögu sem hér var lögð fram um að formenn verði fram- vegis kjörnir í félögunum. Mér finnst hins vegar að stefna ætti að því að miðstjórnarfulltrúarnir verði alfarið kosnir í félögunum. Ég trúi því að það sé vinstri uppsveifla í nálægð. Ef rétt verð- ur á málum haldið þá ætti flokk- urinn að geta nýtt sér hana og eflst sem stjórnmálaflokkur". - — KOI. Ármann Ægir: Skipulagið á landsfundinum hefur verið afar slæmt. Slappur landsfundur Björn Valur Gíslason: Óánœgður með nýkjörnaforystu nemafram- kvœmdastjórn. Almennt áhugaleysi á málefnunum á fundinum Björn Valur: í nýkjörinni stjórn eru allir af sama sauðahúsi og þetta fólk á ekki eftir að stuðla að upp- gangi flokksins. Ég er óánægður með nýkjörinn formann og stjórn flokksins, en er hins vegar ánægðari með ný- kjörna framkvæmdastjórn. Þar finnst mér hafa valist gott fólk, sagði Björn Valur Gíslason um nýkjörna forystu Alþýðubanda- lagsins. „Ég held að fólk þurfi ekkert að óttast að stjórnin verði ekki samhent, það fólk sem hana skipar er allt af sama sauðahúsi. Ég er hins vegar á þeirri skoðun að stjórnin eigi að vera skipuð fólki með svipaðar áherslur, en ég hef enga trú á því að þessi stjórn eigi eftir að stuðla að upp- gangi flokksins. í kjöri landsfundarmeðlima í framkvæmdarstjórn kemur hins vegar fram að fólki var farið að ofbjóða útþurrkunarstefna Ólafs Ragnars. Úrslitin sýna líka að stór hluti fólks í Reykjavíkurfé- laginu er ekkert sérstaklega virk- ur. Það vantaði u.þ.b. 20 aðal- menn í Reykjavík á staðinn þegar kjör framkvæmdanefndar fór fram. í heildina séð var landsfundur- inn slappur. Fólk kom illa undir- búið í flestum málaflokkum. Menn virtust mjög áhugalausir og það var sífellt verið að af- greiða mál til miðstjórnar í stað þess að afgreiða þau á fundinum. En nú þegar forysta Alþýðu- bandalagsins hefur verið kjörin þá er ekkert annað að gera en að sætta sig við orðinn hlut og halda starfinu áfram.“ - KÓI. Brynja: Málefnin hverfa í skugg- ann af formannskjörinu. Ágústa: Ég er ekki fjarri því að það sé skynsamlegast að mið- stjórn kjósi formanninn. Einar Már Sigurðsson: Væring- ar áranna 1985 til 1987 heyri til undantekningar í sögu flokksins. mynd E.ÓI. Flokkurinn sterkari Brynja Svavarsdóttir: Hef trú á nýrri forystu Ég hef fulla trú á því að flokk- urinn komi sterkari út eftir þenn- an landsfund og ég hef trú á nýrri forystu flokksins, sagði Brynja Svavarsdóttir um væntanlegan árangur af landsfundinum. „Það eru auðvitað sárindi hjá mörgum vegna formannskjörs- ins, en þau eiga eftir að ganga yfir, og ég hef enga trú á því að nokkur gangi úr flokknum. Ég er ánægð með það að for- maðurinn skuli vera valinn með kosningu, en mér finnst samt sem áður að málefnin hverfi í skugg- ann á formannskjörinu, bæði á fundinum og í fjölmiðlum. Á landsfundi eiga málefnin að vera aðalatriðið. A þessum fundi hafa mörg góð mál verið afgreidd, en það kemst ekki til skila til al- mennings því fjölmiðlarnir klifa baraáformannskjörinu. Kannski er lausnin sú að formaðurinn verði framvegis kjörinn úti í fé- lögunum, en á fundinum var lögð fram tillaga þess efnis.“ KÓI. Formannskjörið of áberandi ✓ Agústa Guðmundsdóttir: Landsfundurinn hefði mátt afgreiða fleiri mál en raun ber vitni Ég er ánægð með þennan landsfund að öðru leyti en því að mér finnst að fleiri mál hefði mátt afgreiða á fundinum, sagði Ág- ústa Guðmundsdóttir um árang- ur landsfundarins. „Ég er sérstaklega óánægð með það að tillögur til laga- breytinga hafi verið settar í nefnd. Það á hreinlega að lengja landsfundinn ef ekki vinnst tími til þess að afgreiða öll inál. Ég hef nokkuð góða trú á því að nýkjörin forysta flokksins eigi eftir að vera málefnaleg og vinna vel saman. Annars finnst mér formannskjörið hafa verið of áberandi á þessum fundi. Ég er ekkert frá því að það væri skynsamlegast að miðstjórn kysi formanninn." KÓl. Markar viss tímamót Einar Már Sigurðsson, Neskaupstað: Allir leggist á eitt að efla Alþýðubandalagið - Landsfundurinn var býsna góður. Ég held að allir eigi að geta sætt sig við niðurstöðuna. Menn virtust almennt þokkalega sáttir, með örfáum undantekningum. Niðurstaða formannskjörsins var það afdráttarlaus að flokksfé- lagar munu styðja einhuga við nýjan formann, sagði Einar Már Sigurðsson, fulltrúi fyrir Norð- firðinga á landsfundinum. - Ég vona sannarlega að þess- ari niðurstöðu fenginni, að allir flokksfélagar, hvar í sveit sem þeir skipuðu sér, hafi það að markmiði að efla og stækka Al- þýðubandalagið, svo það verði hæfara til að standa undir því hlutverki sem því var í upphafi ætlað. Ég vil bara í þessu sambandi minna á og taka undir þá ósk frá- farandi formanns, að væringar áranna 1985 til 1987, heyri til undantekningar í sögu flokksins, sagði Einar Már. -rk Þrlðjudagur 10. nóvember 1987 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 13 Auglýsing frá landbúnaðarráðuneytinu um innflutn- ing jólatrjáa. Að gefnu tilefni vekur ráðuneytið athygli á því að samkvæmt 42. grein laga nr. 46/1985 er innflutn- ingur jólatrjáa óheimill nema með leyfi land- búnaðarráðuneytisins. Landbúnaðarráðuneytið 5. nóvember 1987 Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma Sveinsína Ágústsdóttir frá Kjós í Árneshreppi verður jarðsungin frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 11. nóvember kl. 13.30. Sigurbjörg Alexandersdóttir Eyjólfur Valgeirsson Kristín Guðmundsdóttir Skúli Alexandersson Hrefna Magnúsdóttir Alda Alexandersdóttir Stefán Kristjánsson barnabörn og barnabarnabörn Lestu , aðeins stjomarbkiðin? DJOÐVIUINN Höfuðmálgagn stjómarandstöðunnar Áskriftarsími (91)68 13 33. Augiýsið í Þjóðviljanum

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.