Þjóðviljinn - 10.11.1987, Blaðsíða 15
FRETTIR
Búnaðarfélag íslands
hefurráðið tilsín
sérmenntaðan mann
í fiskeldi
Fiskeldi
Lands-
ráðunautur
Sjóefnavinnslan
Hálfum milljarði aflétt
Sjóefnavinnslan skuldar 530 milljónir. Lagt til að létta
skuldum affyrirtækinu og selja hlut ríkisins. Hlutafé aukið
um 50 milljónir. Framtíðarspá gerir ráðfyrir aukningu kol-
sýrusölu vegna bjórsins
Skuldir Sjóefnavinnslunnar
voru um 530 milljónir í októ-
ber. Þessar miklu skuldir gera
framtíðarmöguleika fyrirtækis-
ins nánast enga. Hinsvegar gæti
Sjóefnavinnslan orðið arðbært
fyrirtæki ef skuldum væri létt af
félaginu og eftir stæðu skuldir
innan við 100 miHjónir króna,
segir í skýrslu, sem iðnaðarráð-
herra hefur látið gera um fjár-
hagslega endurskipulagningu
fyrirtækisins, og lögð hefur verið
fram á Alþingi.
í skýrslunni er lagt til að ríkis-
sjóður létti af félaginu öllum
skuldum við endurlánareikning
ríkissjóðs og Ríkisábyrgðasjóð,
samtals 520 milljónum króna svo
og skuld upp á 10 milljónir við
Sparisjóð Keflavíkur. í staðinn á
ríkissjóður að fá verðtryggt veð-
skuldabréf að fjárhæð 70
milljónir króna, sem beri 5% árs-
vexti og greiðist með jöfnum ár-
legum afborgunum á árunum
1991 til 1998.
Núverandi hlutafé félagsins er
40 milljónir og er lagt til að það
verði fært niður í 4 milljónir
króna, en ríkið á 84% í félaginu.
Þá er lagt til að hlutur ríkisins
verði seldur og að í kjölfar þeirra
breytinga verði hlutafé félagsins
aukið um 50 milljónir króna. Nýr
hlutur greiðist með fjórðungi við
kaup en eftirstöðvarnar með
verðtryggðu skuldabréfi til fimm
ára sem beri 5% ársvexti.
Hlutafjáraukninguna á að nota
alfarið til nýsköpunar og upp-
byggingar félagsins til að styrkja
rekstraiforsendur þess.
Tvær arðsemisáætlanir fylgja
skýrslunni og gerir önnur ráð
fyrir sölu kísl en hin ekki. Sam-
kvæmt þeim er gert ráð fyrir 7000
tonna saltframleiðslu sem seld
verður að mestu leyti á Reykja-
nesi. Þá er gert ráð fyrir að Sjó-
efnavinnslan hafi 45-55% af
kolsýrumarkaðinum næstu 2-3
árin en auki síðan hlutdeild sína
vegna nýrra markaða og er þar
m.a. minnst á að framleiðsla
bjórs og útflutningur á kolsýrðu
vatni geti haft veruleg áhrif á
stærð markaðarins í framtíðinni.
-Sáf
Búnaðarfélag íslands hefur nú
ráðið til sín sérmenntaðan ráðu-
naut í fiskeldi, Óskar ísfeld Sig-
urðsson. Að tilhlutan Óskars hef-
ur verið myndaður innan Búnað-
arfélagsins starfshópur í fiskeldi.
í honum eru auk Óskars, Magnús
Sigsteinsson bygginga- og bú-
tækniráðunautur, Haraldur
Árnason vatnsleiðsluráðunautur
og Ketill Hannesson hagfræði-
ráðunautur.
Fiskeldisráðunauturinn og
samstarfsmenn hans munu veita
þeim bændum, sem nú þegar
stunda fiskeldi eða hyggjast taka
það upp, leiðbeiningar um þessa
búgrein. Margar óskir hafa borist
um slíkar leiðbeiningar, bæði frá
bændum og öðrum víða um land.
Þurfa þeir félagar naumast að
kvíða aðgerðarleysinu.
Menntun sína hlaut Óskar ís-
feld Sigurðsson í Oslóarháskóla í
Noregi. Skrifstofa hans er í húsi
Búnaðarfélags íslands í Bænda-
höllinni.
- mhg
Landvernd
Höfuðborgarsvæðið
girtaf
Lengd girðingar 68 km. Kostnaður 15,4 millj.
Undanfarin fjögur sumur hafa
verið lagðir 36 km. af vönd-
uðum girðingum umhverfis þétt-
býli höfuðborgarsvæðisins, eldri
girðingar endurbættar, gerð fjöl-
mörg hlið og „prflur“ settar upp.
Skógrækt ríkisins hefur séð um
verkið, undir stjórn Kristins
Skæringssonar skógarvarðar, en
yfirumsjón með því hafði sérstök
girðinganefnd á vegum Samtaka
sveitarfélaga á höfuðborgarsvæð-
inu, undir formennsku Björns
Árnasonar bæjarverkfræðings í
Hafnarfirði. Lengd eldri girðinga
sem nú verða hluti af hinni nýju,
er 32 km. svo alls er girðingin 68
km. Ný hlið eru alls 22, nýjar
„prflur" 22 og skilti 44.
Heildarkostnaður við þessar
framkvæmdir er 15,4 millj. kr. á
verðlagi nú í sept. Skipting kostn-
aðar milli sveitarfélaga er með
þeim hætti að lengd nýrrar girð-
ingar innan viðkomandi
sveitarfélags ræður hálfri hlut-
deild en íbúafjöldinn hinum
helmingnum.
Margt vinnst við þessa fram-
kvæmd. Svæðið er varið fyrir
ágangi búfjár og þar með skapað-
ur grundvöllur fyrir aukna rækt-
un og gróðurvernd innan girðing-
arinnar. Hægt er að setja sam-
ræmdar reglur um lausagöngu
búfjár innan girðingar. Nokkur
sveitarfélög hafa þegar staðfest
slíkar samþykktir en önnur ljúka
því á komandi vetri. Loks má svo
fjarlægja tugi ef ekki hundruð
km. af gömlum girðingum, sem
nú eru innan hins friðaða svæðis.
- mhg
þJÓÐVILJINN
•49 68 13 33
Tímiim
68 18 66
49 68 63 00
Blaóburður er
I m 4
I m
og borgar sig
Hlíðar
BLAÐBERAR ÓSKAST í: Nýia miðbæ
Fellsmúla
Þriðjudagur 10. nóvember 1987 ÞJÖÐVILJINN - SÍÐA 19
Bakkahverfi (Breiðholti)
Seljahverfi
Ártúnsholt
Kópavog (vestur)
Kópavog (austur)
Smáíbúðahverfi
Fossvog
Vesturbæ
Seltjarnarnes
Hafðu samband við okkur
þJÓOVILJINN
Síðumúla 6
0 68 13 33