Þjóðviljinn - 12.11.1987, Blaðsíða 4
LEIÐARI
Fáum sem mest fyrir fískinn
Jón Sigurösson viöskiptaráðherra hefur
ákveðið að fjölga þeim aðilum sem leyfi hafa til
að flytja héðan út frystan fisk til Bandaríkjanna.
Viðbrögð Sjálfstæðis- og Framsóknarmanna
benda til að ráðherrar þurfi að ræða meira sam-
an. Þau vekja líka enn á ný spurningar um hvað
stjórnarflokkarnir sömdu um við myndun ríkis-
stjórnarinnar. Voru virkilega engin mál sem Al-
þýðuflokkurinn tryggði að næðu fram að ganga
áður en hann framlengdi lífdaga ríkisstjórnar
Framsóknar og Sjálfstæðisflokks?
í rauninni ætti það litlu að skipta hvort nýjar
leyfisveitingar hefðu verið látnar bíða þess að
alþingi samþykkti að utanríkisviðskipti heyri
undir utanríkisráðherra en ekki viðskiptaráð-
herra. Eða er það kannski svo að ríkisstjórnin
hafi enga sameiginlega stefnu og allt sé undir
því komið hvaða ráðherra vélar um málin hverju
sinni? Sé málum þannig farið, hafa leyfisveit-
ingar Jóns Sigurðssonar lítið að segja. Þær
gilda bara í hálft ár og verða líklega ekki endur-
nýjaðar að þeim tíma liðnum ef utanríkisráð-
herra er persónulega á móti því og þarf ekki að
lúta neinu samkomulagi stjórnarflokkanna.
Um áratuga skeið hefur útflutningi á frystum
fiski til Bandaríkjanna verið þannig háttað að tvö
fyrirtæki, Sjávarafurðadeild SÍS og Sölumið-
stöð hraðfrystihúsanna, hafa haft einkaleyfi til
að stunda þau viðskipti. Fyrir nokkrum árum
bættist þriðja fyrirtækið, íslenska umboðssalan,
í hópinn en það er mun smærra en hin tvö og
hefur ekki ógnað veldi þeirra svo orð sé á ger-
andi.
Til að rökstyðja nauðsyn á einkaleyfum til
útflutnings á frystum fiski til Bandaríkjanna hef-
ur stundum verið beitt þeim rökum sem á sínum
tíma leiddu til stofnunar Sölusambands ís-
lenskra fiskframleiðenda. Til að koma í veg fyrir
að íslenskir útflytjendur græfu hver öðrum gröf í
harðri samkeppni var stofnað sölusamband,
SÍF, sem hefur enn einkarétt á útflutningi á
saltfiski. Almennt er talið að þetta fyrirkomulag
hafi lukkast allvel og að þess hafi verið gætt að
ýttt væri undir nýjungar á sviði saltfiskfram-
leiðslu eins og sjá má t.d. af svokölluðum tand-
urfiski. Þær eru ekki ýkja margar raddirnar sem
kalla eftir kerfisbreytingum á saltfisksölu en hið
sama verður ekki sagt um útflutning á frystum
fiski einkum á Bandaríkjamarkað. Kröfurnar um
endurskoðun á því sviði hafa orðið æ háværari.
Með markvissri uppbyggingu á tímum Ný-
sköpunarstjórnarinnar varð frystur fiskur mikil-
vægasta útflutningsvara íslendinga. Tvískipt-
ingin milli Sölumiðstöðvarinnar og SÍS hefur
dregið nær öll frystihús landsins í tvo dilka. Þau
eru Sambandshús eðaSH-hús. Langflestirtog-
arar eru með einum eða öðrum hætti tengdir
ákveðnum fiskvinnslustöðvum, mjög oft er ein-
faldlega um sama eigandann að ræða. Þannig
hefur legið við að flokka mætti togarana í Sam-
bandstogara og SH-skip.
Samkeppni milli SH og Sambandsins hefur
ekki verið mikil áyfirborðinu. Þaðerekki unnt að
nefna mörg dæmi um fiskvinnsluhús sem hafa
skipt um söluaðila nema viðkomandi fyrirtæki
hafi skipt um eigendur. Aftur á móti hefur mátt
heyra atganginn í þessum risum er þeir hafa
verið að tryggja „sínurn" húsum hráefni með því
að hafa hönd í bagga við eigendaskipti á fiski-
skipum. í þeim efnum er fleira talið vera uppi á
teningnum en ákvörðun um hvar kaupa á olíu á
viðkomandi skip.
Bandaríkjadalur hríðfellur og útflutningur til
Bandaríkjanna hefur minnkað hlutfallslega.
Vöruþróun vegna framleiðslu á Bandaríkja-
markað hefurverið takmörkuð, samkeppni milli
risanna tveggja, SH og Sambandsins, hefur
verið dulin og tæpast mælst í skilaverði.
Það gæti því orðið aðaliðnaði okkar, fisk-
vinnslunni, til góðs að fjölga núna þeim aðilum
sem annast sölu á frystum fiski til Bandaríkj-
anna. Ekki vegna þess að algjört frelsi í verslun
og viðskiptum sé takmark í sjálfu sér, líkt og
postular frjálshyggjunnar halda fram, heldur
vegna þess að fjölgun útflytjenda hentar okkur í
dag og gæti orðið hvati til nýsköpunar.
Hitt er alvarlegt mál, ef þessi fjölgun verður til
þess að útlend fyrirtæki seilist til valda í þessari
mikilvægu viðskiptagrein, og það ber ríkis-
stjórninni að stöðva strax. ÓP
KLIPPT OG SKORIÐ
Merk skjöl
Fréttir um bandarísku skýrsl-
urnar í fórum norska sagnfræö-
ingsins Dags Tangenes hafa vak-
ið verðskuldaða athygli hér-
lendis. Upplýsingar þar um
þankagang bandarískra stjórn-
valda bæta við þá mynd sem sem
menn gerðu sér af baktjaldaat-
burðum áranna þegar íslending-
um var þröngvað inní Atlants-
hafsbandalagið og herinn kom
aftur, - og hafði þó aldrei farið
almennilega.
Skrítið að af fjölmiðlunum
skyldu aðeins Þjóðviljinn og DV
verða til þess að taka upp þráðinn
úr ríkisútvarpinu. Þessir papp-
írar norska sagnfræðingsins eru
fengnir beint úr skjalasafni Tru-
mans Bandaríkjaforseta, og það
er óljóst með hvaða hætti norski
sagnfræðingurinn komst yfir þá,
óljóst hvort þeir falla undir
bandarísk lög um opinberun
leyndarskjala eða falla í þann
flokk viðkvæmra pappíra sem
aldrei sjá dagsins ljós nema af til-
viljun.
CIA og ísland
Sumt innihald þeirra er þannig
að grunur vaknar um að ekki hafi
átt upp að komast, - nefnilega
upplýsingarnar um samskipti
bandarísku leyniþjónustunnar
við forystumenn í verkalýðshrey-
fingu og krataflokki í Noregi og á
íslandi.
Hérlendis reka menn til dæmis
upp stór augu við að sjá það svart
á hvítu í bandarískum skjölum að
íslenskur forsætisráðherra úr Al-
þýðuflokknum, Stefán Jóhann
Stefánsson, hafi átt reglulega
fundi með sendiherra heimsveld-
isins og yfirmanni leyniþjónustu-
deildar sendiráðsins. Að íslensk-
ur sósíaldemókrati í æðstu vald-
astöðu skuli hafa unnið með
CIA.
Þessar nýju skýrslur eiga það
sammerkt með fyrri leyndar-
skjölum að vestan að kasta
löngum skugga á ýmsa helstu for-
ystumenn í íslenskum
stjórnmálum á þessum tíma.
Bandarísku leyniskjölin segja,
fullum fetum eða undir rós, að
ráðherrar, flokksleiðtogar og
þingmenn hafi ýmist gerst sekir
um lagalegt eða siðferðilegt mis-
ferli með ósæmandi samvinnu
eða þjónkun við erlent stórveldi.
Þau segja að ákveðnir
stjórnmálamenn hafi unnið með,
ef ekki á vegum, bandarísku
leyniþjónustunnar.
Þau segja að íslenskir
stjórnmálamenn hafi rætt í fullri
alvöru og dauðhræddir við út-
sendara erlends herveldis um
hættu á því að Sósíalistaflokkur-
inn hygði á vopnaða valdatöku, -
flokkur sem þá hafði í rúman ára-
tug átt fjölmenna sveit kjörinna
fulltrúa á alþingi og í sveitar-
stjórnum og meðal annars mynd-
að ríkisstjórn með sósíaldemó-
krötum og íhaldsmönnum.
Þau segja að íslenskir
stjórnmálamenn hafi beðið
helsta stórveldi veraldar um að
senda sér herlið til varnar fyrir
samlöndum sínum.
Þau gefa ennfremur í skyn að
íslenskur stjórnmálamaður hafi
haft samráð við bandarísku leyni-
þjónustuna og samstarfsmenn
hennar á Norðurlöndum í innan-
flokksátökum.
Óþolandi staða
Stefán Jóhann Stefánsson,
Eysteinn Jónsson, Bjarni Bene-
diktsson, Ólafur Thors, Emil
Jónsson, Hermann Jónasson,
Steingrímur Steinþórsson og
margir fleiri eru með leyndar-
skjölunum settir í óþolandi stöðu
grunaðra manna. Óþolandi fyrir
vini þeirra og vandamenn, en
ekki síður fyrir íslensku þjóðina,
því að þessir menn eru ásamt
oddvitum sósíalista og vinstri-
manna í Alþýðuflokki helstu
leiðtogar íslendinga um árabil.
Því miður bendir margt til þess
að eitthvað sé í pokahorninu, sér-
staklega formlegur gangur mála
kringum inngönguna í Nató og
komu hersins þarsem þingið var
sett útaf sporinu og þjóðin ekki
spurð álits; mennirnir sem nokkr-
um árum áður sóru við allt sem
þeim var heilagt að standa á móti
vestrænni ásælni laumuðust með
veggjum eða ferðuðust undir lög-
regluvernd.
Það er hinsvegar eitt að taka
ranga og vonda pólitíska ákvörð-
un undir þrýstingi, með hnífinn á
barkanum einsog það var orðað á
sínum tíma. Og annað að hafa
starfað með ármönnum erlends
valds eða á vegum þeirra með
þeim hætti að nálgast lagaákvæði
um landráð.
Það hefur verið þráspurt um
íslenskar heimildir frá þessum
tíma, um opinber íslensk skjöl
sem gætu annaðhvort staðfest
frásagnir Bandaríkjamanna eða
kippt undan þeim fótunum. Um
heimildir sem þjóðin geti tekið
mark á og losuðu leiðtoga þess-
ara tíma undan áburðinum að
vestan, - eða staðfestu hann í ein-
hverjum tilvikum.
Stórfrétt
frá Steingrími
Hingaðtil hafa svör íslenskra
ráðamanna við þeim spurningum
ekki verið nein, í þeim kansellí-
anda að almenningi komi ekkert
við hvernig honum sé stjórnað,
með því viðhorfi að fslendingum
komi saga sín ekki við nema í rit-
skoðaðri hátíðaútgáfu.
Þessi ankannalegi hugsunar-
háttur gerir að verkum að í raun-
inni verður stórfrétt úr þeim sak-
leysislegu viðbrögðum Stein-
gríms Hermannssonar utanríkis-
ráðherra í Þjóðviljanum í dag að
þjóðin eigi rétt á að vita hvernig
að þessum samningum við stór-
valdið var staðið á sínum tíma.
Og það er undarlegt að finna
sig knúinn til að fagna sérstaklega
þegar Steingrímur lýsir þeirri
skoðun sinni að á íslandi eigi að
vera til reglur um opinbera birt-
ingu 30-40 ára gamalla þjóð-
skjala.
Undarlegast er þó að persónu-
legir og pólitískir .andendur
þeirra manna st .1 enn liggja
undir grun skuli ekki hafa verið
fremstir í þeim hópi sem biður
um að fá að sjá sannleikann í
þessurn efnum. -m
þlÓÐVIUINH
Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis
og verkalýðshreyfingar
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans.
Framkvæmdastjórl: Hallur Páll Jónsson.
Rltstjórar: Ámi Bergmann, össurSkarphéöinsson.
Fréttastjórl: Lúövík Geirsson.
Blaöamenn: Elísabet K. Jökulsdóttir, Guðmundur Rúnar Heiðarsson,
Hrafn Jökulsson, HjörleifurSveinbjömsson, Kristín Ólafsdóttir,
Kristófer Svavarsson, Logi Bergmann Eiðsson (íþróttir), Magnús H.
Gíslason, MörðurÁrnason, ólafurGíslason, RagnarKarlsson,
SigurðurÁ. Friðþjófsson, Vilborg Davíðsdóttir.
Handrita- og prófarkalestur: Elías Mar, Hildur Finnsdóttir.
Ljó8myndarar: EinarÓlason, SigurðurMarHalldórsson.
Útlltsteiknarar: Sævar Guðbjörnsson, Garðar Sigvaldason, Margrét
Magnúsdóttir.
Skrifstofustjóri: Jóhannes Harðarson.
Skrlfstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Kristín Pétursdóttir.
Auglýsingastjórl: Sigríður Hanna Sigurbjörnsdóttir.
Auglýsingar: Unnur Agústsdóttir, Olga Clausen, Guðmunda Krist-
insdóttir.
Sfmavarsla: Hanna Ólafsdóttir, Sigríður Kristjánsdóttir.
Bílstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir.
slu- og afgrelðslustjórl: Hörður Oddfríðarson.
sla: G. MargrótÓskarsdóttir.
sla: Halla Pálsdóttir, Hrefna Magnúsdóttir.
itumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, ÓlafurBjörnsson.
ila, afgreiðsla, rltstjórn:
ila 6, Reykjavík, síml 681333.
Ingar: Síðumúla 6, símar 681331 og 681310.
_ . . i_____ bMAuillono hf
Verð í lau&asölu: 55 kr.
Helgarblöð: 65 kr.
Áekriftarverö á mánuði: 600 kr.
4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 12. nóvember 1987