Þjóðviljinn - 13.11.1987, Síða 11
Umsjón:
Magnús H.
Gíslason
Skálholt
Námskeið og
ráðstefnur
Gerðar verði tillögur umframtíðar-
starfsemi skólans
Fyrir Kirkjuþingi iá tillaga frá
dr. Gunnari Kristjánssyni þess
efnis, að Skálholtsskóla verði
breytt í menningarmiðstöð, þar
sem efnt yrði til ráðstefna og
námskeiða af ýmsum toga. Það
starf er raunar þegar hafið og
þykir hafa gerist með ágætum.
Frá tillögu dr. Gunnars hefur
áður verið greint hér í blaðinu,
með ítarlegri hætti en nú.
Allsherjarnefnd þingsins fjall-
aði um málið á tveimur fundum
og kvaddi sér til ráðuneytis rekt-
or Skálholtsskóla. Lagði síðan
fyrir þingið ályktun, sem sam-
þykkt var samhljóða. Þar er
Kirkjuráði falið að beita sér fyrir
eflingu námskeiða- og ráðstefnu-
halds Skálholtsskóla um málefni
kirkju og þjóðlífs. Æskilegt er
talið að Kirkjuráð skipi 3ja
manna starfsnefnd, er geri til-
lögur um framtíðarstarfsemi
skólans í samráði við þá aðila,
sem tilnefna fulltrúa í skóla-
nefnd.
-mhg
Kirkjuþing
Kirkjuráð fái
starfsmann
til að ýta á eftir málum
Kirkjuþing vísar jafnan mikl-
um fjölda mála til Kirkjuþings,
sem því er ætlað að annast af-
greiðslu á í ýmsar áttir og fylgja
því eftir, að þau fái framgang.
Það getur oft verið tafsamt
verk og torsótt að þoka málum
áfram gegnum flókið og á stund-
um þunglamalegt embættis-
mannakerfið. Er í rauninni ekki
hægt að búast við því að önnum
kafnir Kirkjuráðsmenn geti ann-
að þessum tímafreku störfum í
einskonar ólaunaðri yfirvinnu.
Tillaga var nú flutt á Kirkju-
þingi þess efnis, að Kirkjuráð
ráði sér starfsmann í a.m.k. V4
starf fram að næsta Kirkjuþingi
til að sinna úrvinnslu þeirra mála,
sem vísað er til ráðsins. Er þess
jafnframt vænst, að með nýrri
skipan á starfsmannahaldi Bisk-
upsstofu leysist þessi mál farsæl-
lega.
Kirkjuþing samþykkti að vísa
málinu til biskups og Kirkjuráðs
þar sem enn sé ekki ljóst hvaða
breytingar á starfsmannahaldi á
Biskupsstofu muni hafa í för með
sér. En þar til þau mál skipast er
lagt tii að biskup og Kirkjuráð
ráði sér starfsmann eftir því, sem
þörf krefur og ástæða þykir til.
- mhg
yn? 15/* i t x|
Skálholtskirkja. Kirkjuþing fól Kirkjuráði að efla námskeiða- og ráðstefnuhald í Skálholti um málefni kirkju og þjóðllfs.
Samvinna
Samstarf kirkju og skóla
Stormahlé
Skjólbelti
í kirkju-
görðum
Grafreitir hafa lengi og víða
verið vanhirtir. Þó hefur umtals-
verð breyting orðið þar á síðan
ráðinn var sérstakur umsjónar-
maður kirkjugarða, en hann hef-
ur unnið mjög gott starf.
Sr. Árni Sigurðsson flutti til-
lögu á Kirkjuþingi þar sem
skorað er á sóknarnefndir að
beita sér fyrir ræktun skjólbelta í
og umhverfis kirkjugarða. Flutn-
ingsmaður bendir á að skjólbeltin
skapi skjól og hlé fyrir blóm og
aðrar jurtir. Þá leggur hann og til
að blóm og annar lággróður verði
gróðursettur á leiði fremur en
trjáplöntur, sem með tímanum
beri umhverfi sitt ofurliði.
Kirkjuþing samþykkti í einu
hljóði tillögu sr. Árna Sigurðs-
sonar. - mhg
- Ég hef ekki trú á þvj að skóla-
menn vilji aimennt segja að kirkj-
an eigi að fara á elliheimili, sagði
dr. Einar Þór Þorsteinsson þegar
hann mælti á Kirkjuþingi fyrir
tillögu sinni um aukið samstarf
kirkju og skóla.
Það má til sanns vegar færa að
kirkjan sé móðir skólanna því að
á hennar vegum voru fyrstu
skólarnir stofnaðir, sagði sr. Ein-
ar. Og prestar höfðu umsjón með
fræðslunni. Með fræðslulögunum
upp úr aldamótunum og stofnun
Kennaraskólans færðist þetta yfir
á kennarana og jafnframt var
prestum fækkað. Dregið hefur úr
samstarfi presta og kennara. Það
er ekki góð þróun.
Sr. Einar Þór Þorsteinsson tel-
ur að auka þurfi samstarf kirkju
og skóla um kristindóms- og
önnur menningarmál, og í því
skyni sé æskilegt að komið verði á
fót samstarfsnefnd þessara aðila.
Kirkjuþing féllst á tillögu sr.
Einars og fól Kirkjuráði að leita
samstarfs við Kirkjufræðslu-
nefnd um hvernig best megi
tryggja þetta samstarf í framtíð-
inni.
- mhg
Kirkjuþing
Ráðning söngmálafulttrúa
Lítið er um það að tónlistar-
menn, sem útskrifast hafa úr
skólum hérlendis, komi til starfa
úti á landi. Erlendir tónlistar-
menn hafa oft hlaupið þar undir
bagga. En það er ekki eðlilegt
ástand að við þurfum að sækja
kirkjuorganista til Ungverjalands
eða Júgóslavíu.
Þannig fórust þeim m.a. orð
fulltrúum Austurlands á Kirkju-
þingi, sr. Einari Þór Þor-
steinssyni og Guðmundi Magn-
ússyni, en þar fluttu þeir tillögu
um að ráðinn yrði söngmálafull-
trúi við embætti söngmálastjóra.
Skal hann heimsækja söfnuði og
efla kirkjusöng m.a. með nám-
skeiðahaldi fyrir organista og
söngfólk úti á landi. Söngmála-
fulltrúar hafa nú verið ráðnir í öll
prófastsdæmi landsins og eru þeir
umboðsmenn söngmálastjóra.
En þessir menn eru launalausir
og naumast hægt að ætlast til að
þeir geri mikið að því að standa
fyrir námskeiðum. Söngmála-
stjóri hefur sinnt þessum málum
svo sem hann hefur ýtrustu tök á
en það er alger ofætlun einum
manni með öðrum þeim störfum,
sem embættið leggur honum á
herðar.
Kirkjuþing lýsti sig samþykkt
tillögunni og telur brýnt að ráð-
inn verði aðstoðarmaður söng-
málastjóra og fleiri raddþjálfarar
í samræmi við heimild í lögum um
söngmálastjóra og Tónskóla
Þjóðkirkjunnar.
Kirkjukórasamband íslands
hefur lýst fylista stuðningi við
þessa tillögu.
- mhg
Föstudagur 13. nóvember 1987 pJÓÐVILJINN - SÍÐA 11
Prófastar
Skortir
skýrari
ákvæði
i
80 ára gömlum lögum um
laun prófasta segir m.a.: Prestar
tilnefna prófastsefni á sama hátt
og nú, en landsstjórnin skipar
prófasta með ráði biskups".
Hér þykir nokkuð óljóst til
orða tekið, enda hefur umrædd
lagagrein ekki ávallt verið túlkuð
á einn veg. Ekki er að finna
ákvæði um rétt prófasta tii að út-
nefna eftirmann sinn, enda hefur
það verið útfært á tvo vegu, eftir
því hvaða biskup hefur átt hlut að
máli.
Sr. Þórhallur Höskuldsson
flutti tillögu á Kirkjuþingi þar
sem skorað var á kirkjumálaráð-
herra að beita sér fyrir breytingu
á hinum aldurhnignu lögum í þá
átt, „að nánar verði kveðið á um
tilnefningu og skipun prófasta“.
Kirkjuþing samþykkti tillögu
sr. Þórhalls en áréttaði einnig
nauðsyn þess að „gengið verði
endanlega frá frumvarpi um
starfsmenn þjóðkirkjunnar og
það gert að lögum“.
- mhg